Morgunblaðið - 04.02.1964, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.02.1964, Qupperneq 28
Hríð um vestanvert landið, þungfært orðið á vegum VM helgina var hríð á vestan- verðu landinu, og mest þar sem hafáttar gætir. Yfirleitt var frost um 5 stig, en í gær var að fær- ast til norðanáttar og töldu veður fræðingar senniiegt að kólnaði um 5 stig. Æði þungfært var orð- ið á vegurn. á sunnudagskvöld og í gær, en þá var útlitið verst um hádegið. Eftir það hætti víða að skafa. Kristjá.n Guðmundsson hjá Vegagerðinni gaf eftirfar- andi upplýsingar um vegina síð- degis í gær: Keflavíkurvegur var tepptur smábílum öðru hverju í gær. Mið nesvegurinn og vegurinn út í Garð voru tepptir, en opnaðir um miðjan daginn. Vegagerðin hafði veghefla og stóra bíla með tönn- um á vegunum, sem O'pnuðu leið- ina þegar hætti að skafa. Ekkert þurfti að moka Suður- landsveginn um Þrengslin. Þar Glóandi eldsúla upp úr Surtsey og einnig úr sjónum sunnan við Kana 'FYRIR helgina lá gosið við Vest- mannaeyjar niðri og var Surtsey orðin alhvit af snjó. En ekki var Surtur þó dauður úr öllum æðum. KI. 13.52 á laugardag lét hann vita með rösklegum jarð- skjálfta að hann væri enn við líði og smáhræringar mældust seinna um daginn og á sunnu- dagsmorgun. Aðfaranótt sunnu- dags fór svo að gjósa aftur af krafti. Var það mikið gos og dálitils öskufalls gætti i Eyjum. Þá um nóttina voru miklar þrum ur og eldingar. Um 8 leytið um morguninn var Engey á leið frá Reykjavík og sáu skipverjar þá eldsúlu úr sjónum, er þeir áttu eftir um 30 mílur til Vestmannaeyja. 52 á- rekstrar á 3 dög- um VAUDATAKA Veturs konungs hefur ekki farið fram hávaða- laust með öllu, né heldur hefur ibún verið afleiðingalaus. Á þeim Jxremur dögum, sem liðnir eru af febrúar, hafa yfir 1000 bílar sfcemmzt meira og minna í árekstrum í Reykjavík, sem flest ir hafa orðið vegna hálku, þæf- ingsfæris og dimmviðris. Kl. 10 i gser höfðu 55 árekstrar verið skráðir í bækur lögreglunnar í Reykjavík frá því á miðnætti sl. löstudag. Frá því á hádegi á laugardag Og til miðnættis á sunnudag urðu alis 30 árekstrar víðsvegar í bæn um. Frá því í gærmorgun og til kl. 10 urðu 17 bifreiðaárekstrar. Flestir árekstranna í gær voru ekkj viðamiklir, og ekki er þess getið að neinn hafi meiðst í þessum mikla árekstrafjölda það sem af er mánaðarins. Lögreglan á Akranesi skráði C árekstra um helgina, helming- inn um eða eftir miðnætti að- faranótt sunnudags. Þetta var rétt sunnan við Surts- ey. Stóð eldsúlan beint upp í loftið, mismikil þennan klukku tíma sem þeir sáu hana. Eylítill gufumökkur fylgdi en engin aska. Dró öðru hverju niður í súlunni og var þá eins og gosið í sjálfri eynni færi að aukast. Mbl. bar þetta undir Sigurð Þórarinsson, sem taldi þetta ekk ert undarlegt. Ef sjórinn er bú- inn að taka af eynni, getur gos lent rétt utan við hana og komið upp úr sjónum. Hefur að undan- förnu gengið á eyna að sunnan og suðvestan í óveðrunum, sem verið hafa. Gosið í Surtseyjargígnum virt ist Vestmannaeyingum vera vest ast í gígnum, en undanfarið hef- ur það ávallt verið sunnan í hon um. Sigurður kvað það líka eðli- legt að gosið færðist til í gígn- um. Það hlæði undir sig á einum stað og bryti af sér á öðrum. Um kl. 1 aðfaranótt sunnudags var fólk í bílum uppi á flugvell- inum og sá þá látlausa eldúlu upp úr gígnum í eyjunni og taldi að greina mætti svona langt glóð vellandi niður hlíðarnar. Um dimmumótin í gærkvöldi sást enn glóandi súla frá Vestmannaeyj- um. Tveir brezkir vísindamenn, Dollar og Guest, sem komu til að sjá gosið í haust, eru nú aftur komnir til Vestmannaeyja og hafa verið að mæla þrumurnar og eldingarglampana. Slegizt uvte sjónvarp og útvarp NOKKRU eftir kl. níu á Isunnudagskvöldið var lögregl an í Reykjavík kvödd í hús eitt í Austurbænum, en þar hafði komið til rifrildis og átaka með fjöiskyldu einni. Deiluefnið: Hvort horfa skyldi á þáttinn ,,Bonanza“ i sjónvai'pinu, eða hlýða á skemmtiþátt Svavars Gests í útvarpinu. Ekki er þess getið hvor deiluaðila bar sigur úr býtum, en lögreglunni tókst að stilla til friðar. komust flestir bilar hiklaust leið ar sinnar. Og ekki er snjóþungt um Suðurlandsundirlendi. Snjó- drög voru í Mosfellssveitinni og lokaðist næstum hjá Varmadal eftir hádegi