Morgunblaðið - 22.12.1963, Blaðsíða 31
Sunnudagur 22. des. 1963
MORGUNBLAÐID
31
Þeir, sem biðu fars
hjá F.Í. komast all-
ir heim fyrir jól
F.í. telur verkfallsstjórnina hafa
mismunað flugfélögunum
MORGUN'BLAÐIÐ sneri sér í
gær til Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugfélags íslands,
og spurði hann tíðinda af flugi
félagsins á meðan á verkfalli
stóð og eftir það.
Sveinn sagði, að þegar verk-
fallið hófst hefði öll starfsemi
Flugfélagsins lagzt niður og
ekkert verið flogið í 5 daga. En
strax á öðrum degi verkfallsins,
þegar í ljós kom, að Loftleiðir
fengu að fljúga og notið fyrir-
greiðslu á Reykjavíkurflug-
velli samkvæmt undanþágu, þá
sneri F. í. sér til launþega-
samtakanna og bað um að fá að
fljúga tii áætlunarstaða, en til
vara að mega halda uppi flugi til
þeirra staða innanlands, sem
ekki höfðu aðrar samgöngur,
þ .e. ísafjarðar, Egilsstaða og
Enska
knnttspyrnan
í 24. umferð urðu úrslit þessi:
1. deild.
Arsenal — Leicester .. 0—1 mörk
Birmingham — Fulham ..... 0—0 —
Blackburn — Aston Villa .. 3—0 —
Blackpool — Liverpool .... 0—1 —
Chelsea — Sheffield U..... 3—2 —
Everton — Manchester U.... 4—0 —
N. Forest — Tottenham .... 1—2 —
Sheffield W. — Burnley ___ a—1 —
Stoke — Wolverhampton .... 0—2 —
W. B. A. — Bolton ........ 1—1 —
Ipswich — West Ham .......3—2 —
2. deild.
Bury — Leeds ............. 1—2 —
Huddersfield — Derby ..... 0—0 —
Manchester City — Rotherham 6—1 —
Leyton O. — Norwich ...... 1—1 —
Middlesbrough — Charlton . 2—3 —
Newcastle — Plymouth ..... 1—1 —
Northampton — Sunderland .... 5—1 —
Southampton — Grimsby 6—0 —
Swindon — Portsmouth .... 2—0 —
Swansea — Preston ........ 5—1 —
í Skotlandi urðu úrslit m.a. þessi:
Dundee — Falkirk ........ 4—3 —
Rangers — St. Johnstone .. 2—3 —
St. Mirren — Quéen of the Souths 3-2
Staðan er þá þessi:
1. deild.
1. Blackburn
2. 32 —
3. Liverpool
4. Arsenal
2. deild.
2.
2. Sunderland
3. Preston
Hornafjarðar. Þessari umsóikn
var aldrei svarað.
Sagði Sveinn, að þegar ljóst
varð að verkalýðsfélögin voru
staðráðin í að mismuna flug-
félögunum, þá hefði F.í. ákveðið,
jafnskjótt og verkfall verzlunar-
manna leystist, að hefja flug að
nýju til þeirra staða, sem flugið
ekki braut í bága við verk-
föllin.
Flugvélarnar voru fluttar til
Keflavíkur og inanlands og
millilandaflug hafið. Þótt ekki
væri hægt að halda uppi full-
1 komnu áætlunarflugi leysti
þessi þjónusta mikinn vanda
I fólks, sagði Sveinn, sumpart
I skólanemenda, sem ætluðu heim
| í jólafri, og sjúklinga t. d., sem
| voru á heimleið af sjúikrahúsum
erlendis.
Þessu var haldið áfram meðan
verkfallið stóð og vil ég í þessu
sarmbandi vísa algerlega á bug
þeim ummælum eins forystu-
manns Dagsbrúar, að Flugfélagið
'hefði framið með þessu verk-
fallsbrot, sagði Sveinn. Hins
vegar hefur engin viðunandi
skýring fengizt á því, hvers
vegna þeir mismunuðu Flug-
félaginu í þessu máli, sagði
hann.
Strax í gær hófst áætlunar-
flug milli landa og innanlands
af fullurn krafti. Gullfaxi fór í
gærmorgun til Glasgow og Kaup
mannalhafnar og kom heim aftur
seint í gærkvöldi. Skýfaxi kom
heim í gærkvöldi frá Norður-
löndum og fór um hæl aftur til
Kaupmannalhafnar.
