Morgunblaðið - 03.10.1963, Qupperneq 12
12
MORGUN BLAÐIÐ
Fimmtuáagur 3. okt. 1963
CTtgeíandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ctbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðs.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakiö.
RODD KRISTINAR
FRÁ SUMARLIÐABÆ
á~^rein sú, sem Kristín Ólafs-
^ dóttir frá Sumarliðabæ
ritaði hér í blaðið í gær hef-
ur vakið verðskuldaða at-
hygli. Þessi greinda og lífs-
reynda kona ræðir vandamál
nútímans af hógværð og skyn
semi. Hún leggur áherzlu á að
„affarasæld og hamingja
manna byggist fremur á góðri
heilsu, arðbærri, heilbrigðri
vinnu, nægjusemi og skyn-
samlegu mati þess sem gerist
í kringum oss en samandreg-
inni peningahrúgu".
Kristín í Sumarliðabæ er
öldruð kona. Hún er fulltrúi
þeirrar kynslóðar, sem vann
hörðum höndum og lagði með
iðjusemi og sparsemi grund-
völl að efnahagslegu sjálf-
stæði íslands. Hin harða bar-
átta og sókn frá sárri fátækt
til bjargálna var háð af þess-
ari kynslóð. Hún var alin upp
við virðingu fyrir verðmæt-
um, ábyrgðartilfinningu, en
trú á framtíð einstaklings og
þjóðar. Þess vegna varð ár-
angur baráttunnar, bættur
efnahagur íslendinga, nýtt og
betra ísland.
★
/ Kristín frá Sumarliðabæ
ræðir einnig vandamál æsk-
unnar. Hún áfellist hana
ekki og kveður ekki upp
harða dóma, eins og mörgum
hættir til, yfir barnabrekum
unglinganna. En hún gefur
ráð, sem bæði foreldrum og
börnum er hollt að hlusta á.
Undir lok greinar sinnar
kemst hún að orði á þessa
leið: _
„Mörgum finnst að nú
gangi peningasýkis- og
drykkjuskaparalda yfir á
landi hér. Ekki gæti það
„góðri lukku stýrt“ fyrir land
og lýð ef svo væri. Víst
mundu unglingarnir hafa
betra af því að komast
snemma að raun um það, að
það eru þeir sjálfir en ekki
peningar foreldra þeirra,
sem eiga að ryðja þeim braut
í lífinu. Það mundi auka þeim
orku, sjálfstraust og heil-
brigða lífsgleði, en við það
yrðu þeir nýtari þegnar þjóð-
félagsins. Peningar eru góðir
og nauðsynlegir, en þeir
skapa þó ekki allt verðmæti
lífsins“.
Þetta er ekki nöldur gam-
allar konu heldur lífssann-
indi, sem vel fer á að íslend-
ingar hugleiði um þessar
mundir. Taumleysi, óreiða og
óráðvendni setja í dag allt of
víða svip á íslenzkt þjóðlíf.
Fram úr þeim vanda verður
ekki aðeins ráðið með hörð-
um dómum. Þar þarf miklu
fremur að koma til einlægur
vilji allra góðviljaðra manna,
sem unna þjóðfélagi sínu og
framtíð íslenzkrar þjóðar, til
þess að ráða fram úr vandan-
um.
SAMAN TIL
TUNGLSINS
John F. Kennedy Banda-
ríkjaforseti hefur varpað
fram tillögu um að Bandarík-
in og Sovétríkin vinni að sam
eiginlegri ferð . til tunglsins.
Þessi hugmynd var sett fram
í hinni merku ræðu forsetans
á Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna fyrir skömmu. Hún
var liður í víðtækri hvatn-
ingu forsetans til þjóða heims
ins um að vinna að eflingu
heimsfriðarins og útrýma
kalda stríðinu.
Vitað er að Bandaríkja-
menn og Rússar verja óhemju
fjármagni til geimrannsókna
sinna og undirbúnings tungl-
ferða. Bandaríkjamenn hafa
gert ráð fyrir að koma mönn-
uðu geimfari til tunglsins í
kringum árið 1970. Um áform
Rússa í þessum efnum er
minna kunnugt'.
Mjög líklegt er að samein-
að átak þessara forystuþjóða
á sviði geimrannsókna, myndi
bæta aðstöðu þeirra til þess |
að kanna leyndardóma him-
ingeimsins og ná meðal ann-
ars því takmarki að koma
mönnuðu geimfari til tungls-
ins og ná því til baka aftur til
jarðarinnar.
