Morgunblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 1
32 síður
Oswald gagnrýndi
Sovétríkin
í bók, sem hann byrjaði að skrifa í fyrra;
hraðritari í Texas leysir frá skjóðunni
Forth Worth, Texas, 30. nóv.
— AP —
HRAÐRITARI nokkur í Tex-
as, stúlka að nafni Pauline V.
Bates, hefur skýrt frá því, að
á sl. ári, 1962, hafi Lee Harvey
Oswald ráðið hana til að hrað
rita fyrir sig handrit að bók,
sem hann var þá að semja.
Var hér um að ræða and-
kommúníska bók, segir stúlk-
an. Hún vann þó ekki lengi
fyrir Oswald, því að á þriðja
degi bað hann hana að hætta
störfum. Kvaðst hann aðeins
eiga 10 dali.
Bent er á í fréttum í dag,
að frá því Oswald réði ungfrú
Pauline til starfa fyrir sig, og
þar til forsetamorðið átti sér
stað, liðu aðeins 17 mánuðir.
Oswald hefur, eins og kunn-
ugt er, verið sakaður um
kommúnisma.
Vitað er, að Oswald dvaldist
nærri 3 ár í Sovétríkjunum.
Þangað fór hann 1959, og lýsti
því þá yfir, að hann ætlaði að
afsala sér bandarískum ríkis-
borgcLrrétti. Síðar fékk hann þó
leyfi bandaríska utanrríkisráðu-
neytisins, og peningalán, svo að
hann gat snúið vestur um haf.
Unigfrú Pauline segir, að Os-
wald hafi haft undir höndum
mikið af minnisblöðum um á-
standið í Sovétríkjunuim. Hún
minnist þess, m. a., að hafa skirif-
að eftirfarandi, eftir honum:
„Sjónvarpið í Sovétríkjunum
fylgir algerlega línu kommún-
istaflokksins, en samt verður
að hafa opið fyrir það, svo
að grunsemdir séu ekki vaktar.
Sumir hafa falin útvörp, og eru
ánægðir með bandaríska útvarp-
ið (Voice of America).“
Ungfrú Bates álítur, að hún
hafi ritað um þriðjung bókar, þá
3 daga, sem hún vann fyrir Os-
wald, þ.e. 18., 19. og 20. júlí sl.
ár. Hún segir Oswald hafa verið
mjög taugaóstyrkan allan tím-
ann, og segir, að hann hafi ekki
léyft henni að hafa með höndum
minnisblöðin; hann hafi alltaf
tekið þau með sér heim að
kvöldi. Þá mátti hún heldur ekki
taka afrit af neinu, sem hún
skrifaði.
í þeim hluta bókarinnar, sem
ungfrú Pauline skrifaði, segir
Oswald frá því, er hann vann í
verksmiðju í Minsk í Sovétríkj-
unum.
Sagir hann vinnudaginn hafa
verið langan, 12—14 stundir.
Framh. á bls. 2.
Tom Howard, lögfræðingurinn, sem ætlar að verja Jack Ruby,
næturklúbbaeiganda, og morðingja Oswalds, sem talinn er hafa
myrt Kennedy, forseta. — Howard skýrði fréttamönnum fra
því, að hann teldi, að Ruby ætti skilið að fé sérstaka viðurkenn
ingu, helztu orðu, fyrir „afrek“ sitt. Telur hann aðallega tii
greina koma að veita Ruby „The Congressional Medal of
Honour“.
John Connally, ríkisstjóri í Texas, sem særðist, er Kenneay, lorseti, var myrtur, er nú vel á bata-
vegi. Myndin var tekin í Parkland-sjúkrahúsinu í Dallas um miðja vikuna. Hjá Connally er kona
hans. Connally ræddi á föstudag við blaðamenn.
Mesta flugslys í sögu
Kanada í gærmorgun
118 fórust, er DC-8 farþegaþota féli til jarðar
skammt frá IVIontreal — orsakir slyssins ókunnar
0uebec, 30. nóvember — AP
MESTA flugslys í sögu Kan-
ada varð í morgun, er DC-8
farþegaþota, frá „Trans Can-
ada Airlines", hrapaði til jarð
ar skammt frá Montreal. Með
flugvélinni voru 118 manns,
og létu allir lífið.
Flugvélin hafði skömmu áð-1
ur hafið sig til flugs frá flug-
vellinum við Montreal. Segja
sjónarvottar, að hún hafi fall-
ið logandi til jarðar. Spreng-
ing varð í vélinni, en ekki ber
vitnum saman um, hvort hún
hafi orðið áður en vélin skall
á jörðina, eða síðar.
Aðeins einu sinni áður hafa
farizt fleiri með einni farþega
flugvél.
Þotan, sem byggð var í Banda-
ríkjunum, er nýleg, og hefur að-
eins verið í notkun í 10 mánuði.
Hún átti fyrir höndum 450 km
flug til Toronto, er slysið varð.
Flugvélin féll til jarðar við
lítið iðnaðarþorp, Therese de
Blainville, um 20 km. fyrir norð
Framh. á bls. 2
WITMI-UH I m iw^wu ■ nwia. u miiii ■—m/mmwmmmmmmtmi—B
„Fjöðrin er allt of veik“
Fyrsta frásögnin af mistökum (og hetju-
dáð) við eldflaugaskot í USSR
Moskvu, 30. nóv. — AP
í F Y R S T A skipti hefur
verið frá því skýrt í Sovét-
ríkjunum, að óhapp hafi
átt sér stað við eldflauga-
skot. Frásögnin er þó birt
til að varpa ljósi á hetju-
skap eins þeirra manna,
sem við aldflaugastöðvar
vinna.
Frásögnina er að finna í
„Krasnaya Zvezda“ (Rauða
stjarnan, málgagn hersins), og
er á þessa leið: „Það var heit-
an og bjartan sumardag, að
allt var reiðubúið undir eld-
flaugaskot". (Ekkert er getið
um hvar, eða hvenær). „Ýtt
var á síðasta hnappinn, sem
losa átti um loku nokkra á
hlið eldflaugarinnar. Lokan
átti að hrökkva burt, og átti
fjöður að vinna það verk.
Fjöðrin var hins vegar ekki
nógu sterk til að losa um lok-
una, og hún sat sem fastast. Á
meðan starfaði annar útbúnað
ur eldflaugarinnar, og notaði
dýrmætt afl. Gengi svo of
lengi, var ljóst, að tilraunin
myndi ekki heppnast, og eld-
fiaugin myndi fara af réttri
stefnu.
Þá var það Serebreynnikov,
liðþjálfi, sem greip í taumana.
Hann hafði yfirumsjón í aðal-
stöðinni. Hann skipaði öllum
að halda sig innan húss, hljóp
hins vegar sjálfur að eldflaug-
inni, og reif lausa lokuna.
Hann hafði aðeins 6 sekúndur
til umráða til að komast 'í
skjól. Það tókst, og eldflaugin
fór sína leið. Sjúkrabifreiðir
þuztu að, en Serebreynnikov
stóð upp, ómeiddur, og sagði:
„Fjöðrin er of veik“.
Síðan hefur tvennt verið
gert. Fjöðrin styrkt, og komið
fyrir aukahnappi, sem stöðvar
hreyfla flaugarinnar, ef eitt-
hvað þessu líkt kemur fyrir“,
segir „Krasnaya Zvezda“, að
lokum.