Morgunblaðið - 03.10.1963, Qupperneq 17
Fimmtudasfur 3. okt. 1963
MO'»'?"tffU4DfO
17
Guðmundur Tryggvason, læknir
Minningarorð
hann hefði getað numið hvaða
vísindagrein sem var með frá-
bærum árangri. Hann valdi lækn
isfræðina, hina göfugustu grein
vísinda. Hann setti sér hátt
mark, en féll frá áður en því
var að fullu náð.
Því er nú skarð fyrir skildi,
skarð í fjölskyldu, skarð í ís-
lenzkri læknastétt. Við bekkjar-
systkinin finnum einnig skarð
í okkar hópi. Hann, sem fremst-
ur okkar var, er fyrstur horf-
inn.
Ekkert nær að fylla þetta
skarð, sem Guðmundur Tryggva
son hefur skilið eftir, nema orð-
stír hans sjálfs, minningin um
þennan fjölhæfa gáfumann og
síðast en ekki sízt sú guðsbless-
un, sem birtist í börnunum
tveim.
Við drúpum höfði og vottum
eiginkonu, börnum, foreldrum
og öðrum vandamönnum dýpstu
samúð okkar.
Aðalsteinn Guðjohnsen.
Fæddur 10. janúar 1931
Dáinn 23. september 1963
HVÍ fékk hann ekki noti&,
gáfna sinna og hæfileika leng-
ur? Hví fengu meðbræður hans
ekki að njóta þekkingar hans
og snilli lengur en raun varð
á? Hvi er hann fallinn svo löngu
fyrir aldur fram?
Þegar saman fara sterkur per
sónuleiki, miklar gáfur og stað-
fastur vilji til að hagnýta hæfi-
leika sína í raunhæfu starfi, fer
ekki hjá því, að við miklu er
búizt. Þá er búizt við, að vis-
inaþekking og starfsorka og stöð
ug framsækni leiði til mikilla
afreka.
Hugur Guðmundar Tryggva-
sonar stóð líka til afrekg. Hann
bar öll einkenni afreksmanns.
Ef til vill reyndizt hann of kröfu
harður til sjálfs sín, ef til vill
vildi hann gera of mikið of
fliótt — meir en umhverfi og
aðstæður leyfðu. Öllu, er hann
tók sér fyrir hendur, vildi hann
sinna svo, að óaðfinnanlegt væri.
Læk'nisstörfum sinnti hann og
til hinzta dags.
Guðmundur Tryggvason var
fæddur 10. janúar, 1931, sonur
hjónanna Sigríðar Jónsdóttur og
Tryggva Samúelssonar. Hann
fluttist með foreldrum sínum
til Keykjavíkur um fermingarald
ur. Guðmundur settist í Mennta-
skólann í Reykjavík og lauk
stúdentsprófi vorið 1951. í öllu
námi bar hann af og var jafn-
vígur á allar námsgreinar. Em-
bættisprófi í læknisfræði lauk
hann frá Háskóla íslands árið
1956 á styttri tíma en áður hafði
þekkzt og jafnframt með svo
hárri einkunn, að enginn hafði
betur gert fyrr né síðar.
Frá árinu 1958 starfaði Guð-
mundur sem læknir í Svíþjóð
en lagði jafnframt stund á erfið-
ar sérgreinar, heilaskurðlækning
ar og plastskurðlækningar. Nam
hann m.a. við Uppsalaháskóla
og Karolinska Sjukhuset í Stokk
hólmi, en starfaði nú síðast í
Kristinehamn og naut þar mik-
ils álits í starfi.
Guðmundur var kvæntur Krist
jönu Guðmundsdóttur frá ísa-
firði. Börn þeirra eru tvö, Alma
Sigriður, 6 ára, og Gunnar
Tryggvi, 3 ára.
Á námsárum okkar í Mennta-
ekólanum kom fljótt I ljós, hví-
líkur afburðamaður Guðmundur
var. Gáfurnar voru svo miklar
evo fjölbreyttar, að slíks gerast
fá dæmi. Honum lét jafnauðveld-
lega að nema tungumál sem
stærðfræði, sögu sem náttúru-
fræði. Námsgreinar, sem gjarna
voru minna ræktar, svo sem
leikfimi, teiknun og söng, stund-
aði hann með sömu alúð og náði
þar jafnágætum árangri og í
öðrum greinum. Áhugi Guðmund
ar náði langt út fyrir nám og
•tarf. Hann var listelskur enda
mjög listrænn sjálfur, unni tón-
list og myndlist og stundaði
hvorutveggja í frístundum. Hann
var margfróður um ýmsar grein
•r vísinda og lista, enda geysi-
lega víðlesinn.
Námsgáfur hans voru svo
glæsilegar og margslungnar, að
VQNDUÐ II n
FÁLLEG H
ODYR u n
Siqurpórjónsson &co
^ Jlafiuvatnrti i+
Eikarparkett (Lamel)
NYJUNG: Leggið parkettgólfin sjálf. Sænska Lim-
hamns-eikarparkettið fæst í bæði tíglum og
borðum, pússað, lakkað og frágengið til lagn-
ingar. Fáanlegt í 13, 15 og 23 mm þykktum.
Hagstætt verð.
Samband ísl. Byggingafélaga
Sími 17992.
Sendisveinn
ÓSKAST NtJ ÞEGAK. Þarf að kunna á skellinöðru.
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172.
Sendisveinn
óskast hálfan daginn.
Helgi IViagrrússon & Co.
Hafnarstræti 19
Nýjar sendingar
Enskar ullarpeysur
“K
Enskar blússur
m.a. crepe nælon blússur í mörgum
litum.
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11.
Dansskóli
v,mm hh
Reykjavík
Skírteini verða afhent í Skátaheimilinu við Snorra-
braut í dag fimmtudaginn 3. októher, á morgun
föstudaginn 4. október og laugardaginn 5. október
frá kl. 3—7 e.h.
IVIjög áriðandi er að skírteinin séu sótt á ofangreind-
um tímum, nema hjón og pör, sem taka skírteini
í fyrsta tímanum í næstu viku. — Velkomin til
starfsins.
Unnur og Hermann Ragnar.
Danskt gœBanet úr Nœlon 66
ÚTGEROA RMENN
Til þess að veita yður betri þjónustu höfum við sent sölustjóra vorn
John Henrring Jörgensen .
til Reykjavíkur, en þar höfum við opnað söluskrifstofu
í TÚNGÖTU 8 — SÍMI 12911 \
og verður hann framvegis þar til viðtals.
Umboðsmenn vorir verða eftir sem áður: NTJAMENN h.f. Dalvík,
AS. N. P. UTZON
Köbenhavn — Danmark.