Margir kunna að vísu að
segja að litlu máli skipti
hvort mannað geimfar kemst
til tunglsins árinu fyrr eða
seinna. Þess er þó að gæta að
tunglskot og geimfarir eru
liður í alhliða þekkingarsókn
mannsins. Þess vegna er ekk-
ert eðlilegra en að miklu fé
og fyrirhöfn sé varið til geim-
rannsókna af hálfu stórveld-
anna. Friðsamleg samvinna á
sviði geimrannsókna er þess
vegna ákaflega þýðingar-
mikil. Hefur Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna á undan
förnum árum samþykkt með
samhljóða atkvæðum tillögur
um slíka samvinnu.
Mestu máli skiptir þó það
að því víðtækari sem alþjóð-
leg samvinna verður þeim
mun meiri líkur eru til að
friður haldist í veröldinni.
Þess vegna yrði sameiginleg
ferð Rússa og Bandaríkja-
manna til tunglsins ekki að-
eins merkur atburður á sviði
geimrannsókna heldur stórt
spor í áttina til tryggingar
heimsfriðarins.
V&J
UTAN ÚR HEIMI
14 ára afmæli kínversku byltingarinnar:
Kveöur við mildari tdn
í deilum Kína og Sovét?
Hong Kong og Moskvu,
1. og 2. október.
Chou en-Lai, forsætisráð
herra Kínverska alþýðulýð-
veldisins, lýsti því yfir sl.
mánudag, að það væri sann-
færing sín, að ágreiningur inn
in hins kommúníska heims
muni með tíð og tíma leysast
farsællega á grundvelli kenn
inga Marx og Lenins — að
því er útvarpið í Peking
skýrði frá, daginn fyrir 14
ára afmæli kínversku bylt-
ingarinnar.
Jafnframt segir í fréttum
frá Moskvu, að málgagn Sov-
étstjórnarinnar, Izvestija,
hafi í ritstjórnargrein borið
lof á kínversku þjóðina og
um leið gagnrýnt leiðtoga
hennar, en með greinilega
mildari orðum en lesa hefur
mátt undanfarið í sovézkum
dagblöðum. Hafi blaðið eink-
um gagnrýnt „vissar persón-
ur“, sem reyni að sá í huga
Kínverja tortryggni og fjand-
skap í garð Sovétríkjanna.
Fyrrgreind sannfæring kín-
verska forsætisráðherrans kom
fram í ræðu, sem hann hélt í
kvöldverðarboði, er Peking-
stjórnin heldur jafnan kvöldið
fyrir byltingarafmælið, 1. októ-
ber. Undanfarna daga hefir stað-
ið yfir undirbúningur mikilla
hátíðahalda af því tilefni. Form.
kínverska kommúnistaflokksins,
Mao Tse Tung, var viðstaddur
boðið, þar sem meðal gesta voru
meira en 1800 erlendir fulltrúar
80 þjóða.
Forsætisráðherrann sagði í
ræðu sinni, að öll ríki, smá og
stór, væru jafningjar og bæri að
koma fram við þau sem slík. —
Jafnframt ættu þeir, sem ábyrgð
bæru á innanríkismálum landa
sinna, að fá leyfi til að leysa
þau í friði. Hann réðist harka-
lega á þjóðernisrembing, sem
hann sagði ávallt hafa valdið
mistökum, bæði í Kína og öðrum
löndum heims. „Kína er stórt
land,“ sagði hann, „og þess vegna
tökum við svo mjög eftir öllum
mistökum, er þar verða. Við vilj-
um láta komandi kynslóðum eft-
ir reynslu okkar, sem arf, til þess
að þær þurfi ekki að gera þau
mistök, sem okkur hefur orðið
á.“ Kvaðst forsætisráðherrann
fúslega játa, að finna mætti mis-
tök í stefnu Pekingsstjórnarinn-
ar og hvatti erlendu gestina til
að bera fram jákvæða gagnrýni,
er henni mætti að gagni koma.
Chou en Lai lauk máli sínu með
því að hvetja allar þjóðir Asíu,
Afríku og Suður-Ameríku til að
taka höndum saman um varð-
veizlu friðarins.
MILDARI TÓNN
Izvestija birti síðan 1600 orða
ritstjórnargrein skrifaða í mild-
ari tón en önnur skrif sovézkra
blaða um skoðanabræðurna í
Kína, að undanförnu. Ekki var
þar þó að finna hamingjuóskir
til handa kínverska kommún-
Chou-en-Lai
istaflokknum og formanni hans,
Mao Tse Tung, — hins vegar var
kínverska þjóðin ákaflega hyllt.
Greinin fjallaði að mestu um
samvinnu og vináttu Rússa og
Kínverja á árunum eftir sigur
kommúnista í Kína. Leggur blað
ið mikla áherzlu á þá aðstoð,
sem Sovétríkin og önnur komm-
únísk ríki hafi veitt Kínverj-
um og endurtekur fullyrðingar
Sovétstjórnarinnar frá fyrri
viku, um að hún eigi ekki sök
á bví að tekið hafi verið fyrir
þessa aðstoð.
