Morgunblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 25
[ Sunnudagur 1. de?.. 1963 MORGU N BLAÐIÐ 25 '^étu rs findressonar Æaugavegí /7 - ‘TrnmncSíegi Z stunduðu búskap voru alltaí ein- hverjir unglingar á heimilinu, oftast fleiri en einn í einu, sem nutu þar skjóls og umönnunar og auk þess dvöldu a.m.k. tvö einstæð gamalmenni á heimilinu en þau leituðu þangað í um- komuleysi sínu til að bíða þar ævikvöldsins. í>ótt ýmislegt væri Magnúsi mótdrægt á lífsleiðinni er hann við leiðarlok mikill hamingju- maður og margir myndu óska sér slíkrar lífsbrautar. Mesta gæfa hans á lífsleiðinni var vafalaust sú að 27. sept. 1930 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Ingunni Jónasdóttur frá Borg í Króksfirði, frænku sinni og fóstursystur. Sambúð þeirra hefur veið slík, að þar hefur aldrei borið skugga á. Ingunn er mikilhæf kona, sem stóð hugrökk og fórnfús við hlið manns síns til hinztu stundar, glöð og ánægð, enda unnust þau mjög. Þeim varð sjö bama auðið, eitt dó í æsku, fimm eru gift og búsett hér í borginni, yngsta dóttirin er enn í foreldrahúsum. Barnabörnin eru orðin þrettán og verða nú ásamt foreldrum sínum, ömmu sinni huggun í harmL Nú breiðir afi ekki lengur stóra kærleiksfaðminn móti barnahópinum og eiginkonunni. Fyrir tæpum 25 árum kom ég á heimili Magnúsar og Ing- unnar sem vinnudrengur, ráð- villtur og umkomulítill. Mér var tekið með alúð og sérstakri nær- gætni og húsbóndinn var mér svo góður, að ég hændist að honum. Fljótlega batzt ég heim- ilinu þeim böndum, sem aidrei hafa rofnað. Ég varð drengurinn þeirra og eldri bróðir barnanna. Það, að mér félli þessi ham- ingja í skaut, þótti þeim sjólf- sagður hlutur. Hjá þeim átti ég síðan heima þangað til ég stofn- aði mitt eigið heimili og ennþá er ég sem heima hjá mér þar. Á vináttu okkar Magnúsar féll aldrei skuggi, milli okkar ríkti svo gagnkvæmur kærleikur, að heilli gat vinátta milli tveggja óskyldra manna tæplega orðið. Þegar nú leiðir okkar skilja fóstri minn, hef ég svo margt að þakka. Ég þakka þér öll heil- ræðin, umhyggjuna og kærleik- ann, sem þú miðlaðir umkomu- litlum dreng, ég þakka blíða viðmótið við konu mína og dótt- ur og ótalmargt fleira vil ég þakka. Umfram allt þakka ég það óbifanlega traust, sem þú sýndir mér til hinztu stundar. Guð gefi að ég reynist þess verð ugur. Magnus Hákonarson Ættingjum öllum og vinum Magnúsar votta ég dýpstu sam- úð. Mig brestur orð, indæla fóstra mín, sem gæti orðið þér og börnunum til huggunar. Við skulum öll sameinast um eina þakkargjörð og biðja honum ei- lífrar blessunar handan við móð una miklu. Við þekktum bezt ást hans og umhyggju og við trúum því, að góðir menn gangi á guðs vegum. Jón Ól. Bjarnasonu Skyrta úr 100% cotton Eykur vellíðan yðar Athugið Ú r v a 1 s æðardúnssængux fást ávallt í dúnhreinsun- airstöð Péturs Jónssonar. Póstsendi. Sími 17, Vogar. Auk þess fer straujuð skyrta betur og er því hæfari, sem spariskyrta. Minning i. 9. maí 1899 — d. 24. nóv. 1963. Á MORGUN, mánudag, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja vík útför Magnúsar Hákonarson- ar, Laugateig 14. Með Magnúsi hverfur af sjón- ersviðinu góður maður, sem lifði þannig, að hann var alltaf við- búinn sínu skapadægri. Hann var fæddur á Reykhólum í Barða •trandarsýslu, sonur