Morgunblaðið - 03.10.1963, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADI0
Fimmtudagur 3. okt. 1963
Býðst að senda blaða-
menn til S-Afiríku
Izollenzkt blað gagnrýnir ákvörðun
utanríkisráðherra Norðurlanda
AFTONBLADET í Stokkhólmi
hefur ritað Verwoerd, forsætis-
ráðherra S.-Afríku, bréf í tilefni
þess að utanríkisráðherrar Norð
urlanda hafa hafnað boði for-
sætisráðherrans um að heim-
Shógoreldui '
ú Kilimonjaro
Dar Es. Salaam, Tangan-
yika, 30. sept. AP.
MIKILL skógareldur geisar
nú í hlíð Kilimanjaró, hæsta
fjalls Afríku. Er eldurinn í
3—4000 metra hæð og hafa
þegar orðið miklar skemmdir.
Eldurinn teygir sig niður
eftir fjallshlíðinni og er óttast,
að akurlendi verði honum að
bráð, ef ekki tekst að komast
fyrir hann. Logarnir sjást í
nærri 30 km. fjarlægð. Á
þriðja þúsund manns hafa
unnið að slökkvistarfinu í
fjallshlíðinni, en það er mikl
um erfiðleikum bundið — og
mennirnir í stöðugri hættu
vegna grjótflugs og fallandi
trjáa. Nokkrum sinnum hafa
komið úrhellisrigningar, en
þær hafa lítt eða ekki haft að
segja gegn eldinum.
sækja S.-Afríkr. Býðst Afton-
bladet, sem styður sósíaldemó-
krata, til þess að senda blaða-
mann og ljósmyndara til lands-
ins til þess að lýsa því, sem
fyrir augu ber. Kveðst blaðið
munu halda sig við sannleikann
um ástandið ef tU heimsóknar
kæmi. Bréf þessa efnis var af-
hent sendiráði S-Afríku í Stokk-
hólmi.
Nils Matthiasen, þingmaður,
ritar í dag harðlega í Kaup-
mannahafnarblaðið Aktuelt um
hinn kunna danska skipaeiganda
A.P. Möller, sem lýst hefur því
yfir að afstaða Norðurlandanna
til boðs stjórnar S-Afríku sé
„kjánaleg, barnaleg og ókurteis.“
Matthiasen segir um þessi um-
mæli „að freisting sé að ætla
að þau séu runnin frá gömlum
manni, sem genginn sé í barn-
dóm.“
Óháða hollenzka blaðið „De
Telegraaf í Haag ræðir einnig í
dag ákvörðun utanríkisráðherr-
anna, og telur hana vera ákaf-
lega frumstæða. Bendir blaðið á
að blöðunum hafi fyrstum allra
verið tilkynnt um synjun ráð-
herranna. Frakkland sé það
Evrópulanda, sem trúlegast
hafi mestan skilning á vandamál
um S-Afríku, og bætir blaðið
því við að Norðurlandabúar viti
bókstaflega ekki neitt um það
ástand, sem ríkir í S-Afríku.
Geoff Workman við komuna úr hellinum
ÁáíÍSÍflíf'iXMÍfl'í&vflflfl1' V , , y (M . . , .
DCS-þota Pan-Am. í Keflavík í gær
Skruppu í hádegis'
verð til London
Pan-Am tekur upp þotuflug
*
um Island
f GÆRMORGUN flaug fyrsta
þotan í áætlunarflugi frá íslandi.
Það var DC8-þota frá Pan Amer-
ican-flugfélaginu, en það tekur
þar með upp þotuferðir á leiðinni
New York — Keflavík — Lond-
on, fram og aftur á hverjum
miðvikudegi. En frá þessum
mánaðamótum hefir félagið að-
eins flug með þotum, nema á
fáum stuttum leiðum, þar sem
þotur geta ekki lent á flug-
völlum.
Pan American-flugfélagið bauð
í gær um 30 gestum frá fslandi
í jómfrúferðina með þotu á á-
ætlunarleiðinni Keflavík —
London. Meðal þeirra voru Brynj
ólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri,
fulltrúi flugmálaráðherra, Pen-
field sendiherra Bandaríkjanna,
Hörður Helgason, form. varnar-
málanefndar, framámenn flug-
mála, fulltrúar íslenzku flugfé-
laganna, fulltrúar ferðaskrif-
stofa, blaðamenn o. fl.
