Morgunblaðið - 16.11.1963, Blaðsíða 10
10
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 16. nóv. 1963
Rannsóknaskipið fórst
með manni og mús
EINS og Mbl. hefur skýrt frá
uxðu síðustu eldgos neðan-
sjávar í heiminum fyrir nokk
rum árum, annað við Japans-
strendur, hitt við Azoreyjar.
Við Japan fórst rannsóknar-
skip, sem. sent var til þess að
rannsaka gosið, með manni
og mús og mun ekki annað
hafa fundizt af skipinu en
„nokkrir naglar og spýtur",
eins og Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, orðaði það við
fréttamenn Mbl.
Víðtæk rannsókn fór fram
á atvikum slyss þessa og
stjórnaði henni Ryolei Mori-
moto, jarðfræðingur. Nefndin
mun hafa komizt að þeirri
svo og neðansjávargosið, og
var hún gefin út fyrir nokkr-
um árum til minningar um
þá sjö vísindamenn og 22 sjó-
menn, sem fórust með rann-
sóknarskipinu. Myndimar,
sem hér fylgja, eru teknar
úr þeirri bók. Sýna þrjár
þeirra gosið sjá.lft„ og sézt
vel af þeinv hversu Vest-
mannaeyjagosið er nauðalíkt.
Fjórða myndin sýnir rann-
sóknarskipið, sem fórst í gos-
inu.
í neðansjávargosinu við Japan
niðurstöðu, að eldsprungan á
hafsbotni muni skyndilega
hafa lengzt og sjórinn fallið
niður í logandi vítið. Við það
hafi hann breytzt í gufu á
samri stundu og þannig orðið
ein ægileg sprenging, sem
þurrkað hafi út allt í ná-
grenninu.
Ekki er talið óhugsandi að
eitthvað í líkingu við þetta
kunni að gerast í gosinu við
Vestmannaeyjar, þótt ekkert
verði um. það fullyrt, en þetta
mun m.a. vera ein ástæðan til
þess að Slysavarnafélag ís-
lands hefur varað skip og
báta við því að fara of nærri
gosinu.
Morimoto sá, sem áður gat,
ritaði bók um eldfjöll í Japan,
Ferming
NESKIRKJA, ferming: 17. nóv. kl.
11. Séra Jón Thorarensen.
Stúlkur:
Anna Sigríður Indriðadúttir, Mela-
braut 16.
Ásdis Magnúsdóttir, Þinghólsbraut 57.
Áslaug Marta Ágústsdóttir, Laugar-
ásvegi 13.
Ásta Árnadóttir, Granaskjóli 10.
Guðrún Antonsdóttir, Efstasundi 70.
Gunnhildur Magnúsdóttir, Nesvegi 43.
Hjördís Inga Ólafsdóttir, Sörlaskj. 4.
Hrefna Albertsdóttir, Tunguvegi 38.
Sigrún Ágústsdóttir, Laugarásvegi 13.
Sigurlaug Albertsdóttir, Álftamýri 38.
Sveinbjörg Sverrisdóttir, Lynghaga 7.
t>órdís Bachmann, Fálkagötu 19.
Drengir:
Barði Ágústsson, Skólabraut 1.
Björn Sveinsson, Kvisthaga 7.
Grímkell Arnljótsson, Njálsgötu 72.
Gunnar Kristinn Gunnarsson, Tóm-
asarhaga 53.
Gunnar Sigurður Guðmundsson,
Melhaga 12.
Gunnar Jan Nielsen, Álftamýri 24.
Hreiðar Svanur Albertsson, Álfta-
mýri 38.
Jóhann Magnús Gunnarsson, Mels-
húsum, Seltj.
Kjartan Björn Guðmundsson, Mel-
Laga 12.
Kjartan Kjartansson, Dunhaga 20.
Kjartan Örn Kjartansson, Bólstaða-
hlíð 36.
Magnús Skarphéðinsson, Ásvalla-
götu 28.
Markús Halldórsson, Fornhaga 19.
Matthías Gunnarsson, Melshúsum,
Seltj.
Bandver Þorláksson, Stóragerði 20.
Reynir Sverrisson, Lynghaga 7.
Sigurður Ingi Guðmundsson, Lyng-
haga 22.
Sigurður Pétur Ottesen Pétursson,
Nesvegi 5.
Sigurður Valsson, Melabraut 95,
Seltj.
Steingrímur Jacobsen Viktorsson,
Nesvegi 43.
Þorsteinn Árnason, Granaskjóli 10.
Kostnaðurinn vegna Kongó
Ræða Thor Thors við umræður
Kongó-málið á allsherjarfundi
þingi S.Þ.
um
a
ÞEGAR kostnaðurinn vegna að-
gerða Sameinuðu þjóðanna í
Kongó var til umræðu á fjórða
aukaþinginu í maí og júní þ. á.,
lýsti íslenzka sendinefndin yfir
vilja ríkisstjómar sinnar til þess
að taka fullan þátt í þeim út-
gjöldum. Þegar það gerðist, hafði
okkur verið tjáð, að þetta fram-
lag mundi verða það síðasta sem
til kæmi að meðlimaríki Samein-
uðu þjóðanna legðu fram. Við
vonuðumst til, að við það mundi
standa, og við tilkynntum stjórn
okkar samkvæmt því, að aðgerð-
unum í Kongó mundi verða lokið
í árslok 1963.
