Morgunblaðið - 19.07.1963, Page 8
8
MORCUISBLAÐIÐ
Föstudagur 19. júlí 1963
Undirbúningur hafinn að endurskipu-
lagningu menntaskólastigsins
Rætt við Þórarin Björnsson, skólameistara á Akureyri
MIÐSKÓLADEIL.D með lands-
prófsundirbúningi er nú að
hverfa úr Menntaskólanum á Ak-
ureyri vegna þrengsla. 1. bekkur
deildarinnar var lagður niður
haustið 1962, 2. bekkur verður
lagður niður nú í haust, og lands
prófsbekkur að ári. Verður skól-
inn þá orðinn fjögurra ára skóli,
eins og menntaskólarnir í Reykja
vík og á Laugarvatni.
Frá þessu skýrði Þórarinn
Björnsson skólameistari Mennta
skólans á Akureyri, er blaðamað
ur Mbl. ræddi við hann um starf
skólans o. fl.
— Mér finnst skólinn í sjálfu
sér nógu fjölmennur, sagði skóia
meistari, og ég legg þess vegna
ekki áherzlu á, að hann verði
stækkaður til þess að fleiri nem
endum verði komið fyrir. Á sl.
vetri stunduðu 444 nem. nám í
skólanum, »g ég reikna með, að
á næsta vetri verði nemendafjöid
inn ámóta. Skólinn brautskráir
nú um 70 stúdenta á ári, en eftir
2 ár mun árlegur stúdentafjöldi
verða um 100. Til samanburðar
má geta þess, að fyrir nokkrum
árum útskrifuðust um 50 stúdent-
ar frá Menntaskólanum á Akur-
eyri. Þessi mikla fjölgun braul-
skráðra stúdenta stafar einkum
af því, að miklu fleiri stúlkur
afla sér nú stúdentsmenntunar
en áður var, en láta mun nærri,
að þriðjungur nemenda skólans
sé stúlkur. Hins vegar er ekki
mjög mikið um, að þ er ljúki há-
skólanámi, sennilega ekki miklu
fleiri nú en meðan færri stúlkur
luku stúdentsprófi. Áður var,
eins og þær stúlkur, sem á annað
borð Iuku menntaskólanámi,
hyggðu frekar á háskólanám, en
nú virðist sem þær liti fremur
á stúdentsmenntunina sem al-
menna menntun.
Á Þörf fyrir sérkennslustofur
— Eru fyrirhugaðar einhverj
ar framkvæmdir við skólann á
næstu árum?
— Ljóst er, að byggja þarf við
skólann í náinni framtíð, en þær
framkvæmdir hafa enn ekki ver
ið ákveðnar í einstökum atriðum.
Nú er t.d. ekki lengur rúm fyrir
alla nemendur skólans á sal. Auk
þess vantar allar sérkennslustof
ur, t.d. fyrir náttúrufræði- eðl
isfræði- og málakennslu. íslenzk
ir skólar hafa dregizt aftur úr í
þessum efnum, og úr því verður
að bæta svo fljótt sem unnt er.
Hins vegar tel ég ekki eins knýj-
andi að stækka heimavist skól-
ans í bráð, a.m.k. verða aðrar
framkvæmdir að ganga fyrir,
enda er sennilega skynsamlegra
að stækka fyrst heimavistina við
Menntaskólann á Laugarvatni
Nú geta búið 175 nemendur á
heimavist Menntaskólans á Akur
eyri, og er hún meira en full-
skipuð. Á biðlista munu nú um
50, sem enn hafa ekki getað feng
ið loforð fyrir heimavistarrúmi
næsta vetur.
Nefnd skipuð til að endur-
skipuleggja menntaskóla-
stigið.
— Hafa á undanförnum ár-
um verið teknar upp nokkrar
nýjungar í kennslu við skóla yðar
eða eru nokkrar slíkar breyting
ar í undirbúningi?
— Nei, við höfum verið heldur
varfærnir í þessum efnum. Hins
vegar er nú í undirbúningi endur
skipulagning á öllu menntaskóla-
stiginu, og koma nýjungar í
kennsluháttum að sjálfsögðu til
athugunar í sambandi við þá
endurskipulagningu. Mennta-
málaráðherra hefur nýlega skip
að sérstaka nefnd í þessu skynt,
sem í eiga sæti skólastjórar
þeirra fimm skóla, sem nú hafa
rétt til að brautskrá stúdenta,
rektor Háskóla íslands og ráðu-
neytisstjóri menntamálaráðuneyt
isins. Formaður nefndarinnar,
sem fyrir skemmstu kom saman á
sinn fyrsta fund, er Kristinn Ár
mannsson rektor Menntaskólans í
Reykjavík. Má gera ráð fyrir, að
starf nefndarinnar muni taka all
langan tíma. Fyrst í stað mun
hún viða að sér gögnum um
stúdentsmenntun í öðrum lönd-
um, og sjálfsagt munu tillögur
hennar að lokum mótast af þeim
að verulegu leyti. Þau atriði, sem
einkum munu koma til athugun-
ar, eru t.d. fjölgun deilda — og
þá sennilega þannig, að náttúru-
fræðideild verði sett á stofn auk
máladeildar og stærðfræðideild-
ar, sem fyrir eru — aukið val-
frelsi milli námsgreina, breyting
ar á kennsluháttum og breyting-
ar á námsefni.