Flogið var frá Keflavíkurflug-
velli kl. 8,45 í rigningu og ofsa
roki, svo gestir áttu erfitt með
Vatnsdælingar flytja
iömb tíl beitar á Ásum
BLÖNDUÓSI, 2. okt. — í allan
gædag var sólskin og logn. Snjór
inn seig nokkuð og dálítið klökkn
aði móti sól, en alls ekkert í for-
sælu. Eftir sólsetur var talsvert
frost en fór minnkandi þegar
leið á kvöldið og í morgun kom
skyndilega asahláka. Þegar leið
á daginn var hvarvetna komin
upp ágæt jörð. Þrátt fyrir mikla
Fékk duíl
í vörpunu
SÍÐARI hluta dags í gær kom
togarinn Þorkell máni með
tundurdufl er hann hafði feng
ið í vörpuna. Skipið kom ekki
inn í höfnina, en duflið var
rannsakað og síðan fjarlægt,
en togarinn hélt á veiðar á ný.
Hellisbúi í 105 daga
HEF ég misst af góðu sumri,
spurði hellisbúinn Geoff
Workman s.l. sunnudag þegar
hann kom út undir bert loft
í fyrsta sinn eftir 105 daga
dvöl neðanjarðar. Tilgangur-
inn með dvölinni neðanjarð-
ar var m. a. að setja „met“
en fyrra metið átti Frakkinn
Marcel Sifre, sem dvaldi í
heili sínum í 62 daga.
Workman er 34 ára Breti
og ritari í samtökum hella-
könnuða í heimahéraði sínu,
Derbyshire Caving Associa-
tion. Um 400 manns voru sam
ankomnir við hellisopið þeg-
ar Workman kom út eftir
þriggja og hálfs mánaðar dvöl
í svarta myrkri djúpt neðan
jarðar. Eftir að hafa kastað
kveðju á mannfjöldann og
heilsað konu sinni sagði hell-
isbúinn: Það eina, sem ég þarf
nú á að halda er rakstur og
klipping, bað og steik, síðan
er ég reiðubúinn að dvelja
heilt ár neðanjarðar .
Læknar sögðu Workman
að hann yrði að troða baðm-
ullarhnoðra í eyrun og setja
upp sólgleraugu þegar hann
kæmi upp á yfirborðið eftir
svo langa dvöl í iðrum jarð-
ar, en hann sinnti því ekki, og
varð ekki meint af. Var hann
hreykinn af því að hafa brotið
þessar læknareglur, sem
fyrirrennarar hans álitu nauð
synlegt að fylgja.
Workman var þrjár og
hálfa klukkustund að klifra
upp á yfirborðið. Þaðan báru
vinir hans hann á öxlum sér
að næstu vínkrá þar sem skál
að var í rommi fyrir nýja
heimsmetinu.
— Ég vona að læknisrann-
sókn, sem gerð verður á
næstu þremur dögum, sanni
vísindamönnunum að menn
geta komizt af neðanjarðar,
sagði Geoff Workman. Einnig
fá læknarnir nú tækifæri til
að kanna áhrif dagsbirtu og
svarta myrkurs á starfsemi
Iíkamans.
■
hláku í allan dag er enniþá mikill
snjór viðasthvar og hvergi kom-
inn teljandi vöxtur í ár og læki,
en ef hlýindin haldast má búast
við miklum vatnavöxtum.
Þrír bændur í Vatnsdal hafa
rekið samtals um 700 lömb í
hagagöngu að Torfalæk á Ásum.
Fleiri ætluðu að reka fé norður
á Ása í dag ef hlákan hefði ekki
komið. Á mánudaginn fóru Svín-
vetningar fram fyrir heiðargirð-
inguna, sem liggur yfir þvera
Auðkúluheiði um Friðmundar-
vötn, og sóttu þangað stóð. Þar
var mikill snjór, en góð jörð fyr-
ir hrossin og litu þau vel út. —
Snjór virtist minni sunnar á heið
inni. Stóðið var réttað í Auð-
kúlurétt í gær. Gangnamenn á
Eyvindarstaðaheiði eru væntan-
legir til byggða annað kvöld og
er ekki að vænta frétta af þeim
fyrr. — Björn.