Blaðið segir, að íbúar Sovét-
ríkjanna séu í senn hryggir og
bitrir yfir tilraunum „vissra
persóna" til að sá með kín-
versku þjóðinni tortryggni og
fjandskap gegn íbúum Sovétríkj
anna, flokki Lenins og friðelsk-
andi stefnu Sovétstjórnarinnar.
„En þjóðir vorar trúa því og
treysta, að allar slíkar tilraunir
muni mistakast, segir blaðið,
„því- að verkalýður beggja land
anna er sameinaður í sameigin-
legri viðleitni til að byggja .upp
sósíalisma og kommúnisma og
efla frið“.
AFMÆLISINS MINNZT
1. október, 14 ára afmælis kín-
versku byltingarinnar var síðan
minnzt með miklum hátíðahöld-
um í Peking. Kommúnistaleið-
toginn Peng Chen, sem er borgar
stjóri í Peking, flutti aðalræð-
una í höfuðborginni í tilefni dags
ins. Sagði hann að unnt væri að
komast hjá styrjöld ef allar þjóð-
ir sameinuðust um málstað frið-
arins.
Dagurinn var einnig hátíðleg-
ur haldinn í Moskvu, þar sem
kínverska sendiráðið hafði boð
inni fyrir erlenda fulltrúa. Eng-
ar ræður voru þó haldnar þar,
og er það mikil breyting frá í
fyrra, þegar sovézkir fulltrúar
keptpust um að boða eilífa vin-
áttu þjóðanna.
Peng Chen sagði í ræðu sinni
að ef þjóðir kommúnista og aðrar
þjóðir í Asíu, Afríku og Suður
Ameríku annars vegar og vest-
rænu þjóðirnar hins vegar, berð-
ust sameiginlega fyrir því að
skapa nýjan heim fríðarins, væri
| unnt að koma í veg fyrir styrj-
aldir og skapa öllu mannkynl
glæsta framtíð.
Talið er að um hálf milljón
manna hafi tekið þátt í hátíða-
höldunum í Peking. Ekki tókir þó
neinar hersevitir þátt í skrúð-
göngunum frekar en undanfarin
þrjú ár, heldur einungis sveitir
úr heimavarnarliðinu. Nokkrar
eldflaugar voru sýndar, og born-
ar voru myndir af Marx, Engels,
Lenin og Stalin. Einnig var mikið
um kröfuspjöld þar sem lýst var
yfir stuðningi við stefnu Kín-
verja í skoðanadeilunni við
Sovétríkin.
Meðal heillaóska, sem birtar
voru í „Dagblaði þjóðarinnar“ í
Peking, var - kveðja frá Sovét-
ríkjunum. í ár var þó ekki kveðj-
an undirrituð af þeim Krúsjeff
forsætisráðherra og Breznév for-
seta eins og áður hefur tíðkazt.
Ekki voru kínversku leiðtogarn-
ir nafngreindir, en aðeins sagt
að stjórnin, flokkurinn og þjóð-
in í Sovétríkjunum hafi ósveigj-
anlegan vilja til að efla vinátt-
una við Kína.
Enginn af fremstu leiðtogum
Sovétríkjanna hafði tíma til að
mæta í móttöku kínverska sendi
ráðsins í Moskvu. Þó mætti þar
Alexei Kosygin, aðstoðar forsæt-
isráðherra. Krúsjeff forsætisráð-
ráðherra var sjálfur á ferð um
landbúnaðarhéröð intil að hvetja
bændur til aukinnar framleiðslu.
Nemendur M.A.
verða 420 í
vetur
Akureyri, 1. október.
MENNTASKÓLINN á Akureyri
var settur kl. 2 í dag. Skóla-
meistari, Þórarinn Björnsson,
flutti ræðu á Sal og brýndi fyrir
nemendum áð vinna vel og vinna
reglulega.
í skólanum verða í vetur um
420 nemendur, sem er heldur
færra en í fyrra, en þess er að
gæta, að tveir bekkir af þrem
í miðskóladeild hafa verið lagðir
niður. í menntadeildinni fjölgar
nemendum hins vegar um rúm-
lega 20.
Heimavist skólans er fullskip-
uð í vetur, en þar búa 175 og 250
borða í mötuneytinu. Nú þegar
er fullskipað í heimavistina vet-
urinn 1964—65 og um 20 á bið-
lista.
Sigurður L. Pálsson hefur veik
indaorlof í vetur, en tveir nýir
fastakennarar koma nú að skól-
anum, Eyjólfur Kolbeins, tungu-
málakennari, og Þórir Sigurðs-
son, sem kennir stærðfræði og
eðlisfræði. Tveir nýir stunda-
kennarar eru ráðnir að skólan-
um, Helgi Hallgrímsson og Jón
K. Margeirsson, en þeir hafa báð
ir kennt við skólann áður.
— Sv. P,