Morgunblaðið - 21.09.1963, Blaðsíða 8
8
MORCUN BLAÐIÐ
Laugardagur 21. sept. 1953
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi skeyti frá Tom
Bo.vnton fréttaritara AP í
New York.
Um 400 listunnendur komu
saman við opnun stórrar lista-
sýningar í New York s.l.
mánudag:. Á sýningrunni eru
mörg málverk eftir íslendingr-
inn Louisu Matthíasdóttur og
eiginmann hennar, Bandaríkja
manninn Leland Bell.
Við opnunina sagði Louisa
m.a. „Mig mundi langa til að
mála íslenzkt landslag, sem
er mér mjög hjartfólgið.“
Málverk Louisu og manns
hennar hafa vakið mikla at-
hygli í Bandaríkjunum og
frásagnir af hjónunum og
myndir af verkum þeirra birt
ust t.d. í septemberheftum
tímaritanna „Arts“ og „Arts
News“, sem bæði eru gefin
út í stórum upplögum.
Mesta athygli á sýningunni
vakti málverk eftir Louisu af
18 ára dóttur hjónanna,
Temmu, sem stundar nám við
Louisa Matthíasdóttir og Leland Bell við málverk Louisu af dóttur þeirra Temmu.
Málverk eftir Louisu Matt-
híasdóttur sýnd í New York
listadeild Bostonarháskóla.
í»etta er stór mynd og sýnir
fallega stúlku með slegið hár
í rauðum kjól (Sjá mynd).
Louisa Matthíasdóttir er
dóttir Matthíasar Einarssonar
læknis og konu hans Ellen-
ar Einarsson. Eiginmaður
Louisu er sonur Lewis Bells
Stols og konu hans. Bell Stol
er fasteignasali frá Maryland.
Sýningin á verkum Louisu
og Lelands Bells er í Knödler
listasafninu og á sýningunni
eru einnig verk eftir Nell
Blaine, Robert de Niro og
Hyde Solomon, sem eru allir
góðir vinir hjónanna. Sýning-
inn stendur til 30 sept.
Louisa Matthíasdóttir klæð-
ist fötum sem hún saumar
sjálf og bera þau áhuga henn-
ar á óvenjulegum og smekk-
legum litasamsetningum
glöggt vitnL Hjónin búa á
tveimur efri hæðum gamals
húss í New York og bafa
sameiginlega vinnustofu. Bell
segir, að viðfangsefni þeirra
séu ólík, því að þau láti eigin
hugmyndir ráða. í>ó séu bæði
mikið fyrir „fíguratív" mál-
verk og uppstillingar. Á sýn-
ingunni sýna þau bæði lands-
lagsmyndir, mannamyndir og
uppstillingar.
Louisa Matthíasdóttir sagð- 1
ist hafa haft yndi af því að
mála, frá því að hún var barn. •
Hún lærði fyrst í Danmörku,
en hélt síðan til Parísar og
var þar nemandi Marcel Gro- '
maire. Hún kom til New York
1941 og hélt áfram námi hjá '
hinum fræga listamanni Hans
Hofmann. Louisa heimsótti ís- ,
land 1946—47 og til Parísar '
fór hún 1950 og aftur á þessu
ári til þess að vinna.
Dansskóli Hermanns Ragnars
Reykjavík
tekur til starfa 4. október.
Kennt verður í Skátaheimilinu
við Snorrabraut.
KENNSLUGREINAR:
S) Gamlir og nýjir barnadansar.
gj Sígildir samkvæmisdansar
Suður-Amerískir dansar.
Gamlir samkvæmisdansar.
Heimskerfið (10 hagnýtir sam-
kvæmisdansar ).
Byrjendur og framhaldsflokkar fyrir börn,
ungimga og luliorðna.
Innritun hefst mánudaginn 23. september i sima 33222 og 36024 fra kl. 9-12 f.h. og 1-6 e.h.
Framhaldsnemendur eru hvattir til að tala við okkur sem fyrst. — Verið með frá byrjun.
