Morgunblaðið - 04.02.1964, Qupperneq 10
\0
MORGU N BLAÐIÐ
ÞriðjudagUr 4. febr. 1954
Loftleiðaflugvél
lenti á Akureyri
Felld niður áætlunarferð'*til Egilsstaða
I.OFTLEIÐAFLUGVÉL varð að Mbl. spurði Agnar Kofoed
lenda á Akureyri á sunnudags-
morgun, þar eð bremsuskilyrði
voru ekki nægilega góð á Rvík-
urvelli. í fiugvélinni voru að-
eins farþegar til íslands, sem
biðu enn á Akureyri í gær, þar
eð veður var slæmt í Reykjavík.
Flugvél Flugfélagis íslands fór
ekki áætlunarferð sína á laugar-
dag til Egilsstaða. 25 farþegar
biðu á flugvellinum á Egilsstöð-
um, þar á meðal allir þingmenn
Austurlands, sem höfðu veirið á
fundi á Egilsstöðum á föstudags-
kvöld. Jónas Pétursson, alþingis-
maður, sagði að farþegum hefði
verið gefin sú skýring að ekki
væri hægt að fljúga, því ekki
femgist borinn sandur á braut-
ina í Reykjavík. Flugfélagið
kom farþegum fyrir á Egilstöð-
um um móttina, því þeir voru
komnir frá Norðfirði, Seyðis-
firði, Reyðarfirði og víðsvegar
að af héraði, en Jónas sagði að
sér hefði persónulega ekki kom-
ið þetta illa, því hann gat þá
verið heima hjá sér sólarhrimgn-
um lengur. En fyrir suma þá
sem komu með flugvélinni að
sunnan var þetta afar slæmt,
því þeir náðu ekki Oddsskarði
opnu. Á laugardag var það opið,
en á sunnudag var skarðið orðið
lokað bílum.
Hansen í gærkvöldi, hvort sú
skýring væri rétt á lokun flug-
vallarins, að starfsmenn hans
hefðu verið á þorrablóti og því
ekki fengizt til sandburðar. —
Flugmálastjóri kvað þetta hina
mestu firru. Hann sagði:
Starfsmennimir
hafa aldrei brugðizt.
Það skal fram tekið í fyrstu,
að ekkert þorrablót né skemmt-
un af neinu tagi var haldin hjá
starfsmönnum flugvallarins sl.
laugardagskvöld.
í öðru lagi er þess að geta að
þeir sem vinna við samdáburð
og snjóhreinstm á Reykjavíkur-
flugvelli eru lausráðniir tíma-
kaupsmenn og ber þeim engin
skylda til að vinna utam venju-
legs vinnutíma. Hitt er svo ann-
að mál, að þessir menn haáa
aldrei brugðizt til þessa, hafi til
þeirra verið leitað, hvorki um
miðjar nætur, helgidögum né á
stórhátíðum og eru þeir þá oft
ræstir út kl. 3—4 á nóttunni.
Þótt mikið hafi verið á þessa
menn lagt á undanfömum árum,
hafa þeir aldrei brugðizt, sagði
flugmálastjórinn ennfremur.
Sl. laugardag gekk á með þétt-
um hríðaréljum, eins oig allir
vita og þegar slíkt veður gengur
yfir þýðir ekki að sandbera braut
ir, því sandurinn treðst niður í
snjóinn og bemur ekki að not-
um. Undir slíkum kringumstæð-
um er tilgangslaust að sóa sandi,
heldur er beðið þar til versta
veðrinu slotar og þá er snjórinn
hreinsaður af flugbrautunum. —
Síðan er sandborið.
Eftir hádegi sl. laugardag
gengu yfir él, en þegar flugvall-
arstarfsmenn hugðu að það væri
að stytta upp, báru þeir eftt bíl-
hlass til reynzlu á brautarenda,
en það sýndi sig að vera alger
sóun fjármuna.
