Morgunblaðið - 16.11.1963, Blaðsíða 1
24 siðuri
Fundur utanríkisráð-
herra 32 Afríkuríkja
reynir að leysa landamæra-
deilu Alsír og Hiarokko
Addis Abeba 15. nóv. AP-NTB
í DAG hófst í Addis Abeba,
fundur utanríkisráðherra 32
Afríkuríkja og er megin til-
gangur hans að leysa landa-
mæradeilu Alsír og Marokko.
Haile Selassie,keisari Eþíópíu,
sem hafði forgöngu um að fund-
ur þessi yrði haldinn, setti hann
með ræðu. Hann sagði þar m.a.,
að heimurinn fylgdist vel með
því sem þar færi fram og úrslit
viðrseðanna í Addis Abeba yrði
vísbending um það, hvort Afríku
ríkin væru einfær um að leysa
vandamál sín. Þjóðir Alsír og
Marokiko hefðu háð harða bar-
áttu fyrir frelsi sínu og það
mætti ekki verða að þser tækju
að berast á banaspjót, er svo
óþrjótandi vandamál biðu úr-
lausnar.
Á fundinum í Bamaiko, höfuð-
borg Mali, á dögumun, þar sem
þeir ræddust við Ben Bella, for-
seti Alsír, Hassam, konungur
Marokko, Haiile Selassie og Mo-
bito Keita, forseti Mali, var gert
ráð fyrir að utanríksráðherra-
fundurinn ræði málið — sikipi
síðan nefnd, er vinni að sátta-
samningi, sem síðan verði lagð-
ur fyrir stjórnir Alsir og Mar-
okko.
Utanríkisráðherra Alsír, Ab-
dul Aziz Bouteflika sagði við
komuna til Addis Abeba í dag,
að hann liti með bjartsýni tál
framitíðarinnar. Þakkaði hann
Haile Selassie keisara fyrir að
hafa forgöngiu um að deilan
væri leyst „innan fjölskyldunn-
ar“, eins og hann komst að orði.
Kosningar í írak
eftir 4 mánuii?
30 ár frá því Bandaríkin
viðurkenndu stjórn Sovét
Viðræðum um menningartengzl
ríkjanna aflýst vegna handtöku
Barghoorns prófessors
Moskvu, 15. nóv. (AP-NTB)
4 SOVÉTSTJÓRNIN boðaði til
fundar fréttamanna og sendi-
manna erlendra ríkja í Moskvu
f dag, i tilefni þess, að liðin eru
30 ár frá því Bandarikjastjórn
viðurkenndi Sovétstjórnina.
4 Fulltrúar bandaríska sendi-
ráðsins komu ekki til fundarins
f mótmælaskyni við handtöku
bandariska prófessorsins, Frede-
40 stiga
hitamismunur
í Svíþjóð
Stokkhólmi, 15. nóv. NTB.
í DAG var fjörutía stiga hita
mismunur í Svíþjóð. í nyrzta
hluta landsins var víða 34
stigcT frost en í Suður-Sví-
þjóð var veður hið mildasta
og hití 7—8 stig.
rick Barghoorn. Hefur sendiráð-
ið enn ekki fengið að hafa við
hann samband og engar frekari
upplýsingar fengið um ástæðurn-
ar til handtöku hans.
4 Valerin Zorin, aðstoðar-utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna,
sagði á fundinum í dag, að hann
harmaði fjarveru bandarísku
sendimannanna, svo og þá ákvörð
un Bandaríkjastjórnar, að aflýsa
viðræðunum um menningartengsl
við Sovétrikin vegna Barghoorn-
málsins. Kvaðst hann ekki sjá,
að þessi mál væru svo skyld, að
nauðsynlegt væri að menningar-
tengsiin færu út um þúfur. Er
Zorin var spurður, hvert yrði
næsta skref Sovétstjórnarinnar í
máli Barghoorns, kvaðst hann
ekki hafa hugmynd um það.
Það var í gærmorgun, sem til-
kynnt var í Washington, að aflýst
hefði verið væntanlegum viðræð-
um við Sovétstjórnina um menn-
ingartengslin, en þær áttu að
hefjast um helgina í Moskvu. —
Var sagt, að viðræðurnar myndu
varla fara fram fyrr en Barg-
hoorn prófessor hefði verið lát-
inn laus, en hann hefur tekið
virkan þátt í menningarsamstarfi
Bandaríkjanna og Sovétrikjanna.
Síðar í gær átti Kennedy, for-
seti, fund með fréttamönnum í
Hvíta húsinu og fordæmdi þá
handtöku prófessorsins harðlega.
Sagði hann hana ástæðulausa og
óréttlætanlega. Barghoorn væri
ekki í neinum tengslum við leyni
þjónustu Bandaríkjanna og hefði
aldrei verið. Handtaka hans gæti
haft hinar alvarlegustu afleiðing-
ar fyrir menningarsamstarf ríkj-
anna tveggja og raunar sambúð
þeirra í heild.
Frh. á bls. 23
— Aref, forseti sagbur kominn
til Beirut
Beirut, 15. nóvember.
ÞVÍ VAR haldið fram í
Beirut í kvöld, að forseti
íraks, Abdul Salam Aref
væri þangað kominn og færi
huldu höfði. Ekki hefur tek-
>zt að fá fregn þessa stað-
festa og írakar í útlegð í
Beirut efast mjög um, að
hún sé á rökum reist.
Stjórn sambands Baath-
sósíalista tilkynnti í dag, að
stjórn íraks væíi nú í henn-
ar höndum. Hefði mönnum
þeim, er stóðu að byltingar-
tilrauninni í írak, verið vísað
úr landi. Jafnframt Var til-
kynnt, að almennar kosning-
Kveðja R. A. Butler
utanrikisrábherra Bretlands vegna
heimsóknar forseta íslands
í TILEFNI hinnar op>n-
beru heimsóknar forseta
íslands, herra Ásgeirs Ás-
geirssonar, til Bretlands
hefur utanríkisráðherra
Bretlands, Richard A.
Butler, sent eftirfarandi
kveðju:
Bretum er það miikið fagn-
aðarefni, að forseti íslands,
hérra Ásgeir Ásgeirsson og
írú hans, eru væntanleg í
opinbera heimsókn til Bret-
lands í þessum mánuði. Okik-
ur er sérstök ánægja að bjóða
ar verð> í írak eftir fjóra
mánuði.
Undir tilkynningu þessa rituðu
forsætisráðherra írak, Ahmad
Hassan E1 Bakr, landvarnaráð-
herra írak, Saleh Ammasíh, for-
sætisráðherra Sýrlands, Amin
Hafez, yfirmaður sýrlenzka hers-
ins og Sýrlendingurinn Michel
Frh. á bls. 23
velkominn hinn virðulega
leiðtoga svo vinveittrar þjóð-
ar sem íslendinga. Öldum sam
an ihafa þjóðir okkar haft vin-
samleg samskipti og nú eru
þær tengdar sameiginlegri
friðanhiugsjón. Ég vona, að
heimsókn herra Ásgeirs Ás-
geirssonar forseta verði hon-
um til ánægju og ég er þess
fuillviss, að hann muni hvar-
vetna verða var hlýhugar í
garð íslenziku þjóðarinnar.