Morgunblaðið - 22.12.1963, Side 25

Morgunblaðið - 22.12.1963, Side 25
Sunnudagur 22. des. 1963 MORCUNBLAÐIÐ 22 Valdimaría Heiqa Jónsdóttir Fædd: 3. marz 1882. Dáin: 13. desember 1963. J ARÐSETT var í gær frá Foss- vogskirkju, Valdimaría Helga Jónsdóttir, fyrrum húsfreyja og ekkja, búsett í Reykjavík, 81. árs að aldri. Hún lézt að morgnl hins 13. desember í Landsspítal- anum. María, eins og hún var ætíð kölluð, var fædd 3. marz 1882 að Litla-Gerði í Grindavík og voru foreldrar hennar Jón Jóns- son frá Skrautási í Hrunamanna hreppi og Gróa Rögnvaldsdótt- ir frá Reykjadal í sama hreppi. Ættir þeirra eru í Árnesþingi og einkum í Hreppunum. í bókinni „Nokkrar Ámesingaættir“ eftir Sigurð E. Hlíðar, fyrrum yfir- dýralækni, er forfeðra, mæðra og skyldmenna víða getið, þó einkum í Jötu- og Hörgsholts- ætt. I>au hjónin áttu aðra dótt- ur er Sigríður hét, f. 7. nóv. 1875 en hún var móðir þeirra Karls Björnssonar, fyrrum bakara í Vestmannaeyjum, og Elínu, sem átti Markús E. Jensen kaup- mann. Á áttunda árinu fór María upp í Borgarfjörð og ólst hún upp hjá Elínu móðursystur sinni í Hraunsási t Hálsasveit. Hún átti þrjár móðursystur í Borgarfirð- inum um þetta leyti: Þóru á Fróðhúsum, sem var elzt þeirra Reykjadalssystra, eljusöm og dugmikil kona, sem María minnt ist oft með hlýju, þótt hún hefði' lítið af henni að segja; Vilborg Ijósmóðir á Hofstöðum, en hún átti Þorstein bónda Árnason. Báðar dætur þeirra Vilborgar urðu ljósamæður, en þær vom Sigríður á Vatnshömrum og Þur- iður, en hún átti Hans P. Mark- ussen. Fóru þau utan til Dan- merkur og síðan til Bandaríkj- anna. Sigríður systir Maríu, dvaldist einnig 1 Borgarfirðinum um svipað leyti, en hún dó ung að árum eða innan við þrítu-gt. Ég minnist þess hvað Borgar- fjörðurinn var Maríu hugstæð- ur og hvað hún dáði fegurð sveitarinnar, og beztu bernsku- minningar hennar voru frá Hraunsási. Seinna meir fór hún víðar um í kaupavinnu eins og þá var títt, og rifjast upp fyr- ir mér staðir eins og Skriðukot i Haukadal, þar sem húsmóðirin lét með hana eins og dótfcur sína, útbjó aldrei nesti til ferða öðru - Minning vísi en að María fengi að njóta góðgætanna. Og þar var ætíð bezti gæðingurinn settur undir hana í útreiðar. Að Svangi í Skorradal kom hún gangandi og óráðin ásamt vinkonu sinni, og í Efstadal við Laugarvatn var hún tvö sumur. Ég minnist þess, þegar hún rifjaði upp heyskap- inn í mýrinni við Laugardals- hóla, sem var svo fúin að ekki var viðlit að láta skepnur út í han-a, og voru þær kaupakonur allan daginn blautar upp á brjóst þar sem þær urðu að bera hey- sátur, sem þær rökuðu upp úr mýrinni. Sveitalífið var erfitt, mikil vinna, en fólk var vinnu- fúst og iðjusamt í þá daga Hún var lítið fyrir að tala um sjálfa sig og sína lífsleið, aðeins for- vitni mín olli því að hún miðl- aði mér svo litlu. Nokkru fyrir aldamótin eða 1898 kom María til Reykjavíkur og bjó þar síðan allan sinn bú- skap. Árið 1906 giftist hún Gunn- ari Jónssyni (f. 29. júlí 1872) frá Uxahrygg 1 Vestur-Landeyjum. Á Uxahrygg höfðu forfeður og mæður Gunnars setið í nærri hundrað ár og búnast vel, og var ætíð mannmargt í heimili. For- eldrar hans voru þau Jón bóndi Guðmundsson á Uxahrygg (f. á Uxahrygg 5. nóv. 1841) og Mar- grét Einarsdóttir frá Akurey (f. 9. apríl 1842), en hún dó í hárri elli og hafði verið blind um tutt- ugu ár. Jón á Uxahrygg átti tvo bræður og hefi ég heyrt margar þrek- og hreystisögur af þeim Uxahryggjabræðrum. Sérkenni- legt að þeir bræður