Morgunblaðið - 13.02.1964, Qupperneq 1
24 síður
Ásakar svissnesk
lögregluyfirvöld
Kviknaði í olíuskipL Neisti í olíu daginn
íyrir reynsluför. Milljónatión
Kaupmannahöfn, 12. febr.
— NTB —
í D A G kom upp eldur í
olíuflutningaskipinu „Vest-
hav“, þar sem það var í
skipasmíðastöð Burmeister
& Wain, í Kaupmanna-
höfn. Var smíði skipsins
lokið, og átti það að halda
í reynsluför á morgun.
Eldurinn magnaðist von
bráðar, og síðar í dag, er
ráðið hafði verið niðurlög-
um hans, var tilkynnt, að
tjónið næmi mörgum millj.
danskra kíóna. Það er út-
gerðarfélagið „Per Lodd-
ing“, í Ósló, sem skipið á.
Átti afhending að fara
fram í næstu viku.
Talið er, að eldurinn
hafi kviknað, er neisti frá
logsuðutæki féll í olíu-
bleytu.
Eldurinn kviknaði í vélar-
rúminu rétt eftir hádegi, og
voru þar þá staddir 23 menn.
Fjórir meon lokuðust þar
inni, vegna reyks, en var nær
samstundis bjargað af slökkvi
Framh. á bls. 2.
STOFNKOSTNAÐUR sjónvarpsstöðvar, sem nægja myndi
Reykjavíkurborg og Suðurnesjum mun verða um 10 millj.
króna. Heildarstofnkostnaður dreifingar sjónvarpsefnis um
allt land mundi sennilega nema um 140 millj. króna. Tækni-
lega væri unnt að koma upp sjónvarpsstöð fyrir Reykjavík
og Suðurnes fyrir 1966, og byggingu nauðsynlegra mann-
virkja og endurvarpsstöðva fyrir allt landið sumarið 1970.
Gylfi Þ. Gíslason, menntamála
ráðherra, gaf þessar upplýsingar
á fundi í sameinuðu AJþingi í
gaer.
Ráðherrann sagði þessar töl-
ur ekki endanlegar. Athugun
færi fram á þessum málum og
mundi niðurstaða liggja fyrir,
áður en langt um líður. Muni
rikisstjórnin þá taka málið til
athugunar. „Ég er hinsvegar
þeirrar skoðunar, aö ekki megi
dragast lengur að taka' ákvörð-
un um, að efnt skuli til islenzks
sjónvarps. Ég tel sjálfsagt, að
stefnt verði að því, að sjónvarp-
ið nái smám saman til allra
landsmanna", sagði ráðherrann.
Eysteinn Jónsson, formaðut
Framsóknarflokksins, sagði ai
þessu tilefni, að hann væri per-
sónulega hlynntur sjónvarpi seni
fyrst og það yrði sameign lands-
manna.
Ráðherrann gaf þessar upp-
lýsingar vegna fyrirspumar Gils
Guðmundssonar um sjónvarps-
málið. Þingmaðurinn spurði um
fjárhags- og tæknihlið málsn^
svo og afstöðuna til sjónvarpsiná
af Keflavíkurflugvelli.
Svör ráðherrans fara hér á eft
ir, ásamt úrdrætti úr umræðum,
sem spunnust á fundinum í gær.
Fyrirspyrjandi spyr um það 'v
fyrsta lagi ,hvort gerðar hafi
verið athuganir og áætlanir um
kostnað íslenzks sjónvarps, stofn
kostnað og rekstrarkostnað og I
öðru lagi, hvort talið sé tækni-
lega mögulegt og fjárhagslega
kleift, að íslenzkt sjónvarp geti
á skömmum tíma náð til allra
landshluta.
Á undanförnum árum hafa
ýmsar athuganir verið gerðar á
því, hvað það mundi kosta að
koma á fót sjónvarpi á íslandi.
Hefur annars vegar verið athug
Bruni hjá Bur-
meister & Wain
Svissneskir embættismenn segjast ekki
annast ,;barnagæzTu“, og vísa mótmælum
sovézka fulltrúans ó bug
Myndin sýnir skemmdirnar, sem ástralska flugvélamóöurskipið „Melbourne“ varð fyrir, er það rakst
á tundurspillinn „Voyager“, undan strönd Nýja-Suður Wales. 82 sjóliðar á tundurspillinum biðu bana.
