Morgunblaðið - 03.10.1963, Síða 22
22
MORGU N BLAÐID
■Fimmtuðagur 3. okt. 1963
Frábær árangur í
frjálsum
S V ONEFNDIR „Miðjarðarhafs-
leikir“ í íþróttum voru haldnir í
Napólí í sl. vik,u og um helgina.
Þar náðust frábær afrek í ýms-
um greinum frjálsiþrótta.
Frakkinn Chardel jafnaði
franska metið í 110 m grinda-
hlaupi, 13.9 sek., en bæði landi
hans Duriez og ítalinn Mazza
náðu 14.1 sek.
Ólympíumeistarinn Berutti,
Ítalíu, vann 200 m hlaup á 21.1
sek. Landi hans Sardiga varð
annar á 21.3. í 100 m hlaupinu
varð Berutti að láta í minni pok-
ann fyrir Frakkanum Piquemal,
sem vann á 10.5, mótl 10.6 hjá
Berutti.
Frinolli, ítalíu, vann 400 m
í Napoli
grindahlaup á 51.4, en Hiblot,
Frakklandi, vann 400 m hlaup á
47.6 sek.
Radosevic, Júgóslavíu, vann
kringlukast, 53.96 m, en annar
varð ítalinn Pria, 52.95. Beziak,
Júgóslavíu sigraði í sleggjukasti,
63.95, og landi hans Lasek í
stangarstökki með 4.70. Það er
nýtt landsmet.
5 km hlaupið var sigurhlaup
fyrir Mohammed Gammoudi frá
Túnis, sem hljóp á 14.07.4. Hins
vegar varð Túnisbúi af sigri í
maraþonhlaupinu, þó hann færi
fyrstur yfir marklínu. Hann var
dæmdur úr leik og sigurinn féll í
hendur Marokkóbúa, sem hljóp á
2.26.50.0 klst.
Portúgalska liðið Benefica unnu þeir og glöddust vel. manna súpa á, en annar bíður
vann bikarinn eitt árið. Ekki 1 baðinu eftir leikinn var heldur óþolinmóður eftir sin-
voru allir á eitt sáttir um rétt þeim réttur bikarinn, fullur um sopa.
mæti sigurs þeirra. En sigur kampavins. Hér sézt einn liðs
Molar
inn í sænsht
Inndslið
Svíar Ótt-
ast Dani
SÆNSKIR knattspyrnu-
menn hafa staðið sig vel á
þessu ári. Þeir hafa sigrað
Rússa, Ungverja og Júgó-
slava. Á sunnudaginn mæta
þeir Dönunum í Kaupmanna-
höfn og eins og hefð er orð-
in með leiki milli Dana og
Svía þá er eins og stríð standi
fyrír dyrum.
Sænska blaðið • Dagens
Nyheter bendir á ofantalda
I ágæta sigurleiki en seg-
ir að engin vissa sé fyr-
ir því að Svíar vinni í Kaup-
mannahöfn á sunnudaginn.
Blaðið bendir á að Danir eigi
lið sem sigrað hafi Norðmenn
með 4-0 en Norðmenn og
Svíar hafi skilið jafnir 0-0 \
nokkru áður. Einnig segir
blaðið að það hafi sitt að
segja hvernig danskir áhorf-
endur láti og segir að þeir
eigi Evrópumet í sínum þjóð
arrembingi „Svíar verði því
að búa sig undir erfitt hlut-
skipti að sigra danska lands-
liðið og dönsku áhorfend-
. urna“ segir blaðið og heldur 1
* áfram „Við ætlum að okkur '
takist það fyrra en seint það
síðara, því Danir bera í
brjósti Svíaandúð eftir stríð-
ið.“
Allir knattspyrnumenn vildu
Evrópubikarinn unnið hafa
SÚ knattspyrnukeppni Ev-
rópu sem nú setur hvað mest-
an svip á knattspymusam-
band landanna er keppnin um
Evrópubikarinn. Hundruð
milljóna manna bollaleggja,
spá, horfa á, hrífast af og
njóta leiks beztu atvinnuliða
Evrópu, sem komast lengst
í þessari útsláttarkeppni.
Það var franska íþrótta-
blaðið heimsfræga „I.’Equipe"
sem átti hugmyndina að
keppninni um Evrópubikar-
inn. Blaðið bauð 18 ákveðn-
um liðum að taka þátt í henni
og 16 þáðu það. Sett var upp
mjög vægt þátttökugjald, en
verðlaun eru gífurleg ekki
sízt vegna þeirrar frægðar og
auglýsingar sem liðin hljóta,
komist þau langt í keppninni
— enda hljóta þau sjálf tekn-
anna af áhorfendum að leikj-
um sínum.
