Morgunblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudafftrr I. des. 1963 DCDC-8 farþegaþota á flugvellmum í Toronto. Þangað var flugvélin á leið í gærmorgun, er slysið varð. Flóðin í ánum að sjatna BORGARNESI, 30. nóv. — Hvítá í Borgarfirði flæddi yfir veginn sunnan við Hvítárbrú, á svokall- aðri Hvítárvallaeyri í gærkvöldi. Mjólkurbílar sem fóru frá Akra- nesi áttu í erfiðleikum með að komast yfir um 10 leytið um kvöldið, en þá mun flóðið hafa verið mest. Lá við að flæddi inn í bílana. Hinum megin, við Síkis- brúna, var lítið flóð. Þetta flóð var sjatnað í morgun. — Hörður. — Flugslys Framhald af bls. 1. an Montreal. 2 m djúpur gígur myndaðist, þar sem hún skall til jarðair. Er hann um 30 m breiður, og fylltist fljótt af vatni, vegna rigningar. Björgunarmenn, sem komu á vettvang, segja, að ömurlegt hafi verið um að litast, lík, brurmir flugvélarhlutar og eigur látinna farþega dreifðar um stórt svæði. Flugmaðurinn var Jack D. Snider, 47 ára, fyrrum herflug- maður. Barðist hann með Kon- unglega kanadiska flughernum í síðari heimsstyrjöldinni. Blanda ruddi sig rólega BLÖNDUÓSI, 30. nóv. — f gær- kvöldi fannst hér mjög greinileg lykt, sem talin er vera af gos- inu við Vestmannaeyjar. Fannst hún kl. 8—9 um kvöldið. Ég hef átt tal við marga menn, sem fundu þessa lykt og ber saman um tíma. Hér er nú orðið að heita má auð jörð á láglendi. Hlákan var miklu mildari en víða annars stað ar. Ég talaði við eftirlitsmanninn með vegunum. Hann sagði að smá vegis hefði flætt yfir vegi; en það er ekki stórvægilegt. Nú er nokk- ur vöxtur I Blöndu og hefur hún rutt sig. Eru talsverðar hrannir við Blönduós, en þær hafa ekki gert neitt tjón. — Björn. STEFNUSKRARRAÐSTEFNA Heimdallar heldur áfram í Val- höll mánudagskvöld kl. 20.30. — Teknir verða fyrir þeir mála- flokkar, sem eftir eru: Almennur inngangur. Utanríkis- og öryggismál. Tryggingarmál. Heimdellingar! Komið og takið virkan þátt í mótun stefnuskrár Skátasamtökin I Rvík í byggingarhugleiöingum Reisa bækistöð á lóð Skátaheimilis- ins v/ð Snorrabraut Skátar í Reykjavík eru nú að hefja undirbúning að byggingu bækistöðvar fyrir skátastarfsemi- na við Hringbraut, en þar hefur Reykjavíkurborg gefið Skáta- félögunum í Reykjavík fyrirheit um lóð og 300 þús. kr. styrk til byggingar. Var í fyrradag form- legur stofnfundur Skátasam bands Reykjavikur, til að skapa sameiginlega stofnun fyrir Kvenn skátafélagið og Skátafélag Reyk javíkur, svo að þau geti komið sameiginlega fram í sambandi við byggingarframkvæmdir Skát arnir voru einnig um síðustu helgi að afla byggingarsjóði sínum tekna með því að bera út skírteini fyrir Sjúkrasamlag ið. Mbl. leitaði upplýsingar um byggingarmálin hjá Þór Sand- holt. Hann sagði að enn væri ekki byrjað að teikna þetta hús. Hingað til hefðu þetta verið loft kastalar, en með stofnun sam- bandsins væri verið að færa þá niður á jörðina. Á 50 ára afmæli skátahreyfing arinnar í fyrra, gaf Reykjavíkur borg fyrirheit um að Skátar í Reykjavík fengju lóðina þar sem Skátaheimilið stendur við Snorra braut, til afnota. Þar á að vera aðalbækistöð skáta í Reykjavík og einnig skátafylkið í nágrenninu fá þar samastað, Markmiðið er að koma upp í úthvérfum bæki- stöðvum fyrir viðkomandi hverfi þar sem ekki er hægt.að ætlast til að börn sæki fundi á kvöldin langt heiman að frá sér. Og er góð samvinna að komast á milli fræðslustjórnar og skólastjóra annars vegar og foráðamanna skáta hins vegar um afnot af skólum í því skyni. Auk Reykja- víkurstarfseminnar, er ætlazt til að Bandalag skáta geti verið til húsa í fyrirhugaðri byggingu. Skipulag bæjarins gerir ráð fyrir háu húsi á þessum stað, 5 —6 hæða húsi, en Þór sagði að skátarnir hugsuðu ekki svo hátt í fyrsta áfanga. Reykjavíkurborg hefur þegar greitt af hendi 100 þús. kr. af lofuðu framlagi. Til að skapa grundvöll fyrir fyrir- hugaðar framkvæmdir, þurfa bæði skátafélögin, sem að því standa að skipa byggingarnefnd og fjáröflunarnefnd. í stjórn Skátasambandsins ný- ja eiga sæti: Þór Sandholt, Gunn- ar Möller, Jón Mýrdal, Ragn- hildur Helgadóttir, Erna Guð- mundsdóttir og Erla Gunnars- dóttir. Jón Guðnason