Morgunblaðið - 03.10.1963, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.10.1963, Blaðsíða 14
14 MORGUN BLADID Fimmtudagur 3. okt. 1963 Mínar innilegustu þakkir færi ég skyldum og vanda- lausum, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 100 ára afmæli mínu og gerðu mér daginn ógleymanlegan. — Guð blessi ykkur öll. Valgerður Stefánsdóttir. Hjartanlega þakka ég vinum og vandamönnum fyrir gjafir, blóm og skeyti og margskonar hjálp og vináttu á 80 ára afmæli mínu þann 29. sept. sL Björg Þorsteinsdóttir, Dyngjuvegi 17. ,t, Dóttir mín og systir okkar ERLA STEFÁNSDÓTTIR Laufásvegi 9. lézt í Landakotsspítala þriðjudaginn 1. október. Sigríður Jónsdóttir frá Hvítadal og systkini. Maðurinn minn GÍSLI JÓNSSON frá Hnappavöllum, Öræfum, lézt að St. Jósephspítala Hafnarfirði 2. október s.l. Jarðarförin ákveðin síðar. Guðný Pálsdóttir. Eignikona mín GUÐBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR frá Árkvörn andaðist í sjúkrahúsinu á Selfossi l.þ.m. — Jarðarförin fer fram frá Hlíðarenda í Fljótshlíð, laugardaginn 5. október kl. 2 e.h. Sæmundur Jónsson, Hellu. Móðir okkar, systir, tengdamamma og amma MARGRÉT GUÐNADÓTTIR Hlíðarhvammi 7, Kópavogi, er lézt í Landsspítalanum 25. september sl. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. október n.k. kl. 10,30 f.h. — Blóm og kransar er vinsamlega afþakkað, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlega bent á Slysavarnarfélag íslands. Athöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd vandamanna. Trausti G. Traustason, Guðbjörn Þorsteinsson, Eggert G. Þorsteinsson. GUNNLAUGUR SIGURÐSSON frá Ártúni, Smálandsbraut 5, er lézt á Landakotsspítala 28. sept. sl. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. október kl. 13,30. Vandamenn. Bróðir minn GUÐMUNDUR HANNESSON frá Múla andaðist á Landsspítalanum 29. fyrra mánaðar. Jarð- arförin fer fram að Skarði í Landssveit laugardaginn 5. þ.m. kl. 2 e.h. — Bílferð frá BSÍ kl. 11 f.h. sama dag. Fyrir hönd vandamannau Haraldur Hannesson Útför AGNESAR EGGERTSDÓTTUR Skólavörðustíg 29 er lézt mánudaginn 30. sept., fer fram frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 4. okt. kl. 3 e.h. Kristinn Friðfinnsson og börn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför MARÍU Þ. BJARNADÓTTUR Starhaga 14. Eiríkur Jónsson, Jón Eiríksson, Helga Eiríksdóttir, Guðmundur Jónsson, og banrabörn. Einar Þóröarson Skeljabrekku - Kveöja E I N A R Þórðarson frá Skelja- brekku andaðist í Landsspítalan- um 18. f. m. Hann var fæddur að Skeljabrekku í Borgarfirði 16. marz 1877 og átti þar heimili í rösklega hálfa öld, eins og hann minntist oftlega á. Fyrst í for- eldrahúsum, en síðar sem sjálf- stæður bóndi. Skeljabrekku unni Einar mjög Og Borgarfjarðarhér- aði, þar sem forfeður hans höfðu búið um langa hríð. Var hann og gagn kunnugur mönnum og mál- efnum i því héraði frá fyrri tím- um. Vel fórst Einari búskapur. Hann var dýravinur og fór vel með allar skepnur, en mest mat hann þó hestana. Átti hann á sín- um búskaparárum marga af- bragðs hesta. Til hinzta dags ylj- uðu honum um hjartarætur minn ingar frá samverustundum með þessum löngu horfnu vinum. Eftir að Einar fluttist til Reykjavíkur bjó hann nær alla tíð að Njarðargötu 7. Vann hann hjá Olíuverzlun íslands hf. á þriðja tug ára við afgreiðslu og innheimtustörf. eða þar til heils- an leyfði honum ekki lengur að skila sínu verki eins og hann gerði kröfur til. Lengst mun Einars frá Skelja- brekku verða minnzt í sambandi við vísna- og ljóðasöfnun. Hann