— í fréttum hefur verið sagt, að skemmdirnar á flugvélamóðurskipinu hafi orðið á hlið þess, en
eins og myndin sýnir, tættist stefni þess sundur. Tundurspillirinn klofnaði í tvennt, og sökk.
Genf, 12. febrúar — AP-NTB
AÐALFULLTRÚI Sovétríkj-
anna á afvopnunarráðstefn-
unni í Genf, Semyon K.
Tsarapkin, lýsti því yfir í dag,
að flugumenn Vesturveldanna
hafi „tælt“ Yuri I. Nossenko,
einn sovézku fulltrúanna,
burt frá Sviss. Utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna hefur
lýst því yfir, að Nossenko
hafi leitað hælis í Bandaríkj-
unum.
Tsarapkin ásakaði sviss-
Er íslenzkt sjónvarp langt undan?
nesku lögregluna fyrir slæ-
lega framkomu. Hún gætti
ekki þeirra fulltrúa, sem ráð-
stefnuna í Genf sæktu, og því
hefði farið sem fór. Tsarapkin
lýsti því enn fremur yfir, að
framferði vestrænu flugu-
mannanna væri gróft brot á
sjálfstæði Sviss.
Nossenko hvarf frá Genf 4.
febrúar, en sl. mánudag var frá
því skýrt vestan hafs, að. hann
hefði beðizt þar hælis. Krafa sov
ézku fulltrúanna á ráðstefnunni
nú er sú, að svissnesk yfirvöld
hlutist til um, að Nossenko verði
skilað aftur.
Utanríkisráðherra Svisslend-
inga, Friedrich Wahlen, kvaddi
þegar til sín ambassador Sovét-
ríkjanna í Sviss, Alexánder
Lochtchakov, er Tsarapkin hafði
borið fram ásakanir sínar á hend
ur svissneskum yfirvöldum. Ut-
anríkisráðherrann afhenti amb-
assadornum mótmæli.
Svissneskir embættismenn hafa
lýst því yfir, að sérhverjum full-
trúa á afvopnunarráðstefnunni sé
heimilt að koma og fara frá land-
inu, hvenær sem þeim sýnist. Er
því jafnframt haldið fram, að
„barnagæzla" af hálfu yfirValda
í Sviss komi ekki til greina.
Það vakti nokkra athygli meðal
vestrænna fulltrúa á afvopnun-
arráðstefnunni, að Tsarapkin
Framh. á bls. 2
Öskudagurinn á Akureyri
hefur lengi verð líflegur
mjög. Þá fara krakkarnir á
fætur kl. 6 og slá köttinn úr
tunnunni, klæða sig í alls kyns
skrítna búninga, syngja í búð-
unum og fá sælgæti í lista-
mannalaun og skemmta sér
konunglega. Þessa mynd og
fleiri á 3. síðu tók fréttaritari
Mbl. S. P. á götu á Akureyri
■ að, hver væri lágmarkskostnað-
I ur við að koma á fót sjónvarps
stöð, er einvörðungu annaðist
| nokkurs konar tilraunasjónvarp,
sem tæki aðeins til Reykjavíkur
og næsta nágrenni, en hins
vegar hvað það mundi kosta, ef
því væri ætlað að ná til fleiri
landsmanna og landsins alls. Hef
ur m.a. verið ráðgazt um þessi
atriði við erlenda sérfræðinga og
ber þar sérstaklega að nefna yf
irverkfræðing Evrópusambands
útvarpsstöðva og sjónvarps-
stöðva, Belgíumanninn G. Han-
sen, sem var hér sumarið 1961.
Auk áætlana, sem gerðar hafa
verið um stofnkostnað sjónvarps
stöðva víðs vegar um landið,
hafa verið gerðar lauslegar áætl
ánir um kostnað við gerð sjón-
varpsdagskrár og þá venjulega
miðað við tveggja til þriggja
stunda sjónvarpstíma á dag. Enn
fremur hafa verið gerðar laus-
legar áætlanir um væntanlega
fjölgun sjónvarpsnotenda, ef til
Framhald á bls. 8.
— ráðherra gefur upplýsingar á þingi í gær