Síðasta ferð til útlanda fyrir
jól á vegum F. í. verður á
Þorláksmessu, en þá flýgur
Gullfaxi til Bretlands og Dan-
merkur og heim aftur.
Innanlandsflugið gekk vel í
gær, að undanteknu ísafjarðar-
flugi. Þrjár ferðir voru famar
til Akureyrar. | dag verður
væntanlega flogið til ísafjarðar,
tvívegis.
Búizt er við, að allir sem
biðu fars heim fyrir jól, muni
'komast heim í tæka tíð.
Látið sjóða í pottunum
FYRIR RÚMUM &8 árum var ég
é fyrstu samkomunni, sem Hjálp
ræðisherinn hélt á íslandi. Öll
þessi ár hefi ég verið vottur að
hinu fagra starfi, sem er ávöxtur
lifandi trúar. Hér er líknarher-
inn í heillaríku starfi. Þegar við
mig var sagt: „Hvar er trúin
í verkinu?“, þá benti ég á Jen-
sínu, sem seldi Herópið. Ég var
inni á rakarastofu , inni í póst-
húsinu og bankanum. Allsstaðar
var Jensína brosandi. Og hið
sarna má segja um margar ungar
herstúlkur og brosandi hermenn,
®em með trúfestu og þolgæði
vinna þau störf, sem þeim eru
falin. Með gleði er kalli skyld-
unnar hlýtt, hvort sem er í sól-
skini, í stormi og rigningu. Hér
má sjá þá trú, sem starfar í kær
leika.
Jólin nálgast og í sama mund
é hverju ári má sjá þá jólamynd,
sem ætti að gleðja þá, sem um
göturnar ganga. Þú kannast við
myndina. Sjáðu þá og þær, sem
halda vörð hjá jólapottinum.
Gönguta ekiki framihjá, leggjum
gjöf í pottinn. Það á að sjóða
Tvær nýjar bækur eft-
ir Gísla Ástþórsson
Gísli J. Astþórsson.
Blaðinu hafa borizt tvær bæk-
ur eftir Gisla Ástþórsson rit-
stjóra.
Aðra nefnir hann „Einfaldir
og tvöfaldir“. Ægisútgáfan gef-
ur hana út en tei'kningar og
kápa er eftir Gísla. Bókin er
143 blaðsíður að stærð og skiptist
í 3 kafla: Óheilög þienning, Ég,
Bogesen og Amalíudagar.
í formála Segir höfundur m.a.:
„I þessari bók er slangur af fólki,
sem ég hef þekkt og aragrúi af
Uralerð hniin um Ennisveg
Ólafsvík, 21. desember.
UNNIÐ var að lagningu Ennis-
vegar til 18. þ.m., en þá stöðvað-
ist verkið vegna verkfalls, en bú-
ið var að ganga þannig frá vegin-
um, að hægt var að hleypa um-
ferð um hann.
Vegurinn hefur enn ekki verið
formlega opnaður, en þó er
hægt að fara hann milli Sands og
Ólafsvíkur. Veginum er ekki full-
lokið ennþá. Haldið verður áfram
vinnu við veginn eftir áramót.
Talsverð umferð hefur verið
um veginn undanfarna daga og
vænta menn sé mikils hagræðis
af þessari samgöngubót. Leið
þessi tekur nú um 15 mínútur,
en áður var farið undir Ennið í
Umferðarslys
I gærmorgun var flughált á
götum. Af þeim sökum varð slys
í brekkunni sunnan við brúna
yfir Setbergslækinn í Hafnar-
firði. Þetta gerðist laust fyrir
klukkan 9. Bíll fór út af veg-
inum og valt. Lenti bílstjórinn
undir honum og var þar fastur,
er að var komið. Var hann flutt-
ur á Slysavarðstofuna í Reykja-
vík, en reyndist ekki mikið slas-
aður. Bíllinn stórskemmdist.
Fleiri bílar áttu í erfiðleikum
vegna ísingar. Kl. 10.40 fóru
tveir út af Keflavíkurveginum
við kirkjugarðinn. Annar fór þar
út af vegna hálku. Bifreiðar-
stjórinn í hinum horfði svo mik-
ið á fyrri útafkeyrsluna, að hann
ók út af sjálíur. Báðir bílarnir
skemmdust nokkuð, en ökumenn
meiddust ekkert.
i í pottinum og hvað kemur
þaðan? Peningar, sem notaðir
eru til þess að gleðja og hjálpa.
