Morgunblaðið - 19.07.1963, Blaðsíða 24
im E Augfýsingar é bíla Utanhussaugtýsingar aliskonarskitti ofL
AUGLYSINGA&SKILTAGERÐIN SF Bergþórugötu 19 Simi 23442
160. tbl. — Föstudagur 19. júlí 1963
sparið og
notið Sparr
m
Járnstykki
skall í .
götuna
— þar sem bíllinn
stóð rétt áður
KL. 10 mín. fyrir 12 í gærkvöldi
varð mesta sprengingin í verk-
smiðjuhúsi fsaga, að því er ménn
töldu. Fréttamaður Mbl. var þá
staddur ca. 50 metra frá húsinu
og sá hvernig rúðurrrar úr hús-
um á Njálsgötu bókstaflega
hreinsuðust úr gluggakörmunum
af loftþrýstingnum, og stór járn-
og steinstykki flugu tugi metra,
aðallega í vesturátt.
Á Rauðarárstíg stóð þá nýr
Zephyrbíll, og augnabliki áður en
sprengingin varð hafði ökumað-
urinn setzt upp í til þess að forða
farartæki sínu frá skemmdum.
Eftir að bíllinn hafði bakkað.
skall stórt járnstykki í götuna,
nákvæmlega þar sem hann hafði
staðið sekúndubroti áður. Eld-
glæringar þeyttust umhverfis bíl
inn, og ökumaðurinn hefur senni
lega talið að ráðlegast væri að
koma sér á brott, því bíllinn fór í
loftköstum af staðnum yfir gang-
stéttir og hvað sem fyrir varð.
HERFLUTNINGAR
Lissabon, 18. júlí (NTB):
Skýrt var frá því í Lissabon
í dag að tvö herflutningaskip
væru á leiðinni með portú-
galska hermenn til nýlendn-
anna Guineu og Cap Verde
eyja (Grænhöfðaeyja).
Lú^ínon
nemui Iond
í Heiðmörk
Lúpínufræi var í sumar sáð
úr flugvél í fyrsta skipti hér
á landi. Var því sáð í örfoka
holt í Heiðmörk, skógræktar-
og gróðrarlund Reykvíkinga.
Lúpínan sáir sér nú út í Heið-
mörk og skrýðir þar mörg
holt, sem áður voru með öllu
gróðurlaus.
Yfirleitt má segja að hvers
konar gróður hafi aukizt stór-
kostlega í Heiðmörk síðan að
þetta landsvæði var friðað ár-
ið 1950.
Skömmu eftir að eldurinn kom upp í ísaga var þessi mynd tekin af reykjarmekkinum, sem þaðan lagði — séð frá horni Miklu-
brautar og Lönguhlíðar.
Gasefni veröur flutt inn til
bjargar járniðnaðinum
ísaga eina gasverksmiðja landsins
— súrefnisstöðin talin framleiðsluhæf
ER farið var að sljákka í eldin-
um í ísaga á fyrsta tímanum í
nótt, hitti fréttamaður Mbl. Frí-
mann Jónsson, fulltrúa sem gegn-
ir stöðu framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins í fjarveru Valgeirs
Björnssonar forstöðumanns þess.
Kvað hann allt verða gert til
þess að komast fyrir um elds-
upptök en á þessu stigi málsins
væri ekkert hægt um það að
segja. Taldi hann súrefiiisstöðina
óskemmda að mestu, þannig að
ekki þyrfti að óttast að fram-
leiðsla súrefnis stöðvist, og
um gasið, sem járniðnaður lands-
ins grundvallast á, sagði Frí-
mann að allar ráðstafanir yrðu
gerðar til þess að fá efni erlendis
frá og sjá um að sem minnstur
skortur yrði á gasi.
ísaga er sem kunnugt er eina
verksmiðja landsins, þar sem gas
og súréfni hefur venð framleitt,
og væri það að sjálfsögðu mjög
alvarlegt mál fyrir t.d. sjúkra-
húsin ef súrefnisframieiðsla stöðv
aðist, en sem betur fer eru ekki
horfur á að svo verði.
Frímann kvaðst hafa verið að
aka eftir Miklubraut er hann
sá reykjarsúlu, og hélt í áttina að
henni. Er hann kom niður í Þver-
I holt, sá hann að eldur var laus í
gasstöðinni.
Frímann sagði að ísaga hefði
starfað í 44 ár, og þegar- hún 1
var byggð við Rauðarárstíg
hafi það verið „eins og upp í
sveit.“ Fyrsta húsið var byggt
1919 en viðbótarbyggingar voru
reistar 1946 og 1947. Frímann
sagði að eldur hefði aldrei fyrri
komið upp í ísaga á hinum langa
starfsferli hennar.
Myndin sýnir skemmdir í íbúð á annarri hæð hússins á horni Rauðarárstígs og Njálsgötu gegnt
Ljósm. Mbl.: Markús.
IHjólk-
urlaust
semjist
ekki
ANNAR fundur um kjör
mjólkurfræðinga verður hald-
inn í dag (föstudag 19. júlí).
Takist þá ekki samningar
verður hafið verkfall frá og
með morgundeginum, sem
þýðir að mjólk verður aðeins
fáanleg hér í Reykjavík á
laugardag.
Kröfur mjólkurfraeðinga
eru mun meiri en samið hefir
verið um með öðrum félögum
að undanförnu.
Gdður heyskapur
sunnan lands
en stirð tíð fyrir norðan og austan
Heyskapur hefir fram að þessu
gengið vel á sunnan- og vestan-
verðu landinu.
Seint spratt um allt land þar
sem kalt var fram eftir maímán
uði. Hins vegar var ágæt sprettu
tíð í júnímánuði. En sökum kuld
anna í maí yarð að beita tún
fram eftir vori. Um allt land var
heyskapartíð góð í fyrstu viku
júlímánaðar og þeir sem snemma
hófu slátt á Norður- og Austur-
landi á þeim tíma fengu góða
heyverkun, en frá viku af júlí
hefir tíð verið stirð fyrir norðan
og austan einkum á annesjum,
en flæsa til dala. Tíð er um þess-
ar mundir stirð nyrðra, kuldi og
lítil sprettutíð, og hey verkast
seint og illa.
Nú er svo komið að þurrkar
á Suðurlandi tefja fyrir hár-
sprettu og bregði ekki til batn-
aðar, dragi úr kuldum fyrir
norðan og þurrkum fyrir sunn-
an, lítur ekki vel út með hey-
skap.
— Enn vonum við það bezta,
sagði búnaðarmálastjóri, er blað
ið átti tal við hann í gær.
Söltun hafin á
Breiðdalsvík
Breiðdalsvík, 18. júli: —
Síldarsöltun hófst hér í dag er
m.s. Bragi landaði hér 350—400
tunnum síldar. Móttaka bræðslu
síldar getur væntanlega hafizt
hér upp úr næstu helgi.
— Fréttaritari,