Morgunblaðið - 18.09.1963, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 18. sept. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
23
Gó&aksturskeppni
í Rvík á laugardag
BINDINDISFÉLAG ökumanna
hefur ákveðið að halda góðakst-
urskeppni í Reykjavík laugardag
inn 21. september nk. og hefst
hún klukkan 14.
Keppnin mun að þessu sinni
aðeins fjalla um innanbæjarakst-
ur, kunnáttu manna í því að aka
nákvæmlega rétt, svo sem um-
ferðarlög og reglur ætlast til. —
Verður ökuleiðin því miklu
styttri en áður. Að öðru leyti
mun, sem í fyrri keppnum, verða
reynt á athygli manna, viðbragðs
flýti og ökuleikni, svo og munn-
lega kunnáttu í umferðarreglum
og fleira.
Keppni þessi verður, sem áður
fyrr, í náinni samvinnu við lög-
reglu og bifreiðaeftirlit.
Góðakstursnefnd skipa þessir
menn: Sigurgeir Albertsson, for-
seti BFÖ, Leifur Halldórsson, for-
maður Reykjavíkurdeildar BFÖ,
Ásbjörn Stefánsson, framkvstj.
félagsins, Jóhann Björnsson, for-
stjóri Ábyrgðar hf., Gestur Ólafs-
son, forstöðumaður Bifreiðaeftir-
lits ríkisins, Sigurður E. Ágústs-
son, umferðarlögreghiþjónn, og
Magnús Wium, bifreiðaeftirlits-
maður. Er Sigurður Ágústsson
framkvæmdastjóri keppninnar og
sér um að ákvarðanir nefndar-
innar séu framkvæmdar.
Keppnin mun að þessu sinni
verða, að undanskildu því sem að
framan segir, með svipuðu sniði
og áður. Hinsvegar hefur félagið
mjög í huga að fara framvegis
verulega inn á nýjar brautir með
keppnir þessar, svo og að auka
þær svo sem verða má og vinna
að því, að þær verði einnig haldn
ar reglulega utan höfuðstaðarins.
Byrjunin á þessu starfi var góð-
aksturskeppni sú, sem fram-
kvæmdastjóri félagsins setti á
laggirnar á Akureyri hinn 24.
ágúst sl. og vel heppnaðist.
Ekki er gert ráð fyrir því, að
hægt verði að þessu sinni að
leyfa meir en 25 ökumönnum að
keppa. Er bæði utan- sem innan-
félagsmönnum þetta opið á með-
an rúm er. Keppnin verður að
þessu sinni aðeins fyrir fólksbíla,
4—6 manna.
Þeir, sem hafa í hyggju að
keppa, þurfa að hafa látið skrá
sig í síðasta lagi fyrir hádegi
föstudaginn 20. september í skrif-
stofu Ábyrgðar hf., að Lauga-
vegi 133. Þurfa þeir um leið að
taka þar nokkur gögn. Ökumenn
skulu sjálfir leggja sér til leið-
sögumenn að þessu sinni. Keppn-
isgjald verður ekkert. Verðlaun
verða veitt.
Keppni þessi er sú sjötta, sem
Bindindisfélag ökumanpa efnir
til. Þar af hafa tvær verið haldn-
ar utan Reykjavikur.
(Frá skrifstofu BFÖ)
Stjórn Ísl.-ameríska félagsins fær-
ir varafcrsetanum málverk að gjöf
STJÓRN fslenzk-ameriska fé
lagsins afhenti Lyndon B.
Jolinson, varaforseta Banda-
' ríkjanna, málverk að gjöf í
anddyri Hótel Sögu skömmu
áður en hann hélt af stað í
kvöldverðarboðið að Hótel
Borg.
Dr. Benjamín Eirtksson,
bankastjóri, formaður ts-
lenzka-ameríska félagsins
kynnti fyrst stjórnarmeðlimi
fyrir varaforsetanum og
ávarpaði hann síðan og gat
þess í hvaða tilgangi stjórn-
in væri samankomin á þess-
um stað. Kvað hann það sér
það mikla ánægju að biðja
varaforsetann að þiggja að
þiggja að gjöf málverkið
„Lómagnúp“ eftir Gunnlaug
Scheving, listmálara.
Þakkaði varaforsetinn gjöf-
ina og dáðist að myndinni,
sem hann sagði að myndi
njóta sína vel í safni mál-
verka sinna heima í Banda-
ríkjunum.
Á mvndinni er varaforset-
inn ásamt fjórum úr stjórn
Íslenzk-ameríska félagsins, '
þeim dr. Benjamín Eiríkssyni,
Gunnari Eyjólfssyni, Konráð
Axelssyni og frú Betty Þor-
gilsson. ((Ljósm. Sv. Þ.)
— Milwood
Framh. af bls. 1
eigendur togarans höfði mál
gegn þeim.
Málavextir voru þeir, að
skömmu eftir komuna frá ís-
landi, hélt „Milwood“ til veiða.