Þesis má geta að sandburður á
brautir Reykjavíkurflugvallar
kostar stórfé hverju sinni og þær
fjárveitingar, sem völlurinn hef-
ur til slíks, eru mjög naumar,
svo gæta verður ýtrusitu hag-
sýni. í þessu tilviki var hætt við
sandburðinn, þar sem hann var
talinn tilgangslaius og flugvell-
inum því lokað, sem ætti ekki
að vara goðgá þótt fyrir komi á
miðjum þorra á íslandi, sagði
Agnar Koefod Hansen að lokum.
Fiskiþing heldur áfram
FUNDIR á Fiskiþingi hófust í \
morgun kl. 10.30 og stóðu til kl.
18.30. Fundarstjóri *rar kosinn
Helgi Pálsson frá Akureyri. Vara
fundarstjóri var Niels Ingvars-
son, Neskaupstað, fundarritari
var kosinn Margeir Jónsson
Keflavík og varafundarritari
Þorvarður Björnsson, Reykjavík
Þá fór fram kosning nefnda og
eru þær þannig skipaðar:
Dagskrárnefnd: Helgi Pálsson,
Margeir Jónsson, Hermann Vil-
hjálmsson.
Fjárhagsnefnd: Helgi Pálsson,
Sveinbjörn Einarsson, Jón Bene-
diktsson, Haraldur Guðmunds-
son, Niels Ingvarsson.
Allsherjarnefnd: Hermann Vil
hjálmsson, Helgi Benónýsson,
Magnús Magnússon, Óskar Krist
jánsson, Hólmsteinn Helgason .
Laga- og félagsmálanefnd: Val
týr Þorsteinsson, Ingimar Finn-
björnsson, Hallgrímur Jónsson,
Þorsteinn Jóhannesson, Þorvarð-
ur Björnsson.
Fiskiðnaðar- og tætkninefnd:
Friðgeir Þorsteinsson, Njáll
Þórðarson, Hólmsteinn Helgason,
Jón Benediktsson, Ingimar Finn-
björnsson.
Sjávarútvegsnefnd: Einar Guð
finnsson, Magnús Gamalíelsson,
Ingvar Vilhjálmsson, Margeir
í S A B F I I A
sokkar
eru þekktir hér á landi
fyrir framúrskarandi end-
ingu og fallegt útlit.
Isabella
fást í tízkulitum í verzlun-
um um allt land.
*
Isabella
eru seldir á hagkvæmu
verði en vörugæðin eru ætíð
hin sömu.
Bibjið um
*
Isabella
Jónsson, Ársæll Sveinsson.
Þessi mál voru rædd:
1. Skýrsla fiskimatsstjóra.
2. Reikningar Fiskiféiags ís-
iands.
3. Fjárhagsáætlun Fiskifélags
íslands fyrir árið 1964.
4. Hafnarmál. Framsögiumaður
Einar Guðfinnsson.
5. Vitamál. Framsögumaður
Friðgeir Þorsteinsson.
6. Ferskfiskeftirlit og fiskmat
Framsögum. Ársæll Sveinsson.
7. Þélstjóra- og skipstjóranám.
Framsögum. Hermann Vilhjálms
son.
8. Vigtun fersksíldar. Fram-
sögumaður Margeir Jónsson.
Voru mál þessi rædd og þeim
vísað til nefnda. Fundum verður
fram haldið kl. 10.30 í fyrra-
málið.
— Hrið og ófærð
Frh. af bls. 28
Einnig var mjög erfið færð hjá
Lamibhaga og á Fiskilækjarmel-
um. Þessir kaflair voru þó nokik-
urn veginn færir stórum bílum,
en erfiðir iitlum. í gærmorgun
var tepptur vegurinn hjá Hvít-
árvöllum og töluverður snjór frá
Svignaskarði og upp að Dals-
minni. Höltaivörðuheiðin var lok-
uð í gær, en á að reyna að moika
í dag vegna áætlunarferðarinnar.
