Morgunblaðið - 19.07.1963, Side 14

Morgunblaðið - 19.07.1963, Side 14
14 MORGUNBLAÐtÐ FSstudagur 19. júlí 1963 KAUPMANNAHÖFN Gautaborg — Malmö — Osló. 23. júlí til 2. ágúst. Einstakt tækifæri; 11 daga ferð. Kr. 8.950,00. INNIFALIÐ: 1. Flugferðir 2. Gistingar 3. Morgunmatur 4. Söluskattur FERÐAÁÆTLUN: Flogið á fyrsta degi tíl Gautaborgar. Einn dag i Malmö, sex dagar í Kaupmannahöfn og að lokum 2 dagar í Osló. ÓDYRASTA IITAINILANDSFERÐ SUMARSIIMS Aðeins sex sæti laus. FERDASKRIFSTOFAM LÖMD & LEIÐIR í&YSSSí'" — Bezt oð auglýsa í Morgunbladinu — Við viljum hér með þakka Páli Magnússyni og frú og Pétri Eyfeld og frú, Suðurlandsbraut 23, svo og öllum þeim er héldu veizlu og veittu okkur gleðistundir og gjaf ir á afmæli okkar hjóna. Margrét Magnúsdóttir 75 ára. Torfi Björnsson 79 ára. Hjartanlega þakka eg alla þá margháttuðu vinsemd, sem mér var sýnd á 80 ára afmæli mínu 11. júlí sL Jón Jónsson, Birkibóli, Mýrasýslu. Maðurinn minn og faðir EYSTEINN AUSTMANN JÓHANNESSON bótelstjóri á Laugarvatni andaðist 17. þ.m. Ella Jóhannesson, Sólveig Jóhannesson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð- arför föður okkar, tengdaföður og afa ÁSMUNDAR SVEINSSONAR frá Seyðisfirði. Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunar- liði sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir frábæra hjúkrun. Börn hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð í veikindum og við fráfall AUÐAR ÁGÚSTSDÓTTUR Markús Jónsson, dætur, tengdasynir, foreldrar og systkini hinnar látnu. Konan mín, móðir, tengdamóðir og amma GUÐMUNDÍNA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR lézt 17. júlí sL Eyjólfur Fmnbogason, börn, tengdabörn og barnabörn. Frænka okkar HELGA RANGVAL andaðist í Kaupmannahöfn 13. þ.m. Útförin fór fram 18. þessa mánaðar. Fyrir hönd frændfólksins. T. Kr. Þórðarson. * KVIKMYNDIR ★ SKRIFAR UM: * KVIKMYNDIR * Bæjarbíó: SÆLUEYJAN Þ E T T A er dönsk mynd með mörgum góðkunnum dönskum leikurum, þeirra á meðal hinum vinsæla og skemmtilega leikara Dirch Passer í aðalhlutverkinu. Myndin gerist á smáeyju nyrzt í Kattegat og ríkir þar mikil sveitasæla á yfirborðinu, en und- ir niðri er töluverð ólga í eyjar- skeggjum og eiga einkum sök á því hin kröftugu hænuegg, sem þar eru framleidd og hafa hin furðulegustu áhrif á mannfólkið, ekki sízt á Thor gamla, föður aðalpersónunnar, Angelus Bukke (Dirch Passer). Fær ekkert kven fólk staðizt seiðmagn Thors, þegar hann úti í auðninni rekur upp sitt mikla ástaróp. Á eyjunni gerast brátt mikil pólitísk átök og er Angelus Bukke þar höfuð- paurinn. Endar með því að eyjan segir sig úr lögum við Danmörku og lýsir yfir sjálfstæðí sínu. — Angelus verður æðsti maður eyj- arinnar og leynir sér ekki að hann tekur Abraham Lincoln sér til fyrirmyndar um látbragð og svip, enda hangir mynd af hinum mikla forseta í herbergi hans. — Danska stjórnin sendir nú innan- ríkisráðherrann, Berthu Virgini- us til eyjarinnar á herskipi til þess að bæla niður uppreisnina. Tekst henni það átakalaust. En þegar hún fer þaðan, tekur hún með sér Thor gamla, sem hefur heillað hana, eins og allt annað kvenfólk, með ástarópi sínu. Mynd þessi hefur hlotið mjög góða dóma í dönskum blöðum, enda er hún býsna skemmtileg, full af góðu skopi og dálítið ,uartig“ eins og Danskurinn kall- ar það, en við mundum segja — Staðarfell Framhald af bls. 13 ar um allt, sem hér fer fram og allar staðráðnar í því að fá sem notadrýgsta fræðslu fyrir skóla- gjald sitt — og það er einmitt hinn rétti hugsunarháttur nem- andans. — ★ — Ingigerður forstöðukona er fædd og uppalin í Skjaldbjarnar- vik, nyrzta bænum i Stranda- sýslu, en er heimilisföst í Kefla- vík. Við starfi sínu á Staðarfelli tók hún sl. haust, en undanfarin sjö sumur hefur hún verið ráðs- kona á Hótel Bjarkarlundi. Eig- inmaður hennar, Ingólfur Eyjólfs son, er ráðsmaður skólans og þar starfá auk þeirra tvær kennslukonur, Brandís Stein- grímsdóttir, er annast sauma- kennslu og kennslu i flestum bók legum greinum til hálfs á móti Sigurveigu Ebbadóttur, sem einn ig