Morgunblaðið - 18.09.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.09.1963, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 18. sept. 1963 og Frakkar unnu 79:40 Síðari hálfleikur var jafn 29 gegn 26 Loksins EFTIR mikla og harða bar- áttu unnu Víkingar sigur í landsmóti 4. flokks í knatt- spyrnu. Tvívegis höfðu liðin mætzt og skilið jöfn að mörk- um. í þriðja sinn mættust þau s.l. laugardag og þá unnu Vík- ingar með 1 marki gegn 0. Þeir hlutu því bikarinn sem Jón Magnússon stjórnarmað- ur KSÍ fékk loksins að af- henda, en hann er búinn að vera tilbúinn til að afhenda hann áður bæði í Reykjavík og á Akranesi. — Hér sjást bæði liðin, Víkingar á sigur- UNGLINGALIÐ Frakka í körfu knattleik ber það ekki utan á sér að það sé unglingalið. Það er skipað 3 mönnum sem eru 2 m eða hærri og meðalhæðin er nokkuð yfir 190. Það var þessu liði sem ísl. piltarnir mættu í gærkvöldi og það fór eins og búizt var við fyrirfram, að Frakk ar myndu vinna öruggan sigur. Og sigur þeirra varð 79 stig gegn 40. Hitt kom svo þægilega á óvart að á köflum leiksins stóðu ísl. piltarnir sig með prýði, eink- um er á leið. ic Jöfn byrjun — unz all hrundi Þorsteinn Hallgrímsson símaði okkur frá París í gærkvöldi að byrjun leiksins hefði verið jöfn og leikurinn mjög skemmtileg- ur fyrstu 5 mínúturnar. Þá tóku Frakkar að vinna á og skyndi- lega var eins og Frakkar næðu algeru valdi á leiknum, mót- spyrna íslendinganna hrundi saman eins og spilaborg. Bar- áttan sem þeir í byrjun höfðu sýnt og átt með góðum árangri við þessa frönsku risa, hvarf eins og dögg fyrir sólu. Stað- an breyttist úr 23—13 fyrir Frakk ana í 50—14. Hræðilegt áfall. ic Gerbreytt lið í síðari hálfleik kom ísl. liðið út á völlinn sem nýtt lið. Það hóf baráttu við ofur eflið og hélt henni til leiks loka. Það var barizt fyrir hverju stigi og þessi hálfleik ur fór svo að Frakkar skor- uðu 29 stig, Islendingar 26. Það var því slæmi kaflinn í fyrri hálfleiknum sem úr- slitunum réði þó við ósigri væri búizt. Frakkar eru í sérflokki hér á þessu móti, hafa bæði yfirburði í líkams- burðum (mesta hæð) og hafa auk þess langbeztu knattmeð ferðina. Anton og Kolbeinn áttu beztan leik í ísl. liðinu. Kol- beinn skoraði 9 stig, Anton 12. Agnar Friðriksson meidd- Enska knatt- spyrnan 7. IJMFERÐ ensku deildarkeppn- innar fór fram sl. laugardag og urðu úrslit þessi: 1. deild. Aston Villa — Chelsea 2-0 Bolton — Leicester 0-0 Burnley — Birmingham 2-1 Fulham — Arsenal 1-4 Ipswich — Everton 0-0 Liverpool — Westham 1-2 Manchester U. — W.B.A. 1-0 Sheffield U. — Sheffield W. 1-1 Stoke — N. Forest 0-1 Tottenham — Blackpool 6-1 Wolverhapton — Blackburn 1-5 2. deild. Charlton — Huddersfield 5-2 Grimsby — Newcastle 2-1 Leeds — Swindon 0-0 Leytton O. — Southampton 1-0 Plymouth — Derby 0-0 Portsmouth — Norwich 1-1 Preston — Middlesbrough 2-2 Sunderland - Manchester City 2-.0 I Skotlandi urðu úrslit m. a. þessi: Dundee — Dundee U. 1-1 Partick — Rangers 0-3 St. Mirren — Motherwell 2-1 Celtic — Third Lanark 4-4 í 1. deild er Manchester U. efst með 12 stig, en næst koma W.B.A., Leicester, Blackburn, N. Forest og Burnley, öll með 9 stig. Bolton er neðst með 