Mun skipstjórinn, Bhimister,
hafa ætlað að veiða fyrir N-
Skotlandi. Er kom á miðin, bil-
uðu siglingatæki togarans, og var
þá ákveðið að leita hafnar á
Orkneyjum, og fá þar við þau
gert.
Nokkrir af áhöfn skipsins fóru
í land, meðan á viðgerð stóð.
A.m.k. þrír hásetar fengu sér
duglega í staupinu, og voru vel
hífaðir, er þeir komu aftur um
borð.
18. Allsherjarþing SÞ sett
Alhanir krefjast nu aðildar
kínverskra kommúnista
að samtökunum
New York, 17. sept. — NTB
18. Allsherjarþing Sameinuðu
Þjóðanna var sett í kvöld. Frá-
farandi forseti þingsins, Zafrulla
Khan frá Pakistan, setti þingið
síðan átti að ganga til forseta-
kjörs. Áður en forsetakjör gæti
hafizt, kvaddi fulltrúi Indónesíu
■ér hljóðs og mótmælti því, að í
■alnum sæti maður, sem segðist
vera fulltrúi Malaysiu, en ríki
*neð því nafni ætti ekki aðild að
SÞ. Forseti Iofaði að taka málið
til athugunar og forsetakjör
hófst. Forseti var kjörinn Carlos
Sosa-Rodriguez frá Venezuela.
Mörg erfið mál liggja fyrir
Allsherjarþinginu, en fulltrúar
eru bjartsýnni árangur en oft
áður vegna batnandi ástands í
heimsmálunum. Meðal mála, sem
tekin verða til umræðu á 18.
Allsherjarþinginu, er ástandið í
S-Vietnam, Kashmírdeilan, á-
standið f S-Afríku og nýlendum
Portúgala í Afríku og aðild Kín-
verska alþýðulýðveldisins að SÞ.
Forseti AUsherjarþingsins
Hinn nýkjörni forseti Allsherj-
arúingsins, Carlos Sosa-Rodri-
fiuez, hefur verið fastafulltrúi
Venezuela hjá Sameinuðu þjóð-
wnum frá 1958 og fulltrúar hjá
•amtokuauot telja ha.nn eitut af
dugmestu diplómötum Suður-
Ameríku.
Sosa-Rodriguez er af einni auð-
ugustu ætt Venezuela. Menntun
sína hlaut hann í Evrópu og er
doktor í lögum og stjórnvísind-
um. 1952 var hann skipaður sendi
herra lands síns í London. Síðar
á því ári lét hann af embætti,
eftir að Marcus Perez-Jumenez
hershöfðingi hafði gert stjórnar-
byltingu í Venezuela. Meðan
Perez-Jumenez var við völd í
landinu var Sosa-Rödriguez í út-
legð, en þegar stjórn hans var
fallin 1958, varð Rodriguez fasta-
fulltrúi hjá SÞ, eins og fyrr seg-
ir. —
Aðild Kínverska alþýðulýð-
veldisins að Sameinuðu þjóðun-
um, verður rædd á Allsherjar-
þinginu, en nú eru það ekki
Sovétríkin, sem krefjast þess,
eins og undanfarin ár, heldur
Albanir. Haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum, að Sovétríkin
muni styðja tillöguna um aðild
Kína.
Utanríkisráðherra Albaníu, Be-
har Shtylla, bar fram kröfuna
um að aðild Kínverska alþýðu-
lýðveldisins yrði rædd. Sagði
hann m. a. að augljóst væri að
Pekingstjórnin ætti fremur að
eiga fulltrúa hjá samtökumuu eu
stjórn Formósu. Pekingstjórnin
væri friðelskandi og lýðræðisleg
og stefndi að góðri sambúð við
önnur lönd í samræmi við kenn-
inguna um friðsamlega sambúð,
en Formósustjórnin héldi aðeins
völdum meðan hún gæti stjórnað
í skjóli bandarískra byssustingja.
Utanríkisráðherrann nefndi ekki
árás kínverskra kommúnista á
Indland, en hrósaði Peking-
stjórninni fyrir að hafa leyst á
friðsamlegan hátt landamæra-
deilur við Nepal, Burma, Pakist-
an og Afgangistan.
— Johnson
Framh. af bls. 1
Islandi. Við komuna sagði Jhon-
son fréttamönnum, að för sín
til Norðurlanda hefði verið mjög
árangursrík. „Það var mjög upp
örvandi hvað staða okkar í
heiminum, stefna okkar og mark
mið mættu miklum skilningi*,
sagði varaforsetinn. Síðan skýrði
hann frá því að hvarvetna hefðu
hann, kona hons og dóttir feng-
ir frábærar móttökur og
sagðist hafa á tilfinningunni, að
nú ættu þau vini hvar sem þau
komu.
Nokkrum klukkustundum eft-
ir komuna til Washington
snæddi Johnson morgunverð
með Kennedy Bandaríkjafor-
seta og þingleiðtogum og skýrði
þeim frá för sinni Að morgun-
verðinum loknum gaf Johnson
Kennedy persónulega skýrslu
utn förina í heild.