kennir vefnað. Forstöðukonan annast sjálf matreiðslukennslu og ýmislegt fleira og séra Ás- geir Ingibergsson í Hvammi kenndi í vetur íslenzku og upp- eldisfræði. Frú Ingigerður fylgdi okkur um skólann áður en burt var haldið. Húsið er geysistórt. Þrjár hæðir og kjallari og útsýn þaðan einstaklega fögur. í einni kennslustofunni voru nemendur í saumatíma og kenndi þar margra grasa. Sumar stúlknanna voru að sauma barnafatnað, aðr- ar rúmfatnað og enn aðrar föt á þær sjálfar Auk þess fengum við að sjá alls kyns dúka með hinum fíngerðasta og vandað- asta útsaumi. — Að lokum var bragðað á sýnishornum af kökugerð nemenda, ásamt ilm- andi kaffi og brauði með heima- tilbúnum salötum, forkunnargóð- um. Og eítir þann ágæta viður- gerning kvöddum við Staðarfell, fullviss um, að þeir menn yrðu ekki sviknir, er hrepptu stúlk- urnar úr Staðarfellsskóla. I „djörf" á kvikmyndaauglýsinga- máli. Myndin er vel leikin, en vinur okkar, Dirch Passer, er þarna ekki sá sami, skemmtilegi gár- ungi og í flestum öðrum mynd- um, sem maður hefur séð hann L Gamla bíó: HÚN VERÐUR AÐ HVERFA Þ E T T A er ensk gamanmynd, samin eftir leikriti Jan Stuart Black. Myndin gerist á ættaróð- ali bræðranna, Francis og Douglas Oberan, sem þar búa ásamt þjóni sínum, Gilbert. Amma þeirra á þetta mikla óðal og þeg- ar þeir frétta lát hennar verða þeir himinlifandi, því að þeir telja víst að þeir erfi gömlu kon- una. En annað verður uppi á teningnum. Erfinginn er ung stúlka, Toni að nafni, sem á heima á Korsíku. Þeir bræðurnir eiga nú von á erfingjanum og ráða ráðum sínum hvernig snú- ast skuli I málinu. Kemur þeim saman um að koma erfingjanum fyrir kattarnef svo lítið beri á. Þegar erfinginn kemur, er hún síður en svo gömul herfa, eins og þeir höfðu búist við, heldur ung og fríð og mjög aðlaðandi stúlka. Verða bræðurnir báðir bálskotn- ir í henni, en þar eð þeir geta ekki komið sér saman um hvor þeirra eigi að reyna að ná ástum hennar, sjá þeir ekki aðra lausn á málinu, en a reyna að „kála“ henni. Gengur öll myndin út á þessar tilraunir þeirra til að ráða stúlkuna af dögum og þær til- raunir eru ærið margar og mis- heppnast "llar, en hins vegar munar oft minnstu að þeir bíði sjálfir bana við þetta morðbrölt. Toni áttar sig ekki í fyrstu á því hvað fyrir hinum „ágætu“ frændum hennar vakir, en kemst þó að því að lokum og gerir sín- ar ráðstafanir. Og myndinni lýk- ur á mjög óvæntan og skemmti- legan hátt, sem ekki er vert að rekja hér. Mynd þessi er bráðfjörug og fyndin, vel gerð og vel leikin. — Bræðurna leika þeir Bob Monk- house og Alfred Marks en Toni Ieikur Anna Karina. Ennfremur leika þarna Hattie Jacques, sem kunn er af Áfram-myndunum og Dennis Lotis. Allt eru þetta prýðilegir leikarar. SMIÐIR óskast í ákvæðisvinnu til að slá upp fyrir 150 ferm. íbúðarhseð. — Uppl. í síma 16827. Lokað í viku Búðin verður Iokuð alla næstu viku. Fornbókaverzlunin Laufásvegi 4. Ferðir frá Reykjavík að Skálholti sunnud. 21. júli 1963 Sætaferðir verða að Skálholti m.a. frá Bifreiðastöð Islands sunnudagsmorgun 21. júlí kl. 7, 7,30, 10 og 12. — Farseðlar verða seldir á laugardag. Boðsgestir í kirkju eru vinsamlega beðnir að vera komnir að Skálholti eigi síðar en kl. 9,45, þar eð þeir verða allir að' vera komnir í sæti kl. 10:15. — Þeim boðsgestum, sem ekki eru á eigin bíl, hentar ferðin kl. 7,30. Þeim prestum, sem ekki eru á eigin bíl, er bent á að nota 7 - ferðina, þar sem þeir þurfa að vera komnir í Skálholt eigi síðar en kl. 9. Ferðir frá Skálholti: Áætlunarferðir hefjast kl. 15.00 og verða eins og þörf krefur fram eftir degL Heí flutt lækningostolu mína frá Hverfisgötu 50 að Klapparstíg 25, III. hæð. Viðtalstími: Mánud., þriðjud., miðvikud. kl. 2—3 e.h. Fimmtud. og föstud. kl. 4—5 e.h. og laugard. eftir samkomulagL Viðtalsbeiðnir í síma 11228 eða í síma 18888 kl. 11—12. ÓLAFUR ÓLAFSSON, læknir. Sérgrein: Lyflæknisjúkdómar. Klapparstíg 25. LokaB vegna sumarleyfa frá 22. júlí til 6. ágúst. Ljósmyndastofan LOFTUR hf. Ingólfsstræti 6.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.