Morgunblaðið - 03.10.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.10.1963, Blaðsíða 24
o KENNSLUBÆKUR FYRIR ALLA SKOLA BOKAVERZLUN SIGFUSAR EYMUNDSSONAR AUSTURST.18 FERÐAÞJÚNUSTA OS FARMIDASALA ÁN AUKAGJALDS Jeppinn drap hestinn, slasaði mann og varð óökufær Gungnamenn af Eyvindorslaða- heiði væntanlegir í dag Stafnsrétt full af snjo Akureyri, 2. okt. í fyrrakvöld um níu leytið varð árekstur milli jeppa og ríðandi manns á þjóðveginum fyrir neðan Grýtubakka í Höfða hverfi. Maðurinn á hestinum, Kristján Benediktsson frá Efri- Dálkstöðum á Svalbarðsströnd, meiddist allmikið og var fluttur í sjúkrabíl til Akureyrar um kvöldið. Liggur hann hér í sjúkrahúsinu og líðan hans eft- ir atvikum. —Sv. P. Hesturinn, sem Kristján reið steindrapst við áreksturinn og jeppinn, sem var úr Fnjóskadal, varð óökufær. Slysið var ekki tilkynnt til hreppstjóra fyrr en í gærmorgun og gerði það rann- sókn málsins örðugri en ella. ERKI hafði í gær frétzt neitt af gagnamönnum á Eyvindar- staðaheiði, sem þangað fóru í fyrradag á jarðýtu og tveimur dráttarvélum með hálfbeltum og með tvo sleða auk þess sem sex menn fóru ríðandi, sagði Guð- mundur K'lemensson í Bólstaða- hlíð blaðinu í gær. Sigurður Guðmundsson bóndi og gangnaforingi á Fossi í Svart- árdal stjórnar þessum sögulegu leitum og er gert ráð fyrir að gagnamenn komi niður að Stafni í dag. Bæði er allmargt hrossa og fé inni á heiðinni, en búið var áður að smala út fyrir Ströngukvisl. í fyrradag var Svartárdalur ruddur svo og hreinsaði jarðýta úr almenningnum í Stafnsrétt, en hann var fullur af snjó. í gær var hláka fyrir norðan og óttast menn að vaxi í ám svo að það geti orðið Ul baga við fjárleit- irnar. Gert er ráð fyrir að réttað verði í Stafnsrétt á íöstudag. Grænlendingarnir, áður en haldið var frá Sögu í ráðherraveizl una í gærkvöldi. Fara margs vísari heim — segja grænlenzku bændurnir GRÆNLENZKA bændafólkið, sem dvalizt hefur á {slandi að undanförnu í boði landbúnaðar- ráðherra, mun halda heimleiðis kl. 10 fJi. í dag. í gærkvöldi sátu Grænlendingarnir kvöldverðar- boð ráðherra, en skömmu áður átti fréttamaður Morgunblaðsins stutt samtal við Peter Motzfeldt, formann grænlenzka Bændasam- bandsins. — Við Grænlendingar stöndum íslendingum talsvert langt að baki í sauðfjárrækt, sagði Motz- feldt. Við höfum sama sauðfjár- stofninn, en hér hefur hann ver- ið alinn í 1000 ár — í Grænlandi aðeins 50. Ég fór til Noregs fyrir 3 árum, var þar um vikutíma og kynnti mér sauðfjárrækt. Ég sé nú að þeixn tíma hefði verið bet- ur varið á íslandi. Bæði er það, að við höfum sama stofn og svo er veðurfar einnig mjög svipað hér og á Suður-Grænlandi. — Beitiland fyrir sauðfé á Grænlandi er heldur betra en hér. Er það vegna þess, hve stofninn er lítill. Meðalþungi lamba á Grænlandi er hærri en hér og kjötið þykir mjög gott. Danir vilja heldur grænlenzkt lambakjöt en færeyskt. Við þyrft Afbrotavanda- mál í velferðar- ríkjum Mann tekur út af belgisk- um togara í hafi Varðskip fer með lœkni til mióts við togarann, en manninum tókst ekki að bjarga BLAÐIÐ hafði af því spurnir í gær að tekið hefði út mann af bel- giska togaranum Van Dyck frá Oostende. Var varðskip kallað hingað frá íslandi með lækni til hjálpar manninum, sem legið hafði 3 tíma í sjónum. Togarinn var staddur 25 sjómílur suðaustur í hafi á leið heim til Belgíu. Með fyrirgreiðslu loft- skeytastöðvarinnar í Vest- mannaeyjum og brezks togara tókst Mbl. að hafa samband við hinn belgiska togara. Sagð ist hann hafa verið staddur á 64.25 gráðu N.br. og 13.25 V.l. er slysið varð. Hefði maðurinn farið fyrir borð kl. 12 á hádegi eftir belgiskum tíma og hans verið leitað í þrjár klukkustundir. Eftir skilaboðunum, sem bárust um talstöð hins brezka togara virtist sem íslenzkt fiskiskip hefði fundið manninn og kom ið honum í hinn belgiska tog- ara, en nánari staðfestingu á þvi var ekki