Ný ensk
lesirurbók
eftir Björn Bjarnason
ÚT er komin hjá Ísafoldarprent-
smiðju „Ensk lestrarbók" sem
Björn Bjarnason hefur samið.
í formála segir að bókin sé ætluð
nemendum sem lært hafa ensku
í einn til tvo vetur, en þó eink-
um til landsprófs. Síðari hluta
bókarinnar má þó kenna þeim,
sem lengra eru komnir í námi
eða vilja sjálfir auka við þekk-
ingu sína.
Allýtarlegt orðasafn er aftast
í bókinni og er orðum ekki skip-
að eftir stafrófsröð, heldur fylg-
ist að blaðsíðutal orðasafnsins og
leskaflanna.
Efni bókarinnar er valið úr
ýmsum áttum, en þó einkum úr
nýjum, enskum lestrarbókum og
mörgum öðrum verkum.
Höfundur er sem fyrr segir
Björn Bjarnason sem hefur ára-
tugareynslu í starfi sínu sem
enskukennarL
að komast út í flugvélina. Var
fyrst flogið í 29 þús. feta hæð,
en flugið hækkað vegna óveðurs
upp í 32 þús. fet og síðan upp í
35 þús. fet. Flugtími frá Reykja-
vík til Prestwick var 1 klst. 45
mín. og síðan 45 mín. frá Prest-
wick til London þar sem Pan
American bauð gestum í hádeg-
isverð í Skyway-hóteli. Þar var
viðstaddur Henrik Sv. Björns-
son sendiherra. Ken Leach sölu-
stjóri félagsins bauð gesti vel-
komna. Henrik Sv. Björnsson
óskaði Pan American til ham-
ingju með flugið og Brynjólfur
Ingólfsson þakkaði fyrir hönd
gesta.
Pan American hefir nú 19 DC8
þotur í förum á ýmsum leiðum,
auk 26 Boeing-þota. DC8 þoturn-
ar, sem verða á leiðinni um Is-
land, taka 168 farþega fulllest-
aðar, en oft er haft 1. farrými
þar sem rýmra er fyrir 12—36
farþega. Er það um 100 dollur-
um dýrara á leiðinni New York—
Keflavík en annars farrýmis mið
ar. Fargjald þota félagsins til
Evrópu er sama og annara flug-
véla á þeirri leið, en 50 dollurum
dýrara til New York en með
t. d. Loftleiðavélum. Þotur Pan-
American fljúga 250 ferðir yfir
Atlantshafið og Kyrfhhafið f
viku. DC8 vélarnar geta farið
yfir Atlantshafið án milli lend-
inga. Flugvélin er um 150 lestir
að þyngd og flýgur með 920 km.
hraða á klst. Hún er búin 4 Pratt
& Whitney þotuhreyflum.
Ferðin til London í gær var
hin ánægjulegasta, farþegar sátu
í þægilegum sætum og flugfreyj-
ur stjönuðu við þá. Alda Guð-
mundsdóttir flugfreyja hafði
verið kölluð heim úr Austur-
landaferðum til að fara þessa
ferð um ísland. Eftir hádegis-
verðarboðið í London var flog-
ið til íslands aftur og komið til
Keflavíkur um kl. 7. Farþegar
skruppu sem sé til London rétt
til að borða hádegisverð og voru
komnir aftur fyrir kvöldmat.
Hér eftir mun Pan American
halda uppi ferðum með þotum
á hverjum miðvikudegi um fs-
land frá New York til London
og til baka sama kvöld.
Félagið hafði kvöldboð fyrir
flugfarþega og fleiri gesti á Kefla
víkurflugvelli í gærkvöldi.
Drengur fyrír bíl
SÍÐDEGIS í gær varð það
slys á Njálsgötu, að 13 ára gam-
all drengur, Ólafur Helgason,
Vitastíg 15, varð fyrir bíl og
slasaðist. Slys þetta varð skammt
austan Frakkastígs. Ber bílstjór-
anum og sjónarvottum að slys-
inu saman um að drengurinn
hafi skyndilega stokkið frá gang
stéttinni og í veg fyrir bílinn.
Barst hann spölkorn með bíln-
um og féll síðan í götuna. Ólaf-
ur var fluttur í slysavarðstofuna
en ekki var Mbl. nánar kunnugt
um meiðsli hans í gær.