hjónanna Arndísar Bjarnadóttur og Hákon •r Magnússonar, sem þar bjuggu um tuttugu ára skeið. Arndís var dóttir bændahöfð- ingjans Bjarna Þórðarsonar, sem lengi bjó á Reykhólum. Magnús ólst upp hjá foreldr- um sínum í stórum systkinahópi. Reykhólaiheimilið var þá eitt fjölmennasta heimilið á Vestur- landi. Hann stundaði nám við bændaskólann á Hvanneyri og lauk prófi þaðan vorið 1920. Skömmu síðar fór hann til Nor- egs og dvaldi þar um 5 ára skeið við ýmis störf, auk þess sem hann stundaði nám við lýðhá- skóla. Eftir að hann kom úr Noregsferðinni stundaði hann ýmis störf næstu árin, en hóf búskap árið 1931 í Reykjafirði I Vatnsfjarðarsveit, var bóndi þar og víðar við ísafjarðardjúp til ársins 1948, að hann flutti á- eamt fjölskyldu sinni til Reykja- víkur, þar átti hann heima til æviloka og vann verkamanna- vinnu, lengst af var hann hafn- arverkamaður. Margir ættmenn Magnúsar hafa þótt stórir í sniðum og ■terkir persónuleikar. Þeim hef- ur komið betur að láta geisla sviðsljósanna leike um sig en standa í skugganun. að tjalda- baki. Að þessu leyti var Magnús ólíkur frændum sínum þótt ætt- armótið væri ö!lum kunnugum ljóst. Magnús var að eðlisfari hlé- drægur, dulur í skapi og dagfars prúður. Deilur og dægurþras leiddi hann hjá sér að jafnaði. Fáa átti hann óvildarmenn, en marga vini. Teldi hann sér mis- boðið Vcir hann fastur fyrir og lét þá ekki hlut sinn fyrir nein- um, enda greindur vel og gleggri en margir, sem meira láta að sér kveða. Góðvildin var sterk- usti þátturinn í skapgerð Magn- úsar — af henni miðlaði hann öl! um, sem hann umgekkst, en ' þó mest þeim sem næstir honum stóðu. Hjálpsemi hans var grun- laus, þar sást hann aldrei fyrir. Aldrei voru ástæður hans svo elæmar, að hann væri ekki með ellan hug við að rétta skyldu- liði sínu hjálparhönd. Fórnfýsi hans var slík, að aldrei hafði hann svo litlu að miðla, að það væri ekki velkomið þeim sem voru hjálparþurfi. Svo hófsam- ur var hann, að sá eiginleiki ein kenndi allan lifsferil hans. Magnús hugsaði aldrei um að safna veraldarauði, enda taldi hann aðrar hugsjónir háleitari en gróðasjónarmiðið. Það mun líka vera fátítt, að menn með lyndiseinkunn hans safni að sér veraldlegum auði. Þótt hann væri verkamaður og bóndi allt sitt líf og tilheyrði þeirri stétt þjóðfélagsins sem mest leggja á sig líkamlega, var hann illa fallinn til líkamlegrar áreynslu. í öndverðu stóð hugur hans til annarra starfa, en þeirri köll- un fékk hann ekki að þjóna. Sem barn var hann veikbyggð ur og heilsa hans varð aldrei góð. Því var það, að þó hann gengi til starfs af kappi og vilja- festu varð hann heilsu sinnar vegna að slaka á fjTrr en hann vildL Með aldrinum hrakaði heilsu hans og tvo til þrjá síðustu ára- tugina gekk hann aldrei heill til skógar, en hann kvartaði aldrei. Jafnvel við, sem áttum trúnað hans, vissum ekki hvað honum leið, en undruðumst þrautseigju hans og æðruleysL Heimilið var stórt og þurfti mikils með, börnin voru sex, sem á legg komusL Gestrisni var mikil, hvar sem heimili þeirra stóð og hvort sem húsrýmið var mikið eða húsakynnin þröng, hópuðust vinir og vandamenn saman á heimili þeirra hjóna til að njóta nærveru þeirra, hve- nær sem færi gafst. Meðan þau f jölskylduna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.