Morgunblaðið - 21.09.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.09.1963, Blaðsíða 23
Laugardagur 21. sept. 1963 MORGUNBLfiDID 23 — íslenzkir sjómenn Framh. af bls. 1 lykla að hurðinni, heldur var þeim réttur hann af þeim er færðu fangana í tugthúsið, svo þeir gætu opnað hurðina að innan. Ekki var vistlegt í fanga- klefanum, myrkraklefi, þaf sem ekki voru bekkir til að liggja á og ekki var þeim heldur séð fyrir ábreiðum til að breiða yfir sig. Ekki höfðu þeir aðgang að salerni, heldur lá flór eftir klefanum, sem þeim var ætlað að nota. Var mönnunum að vonum kalt alla nóttina og ekki svefn- samt, enda bættist það við að fangaverðirnir gerðu sér hvað eftir annað að leik, að kalla ókvæðisorðum á ensku inn í klefa þeirra. Áttu að undirrita skýrslu á rússnesku. Um morguninn voru þeir teknir til yfirheyrslu og var krafizt af þeim að þeir undir- rituðu skýrslu á rússnesku án þess að þeim væri fyllilega ljóst hvað í henni stæði. Var þeim meinað að hafa samband við skipsstjóra eða umboðs- mann íslenzka ríkisins. Lauk þó málinu þannig, að þeir fengu því framgengt að gefa sína eigin skýrslu og voru þeir síðan dæmdir fyrir að hafa kallað konu í strætisvagn inum „rúski svinía", sem dóm- arinn lagði út sem rússneskt svín. Varð dómstóllinn þannig til þess að auka við orðaforða skipshafnarinnar, sem ekki hafði kannazt við þetta orða- tiltæki áður. Slær fyrir alvöru í brýnu. Nú fyrir skemmstu kom Langjökull aftur th Ventspils, og var þá aðeins annar þessara manna með skipinu. Hugur yfirvaldanna kom þá þegar þannig í ljós, að honum var meinað um leyfi til að fara í land, en fyrir lægm skipstjór- ans tókst þó að útvega land- gönguleyfi. Fóru síðan skip- verjar 6 saman á sama veit- ingahtús og þeir höfðu farið í í síðustu ferði sinni, og vör uðu þeir sig á að drekka ekki áfengi svo neinu næmi. Drukku sumir eitt staup af vodka, aðrir eitt glas af bjór, en einhverjir aðeins gos- drykki. Fóru þeir brátt af veitinga- húsinu, en í dyrum þess var nokkur troðningur. Þegar þeir voru að mjaka sér í gegn þar, hrasaði einhver maður á bak ungs pilts af skipinu, en hánn sagði í mesta grandaleysi yfir öxl sína: „rúski svinía". Þreif þé maðurinn í handlegg hans en hann sleit sig lausan. Mað- urinn dró upp flautu og blés í hana og skipti þá engum togum að allt var orðið mor- andi í lögreglumönnum. Var þessum pilti haldið eftir, en hinum leyft að fara. Gengu þeir á brott og bjuggust við að félagi þeirra mundi slást í hópinn innan skamms, en þegar það varð ekki gengu þeir aftur til veitingahússins. Skyggndust þeir inn um gler- dyrnar til að huga að félaga sinum, en þá kom út maður og bauð þeim kurteislega að ganga inn. Þegar inn kom voru þeir beðnir að afhenda skilríki sín, en síðan var far- ið með þá út á vörubíl, sem beið fyrir utan, og var þeim ekið beint í steininn. Þar var umsvifalaust farið með þá í myrkraklefa, sem var eins búinn og sá fyrri sem skipsmenn gistu. Var svo þröngt um þá í klefanum, að þeir gátu ekki teygt úr sér, engar ábreiður höfðu þeir og voru matarlausir í klefan- um án þess