Morgunblaðið - 03.10.1963, Page 8
8
MORGUHBLAOIO
Fimmtudagur 3. okt. 1983
Sjötugur i dag
Ágúst Pálsson, arkitekt
ÁGÚST Pálsson, arkitekt, er 70
ára í dag. Hann er fæddur að
Hermundarfelli í Þistilfirði og
ólst þar upp til 10 ára aldurs. >á
fluttist hann til nafna sins Ágústs
Þorsteinssonar á Siglufirði, og
skömmu síðar með honum til
Reykjavíkur. Ágúst gekk í barna
skóla í Reykjavík og var eftir
það við nám hjá Davíð Östlund
frá því sem höfundurinn hafði
teiknað hana. —
Ágúst Pálsson er frumlegur og
skapandi listamaður og einkenn-
ast verk hans af því, en jafn-
framt hefur hann auga fyrir því
sem hentugt er og hagkvæmt við
daglega notkun. —
Ágúst er áhugamaður um lax-
veiði og hefur stundað þá íþrótt
mikið um dagana, einnig fer
hann vel með skotvopn.
Vinir afmælisbarnsins senda
honum hlýjar árnaðaróskir í til-
efni afmælisins. —
Egill Sigurgeirsson.
um sinn. Eftir það flutti hann
norður í Þingeyjarsýslu og dvaldi
þar í nokkur ár. Byrjaði hann
þar nám í trésmíði. Fór hann svo
til Stavanger í Noregi og hélt
þar áfram trésmíðanámi í 3 ár
og lauk þar jafnframt iðnskóla-
námi í kvöldskóla.
Eftir þessa dvöl í Noregi kom
hann aftur til Reykjavíkur og
starfaði við smíðar um tíma, en
1925 hélt hann á ný til Stavanger
og gekk þar í tekniskan dag-
skóla og lauk prófi frá þeim
skóla 1926. Kom hann þá heim
og vann við byggingar, mest hér
í Reykjavík, til 1931.
Það ár lagði Ágúst í nýtt náms-
ferðalag og hélt nú til Kaup-
mannahafnar. Gekk hann þar í
Det Kongelige akademi for de
skönne Kunster, og lauk prófi
sem arkitekt 1934. Sýnir þetta
vel hversu óþreytandi Ágúst var
við að afla sér sem beztrar
menntunar í starfsgrein sinni.
Eftir að hafa lokið námi kom
Ágúst heim til íslands og setti á
stofn teiknistofu hér í Reykja-
vík. Þá starfaði hann einnig um
fjögurra ára bil hjá húsameist-
ara ríkisins.
Árið 1941 byrjaði Ágúst að
vinna með húsameistara Reykja-
víkur að uppdráttum að ýmsum
byggingum og hefur starfað síð-
an hjá Reykjavíkurborg að und-
anskildum 2—3 árum. Hefur
hann t.d. teiknað Melaskólann,
Laugarnesskólann og bæjarhúsin
við Hringbraut með Einari
Sveinssyni.
Ágúst hefur tekið þátt í mörg-
um samkeppnum um tillöguupp-
drætti að ýmsum býggingum og
hefur í því sambandi um 20 sinn-
um hlotið verðlaun eða viður-
kenningu. — Hann hefur haft
mikinn áhuga á leikhúsmálum og
gerði í því sambandi í alþjóða-
samkeppni teikningu að óperu-
húsi í Belgrad í Júgóslavíu, en
uppdrættir hans fórust í hring-
iðu stríðsins. —
Ágúst er höfundur að hinni
margumtoluðu Neskirkju hér í
Reykjavík og mun óhætt að
segja að sú bygging muni halda
nafni meistara síns á lofti meðan
byggð endist hér í Reykjavík.
Hefur farið um þá listasmíð eins
og málverk Kjarvals og önnur
sönn listaverk, að með tímanum
vinna þau flestra aðdáun.
Meðal þeirra sem sérstaklega
kunna þar um að dæma, er það
talið þeirri byggingu einna mest
til ágætis hvað hljóðburður
(akustik) hennar er frábær. Mun
það alveg einstakt, að tekizt hafi
að gera samkomuhús þar sem
hljóðburður er eins góður og í
Neskirkju. Er það mikil ógæfa
að byggingin skyldi vera minnk-
uð eins mikið og raun varð á,
Skrifstofustúlka
getur fengið atvinnu nú þegar við
venjuleg skrifstofustörf.
Tilboð auðkennt: „Ástundun — 1944“
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins sem
fyrst.
Nýkomnar hollenzkar
barnaúlpur
dökkbláar.
Klapparstíg 44.
Afgreiðslustúlkur
óskast
strax í kjörbúð og vörugeymslu.
Austurstræti.
Framtíðarstarf
Vil ráða ungan mann á endurskoðunarskrifstofu
mína. — Eiginhandarumsóknir með uppl. um aldur,
menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 1323.
SVAVAR PÁLSSON
Iöggiltur endurskoðantfi.
Atvinna Kópavogi
Óskum eftir að ráða plötusmiði, vélvirkja, rafsuðu-
menn og verkamenn við skipasmíðar.
Öll vinna innan húss.
Ennfremur viljum við taka nema í plötusmíði og
vélvirkjun.
Stálskipasmiðjan lif.
v/Kársnesbraut, Kópavogi.
HE1WC O
Lagermaður óskast
Helgi IVIagnússon & Co.
Hafnarstræti 19
Parker
er kúlupenninn,
sem þér ættuð að kaupa.
Þessi stækkaða mynd af hinni hrufóttu kúlu í enda PARKER T-Ball kúlu-
pennans sýnir skrifflötinn. Hún heldur blekinu eins og bursti málningu. Gríp-
ur pappirinn eins og hjólbarði veg. PARKER T-Ball rennur mjúklega yfir
pappírinn og skilur eftir dökka, jafna línu, óbrotna Dg klessulausa. Blekinni-
haldið er mikið. Stór fylling, sem endist allt að fimm sinnum lengur en i
venjulegum kúlupennum. Og gleymið því ekki að T-Ball er PARKER fram-
leiðsla, gerður af þeirri nákvæmni og gæðum sem þér væntið af PARKER.
PARKER T-Ball Jotter er einn margra frábærra kúlupenna, sem PARKER
Eramleiðir, en þeir eru til í stíl við hina frægu „61", „51", „21“ og „45“ penna.
Framleiðendur eftirsóttasta
penna heiws;
THE PARKER PEN COMPANY