Það er alltaf verið að tala um,
að breyta þurfi skólakerfinu og
kennsluháttum vegna þeirra
miklu breytinga, sem á öllu hafi
orðið síðustu áratugi. Sjálfsagt
á þessi skoðun við rök að styðj-
ast, en hitt má þó aldrei gleym-
ast, að aðalatriðið við- allt nám
er hið sama og það hefur alltáf
Þórarinn Björnsson, skolameistari.
verið, þ.e. að menn einbeiti sér I nemendurnir að leggja til sjálf
að því, og einbeitinguna verða | ir, þrátt fyrir alla tækni, þó að
ef til vill megi styðja þá eitt-
hvað til þess. Að vísu hefur
aldrei verið jafnmargt til að
glepja fyrir mönnum og einmitt
nú, og þess vegna er e.t.v. eðli-
legt, að menn eigi erfiðara með
að einbeita sér að viðfangsefnun
um. En einbeitningin er fyrir
öllu.
— Það hefur nokkuð verið
um það rætt að æskilegt sé að
lækka stúdentsaldurinn, þannig
að menn ljúki stúdentsprófi 17
til 18 ára í stað 20 ára, eins og
nú er algengast. Haldið þér, að
þessi tillaga muni koma til at-
hugunar við endurskipulagningu
menntaskólastigsins, og hvert er
yðar álit á þessu máli?
— Já, þetta verður sjálfsagt
eitt af þeim atriðum, sem nefnd
in mun taka til gaumgæfilegrar
athugunar. Lækkun stúdentsald
ursins hefur bæði sína kosti og
sína galla. Það er auðvitað hag-
kvæmt fyrir þá, sem hyggja á
langt nám eftir stúdentspróf, að
geta hafið það fyrr en nú er unnt.
En hins er einnig að gæta, að
ekki hafa allir náð þeim þroska
17—18 ára, að þeir geti gert sér
grein fyrir, hvaða framhaldsnám
er helzt við þeirra hæfi og gætu
þar af leiðandi lent á rangri hillu.
Hins vegar er vitaskuld æski-
legt — þrátt fyrir þessa hættu
— að sá möguleiki sé
fyrir hendi, að menn geti haf-
ið háskólanám fyrr en nú er,
ekki sízt, þegar haft er í huga,
að háskólanám hefur yfirleitt
lengzt nokkuð. Annars er eg
þeirrar skoðunar, að það væri
jafnvel auðveldara að stytta
námstímann á lægri námsstiguu
um, t.d. í barna- og gagnfræða-
skóla. En ég hefi ekki mikla trú
á því, að allur þorri nemenda
geti lokið sjálfu menntaskóla-
náminu á skemmri tíma en nú er
varið til þess.
PIATIGORSKY-SKAKMIOTIÐ
FRIÐRIK gegn GLIGORIC- og klukkunni
f BÁÐUM skákunum, sem á eftir 1. e4 c5
fara, tefldum í fyrstu umferð 2. Rf3 d6
mótsins, var tíminn og tímamæl- 3. d4 cxd
irinn einskonar þungamiðja í 4. Rxd Rf6
leiknum. Einkum hrjáði tíma- 5. Rc3 a6
leysið þá Friðrik og Reshevsky, 6. Í4 Dc7
sem höfðu báðir hvítt, en svo 7. Bd3 g6
lenti Gligoric úti í sömu hringið- 8. Rf3 R8d7
unni áður en lauk. — Tímamörk- 9. O—O Bg7
in eru minnst 40 leikir á 2% klst. 10. Del e5
fyrir hvorn aðila, eða á 5 stund- 11. a4 O—O
um fyrir báða saman. 12. Khl b6
13. Dh4 Bb7
ÞRIÐJA SKÁK 14. Bd2 Hae8
(Sikileyjarvörn) 15. Hael Dc5
Hv.: Friðrik. Sv.: Gligoric 16. fxe dxe
Að loknum 22 leikjum átti 17. b3 Rh5
Friðrik aðeins 10 mín. eftir fyrir 18. Bc4 Rdf6
næstu 18 leiki, en hinsvegar var 19. Df2 Dc7
Gligoric vel byrgur, átti rúma 20. Dgl Hb8
klukkustund. En Friðrik hafði 21. Be3 Ba8
hótanir í frammi, svo að Gligoric 22. Bcl Hfd8
þurfti í mörg horn að líta, og þá 23. Rg5 Hd7
tók að skálpast á tímann hjá hon- 24. Hdl h6
um líka. 25. HxH DxH
í næstu 5—6 leikjum tókst 26. Rxf Kh7
Friðrik að vinna peð, en þá var 27. Rxe De8
hann líka að verða búinn með 28. Rf3 Rxe
tíma sinn. Litlu síðar var Gligoric 29. RxR DxR
einnig kominn á heljarþröm að 30. Bd3 Dg4
tímanum til, átti óeytt tæpri min- 31. De3 Hf8
útu, þegar ólokið var 8 leikjum. 32. Ba3 Hf4
Og staðan var síður en svo ein- jafntefli
föld.