Nú er komið í ljós, að þá vor-
um við of bjartsýnir, og nýlega
hefur forsætisráðherra lýðveldis-
ins Kongó (Leopoldville), farið
fram á það, við Sameinuðu þjóð-
irnar, að aðgerðum þeirra í
Kongó verði haldið áfram til 30.
júní 1964, en að þá verði liðsfor-
ingjum og óbreyttu liði fækkað
um 5.350 menn.
Tillaga sú til ályktunar, sem
nú liggur fyrir þessum fundi, og
var samþykkt í 5. nefndinni með
yfirgnæfandi meirihluta, áætlar
allan kostnaðinn af áframhald-
andi aðgerðum vera $18.2 millj.
Okkur þykir vænt um, að stjórn
lýðveldisins Kongó ætlar að
standa straum af $3.2 millj. af
þessum kostnaði. Mundi því falla
í hlut meðlimaríkja Sameinuðu
þjóðanna að greiða samtals $15
millj. í ályktun þeirri, sem hér
liggur fyrir, er ákveðið, að $3
millj. skuli jafnast á meðlimarík-
in í sama hlutfalli og framlag
þeirra til Sameinuðu þjóðanna
hefur verið ákveðið fyrir 1964.
Þeim $12 millj. sem á vantar, á
svo að jafna niður á öll meðlima-
ríkin, en mörgum löndum er boð-
ið upp á að mega draga 55% af
100% frá framlagi sínu sem
verða mundi samkvæmt reglu-
legu hlutfalli. íslenzka sendi-
nefndin greiddi atkvæði með
þessari ályktun 5. nefndarinnar,
og mun einnig fylgja henni hér
í dag, þannig; að ísland mun ekki
notfæra sér tilboðið um afslátt af
framlagi sínu, heldur með
ánægju greiða hluta sinn af því.
Við leggjum áherzlu á, að við
fögnum þeirri yfirlýsingu í á-
lyktuninni, að hér sé um að ræða
loka greiðslu til aðgerða Samein-
uðu þjóðanna í Kongó. Við treyst
um því, að sú áætlun standist, og
að ekki verði, frá miðju ári 1964,
neitt herlið frá Sameinuðu þjóð-
unum í Kongó.
Því má halda fram, að framlög
hinna minni ríkja séu smávægi-
leg. Þó er það svo, að þegar þau
eru hugleidd í sambandi við al-
þjóðlegar aðgerðir á svo mörg-
um sviðum, af svo mörgum stofn-
unum, í svo mörgum löndum, þá
hljóta menn að viðurkenna, að
hinar alþjóðlegu skuldbindingar
eru að verða tilfinnanleg byrði
hinum smærri þjóðum, og til-
tölulega verða skattarnir á hvern
einstakling hærri.
Að lokum vil ég enn einu sinni
láta í ljós þá von, að öll riki inni
af hendi allar greiðslur sínar til
Sameinuðu þjóðanna, svo að
stofnuninni verði hlíft við þeim
vandræðum að þurfa að ákveða
að beita 19. gr. stofnskrárinnar
og þar með þeirri ákvörðun, að
meðlimaríki, sem eigi hafa greitt
gjöld sín í 2 ár, missi atkvæðis-
rétt á Allsherjarþinginu.
Þar sem Alþjóðadómstóllinn
hefur ákveðið upp úrskurð um
að útgjöld til aðgerða Sameinuðu
þjóðanna i Kongó falli undir 17.
grein sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, sem útgjöld stofnunarinn-
ar, þá mun það verða erfitt að
komast hjá afleiðingum af 19.
grein sáttmálans, og gæti það
leitt til upplausnar Sameinuðu
þjóðanna. Við verðum að vona
að hjá slíkum voða verði stefnt.
Þetta er afstaða lítillar þjóðar,
sem vildi sýna Sameinuðu þjóð-
unum fulla hollustu og leggja á
sig nauðsynlegar byrðar.
Ég hef viljað gera grein fyrir
þessari afstöðu.
Sigurður Krlstiusson
Sigurður Kristinsson lútinn
SIGURÐUR Kristinsson, fyrrver
andi ráðherra og forstjóri Sani-
bands íslenzkra samvinnufélaga,
lézt á fimmtudagsmorgun eiftir
uppskurð, 83ja ára að aldri.
Sigurður heitinn fæddist 2-
júlí 1880 í Öxnafellskoti í Eyja-
firði, sonur hjónanna Kristins
Ketilssonar, bónda þar, og
Salóme Hólmfríðar Pálsdóttur.
Sigurður lauk gagnfræðaprófi á
Akureyri, var verzlunarmaður
á Fáskrúðsfirði 1905—1906, en
þá réðst hann í þjónustu Kaup-
félags Eyfirðinga. Framkvæmda
stjóri þess félags var hann á ár-
unum 1918 — 1923, en árið 1923
varð hann forstjóri SÍS. Gegndi
hann þeirri stöðu til ársins 1946.
Atvinnumálaráðherra var hann
nokkra mánuði árið 1931. For-
maður sambandsstjórnar SÍS
var hann 1948 — 1960.
Kvæntur var Sigurður Guð-
laugu Hjörleifsdóttur, prófasU
á Undirfelli Einarssonar.
Sigurður hélt andlegum kröft-
um óskertum fram til. hins síð-
asta, en var orðinn líkamlega
veill.
Guðjón Eyjólfsson
löggiltur endurskoðandi
Hvcrfisgötu 82
Sími ie ‘58