Frá upphafi hefur fyrir-
komulagið verið líkt og enn
er. Liðin eru dregin saman í
fyrstu, keppa síðan heima og
heiman og samanlögð marka-
tala í þeim tveimur leikjum
ræður úrslitum um, hvort
liðið heldur áfram í keppn-
inni, og hvort er dottið úr
henni. Þannig fækkar liðun-
um um helming í hverri um-
ferð keppninnar.
Á síðustu árum hafa milli
30 og 40 lönd tekið þátt í þess
ari keppni, en hún er opin
þeim sem sigrar í deilda-
keppni hvers lands fyrir sig.
Verðlaunin eru gullfallegur
bikar og engum _ getur dulizt
hversu eftirsótt það er af
hvaða liði sem er, að taka við
Finn Pauli Savolainen setti
nýtt heimsmet sl. sunnudag
er hann hljóp 25 km. hlaup
á 1.24.31.4 klst. Það er 2 mín.
betri tími en hans eldra heims
met á vegalengdinni.
Vestur-þýzkt félag hefur.
sett nýtt Evrópumet í 4x100
m. fjórsundi á 4.07.6. Gamla
metið átti austur-þýzkt félag
og var metið 4.09.0.
þeim bikar að sigurlaunum.
Fyrir utan þessa Evrópu-
bikarkeppni — sem aðeins er
opin deildameisturum hvers
lands — eru aðrar við lýði.
Má þar t. d. nefna Evrópu-
keppni landsliða, Evrópu-
keppni sigurvegara í bikar-
keppni hvers lands, höfuð-
borgakeppni með ákveðnu
fyrirkomulagi o. fl.
En öll þessi mót sýna, að
fólk kann vel að meta sam-
vinnu landanna á þessu sviði.
Það er að vissu leyti fólkið
sem skapar þessa keppni sem
aðra, því án fólksins sem á
horfir, væru knattspyrnukapp
arnir ekki að ferðast landa
milli og berjast ákafri bar-
áttu.
Hinn eftirsótti Evrópubikar
sem beztu kanttspyrnu-
menn Evrópu berjast ár-
lega um.
Sonur Gnnnors
Nordnhls kom-
íú má heita að undirbúningi
/yrir vetrarolympíuleikana i
Innsbruck sem haldnir verða
29. jan. n.k. til 9. febrúar.
é Iokið eða því sem næst
T. d. er búið að gera alla verð
launapeninga. Hér getur að
líta verðlaunapening í norr-
ænni tvíkeppni á skíðum. Pen
ingurinn sem er æðstu verð-
laun er íþróttamaður getur
óskað sér er nú sem fyrr lista
verk að gerð — sérlega vand-
aður, gerður af færustu meist
urum í sinni grein.
Tékkar unnu sl. laugardag
Frakka með 4—0 í knatt-
spyrnulandsleik. Leikurinn
var liður í undanrásum
Olympíuleikanna í Tókíó. —
Þetta var fyrri leikur land-
anna og fór fram í Prag. —
Heimaliðið hafði 2—0 í hálf-
leik. Sigurvegari úr saman-
lögðum tveim leikjum þessara
landa leikur við Breta eða
Grikki um sæti í úrslita-
keppninni í Tokíó.
♦-------
Stein Sletten setti nýtt
norskt met í hástökki sl.
sunnudag er hann vann ungl-
ingakeppni í Bergen með 2,06.
Gamla norska metið var 2,05
en eldra unglingametið, sem
Sletten átti, var 2.00.
Sautján ára gamall sonue
Gunnars Nordahls — sem kall»
aður er „gullmiðiherji“ Svía,
hefur í fyrsta sinn verið valinn
í landslið og verður hann í ungl
ingaliði Svía sem mætir Dön»
um 1 Holbæk í Danmörku n.k,
sunnudag.
Pilturinn heitir Thomas. Hann
hefur aldrei séð föður sinn leik»
í landsliði og þegar Gunnar
Nordahl var upp á sitt bezt*
sem miðherji Milan var Thom-
as of lítill til að hafa áhuga &
knattspyrnu.
Þegar Thomas hleypur inn &
völlinn á sunnudaginn er það
£ 76. sinn sem nafnið Nordahl
er á landsliðslista Svía. Fyrir
utan föður Thomasar hafa frænd
ur hans Knut. Bertil og Gösta
verið í landsliðum Svía.