Merkir íslendingar Nýtt bindi komið út Bangkok, Thailand, Þingið í Thanandi hefur samþykkt samning um sam- I vinnu við Dani varðandi forn- ■ leifarannsóknir í landinu. Er talið ag samningurinn verði undirritaður þegar Margaret 1 prinsessa kemur til Thailands í boði Bumibol konungs og félags ykkar. Stjórnin. Sirikit þ.m. drottningar hinn 17 I NA 15 hnútor 1 / SV 50 hnútor ¥: Snjókoma >Oéi V Skúrir K Þrumur W.Z, KuMaskil H Hmt L L*,» ANNAÐ BINDIÐ i hinu-m nýja flokki Bókfellsútgáfunnar um „Merka íslendinga” er komið út, og hefur Jón Guðmundsson skjalalavörður búið það til pren- tunar. Eru þar tólf ævisögur. Brandur Jónsson, biskup á Hólum, eftir Tryggva Þórhalls- son, Loftiur riki Guttormsson, eftir Jón Þorkelisson, þjóðskjala- i vörð, Benedikt Jónsson Gröndal, eftir Hannes Þorsteinsson, Daði | Nielsson fróði, eftir Jón Aðils, Jakob Guðmundsson prestur, sjálfsævisaga og viðbætir eftir Jóhannes L. L. Jóhannesson og Jón Guðnason, Magnús Stephen- sen, landshöfðingi, eftir Jón Þor- kelsson, þj óðskjalavörð, Finnur Jónsson prófessor, eftir Jakob Jóh. Smára, Þorsteinn Erlings- son, eftir Guðmund Magnússon (Jón Trausta) og kvæði eftir Guðmund Friðjónsson, Hermann Jónsson frá Þingeyri, eftir Jón Jocobsson, Guðmundur Björns- son, landlæknir, eftir Pál V. G. Kolka, Jón Aðils prófessor, eftir Pál Eggert Ólason og Benedikt Sveinsson, alþingisforseti, eftir Guðmund G. Hagalín. Bókin er 323 bls. að stærð, og er frágangur allur sérstaklega vandaður. Flóðin í ánum á Suðurlandi eru einnig að sjatna. Ölvusá var þó bakkáfull við Selfoss um há- degi í gær. Hafði áin farið yfir veginn hjá Kaldaðarnesi og Arn- arbæli í Ölfusi. Hvítá flæddi, svo sem áður hef- ur verið sagt, yfir veginn frá Auðsholti við Bjarg, en þar er nýr vegur yfir lága mýri og flæðir þar á hverju ári. Hafa Auðsholtsmenn þurft að flytja mjólkina á bátum út að Laugar- ási. f gær gátu þeir þó ekki farið á bátunum vegna veðurs. Var bú- izt við að flytja þyrfti mjólkina á bátum í gær, þó vatnið sé að sjatna. — Oswald Framhald af bls. 1. Hann segist hafa haft 80 rúblur I mánaðarkaup, en segir skór hafi þar kostað um 100 rúblur. Þá skýrir stúlkan frá þvf, að Oswald hafi sagt í bókinni, að eftir tveggja ára dvöl eystra, hafi hann viljað snúa aftur til Banda- ríkjanna. Þá neituðu sovézk yfir- völd honum um leyfi til að fara með konu sína, Marinu, sovézka, veetuir um haf. Hafi honum þá verið tilkynnt, að hún fengi að koma „síðar“. „Ég vissi, að ef ég færi án hennar, myndi ég aldrei sjá hana aftur“. Því fór ég ekki“, Er ungfrú Pauline hafði unnið fyrir Oswald í 3 daga, kom hann til hennar, rétti henni 10 dali, og sagði: „Þetta er allt, sem ég á.“ Hún segist hafa boðið honum að Ijúka verkinu fyrir hann, hann igæti borgað síðar, en hann vildi það ekki. Fregnir bárust um það i gærkvöldi, að Oswald hafi undanfarna mánuffi fengið símsenda peninga reglulega, Alríkislögreglan bandaríska hefur máliff nú til meffferðar. Starfsliff pósthúss í Dallaa minnist Oswalds, vegna þess, aff hann hafi rifizt við þaff, vegna afgreiffslu peninganna. Ekkert hefur veriff látiff uppi um, h v a ff a n peningarnir komu. Þetta er atriffi er nú rannsakað sérstaklega. í GÆR voru opnuff aftur j göngin undir Miklubrautina viff Lönguhlíð og um Ieið eru ‘ opnuff þar almenningsnáðhús, ( bæði fyrir konur og karla. | Þarna er mikil umferff, sem . kunnugt er, og voru göngin ‘ lögff til aff vegfarendur kæm- úst í öryggi yfir götuna. Eni i eftir aff fyrst var opnaff, þurfti ? ’ aff loka göngunum. vegna ' slæmrar umgengni. Er von-1 andi aff ekki komi til þess nú ( enda verffur eftirlitsmaffur { meff náðhúsunum og göngun- um um leiff á staðnum kl. 9— 1 11.30. Er snyrtilega frá náff-1 húsunum gengiff, 5 salerni hvorumegin, ísleifur Hannes- i son mun hafa þarna eftir- Íit. s LÆGÐIN yfir Grænlands- hafi grynnist, en kalt loft frá sunnanverðu Grænlandi streymir hingað til landsins, og fylgja því nokkur kornél, eins og títt er í útsynningi um þetta leyti árs, ehda þótt hiti sé 2-3 st. Um hádegi í gær var S-átt og blíðuveður norð an lands. Hiti á Akureyri var 5 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.