Hverjir verða hjálparinnar að-
njótandi? Fátækt fólk, börn og
gamalmenni. Mér hefir oft verið
það mikil ánægja að sjá gleði-
brosið, er tekið var á móti gjöf-
unum, og hátíðlegum stundum
fagnað, er hressandi veitingar
voru bornar fram og söngurinn
lyfti hug og hjarta í hærra veldi.
Hve fagurt hlutverk að styrkja
(hugfallið geð og beina sólar-
geislunum til þeirra, sem þrá
hina styrkjandi og vekjandi
gleði.
Á hverjum degi fram að jólum
gefast mönnum mör.g tækifæri
til að leggja fram gjöf, sem
kallar á hátiðarbrosið. Ég vona
að Hjálpræðisiherinn fái enn að
njóta þeirrar gleði, sem er í því
fólgin að taka við brauðmu frá
'hendi Drottins og bera það fram
fyrir mannfjöldann. Stuðlum að
þvi að sigur og fögnuður fylgi
blessunarríku líknarstarfi. Þetta
á að vera einn báttur í jólágleð-
innL Bj. J.
Loftleiðir taka
farþega og póst
FLUGVÉLAR Loftleiða byrj
uðu aftur að taka farþega og
póst til og frá íslandi strax í
gærmorgun, en þær höfðu hvor
ugt flutt vegna verkfallsins með
an á því stóð. Margir íslending-
ar höfðu pantað far heim fyrir
jólin, en hafa væntanlega kom-
izt með öðrum flugvélum eða
komast nú heim.
fjöru. Við beztu skilyrði var
hægt að fara fjöruleiðina á hálf-
tíma, en sæta þarf sjávarföllum.
Hins vegar hefur leiðin frá Ólafs-
vík til Sands fyrir Jökul tekið
um tvo tima. — H. K.
fólki, sem ég hef ekki þekkt, en
myndi gjarna vilja þekkja. Sumt
í bókinni . er satt og sumt er
málum blandað og sumt er alls
ekki satt, satt að segja. Teikn-
ingar eru nýjar af nálinni, stund-
um stuðst við fyrirmyndir,
stundum ekki.“
Hina bókina nefnir Gísli „ísa-
fold fer í síld og hann Krummi
og hann Ólafur köttur“. Bóka-
forlag Odds Björnssonar á Akur-'
eyri annast útgáfu þessarar bók-
ar. Einkum mun hún ætluð
yngri. lesendum. Bókina hefur
höfundur prýtt myndum eftir
sjálfan sig. Hún er 63 síður að
stærð og skiptist í 6 kafla.
Prentuð er bókin í Prentverki
Odds Björnssonar á Akureyri.
Þetta er 4. og 5. bók höfundar.
Hinar fyrrj eru „Uglur og páfa-
gau'kar“, „Hlýjar hjartarætur"
og „Brauðið og ástin“.
Nýja Cloudmast-
ervélin kemur á
aðfangadag
HIN nýja Cloudmaster-flugvél,
sem Flugfélag fslands keypti af
SAS fyrir skömmu, kemur vænt-
anlega til Reykjavíkur í fyrsta
skipti á aðfangadag, fullhlaðin.
Prammi rak út
Skerjafjörðinn
PRAMMI frá Vitamálastjórn-
inni, Grettisprammi, s-litnaði
upp í fyrrinótt í Fossvogi og raik
út Skerjafjörðinn.
Varðskipið María Júlía hélt á
staðinn, en vitaskipið Árvakur
var tiltæikt og náði það í pramm-
ann.
Benzínþjófnaður
, f FYRRINÓTT var brotizt inn í
geymsluhús Hitaveitu Reykjavík-
ur í Laugardal. Þangað hafði ver-
ið farið inn til þess að komast að
( rafmagnsrofa, sem er í sambandi
við benzíngeymi, sem þarna er.
Úr geymi þessum var síðan stolið
100 lítrum af benzíni.
Drnumndísin
DRAUMADÍSIN heitir ný
skáldsaga eftir Árna Ólafsson frá
Blönduósi. Þetta er fimmta bók
hans og eru hinar fyrri að mestu
uppseldar. Fyrri bækurnar hafa
haft sveitina að baksviði, í þeirri
nýju gerir hann borgarlífið að
yrkisefni. Sögusviðið er fyrst og
fremst Reykjavík, en einnig ger-
ist hún að nokkru í sveit svo
og erlendis.