Aðalskákstjórinn, Isaac Kash-
dan, sem er bandarískur stór-
meistari nokkuð við aldur, var
með lífið í lúkunum ekki síður en
keppendurnir, og fylgdi hann á-
kafur eftir nreyfingu klukkuvís-
anna og einnig ritun leikja á
skákeyðublöðin. Allt í einu datt
á dúnalogn. Friðrik bauð jafn-
tefli, og Gligoric þáði boðið án
þess að hika.
Staðan var tvímælalaust Frið-
rik í vil, en margt hefði getað
hent í 8 leikjum, leiknum af leiftr
andi hraða í æsingu augnabliks-
íns.
FJÓRÐA SKÁK
(Kóngs-indversk-vörn)
Hv.: Reshevsky. Sv.: Benkö
Þessi skák varð hin fyrsta,
sem krafðist beinna afskipta og
úrskurðar skákstjóranna, og þar
átti tímaþröngin hlut að máli.
Reshevsky fékk greinilega
betra tafl upp úr byrjunarleikj-
unum. Drottning hans og hrókar
brutust fram á drottningarvæng,
þar sem peð Benkös voru veik
fyrir. Benkö tókst þó að finna
leið til að króa annan hvíta hrók-
inn inni, og virtist það geta kom-
ið honum að haldi. Reshevsky
rak upp stóru augu, tók svo ró-
legur peð með þessum sama hrók
og lét hann svo litlu síðar fyrir
biskup.
Fáeinum leikjum seinna rétt-
lætti Reshevsky fórnina með því
að hremma tvö peð til viðbótar,
og var hann þar með orðinn lið-
sterkari. En þetta hafði kostað
hann bollaleggingar og tíma, svo
að hann átti aðeins örfáar sek-
úndur eftir.
Hann lauk 40. leik sínum með
fallvísinn á fremstu nöf, en stað-
an var enn hagstæð honum. —
Benkö lék að bragði, þrýsti sam-
stundis á gangsetjarann á klukku
andstæðingsins og um leið datt
fallvísirinn þeim megin. Benkö
gerði þá kröfu til að hafa unnið
skákina á tíma.
Skákstjórarnir úrskurðuðu að
Reshevsky væri kominn heilu og
höldnu yfir tímamörkin. Tóku
þeir fram að hver og einn yrði að
bera fram umkvörtun í sínum
eigin tíma, og því hefði Benkö
átt að gera það áður en hann lék
sjálfur, og þar með áður en vísir
Reshevskys féll fram af nöfinni.
Við nánari aðgæzlu kom í ljós,
að Benkö hafði mistalið leikina
og álitið að þeir væru aðeins 39.
Þegar ólguna lægði, innsiglaði
Reshevsky 41. leik sinn sem bið-
leik, og svo fór að Benkö sá sitt
óvænna og gaf skákina án þess
aá setjast við hana að nýju. O-
hætt er að segja, að hér skildu
ekki nema 1—2 sekúndur milli
þess, hvoru megin vinningurinn
lentL
1. c4 Rf6
2. d4 g6
3. g3 Bg7
4. Bg2 c5
5. d5 d6
6. Rc3 a6
7. a4 O—O
8. Rf3 e5
9. O—O Re8
10. e4 Bg4
11. Db3 BxR
12. BxB Rd7
13. Bg2 a5
14. Rb5 Ha3
15. Bd2 Rc7
16. Ha3 RxR
17. DxR Ha7
18. Bh3 Rf6
19. f3 Dc7
20. Hb3 Hb8
21. Db6 DxD
22. HxD Bf8
23. Hal Be7
24. Ha3 Bd8
25. Hxd Re8
26. Hd7 Rf6
27. Hd6 Re8
28. Hd7 Rf6
29. HxBf HxH
30. Bc3 Rd7
31. Hb3 Í6
32. Hb5 Kf7
33. 1>3 Ke7
34. Bxa b6
35. Bxb RxB
36. HxR Hd6
37. Hb5 Hc7
38. Kf2 Ha6
39. Ke3 Kd6
40. Kd3 Hca7
Hér fór skákin I bið, eftir að
Reshevsky hafði innsiglað bið-
leikinn: 41. Bc8, — en Benkð
kærði sig ekki um meira, heldur
gaf skákina. Honum hefur ekkl
litizt á öll átta peðin hans Res-
hevskys, og lái honum það hver
sem vill.
Næst lítum við á skákir úr ann
arri umferð, þegar Gligoric bar
sigurorð af heimsmeistaranum,
og Keres vann Benkö.
B. P.