OKKAR A MILLI SAGT
ÞEGAR Ward-málið stóð sem hæstj
í Bretlandi, bárust hávær mót-
mæli frá« stéttarfélagi sýningar-
stúlkna í landinu. Mótmælti stjórn
félagsins því harðlega, að blöðin
kölluðu Christine Keeler sýningar-
stúlku og töldu það kasta rýrð á
stéttina. Stakk stjórn sýningar-
stúlknafélagsins upp á því, að
ungfrú Keeler yrði framvegis
nefnd blaðamaður vegna þess, að
hún ritaði sjálf ævisögu sína í
dagblöðin.
• * •
BREZKA stjórnin hefur ákveðið
að skipa framvegis aðeins kvænta.
menn í stöðu hermála fulltrúa
við „ýmis sendiráð erlendis.“ Tal-1
ið er, að þessi nýja regla sé beinj
afleiðing Vassal-málsins svonefnda,
en Willam Vassall, fyrrv. flota- i
málafulltrúi brezka sendiráðsins í
Moskvu, kvaðs-t hafa verið neydd-
ur til þess að njósha vegna þess að
hann var kynvilltur. Vassall situr
nú í fangelsi dæmdur fyrir njósn-
ir í þágu Sovétríkjanna.
Fullvíst þykir, að með „ýmsum
sendiráðum erlendis“ sé átt við
sendiráð Breta í kommúnistaríkj-
unum.
Þegar Harold Macmillan forsæt-
isráðherra Breta fór á veiðar með
vinum sínum fyrir skömmu tók
enginn eftir því, að hann hafði
fengið sér ný veiðiföt. Þetta var þó
ekki vegna þess að vini forsætis-
ráðherrans skorti athyglisgáfu,
heldur voru nýju fötin hans alveg
nákvæmlega eins og þau gömlu,
sem hann hefur notað í 36 ár.
Macmillan lét svo um mælt, að
nýju fötin myndu eflaust endast
sér alla ævi.
ÞAÐ er í ólíkum tilgangi, sem
menn halda til Svínaflóa á Kúbu.
Fyrir tveimur árum þyrptust þang
að kúbanskir útlagar sem ætluðu
að freista þess að frelsa fóstur-
jörðina úr höndum Fidels Castro,
en nú er það Castro sjálfur, sem
heimsækir flóann með fríðu föru-
neyti. Er til flóans kemur býst
forsætisráðherrann sundfitum, súr
efnisgeimi og súrefnisgrímu og
skemmtir sér við fiskveiðar neð-
ansjávar. í för með forsætisráð-
herranum eru oft tignir gestir og
fyrir skömmu tóku Rada, dóttir
Krúsjeffs og maður hennar Adshu
bei, ritstjóri Izvesftija, þátt í
skemmtun Castros.
Castro og dóttir Krnsjeffs.
Að lokum er draugasaga í nú-
tímabúningi, sem gæti t.d. hafa
gerzt hér í borg. Maður einn, við
köllum hann Jón, var á leið úr
gleðskap. Liðið var á nóttu og
hann fýsti að komast heim til sín
hið bráðasta. Tók hann það til
bragðs að stytta sér leið yfir kirkju
garð, en svo illa tókst til að á
vegi hans varð nýtekin gröf, sást
hann ekki fyrir og endastakkst
ofan í gröfina. Er niður kom setti
að Jóni mikinn óhug, enda var
niðamirkur. Gerði hann ítrekaðar
tilraunir til þess að komast upp
úr gröfinni, en árangurslaust.
Sá þá ekki annað ráð, en láta
þar fyrir berast til morguns og
kalla á hjálp er birta tæki og
mannaferðir ykjust. Þegar Jóii var
að festa blund í einu horni graf-
arinnar, heyrði hann drunur mikl-
ar. Er hann opnaði augun sá hann
hvar maður lá á fjórum fótum í
gröfínni við hlið hans. Maðurinn
varð Jóns ekki var og tók óðara
til við að krafla sig upp úr gröf-
inni en komst hvergi. Fannst Jóni
maðurinn eyða kröftum sínum til
einskis, vildi miðla honum af
reynslu sinni og sagði úr horni
sínu: „Þú kemst ekki upp.“ Er
hann hafði þetta mælt, hentist
maðurinn upp úr gröfinni með
miklum óhljóðum.
okkar á milli sagt ...