Hrútafjörður var erfiður og snjó
kcman í gær gerði vegi í Vestur-
Húnavatnssýslu erfiða. Öxnadals
he'iðin var ekki fær í gær, en
Verður reynt að moka hana í
dag, ef veður leyfir. í Eyjafirði
var fært til Dalvíkur og eins frá
Akureyri til Húsavíkur, en ékki
um Vaðlaheiði, sem er lokuð.
Brattabre'k’ka var lokuð í g*r
og þungfært í Dölum, bæði við
Fellsenda ’og Brautarholt, Áætl-
unarferð er í Dalina í dag og
verður reynt að moka Bröttu-
brekku. Stykkishól msvegur var
allt að því iokaður í gær og fi-all-
vegirnir um Kerlingarskarð og
Fróðáhheiði mjög erfiðir
Mjólkurbílar töfðust
Mbl. hafði samband við nokk-
ra fréttaritara á vestanverðu
landinu. Fara ummæli þeirra um
veðrið hér á eftir:
AKRANESI, — í nótt snjóaði
óhemju mikið. f morgun var
skafbilur og skóf í skafla. Á
ellefta tímanum á sunnudags-
morgun ók mjólkurbíll, er var
að koma hlaðinn úr sveitinni,
út af veginum. Bíil var sendur
héðan honum til aðstoðar og ók
sá sömuleiðis út af. Á meðan
stóð á þessu bram'bolti af völdum
fannkyngisins varð mijóikurlaust
í bænum. En mjólkurbílnum
tókst að losa sig og koma mjólk-
inni í bæinn. — Oddur.
• Vandræði af stopulum
gæftum
ÍSAFIRÐI — Hér hefur snjóað
talsvert að undanförnu, þó mest
síðdegis í dag. Hefur verið logn-
drífa og sett niður mikinn snjó,
en ekki er kalt í veðri. Götur
eru færar enn og vegurinn til
Bolungarvíkur og Súðavíkur hef
ur verið ruddur.
Engir bátar eru á sjó, en storm
ur er á miðunum. Annars hefur
verið mjög tregur afli og stopul-
ar gæftir, svo til vandæða horfir
á norðanverðum Vestfjörðum.
Ekki hefur verið hægt að
fljúga hingað síðan á miðviku-
dag. Á laugardaff kom vél yfir
ísafjörð, en gát ekiki lent —H.T.
, , ★
ÞÚFUM-N.fs. — Undanfarna
daga hefir verið risjótt veðr-
átta, hvassviðri stundum af ýms-
um áttum og oft nokkur úrkoma.
Nú er kominn nokkur snjór og
færð farin að þyngjasf á vegun-
am. Þó virðast færar leiðir á
bílum.
Djúpbáturinn nýi reynist
prýðilega og heldur upp ótrufl-
uðum ferðum, nema í mestu af-
tökuveðrum.
Janúar var mildur og snjó-
léttur og alls staðar hagar góðir.
Útlit er gott með afkomu fénað-
ar og fóðurbirðir. En hætt er
við að síðar á vetrinum komi
frost og kuldar eða í vor. Ávallt
eru óhagstæðar gæftir til sjávar-
ins og afli fremur rýr. — P.P.
• Lítil hríð fram undir þetta
BLÖNDUÓSI — Talsverða
hríð gerði í morgun, en minnkaði
mikið þegar leið á daginn. Eru
allir vegir færir og mjólkurflutn
ingar með eðlilegum hætti.
— B.B.
★
SIGLUFIRÐI — Ekki gerSi
hríð hér að ráði fyrr en í dag og
aðallega með kvöldinu, og með
henni er kuldi, 8-9 stig. Illfært
er prðið um götur á litlum bíl-
um, en vel fært jeppum og stærri
bílum. Og auðvitað er Siglufjörð
ur innilokaður, eins og venjulega
á vetrum. St.F.
★
AKUREYRI — Hér er engin hríð
sem talizt getur, aðeins föl og
fært um bæinn.
BLAÐBURÐAFOLK
ÓSKAST
t þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú
þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk,
til þess að bera blaðlð til kaupenda þess.
Austurbrún
Efstasund
Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins
eða skrifstofu.
SIMI 22 4 80