1 stig. í 2. deild er Swindon efst með 13 stig, en Sunderland er í öðru sæti með 11 stig. ist í gær, tognaði í þumal- fingri. Það var þó ákveðið að hann Iéki með, en meiðsl- in háðu honum þannig að hann gat vart skotið — og varla við því að búast. A morgun, miðvikudag, leika ísl. piltarnir gegn Svíum. Svíar er taldir næst sterkastir í þess- um riðli. Ovæntir hæfileikar uppgötvaðir ÞESSAR myndir tók Sveinn Þormóðsson á Reykjavíkur- meistaramótinu á sunnudag- inn. Á 2 dálka myndinni eru úrslitin í 200 m. hlaupi. Ung- lingarnir sigra Valbjörn. Skafti Þorgrímsson slítur snúruna en Ólafur Guðmunds- son er örugglega í 2. sæti. Á minni myndinni sézt Agnar Levy sem sigraði óvænt í 800 m. hlaupi. Hann keppti í fyrsta sinn í 800 m. og vann á bezta tíma hérlendis í grein- inni. Það má segja að skaði sé að hann skyldi ekki fyrr upp- götva getu sína á þessari vegaiengd. Þá sést Guðmundur Her- mannsson sem sigraði með yíirburðum í kúluvarpi. Mynd in er skemmtilega tekin því Sveinn ljosmyndari stóð beint í kaststefnunni — en Guð- mundur lögregluvarðstjóri og lífvörður Lyndon B. Johnson lyfti kúlunni léttilega yfir Svein. Árangursríkur fund- ur íþrðttaleiötoga UM helgina boðaði framkvæmda stjórn ÍSÍ formenn héraðssam- banda til fundar í Haukadal. Til fundar komu fulltrúar 16 héraðs- sambanda og íþróttabandalaga, auk framkvæmdastjórnar ÍSÍ og nokkurra gesta. it Á sögustað Á laugardag voru framsögur um nokkur mál, síðan tóku nefndir til starfa og um kvöldið var kvöldvaka. Á sunnudagsmorg un var haldið að gamla bæjar- stæðinu í Haukadal undir leið- sögn Sigurðar Greipssonar, sem lýsti sögustaðnum. Hann hafði á kvöldvökunni sagt snilldarvel frá sögu Haukadals og Bergþóri vætti í Bláfelli. Síðari hluta sunnudags var fundi haldið áfram og skiluðu nefndir áliti og umræður urðu um þau. A Aukið starf íþróttafélaga Aðalmál fundarins var að ræða á hvern hátt væri hægt að auka starf íþróttafélaganna og glæða almennan áhuga á íþróttum. Um þetta mál fjölluðu Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, i>* Benedikt Jakobsson, íþróttakenn ari og Þorsteinn Einarsson, í- þróttafulltrúi. Þorsteinn Einars- son ræddi einnig um styrkveit- ingar til íþróttamannvirkja og kennslukostnaðar íþróttahreyf- ingarinnar. Hann skýrði frá nýrri áætlun, sem stjórnskipuð nefnd hefði gert varðandi þörf fyrir ný íþróttamannvirki næstu tvo áratugi. A Önnur mál Einnig var rætt um samræm- ingu á ársreikningum íþróttafé- laga og reikningsári og hafði Sigurgeir Guðmannsson fram- sögu. Jens Guðbjörnsson gerði grein fyrir undirbúningi að keppni um íþróttamerkið. Um útgáfu íþróttablaðsins ræddu Gísli Halldórsson og Þorsteinn Einarsson, sem einrtig ræddi og lagði fram frumdrög að heit- strengingu íþróttamannsins, sem samin hefur verið af Menningar- stofnun Sameinuðu þjóðanna. A Vel heppnaður fundur Fundarmönnum var skipt niður x umræðuhópa, sem ræddu þau mál, sem reifuð voru í fram- sögu, og voru niðurstöður lagðar fram á síðari fundi. Fundur þessi tókst hið bezta enda var hana mjög vel undirbúinn og öll starfs tilhögun til fyrirmyndar. Það bifaði allt um stund

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.