Morgunblaðið - 03.10.1963, Page 1
24 sfóu?
Afstaða S-Afríku og við-
skiptalarrda hennar sögð
standa í vegi
New York, 2. okt. — (NTB)
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum, að andstaða S.-
Afríku og nokkutra helztu
viöskiptaríkja þess hafi nú
komið í veg fyrir, að tillögur
Norðurlanda um lausn kyn-
þáttavandamáls Suður-Af-
ríku nái fram að ganga. Til-
lögurnar fólu í sér samstarf
við nokkur Afríkulönd um
myndun nefndar 7 manna, þ.
á. m. hlutlauss oddamanns.
Átti skipan nefndarinnar að
tryggja, að hagsmuna allra
þjóðarbrota í Suður-Afríku
yrði gætt við lausn vanda-
málanna.
Bússor koupa
enn hveiti
c V-löndum
Vitað varj að nokkur Af-
ríkulönd höfðu áhuga á nor-
rænu tillögunum. Þau höfðu
Framh. a bls. 10
Geimsprengins fyrir
1,5 milljón árum
i
VÍSINDAMÖNNUM við
Mount Palomar stjörnuturn-
inn í Kaliforníu hefur tekizt
að ljósmynda sprengingu, sem
talið er að hafi orðið í stjörnu
þyrpingu úti í geimnum fyrir
1.500.000 árum í tíu milljón
ljósára fjarlægð frá jörðu.
Telja stjörnufræðingarnir
sennilegt að sprengingarnar
standi enn yfir.
Stjörnuþyrpingin nefnist
M82, og hafa stjörnufræðing-
ar lengi haft grun um að eitt-
hvað merkilegt væri þar á
seiði, en ekki fengið vissu
fyrir því fyrr en nú. Ljós-
myndirnar tók dr. Allan R.
Sandage, og notaði til þess
200 tommu stjörnukíki. Rann
sóknir á myndunum sýna að
stjörnuhlutar úr sprenging-
unni — sem nægja til að
mynda 5 milljónir hnatta á
stærð við sólina — eru á
fleygiferð út í geiminn, og
fara með allt að 35 milljón
kílómetra hraða á klukku-
stund.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar til að ná myndum af
sprengingunni, en aldrei héf-
ur það tekizt fyrr en nú. Dr.
Sandage taldi að það efni,
sem yrði fyrir mestum áhrif-
um af völdum sprengingar-
innar, væri vetni. Valdi hann
því þá leið að útiloka allt
ljós frá því að ná filmunni
annað en ljós, sem stafar frá
vetninu. Tókst þetta eins og
meðfylgjandi mynd sýnir.
Tillögur Noröurlanda
að engu orðnar?
BONN og París, 2. okt. — AP —
Traustar heimildir í Bonn skýrðu
frá því í dag að vestur-þýzk fyr-
irtæki myndu flytja út hveiti til
Sovétríkjanna fyrir um 18 millj.
dollara þrátt fyrir andstöðu Að-
enauers, kanzlara, við aðstoð f þá
átt að leysa hveitivandræði
Rússa. Er hér um að ræða 250,000
tonn, sem er lítið í samanburði
við þau 6,800,000 tonn, sem Sovét
ríkin hafa fest kaup á í Kanada
og þau 1,800,000 tonn, sem keypt
hafa verið frá Ástraiíu fyrir
íkömmu.
Tilkynnt var í París í dag að
Frakkar hefðu undirritað samn-
inga um sölu 80,000 tonna af
hveiti til Sovétríkjanna.
Keeler enn fyrir rétt
Er nú sökuð um meinsæri
London 2. okit.
NTB
REITARIIÖLD yfir Cristine
Keeler og þremur aðilum. öðrum
hófust í dag. Er þeim gefið að
sök meinsæri og að hafa reynt
að vilia fyrir réttinum.. Ákærur
þessar standa einnig í sambandi
við málið gegn blökkusöngvar-
anum „Lucky“ Gordon, sem á
sínum tíma var dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir árás á
Christine Keeler, en var síðan
látinn laus.