áttu allir Margrétar fyrir konur. Jón dó um aldur fram, aðeins 34. ára. Samvistir þeirra Maríu og Gunnaas urðu ekki ýkja langar, því að hún missti mann sin-n eft- ir 15 ára búskap eða 8. júlí 1921, og var hann þá tæplega fimm- tugur að aldri. Þeim varð 6 barna auðið, tvo drengi misstu þa-u í bernsku, en fjögur eru á lífi og ÖU búsett í Reykjavík. Þau eru Gunnar Marinó hjá Samvinnu- tryggingum, kvæntur Guðlaugu Elíasdóttur frá Hallbjarn-areyri, Elín María húsfreyja, gift Jens Guðjónssyni bifvélavirkja, Gróa Dagmar húsfreyja, gift Hannesi H. Agnarssyni bifreiðarstjóra, Jón Tra-usti bifreiðarstjóri kvænt ur Fjólu Guðmundsdóttur. Árið 1927 varð María heit- bundin Magnúsi Ma-g-nússyni, Gripinn með hníf á Ráðhústorginu Kaupmannalhöfn 18. des. i Einkaskeyti frá RytgaarcL Það bar til tíðinda á Ráðhús- torginu í Kaupmannahöfn að- faranótt 9. desemiber, að 18 ára gama-H íslenzkur piltur va-r sleginn niður af æsbum mann- fjölda. Pilturinn hafði verið í veit- ingahúsi og dansað þar við danska stúl-ku, en nokikrir ungir Danir höfðu ta-lsvert við það að athuga. Varð hann hrædd-ur við einn hinna dönsku keppi- nauta sinna, hljóp inn í eldhús veitingastaðarins og tók þar stóran brauðhníf. Síðan yfirga-f hann veitin-gahúsið, en fjö-ldi ctanskra fylgdu á hæla honum. Á Ráðhúst-orginu þótti piltinum sér ógnað svo mjög, að hann snerist til varnar með brugðna hredduna. Réðust vegfarendur Iþá að honuim, þar sem þeir héldu að hér væri hættulegur maður á ferð, og slógu hann niður, til þess að gera hann óskaðlegan. Lögreglan kom á vetbvang og bvístraði mannfjöldanum, en íslending-urinn var fluttur í sjúkrabifreið. Hann hélt hins vegar, að hann væri staddur í lögreglubíl, og þegar sjú-kra- vagninn kom í borgarsjúkrahús Kaupmannahafna-r, tók hann til fótanna og komst undan á skyrtunni, með blæðandi andlit, um borð í skip það, sem hann vinnur á. Daginn eftir kom stýrimaður- inn með unga manninn til lög- reglunnar. Var hann yfirheyrð- ur og síðan látinn laus, þar sem hann hafði ekiki á nokkurn hátt gerzt brotlegur. Hann verður ekki heldur kærður fyrir óspekt- ir á almannafæri, sökum þessara óvenjulegu aðstæðna. Ekki munu áh-orfendurnir, sem réðu niðurlögum hans, sæta ákæru, þar sem eðlilegt þykir, að þeir álitu hann hættulegan. múrara í Reykjavík, en sambúð þeirra varð skemmri en til stóð, því að hann missti heilsuna og dó árið 1931. Þau áttu eina dótt- ur, sem andaðist við fæðingu. Þegar sorgin sótti hana heim og mótlætið mætti, þá tók hún því með mikilli hugprýði, sem sýndi óbilandi þrek hennar og kjark. Þegar María hverfur yfir landamæri lífs og dauða er margs að minnast. Ég man hana með hreina og góðan svip, fríðleikskona, sem klæddi si-g af mikill smekkvísi. Ég man gamansemi og glaðværð ar hennar. Ég gleymi aldrei hversu gestrisin hún var, enda naut ég þess ríkulega, sem dótt- ursonur hennar. Það voru miklir hátíðisdagar hjá mér, sem dreng að fá að gista hjá öminu. Hún kunni sannarlega »ð hafa ofan af fyrir okkur börnunum. Hún var iðjusöm með prjónana sína og fengum við barnabörnin að njóta þess í ríkum mæli. Börn- in hennar voru góð við hana, við vorum það öll, dáðum hana og elskuðum. María átti líka sonar- son sem var fyrirmynd, hjálp- samur og góður við hana á all- an hátt Ég minnist síðustu æviára hennar. Þegar heilsa hennar fór að láta undan var María hjá foreidrum mínum, og síðustu tvö árin í sjúkrahúsum. Átti hún við mikla vanheilsu að stríða, en þær þrautir bar hún æðru- laust. Fyrir allar