hægt að fá í gær- kvöldi. Varðskipið Óðinn fór með lækni á móti togaranum og segir fréttaritari blaðsins í Neskaupstað nánar frá því í frétt hér á eftir. Neskaupstað, 2. okt. í kvöld kom varðskipið Óð- inn hingað með lík af spánska sjómanninum, sem drukknaði af belgiska togaranum Van Dyck. Fréttamaður Mbl. átti tal við skipherrann á Óðni, Þór- arin Björnsson og skýrði hann svo frá: Óðinn lá inni í Viðfirði er brezkur togari tilkynnti kl. 14.15 í dag að belgiskur tog- ari, Van Dyck, hefði misst mann fyrir borð, en náð hon- um aftur eftir um 3 klst. með lífsmarki. Var togarinn. þá staddur um 25 sjómílur suð- austur af Hvalbak og bað um að læknir yrði sendur á móti sér með skipi. Norðfjarðar- radíó hafði samband við Óð- in og kom hann kl. 15.15 til Norðfjarðar og tók þar yfir- lækni sjúkrahússins, Jón Árnason, og var síðan haldið á fullri ferð á móti togaran- um, Áður hafði yfirlæknirinn haft samband við togarann gegnum Norðfjarðarradíó og gefið fyrirmæli um hvernig skyldi haga sér við lífgun mannsins. Óðinn hitti síðan belgiska togarann 6 mílur norðaustur af Hvalbak kl. 17. 24, en kl. 17.41 var komið með manninn um borð. Þegar voru hafnar lífgunartilraunir í framhaldi þess sem gert hafði verið um borð í togaranum, en án árangurs. Litlu síðar til- kynnti yfirlæknirinn að mað- urinn væri látinn. Hingað kom svo Óðinn kl. 19.50 í kvöld og var líkið lát- ið í land hér. Hinn látni heit- ir Pais Giseti og er Spánverji. Ekki sagðist Þórarinn vita um aðdraganda slyssins, en kvað togarann halda beint heim til Beigíu þar sem sjópróf færu fram. — Ásgeir. REKTOR Hamborgarháskóla prófessor, dr. jur. Rudolf Siev- erts, flytur fyrirlestur í boði Lög fræðingafélags íslands í hátíða- sal Háskólans í dag fimmtudag 3. okt. kl. 5.30. Fyrirlesturinn fjallar um afbrotavandamál í vel ferðarríkjum. Öllum er heimill aðgangur að fyrirlestrinum. um að auka sauðfjárstofn okkar a.m.k. um helming, en það, sem helzt háir okkur, er heyskortur á veturna. Okkur vantar vélar til að rækta jörðina. Leggja þarf í miklar fjárfestingar, til þess að þurrka stór landsvæði. Hér á ís- Framh. a bls. 10 Sfórtjón / ofsa- roki í Ólafsvík Ólafsvík, 2. okt. SÍÐASTLIÐNA nótt gerði hér afspyrnu rok af suðaustri og mun vindhraði hafa komizt upp í 12 vindstig. Hér urðu talsverðir skaðar. 1 Tveir bátar 12—13 tonn að1 stærð slitnuðu frá hafnargarð 1 inum og rak upp í fjöru. Ekki 1 er enn vitað um skemmdir á þeim. Þá fauk þak af ný- byggðu íbúðarhúsi og þök af I hafnarskúrnum og fleiri skúr ) um. Uppsláttur fauk um koll I I við hús, sem verið er að byggja og skemmdust mót ' talsvert. í Fróðárhreppi fauk þak af | 1 nýju íbúðarhúsi á Tröð. 1 I Símasambandslaust var | milli Grundarf jarðar og Ólafs I víkur um tíma, en veðrinu slotaði á 7. tímanum í morg- ^ * un. — H jörtur. Ólafur Bjarnason yfir- læknir ver doktorsritgerð HINN 19. október kl. 2 síðdegis fer fram doktorsvörn við Lækna deild Háskóla íslands. Ólafur Bjarnason, yfirlæknir, sérfræð- ingur í meinafræði, mun þá verja doktorsritgerð sína, er hann nefnir Uterine Carcinoma in Ice- land“, eða Krabbamein í legi á íslandi. Læknadeildin hefir tek- ið ritgerðina gilda og verða and- mælendur þeir Pétur H. J. Jakobsson, yfirlænkir og Júlíus Sigurjónsson, prófessor. Ólafur er fæddur 2. marz 1914, sonur hins kunna skipstjóra og aflamanns Bjarna Ólafssonar á Akranesi og konu hans, Elínar Ásmundsdóttur. Ólafur lauk stúdentsprófi 1935 og kandidats- prófi frá Háskóla íslands 1940. Hann vann kandidatsár sitt við spítala í Reykjavík, en réðst 1940 til Rannsóknarstofu Háskólans og hefir unnið þar siðan, nú sið- ast sem yfirlæknir þar. Hann stundaði sérnám í meinafræði í Lundúnum 1% ár auk þess sem hann hefir nokkrum sinnum far- ið í skemmri námsferðir utan. Ólafur er kvæntur Margréti Jóhannesdóttur frá Hofsstöðum í Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.