Réttarsalurinn Marlybone í
London var þéttskipaður áiheyr-
endum er réttarhald 1 málinu
hóifst í morgun. A uk Keeler er
ákærð vinkona hennar, Paula
Hamilton Márshall, sem kveðst
vera einkaritari, svo og ráðskona
vinkvennanna, frú Olive Nadia
Brooiker, og samlandi Lucky
Sercdiráð Indónesa flækt i hrceykslismál:
Komst I samband við vændis-
hringinn í heimsókn Sukarno
Fyrsti sendiráðsritari annaðist milligöngu
— þrír menn fangelsaðir í K.höfn
Kaupmannahöfn, 2. okt.
— (NTB) —
L J Ó S T er nú orðið að
Royal-hótelið í SAS-bygg-
ingunni í Kaupmannahöfn
tefur verið notað til milli-
göngu af símavændishring
þeim, sem nú er verið að
fletta ofan af í borginni. —
Ennfremur er upplýst að
fyrsti ritari sendiráðs Indó
nesa, L Gusti N. Santa-
wirja, annaðist milligöngu
fyrir símavændishringinn.
Komst hann í samband við
hringinn á meðan á annari
heimsókn Sukarno, Indó-
nesíuforseta, stóð í Dan-
mörku. Frá þeim tíma hef-
ur Santawirja reglulega út
vegað símavændishringn-
um, sem telur 20 stúlkur á
Framh. á bls. 10
Gordon frá V estur Indtíuim,
Rudolph Feriton að nafni.
í réttinum í dag kom í Ijós, að
áverkar þeir, sem Ohristine
Keeler hafði áðuir borið að
Gordon hefði veitt henni, voru í
raun og veru veittir af bróður
vinkonu hennár, John Hamiilton-
Marshall, en systir hans var
aðalvitni Keeler í málinu gegn
Gordon á sinum tima. Hafði
þeim lent saman sama dag og
Gordon kom í heimsókn. Ástæð-
an til þess, að þeim kom síðan
saman um að kenna Gordon um
verknaðinn, var sú, að Keeler
var orðin leið á honum. Vildi
hún losna við kunningsskap
hans, helzt á þann veg að hann
lenti í fangelsi.
I fangelsið fór Gordon, en
m.a. vegna óeiningar milli máls-
aðila um hvað hverjum bæri af
fé fyrir að þegja um hið rétta,
bárust ákæruvaldinu upplýsing-
ar, sem urðu til þess að Gord-
on var látinn laus.
Réttarhöld þessi vekja mikla
Árás á Kúbu
Havana 2. október — AP
HERMÁLARÁÐUNÍEYTI
Kúbu tilkynnti í dag að sög-
unarmylia í héraðinu Oriente
á norðvesturströnd landsms
hefði verið eyðilögð í árás
snemma á þriðjudagsmorgun.
I tilkynnmgunni sagði að „sjó
ræningjaskip“ hafi læðst að
ströndinni í skjóli myrkurs
og eyðilagt mylluna. Hefði
skipið komizt undar
athygli í Englandi, þar sem sak-
borningar voru allir á einn eða
annan hátt viðriðnir hneykslis-
mál þau, sem urðu til þess að
John Profumo, hermálaráðherra,
varð að segja af sér, og Stephen
Ward framdi sjálfsmorð.
Fluttur uitur
uð Downing
Street 10
London 2. okt. —»NTB
HAROLD Macmillan, for-
sætisráðherra, flutti í dag aft
ur að Downing Street 10, þar
sem forsætisráðherrar Breta
búa jafnan, en húsið hefur
verið í viðgerð s.l. 3 ár. Á
meðan hefur Macmillan búið
í byggingu Flotamálaráðu-
neytisins. Viðgerð hefur einn-
ig farið fram á húsunum
Downing Street 11, bústað
fjármálaráðherrans, og nr. 12,
en hið síðarnefnda hýsir
alstöðvar leiðtoga þess flokks
sem hverju sinni fer með
völd.
Húsin þrjú voru byggð ■ á
17. öld af Sir George Down-
ing, og eru samtals um 200
herbergi í þeim.
Upphaflega var ráð fyrir
gert að breytingarnar á hús-
unum myndu kosta sem svar-
aði 48 milljónum ísl. kr. en
láta mun nærri að þær hafi
kostað um 120 milljónir kr.
Háværar raddir hafa lengi
verið uppi í Bretlandi þess
efnis að viðgerðin væri alltof
dýr.