í gær. Þó fóru stórir bílar þar í gegn. Vegheflar fóru eftir hádegi á vettvang og var búist við að þeir mundu hreinsa þennan vegarkafla í gærkvöldL Hvalfjarðarvegurinn var mjög erfiður eftir að komið er upp að Hálsí í Kjós, en þaðan og að Kalastöðum var verið að hreinsa veginn með 3 heflum, þar af ein- um með tönn og bíl með tönn. Framh. á bls. 10. -x VESTMANNAEYJUM. — S.l. fimmtudag voru hér góðir gestir við mælingar og kann anir á staðháttum og jarð- lagamyndunum til að undir- búa borun eftir i.eyzluvatni fyrir Vestmannaeyjakaupstað. Það voru þeir Jón Jónsson, jarðfræðingur og ísleifur Jónsson, báðir frá jarðhita- deild Raforkumálaskrifstof- unnar. Þó allt það sem hér hefur verið gert að undamförnu, sé prýðilegt, svo sem rafmagn Segulmælingar gerðar hjá Kaplagjótu I Vestmanna- eyjum. Á myndinni eru talið frá vinstri: Jón Jónsson, jarðfræðingur, Jóhann Friðfinnsson, settur bæjarstjóri, ísleifur Jónsson, vélaverkfræðingur og Þórhallur Jóns- son, verkfræoingur Vestmannaeyjabæjar. Boraö eftir neyzluvatni frá Soginu, sjálfvirkur sími, malbikun gatna og niú síðast lagning þverbrautar á flug- völlinn, skiptir samt ekkert jafn miklu máli og neyzlu- vatnið hér. Ef jákvæður ár- angur yrði af borunum eftir því, má segja að það taki öllu hinu fram. Rigningarvatn sem neyzluvatn er engan veginn þægilegt og mikill kostnaðar- auki fyrir húsbyggjendur, auk þess sem þai er ætíð mjög háð veðráttunni hvort hægt er að afla vatns, svo ekki sé talað um hugsanlegt öskufall, sem nú má alltaf búast við. Væri miklum leiðindum og fargi af öllum Vestmannaey- ingum létt, ef vatn fyndist við borun. Menn munu því fylgjast af áhuga með þeim borunarframkvæmdum sem standa fyrir dyrum. Eftir tilvísan Jóns Jónsson ar var ákveðinn sá staður þar sem fyrst skal reynt að bora, en það er norðan við Hana. Velja verður staðinn eftir líkindum um jákvæð berglög á hverjum stað og einnig taka tillit til þess að hægt sé að kom<» bornum fyrir með góðu móti. Var strax hafizt handa um að ryðja með jarðýtu hjá Hanni og verður undirstaðan undir borinn steypt strax. Ekki er til set- unar boðið, því vitaskipið Ár- vakur kom með höggbor, sem á að bora fyrsbu 100—200 metrana. Síðar á hann að flytja hinn margumdeilda „Norðurlandsbor* til Eyja. Væntanlega getur hann tekið til starfa í hinu nýja um- hverfi hér úti í Eyjum í febr. E.t.v. leysist þrætumálið með því að skýra borinn upp með an hann verður að starfi hér og nefna hann Eyjaborinn. Tal hlaut 17,000 kr. verdlaun tyrir 7. sæti TAL sigraði örugglega í Reykja- víkurirótinu í skák og hlýtur 400 dollara verðlaun fyrir, eða um 17000 kr. Tal hlaut 1214 vinn ing af 13 mögulegum. Annar varð Gligoric með 11 >4 og í 3-4 sæti Friðrik Ólafsson og Sv. Jo- hannessen Noregi með 9 vinn- inga hvor. Biðskákir úr síðustu umferð voru tefldar i gær. Þar gerðist það að Friðrik vann Arinbjörn, Trausti Björnsson vann Nonu Gaprindasvhili en Magnús og Jón skild-u jafnir. Áframhaldandi röð skákmanna er því þessi: 5. R. Wade 714 vinning. 6. Guð mundur Pálmason 7 og 7. Ingi R. Jóhannsson 6 vinninga. Allir þessir fá verðlaun. í 8-9 sæti voru Gaprindasvhili og Magnús Sólmundarson með 5 vinmnga. í 10.-12. sæti voru Arinbjörn, Freysteinn og Trausti með 4 vinninga hver. í 13. sæti var Jón Kristinsson með 314 og í 14. sœti Ingvar Ásmundsson með 3 vinninga. Verðlaun mótsins verða a'fhent í hófi í Þjóðleikihúskjallaranum í kvöld. AKRANESI, 3. febrúar. — Á sunnudagsxvöidið íékk Höfrung- ur II 1600—1800 tunnur af síld. Vélbáturinn Sólfaxi kom inn á laugardag eftir 3 lagnir með 17 iestir. Drukknir í kirkju LAUST fyrir hádegi á sunnu- dag var hringt til lögreglunn- ar í Reykjavik og hún beðin að fjarlægja tvo drukkna menn úr Dómkirkjunm. Fóru lögreglumennirnir á staðinn, tóku mennina tvo, og flutíu þá heim til sín. — Mun nær einsdæmi að lögregla þurfi að kveðja til að íjarlægja drukkna menn úr kirkjum. Fauk út af SANDGERÐI, 3. febr. — í morg- un kl. 8:30 fór rútubíllinn úr Sandgerði út af í Landakotslægð- inni. Hálka er á veginum og feykti vindurinn bílnum út af. Þar var grjótveggur og stöðvaðist bíllinn við hann. Enginn meidd- ist og bíllinn er sáralítið skemmd ur og var náð upp á veginn. -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.