þær minningar og samverustundir, sem ég og fjöl- skylda mín áttum með henni, viljum við þakka af heilum hug og biðjum henni allrar blessun- ar. Blessuð sé minning hennar. Gunnar V. Hannesson. Beethoven — ævisaga í máli og myndum — / Jbýð/ngi/ Jóns Þórarinssonar Beethoven — ævisaga í máli og myndum er komin út hjá Fróða. Þetta er afar vönduð bók skreytt miklum fjölda mynda. Textinn er eftir Erich Valentin en Jón Þórarinsson tónskáld þýddi. A Myndum prýdd bók. í bókinni er brugðið upp nýrri mynd af frægasta tónsnillin-gi allra aldra, samtíð hans og um- hverfi. Er þar rakin æviferi-11 meistarans frá bernsku til hinztu stundar. Lesandinn kynnist vinu-m hans, er gestur í her- bergjum hans, skyggnist í nótna- -handritin og sa-mtalsbækurnar, sem voru tengiliður Beethovens við umheiminn, eftir að heyrnin var að fullu biluð. Hálft ann- að hundrað mynda prýða bók- ina, fjársjóður jafnt fyrir þá sem áður eru kunnugir ævi Beethovens og starfi eins og 'hinna, sem ef til vill kynnas-t honum nú í fyrsta sinn. Þýzkalandi en textinn settur inn í hér. Á þennan hátt hafa Þjóðverjar kynnt marga sína miklu meistara í tónlist og bæk- urnar síðan verið þýddar á mörg tun-gumál. Er það ætlun. Fróða-útgáfunnar að ga-gni þessi útgáfa vel, verði framhald á næstu árum . Með þessari bók er útgáfa A 13. bók Fróða. Fróða lokið á árinu en alls Myndirnar eru prentaðar í -hafa komið út 13 bækur. ,Hinn fulikomni eigin- maður‘- ný bók Breinhtnst MEÐAL jólabókanna er gaman- söm og hnyttin bók eftir danska háðfuglinn og grínistan Willy Breinholst sem nefnist „Hinn fullkomni eiginmaður". — Bók þessi er í stíl við fyrri bók höf- undarins, „Vandinn að vera pabbi“, sem átti vinsældum að fagna í fyrra. Þessi frásögn Breinholst er ó- svikin og leikandi gamansemi. En öllu gamni fylgir nokkur alvara. Breinholst tekur fram að alfull- kominn eiginmaður sé að sjálf- sögðu ekki til, en skylda allra eiginmanna sé að keppa að því háleita marki. Breinholst biður menn að minnast þess að hjóna- bandið sé samskotabaukur, og í hann leggi eiginkonan dyggð sína ást og kökuuppskriftir, en karl- maðurinn aðeins frelsi sitt, sem sé að vísu miklu meira virði en allt hitt. Síðan er rakið með dæmum hvernig eiginmaðurinn keppist við að fullkomnast. Bókin er prýdd nokkrum skemmtilegum teikningum. Tre" síldveiði Olafsvíkurbáta Ólafsvík, 21. desember. SÍLDVEIÐI hefur verið heldur treg hjá heimabátum í haust, en talsvert hefur verið landað hér af öðrum bátum en heimabátum, þó mest eftir að verkfall hófst 1 verstöðvum syðra. Þessar landanir voru sv® stöðvaðar af verkalýðsfélaginu hér laugardaginn 14. desember. Síldin hefur verið bæði fryst og söltuð. Fryst hefur verið í 2 húsum hér, Kirkjusandi hf., 7 þÚ3. tunnur, og Hraðfrystihúsi Ólafs- víkur, 6 þúsund tunnur, og saltað í 2.400 tunnur. — H. K. SHEAFFERS sjálfblekungur meb 14K gulloddi er glæsileg jólagjöf Það getur verið sérstök ánægja að velja hina réttu gjöf. Hún á að vera persónuleg, en einnig fínleg og virðuleg. Aðrar gjafir kynnu að uppfylla þessi skilyrði, en fáar að sama marki og SHEAFFER’S penni. Veljið góða gjöf, gefið vinum yðar og ætt- ingjum SHEAFFER’S penna og yður m-un minnst af ánægðum eiganda. SHEAFFER’S pen-nar fást í miklu úrvali í ritfanga- og bókaverzlunum og Gler- augnaverzluninni, Skólavörðu stíg 5. — — Verð við allra hæfi. SheafferS SHEAFFER’S nafnið tryggir að þér gefið (eða eignist) það bezta fáanlega í skriffærum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.