að nokkrir litu á þá í 13 klukkustundir. Matarlausir í 23 tíma Var þá farið með þá félaga i annaa klefa, vistiegri að því ley ti að hann var ekki myrkra : klefi, og hann var heldur ekki útbúinn með neinn flór. Fengu þeir á hinn bóginn að ganga til salemis, sem reynd ar var ekki nema rörbútur sem stóð upp úr gólfinu í einum klefa fangelsisins. Var þeim fært eittihvert seyðis- gutl, sem þeim fannst einna helzt minna á uppþvottavatn og lítinn brauðhleif. Gátu þeir ekki gert seyðinu nein skil og brauðmolinn kom þeim að litlum notum. í þess um klefa urðu þeir að húka matarlausir í 23 klukkutíma. Var þá loksins farið með þá í réttarsalinn, sem var í öðru húsi alllangt í burtu. Var þeim raðað upp á götuna fyrir framan fangelsið tveim ur og tveimur saman og öðr- um föngum raðað meðfram þeim, og þannig voru þeir látnir þramma um götur bæj- arins að réttarsalnum. Þegar þangað kom var hafð ur við sami háttur og í fyrra skiptið: lögð fyrir þá skýrsla á rússnesku til undirskriftar, og komust þeir að því, að þeim væri gefið að sök, að þeir hefðu hótað að hengja alla kommúnista. Þessi rétt- arhöld sat skipstjórinn, og fyrir framgöngu hans tókst þeim einnig að þessu sinni að fá því framgengt að þeir legðu fram sína eigin skýrslu. Lauk málinu loks svo, að þeir voru dæmdir í 40 gull- rúblna sekt hver, sem er um tvö þúsund krónur, nema einn þeirra sem dæmdur var í 50 gullrúblna sekt. Virtist skipsmönnum, sem ástæðan til þess að hann hefði fengið hærri sekt, væri sú, að hann er hærri en hinir og bæri þess vegna meira á honum. Skólahúsið byggt aftur eins, eftir óveðrið. Deilt um traustleika skólabyggingar í Kópav BYGGING hins nýja skólahúss á Digranestúni í Kópavogi kom til umræðu á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi í gær og var lögð fyrir fundinn samþykkt fræðslu- ráðs um að leitað verði til sér- fræðinga varðandi traustleika byggingarinnar og skorað á bygg ingaryfirvöid Kópavogs að láta ganga frá byggingunni á tryggi- legastan hátt. Forsaga málisins er sú að í sum air hrundiu 3 veggir skólabygg- ingarinnar í stormi, en þeir voru aftur hlaðnir upp á sama hátt og fyrr, án þess að byggingar- futltrúi eða byggirngarnefnd vissu tem atiburðinn, og haifa orðið uim ræður um það meðail aimenn- ings að þessi skódabygging sé ekki nægilega traustbyggð. Samlþykkt fræðsiluráðs er svo- hljóðandi: „Vegna hims alirmenna og að áliti fræðslúráðs, eðlilega ótta Kópavogsbúa við þann bygging- arrmáta, sem hafður er við barna skólabyggingu á Digraneslhálsi, skorar fræðsluráð á byggingaytf- irvöld Kópavogsbæjar, að þau 'blu’tist tfl uim, að gengið verði frá þaki téðra bygginga á tryggi legan hátt, svo sem með súluan í hornum og stáldreguru/m undir Kennedy ávarpar Allsherjar þing SÞ: Friösamleg sambúð er það vopn, sem tryggir öryggi þjóðanna New York, 20. sept. (AP-NTB) KENNEDY, Bandaríkjafor- seti, ávarpaði í dag Allsherj- arþing Satneinuðu þjóðanna. Sagði hann m.a. að margt hefði áunnizt að undanförnu með viðræðum til að draga úr spennunni í heiminum. Nú væri hersýnilegt hlé í kalda stríðinu, og