hóf ungur að safna. Var ákaflega fljótur að læra vísur og kvæði. Minnið var líka afbragðs gott. Kunni hann því mikil firn vísna og kvæða og hafði á hraðbergi er við hann var rætt. Á hans æsku- og uppvaxtarárum var Skelja- brekka áningar- og gististaður fjölmargra Borgfirðinga Og ann- arra ferðamanna á leið til Akra- ness eða Reykjavíkur. Einar hafði því persónuleg kynni af fjölda héraðsbúa, sem fjær bjuggu. Margir þeirra voru hon- um hjálplegir við visnasöfnun. Bréfaskipti hafði hann við ýmsa hagyrðinga og skáld í fjarlægum héruðum. Sendu þeir honum vís- ur og ljóð bæði sín eigin og ann- arra. Safn Einars var þvi orðið mikið að vöxtum og hefur að geyma fjölmargt, er annarsstað- ar mun vart að finna. Er tímar líða á það eflaust eftir að koma betur í ljós. Mikla ánægju hafði Einar alla tíð af lestri góðra bóka. Átti hann líka margar ágætis bækur og tímarit. F* ljóðabækur munu þó hafa tekið mest rúm í bóka- hillum hans. Hann hafði prýði- lega sjón og las í góðri birtu gleraugnalaus allt þar til hann lagðist rúmfastur í ágústmánuði sl. Hagorður var Einar vel og hafa birzt eftir hann vísur og kvæði, m.a. í Borgfirzkum ljóð- um, sem gefin voru út fyrir nokkrum árum. Einar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Jónsdóttir frá Neðra-Hreppi í Borgarfirði, en hin síðari Ragnheiður Jónas- dóttir frá Björk í Grímsnesi. Hon um varð tveggja dætra auðið, sem báðar eru á lífi. Einar frá Skeljabrekku var með stærstu og gjörvulegustu mönnum enda þrekmaður hinn mesti. Hann naut þess í ríkum mæli að fagna gestum á heimili sínu og ræða við þá um skáld- skap. Hann hafði líka af miklu að miðla í þeim efnum. Gleymast mun það seint, þeim er á hann hlýddu, fara með vísur og ljóð, jafnvel heilar rímur. Hin síðustu ár átti Einar við vanheilsu að stríða, en andlega hélt hann sér vel. Hann átti ætíð sitt eigið heimili, enda þannig skapi farinn, að sjálfsmennska hentaði honum bezt. Hann taldi sér það mikið lán, að hafa fyrir ráðskonu Vig- dísi Jónsdóttur, sem annaðist hann, er halla tók undan fæti, af frábærri alúð og ósérhlífni. Sýndi hann það og í verki, að hennar góðu störf mat hann mikils. Þeir, sem áttu vináttu Einars frá Skeljabrekku hafa mikið misst við fráfall hans. Ég sendi dætr- um hans, öðrum ættingjum og vin um mínar innilegustu samúðair- kveðjur. B. H. Dansskoli Eddu Scheving Kennsla hefst mánudag- inn 7. október. — . /''pr- ", Afhending skírteina fer || fram: Kópavogur I félagsheimili Kópavogs laugardaginn 5. okt. frá kl. 4—7 e.h. Reykjavik KR-húsinu við Kaplaskjóls veg laugardaginn 5. októ- ber frá kl. 1—3 e.h. Innritun í síma 23500 daglega frá kl. 1—5 eftir hádegi. Nú byrjar FÉLAGSVISTIN vinsæla aftur í G.T.-húsinu í Reykjavík. Fyrsta spilakvöldið annað kvöld (föstu- dag) kl. 9 stundvíslega. Keppt verður um ágæt verðlaun. Kl. 10,30 hefst svo DANSINN. Hljómsveit Ólafs J. Péturssonar (Riba) Dansstjóri: Gunnlaugur Guðmundsson. Sala aðgöngum. frá kl. 8 (föstudag). — Sími 1-33-55. — Hjá okkur skemmt menn sér án áfengis. S. G. T. Núseignin Tjarnargata 24 er til leigu nú þegar. í húsinu eru tvær íbúðir, 5 herbergi hvor. Uppl. í símum 12250 og 13563 í dag og á morgun. Húseigeridur — Garðeigendur Seljum gangstéttarhellur, stærð 50x50 cm og 25x50 cm. Pípuverksmiðjan hf. Rauðarárstíg — Sími 12551. Atvinna — Afvinna Óskum eftir að ráða nokkrar stúlkur, karlmenn og unglingspilt til starfa hjá verksmiðjunni. — Gott kaup — góð vinnuskilyrði. Dósaverksmiðjan hf. Borgartúni 1. Sími 12085.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.