Segir ekki af framferði þeirra,
fyrr en á miðin kom. Þá skipaði
Bhimister mönnunum að hefj-
ast handa við veiðina. Neituðu
þeir því, Var þá enn siglt í 2—3
tíma, og endurtók Bhimister skip
stjóri skipun sína. Var hún að
engu höfð.
Skipstjórinn bað þá um leyfi
símleiðis frá eigendunum til að
leita til hafnar, þar eð áhöfnin
neitaði að hlýðnast. Var það
leyfi veitt.
Mennirnir þrír, sem hér um
ræðir, eru nýliðar á „Milwood",
enda er George Moir, vélstjóri,
sá eini af fyrri áhafnarmeðlim-
um togarans, sem enn er um
borð.
Er brot þremenninganna litið
mjög alvarlegum augum. Eigend-
ur skipsins hafa ekkert viljað
láta uppi um það, hvaða rásðtaf-
ana þeir muni grípa til. Skrán-
ingarskrifstofa sjómanna í Ab-
erdeen hefur einnig tekið málið
föstum tökum, og kann svo að
fara, að hásetarnir þrír fái ekki
oftar að skrá sig á skip.
Eins og fyrr segir, þá var ætl-
unin að Milwood héldi til veiða
í dag.
— Malaysia
Framh. af bls. 1
viðurkenna Malaysíu að svo
stöddu.
Um 1000 íbúar Kuala Lum-
pur réðust að sendiráði Indó-
nesíu í borginni í dag. Meðan
lögreglan reyndi að vernda
hús það, sem starfsfólk sendi-
ráðsins býr í, brutu borgar-
búar rúður í skrifstofubygg-
ingu sendiráðsins, dreifðu
skjölum þess um göturnar og
lögðu að lokum eld að bygg-
ingunni. Brann hún til
grunna. Skjaldarmerki Indó-
nesíu fluttu borgarbúar til
bústaðar Rahmans forsætis-
ráðherra og báðu hann að
troða á því. Forsætisráðherr-
ann varð við beiðni fólksins
og skipaði síðan að grafa
skjaldarmerkið. Var honum
ákaft fagnað.
★
Það voru nokkur þúsund
Indónesíubúa, sem í gær
gerðu aðsúg að sendiráði
Breta í Jakarta til þess að
mótmæla stofnun Malaysíu.
Eins og kunnugt er, voru
Sarawak og N-Borneó nýlend-
ur Breta og áttu þeir mik-
inn þátt í því, að Malaysía
var stofnuð.
Indónesar grýttu sendiráð
Breta í Jakarta og brotnaði
hver einasta rúða í húsinu.
Þeir skáru niður brezka fán-
arin og kveiktu í bifreið
Gilchcrists sendiherra.
Lögregla var kvödd á vett-
vang vegna óeirðanna og
dreifði hún mannfjöldanum
með táragasi.
— Ökufantur
Framh. af bls. 24
Umferð var mikil á þessirm
tíma og rautt ljós við Snorra-
braut. Þar við gatnamótin
voru margir bílar, sem biðu
eftir grænu ljósi. SkodabíU-
inn þeysti meðfram þeim,
fór yfir á rauðu, og beygðl
suður Snorrabraut án þess að
ðraga úr hraðanum.
— Þegar við nálguðumst
rauða ljósið drógum við úr
hraðanum af öryggisástæðum,
en fórum þó yfir á rauðu með
„sírenuna" á. Þegar við kom-
um á Snorrabrautina höfðum
við misst sjónar af bílnutn.
Myrkur var og höfðum við
ekki annað til að styðjast við
en ljósin á Skodanum.
— Við ókum suður að
Miklatorgi, því við héldutu
að við hefðum séð eftir hon-
um þar. Fórum við svo inn
Miklubraut, en leit þar varð
árangurslaus. Síðar kom I
ljós„ að hann hafði farið suð-
ur Reykjanesbraut, þar sem
annar lögreglubíll varð var
við hann og elti suður undir
Hafnarfjörð.
— Seinna um nóttina, nm
kl. 4, fórum við suður eftir
og ókum steypta veginn fyrir
ofan Hafnarfjörð. Þegar við
vorum staddir á Öldura
mættu okkur tveir bílar. Aft-
ari billinn var litill, blár
Skoda.
— Við snerum strax við og
þegar búið var að því sáum
við Ijósin á Skodabilnum fjar
lægjast mjög ört.
— Ég gaf benzíngjöfina i
botn og drógum við fljótt
uppi þann bilinn, sem við
höfðum mætt fyrr. Þarna á
steypta veginum ók ég á 121»
km hraða, en þegar við kom-
um að Hafnarfjarðarveginura
var Skodabillinn horfinn.
Númerið sáum við aldrei, þótt
við hefðum hins vegar ágæta
lýsingu á bílnum. Enda kom i
ljós, daginn eftir, að það
nægði til þess að ökufantur-
inn var handtekinn.
— Ég hef iðulega lent i því.
að eltast við ökuþóra, en
þetta er í fyrsta skiptið, sem
ég hef ient i því að geU ekkt
dregið þá uppi.