nauðsyn- legt væri að nota tækifærið til frekari samninga um sam- starf þjóða og samvinnu. í þessu sambandi minntist for- setinn sérstaklega á aukna samvinnu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, og mælti með því að þessi ríki ynnu sam- eiginlega að leiðangri til tunglsins. Þá hvatti forset- inn til nýrrar haráttu fyrir Misbrestur á réttri vigt UNDANFARH) hafa eftirlits- menn frá verðlagsstjóra gengið í matvöru- og kjötbúðir og tekið viktaðar vörur til athugunar á hvort um rétta vigt sé að ræða. En ýms varningur í búðum er ýmist pakkaður í verzlunum eða vörurnar keyptar pakkaðar, frá framleiðendum eða pökkunar- verksmiðjum. Mbl. spurðist fyrir um þetta hjá verðlagsstjóra, sem sagði að ekki væri þetta fullathugað enn, og ekkert hægt um það að segja. Þó hefði einhver misbrestur ver- i« á því að rétt vigt w*fi í öil uíu pökkunum. því að banna notkun gereyð- ingarvopna í geimnum, Kennedy var ákaft fagnað er hann kom til aðalstöðva SÞ í fylgd með Adlai Stevenson, aðal fulitrúa Bandaríkjanna hjá S.Þ.. Ekki voru þó fulltrúar allra að- ildarríkja einhuga í fögnuðin- um, því fulltrúar Kúbu gengu af fundi áður en Kennedy kom. Formaður sendinefndar Kúbu, Carlos Lechuga, sendiherra, sagði við fréttamenn að fulltrúarnir hafi vikið af fundinum vegna þess að þeir óskuðu ekki að hlýða á rangfærslur forsetans varðandi byltinguna og ástand- ið á Kúbu. „Við skruppum og fengum okkur kaffisopa“, sagði hann. Caroline og John Við komuna til aðalstöðvanna mættu Kennedy nokkrir blökku menn, sem báru spjöld með áletruðum áskorunum um að- gerðir til að tryggja jafnrétti kynþáttanna. Sumar áletranim- ar gengu svo langt að saka Kennedy um að eiga þátt í morð inu á blökkubörnunum sex í Birmingham, Alabama, s.l. sunnu dag. Á einu spjaldinu stóð t.d.: „Ef Caroline og John jr. (börn forsetans) hefðu verið meðai barnanna sex, sem drepin voru, létuð þér þá nægja að tala?“ Þegar Kennedy gekk í fund- arsalinn var honum ákaft fagn- að. Hóf hann mál sitt með því að minnast á samningana i Moskvu um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn í andrúms- loftinu, geimnum og neðansjáv- ar. Sagði hann að halda bæri áfram á sömu braut og reyna að ná samningum um að stöðva kjarnorkukapphlaupið og tak- i mauka dreifingu kjarnorku- vopna, en stefna að notkun kjam orkunnar á friðsamlegum vett- vangL Forsetinn sagði að komið gæti að því á þessum áratug að rúss- neskir og bandarískir vísinda- menn ynnu saman að tunglleið- angri, og væri það aðeins einn áfangi í hugsanlegri samvinnu ríkjanna í framtíðinni. En hann lagði áherzlu á að allir samn- ingar um samvinnu yrðu born- ir undir bandalagsríki Banda- ríkjanna, því enginn samningur yrði gerður á kostnáð þeirra. Andvíg misrétti, hvar sem er Kennedy ræddi nokkuð um mannréttindamál, og sagði að mannréttindi væru ekki virt þeg ar Búddaprestar væru flæmdir burt úr eigin hofum, samkomu- húsum Gyðinga væri lokað eða sprengjum varpað á kirkjur. Með síðasta dæminu átti for- setinn við það þegar sprengju var varpað á kirkju í Birming- ham með þeim afleiðingum