— Vlsindasjóður
Framh. af bls. 2
það. Borgarsjóður skuldbindur
sig til að leggja til sjóðsins um
10 ára skeið jafnháa upphæð og
sjóðurinn vex við peningagjafir
og vaxtatekjur, þó ekki hærri
fjárhæð en kr. 100.000.00 að með
altali á ári.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur
fer með stjórn sjóðsins ásamt ein
um ættingja Þórðar Úlfarssonar,
er hún tilnefnir.
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum á
að fara fram á aldarafmæli Þórð-
ar Sveinssonar 20. des. 1974, en
þar næst á afmælisdegi Þórðar
Úlafrsson 14. júní og svo til skipt
is þá daga, en sjóðstjórn ákveð-
ur hvort úihlutun skuli fram
fara á hverju ári eða lengri tíma
líði milli úthlutana.
Borgarráð féllst fyrir sitt leyti
á ákvæði skipulagsskrárinnar og
fól borgarstjóra að flytja gef-
endum þakkir fyrir höfðinglega
gjöf.
(Frétt frá skirfstofu borgar
stjóra).
Leitað bráða-
birgðaaðildar að
GATT
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveð
ið að leita viðræðna við samn-
ingsaðila að hinu svokallaða Al-
menna Samkomulagi um Tolla
og Viðskipti, (General Agree-
ment on Tariffs and Trade eða
GATT), um bráðabirgðaaðild
Islands að því samkomulagi. Slík
bráðabirgðaaðild myndi gera
íslandi kleift að taka þátt í
viðræðum um tolla- og við-
skiptamál, sem GATT-samnings-
aðilarnir ráðgera á næsta árL
Mikil ös í
verzlunum
VERZLANIR voru opnaðar til
kl. 10 í gærkveldi og var mikil
ös í búðunum, þrátt fyrir rign-
ingu og leiðindaveður. Vörur,
sem ekki hafa fengizt afgreiddar
meðan á verkfallinu stóð, eru
líka að byrja að koma í verzl-
anir.
Nauðsynjavörur, sem vantað
hefur, svo sem sykur, smjörlíki
og smjör, voru strax í gær aftur
komnar í búðir.
Aðeins birtur úr-
dráttur úr fógeta-
úrskurði
í FÓGETAÚRSKURÐI um lög
bann við aðgerðum Félags járn-
iðnaðarmanna gegn Stálwík h.f.,
sem birtur var í blaðinu í gær,
féllu niður úrfellingarmerki,
sem áttu að sýna að aðeins var
um úrdrátt úr úrskurðinum að
ræða.
Birt var upphaf og niðurlag
fógetaúrskurðarins, en sleppt
málavaxtalýsingu og forsendum
fógeta fyrir honum. Úrfellingar-
rnerkin áttu að koma á undan
orðunum „Því úrskurðast:“.
— Póstinum
Framhald af bls. 32
póstur fór í gærkvöldj og fer
daglega eftir það.
Hvað skipapósti út á land líð-
ur, er það að segja að Hekla fór
vestur i gærkvöldi, Skjald-
breið fer líklega til Vestmanna-
eyja í dag og Herjólfur á mánu-
dag.
Geysileg aðsókn að pósthúsum.
í gær var byrjað að bera út
jólapóstinn í Reykjavík og verð-
ur því haldið áfram á mánudag
og þriðjudag. Er mikið af auka-
fólki við það, einkum unglingar
14—16 ára.
Mikil örtröð varð við póst-
húsin á ménudagskvöld, og þá
voru síðustu forvöð til að skila
jólapósti. Reiknuðu póstyfir-
völdin með að vera þá búin að
fá nýtt húsnæði á Laugaveg 126,
þar sem hægt yrði að vinna við
jólapóstinn, en vegna verkfalls-
ins tafðist það og verður opnað
þar eftir áramót.
Svo mikil aðsókn var á mánu-
dagskvöld að aðalpósthúsinu að
ekki var hægt að loka því fyrr
en klukkan að verða hálf eitt,
en þá loks komust allir inn, sem
biðu með bréfin sín. í póst-
húsinu við Langholtsveg, þar
sem húsnæði er svo lítið, að
tiltölulega fáir komast að i
einu, var ekki hægt að komast
að fyrr en kl. 2.