að sex blökkubörn biðu ’ bana. — Bandaríkin eru andvíg kyn þáttamisrétti og ofsóknum hvar sem er í heiminum — einnig þegar það gerist í okkar eigin landi, sagði Kennedy. Forsetinn sagði að samningur- inn um tilraunabann kæmi ekki í veg fyrir grundvallar ágrein- ing þjóðanna, og að meðan þessi ágreiningur ríkti takmark aði hann þann árangur, sem hugsanlegt er að ná. „En ég vil segja leiðtogum Sovétríkj- anna og íbúum, að ef þjóðir okkar eiga að öðlast öryggistil- finningu, þurfum við á mun betra vopni að halda en vetnis- sprengju, vopnL sem er betra en langdrægar eldflaugar eða kjarnorkuknúnir kafbátar, og vopn þetta er friðsamleg sam- búð“. enduim þaikflekanna, eða á ann- an hátt, sem hentast þætti. Fræðsluráð gerir þá ákveðnu kröfu, að fengið verði álit bygg- ingaeftirllts ríkisins um traust- leika téðra bygginga, og telji það byggingunuim á einhvern háitt ábótavant, verði bætt úr ágöLl- um, áður en lengira er haldið við byggingarnar." Leitað sérfræðiálits Urðu nokkuð harðar umræður uim þetta miál á bæj arstjórnar- fiundinum. Kvörtuðu talsmenn meiriMutans uim að samþykikt fræðslunáðs mundi ýta undir þá óánægju sem væri í bænum með bygginganfraimikvæmdir skólans. En íormaður fræðsluráðs er Andrés Kristjánsson, ritstjóri Tímans og varaifuilitrúi Fram- sóknarmanna. Það var upplýst varðandi seinni hluta samiþykktar firæðsilu- ráðis, að leitað hafði verið tii byggingareftirlits ríkisins, en á- lit þess liggur ekki fyrir enniþá. Hins vegar haifði Almenna bygg ingarfélagið, sem leitað haifði ver ið til um sérfræðilega rannsóikn, neitað að gera áliiit uim traust- leika byggingarinnar. En nú het ur verið leitað til Trausts h..f. tneð það mál, þar eð byggingar- eftirlit skólanna hefur ekki sér- fræðinga til að taika það að sér. Er þess vænzt að á næsta fundi bæjarstjórnar Kópavogs liggi fyrir álit sérfræðinga um styrk- leika byggingarinnar. Sofnaði frá log- andi sígarettu AÐFARANÓTT fimmtudags sofnaði maður út frá sigarettu á Vesturg. 26 á Selfossi. Kvikn- aði í svefnbedda hans, og hamt vaknaði og fólk I næsta her- bergi, sem kallaði á slökkviliðið. Logaði þá í rúmfötunum og var linoleumdúkurinn undir rúminu farinn að sviðna, en maðurinn hafði sloppið óbrenndur, aðeins með sviðna skyrtuna. Má það teljast mesta mildi. — Prestaköll Framh. ai bls. 2 Háaleitisvegur (Sólheimar); Háa leitisvegur (Sólheimar); Háa- leitisvegur, Kringlumýrarbl. 23 og 24; Háaleitisvegur, Sogamýr- arbl. 32, 34, 36, 38, 39, 41 og 59; Heiðargerði; Hvammsgerði; —- Hvassaleiti; Mjóumýrarvegur, Kringlumýrarbl. 19; Seljalands- vegur, Kringlumýrarbl. 12, 14, 19 og 17; Skálagerði; Stóragerði; Bústaðavegur: Fossvogsbl. 30, 31, 39, 42, 42A, 47, 49, 50, 51, 54, 55; Bústaðavegur: Bústaðabl. 3, 7, 23; Bústaðav.: Fossvogur; Fossvogs- vegur: Fossvogsbl. 2, 2A, 3, 5. 1* og 14; Klifurvegur. Fossvogs- blettur; Reykjanesbraut: Garðs- horn, Hjarðarholt, Kirkjuhvoll, Leynimýri, Rauðahús, SólbakkL Sólland og Br. 88 Fossvogi; Sléttuvegur; Siéttuvegur; Foss- vogsblettur. •'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.