Morgunblaðið - 13.02.1964, Síða 3

Morgunblaðið - 13.02.1964, Síða 3
3 ílmmtudagur 13. febr. 1964 MQRG U N & LAÐIÐ AKUREYRI, 12. febr. — Ösku dagurinn hefur lengi verið hátíðlegur haldinn á Akureyri með nok'kru öðrum hætti en annars staðar á landi hér og ber meiri svip pápiskrar kjötkveðjuhátíðar eða karne- vals en almennt gerist á ís- landi. Danskt fólk setti mjög svip sinn á menningarlíf og bæjar- brag Akureyrar á öldinni sem leið, enda var oft mikill glæsibragur á daglegu lífi „heldra fólksins" og þá ekki • • Oskudagur á Akureyri líkastur karnevali síður a skemmtunum þess og hátíðabrigðum. Að því bjó almenningur og tók upp siði og háttu höfðingjanna í mörgu eftir þvi sem kostur var og efni leyfðu. Enn eimir eftir af siðum þessum af ýmsu tagi, en öskudagshátíðahöldin munu þó vera einna föstust í sessi. Fyrrum skrautbjuggust full- orðnir menn þennan dag og „slógu köttinn úr tunnunni“. Borað var gat á tunnubotn og hún síðan hengd upp í kaðli og „kettinum" komið fyrir innan í henni í enda kaðalsins. Oft var dauður hrafn hafður í kattar stað eða þá eitthvað annað sem til féll. Menn gengu nú að tunn- unni eftir röð og slógu til hennar með barefli, þar til hún liðaðist sundur. Sá sem greiddi henni síðasta höggið, hlaut sæmdarheitið „tunnu- kóngur“. Þá var eftir að höggva niður „köttinn" og sá er það tókst varð „kattar- kóngur“. Að þessari athöfn lokinni var haldið um bæinn í skrúðgöngu með „kóngana“ í broddi fylkingar. Á síðari áratugum taka börnin ein þátt í þessurn leik. Úr því að klukkan er sex á öskudagsmorgun vakna bæjarbúar við það að lúðrar eru þeyttir um allan bæ og bumbur barðar. Skartbúið álfafólk, fornmenn í litklæð- um -með flaksandi skikkjur, sjóræningjar með svartan augnlepp, síðskeggjaður tötra iýður, púkar, skrípitröll og. skjaldmeyjar skjótast út úr húsasundum og mynda vel skipulagðar sveitir. Flestir eru málaðir í framan með rótarbréfi og sótugum kork- tappa, nokkrir með afskræmi legar- andlitsgrímur, en allir í meira lagj svipmiklir. Svo þykir tilhlýðilegt að í hverri sveit séu öldruð heiðurshjón, herrann dubbaður upp í göm- ul föt af pabba eða afa, frúin í skósíðu pilsi og með sjal yfir herðar. I grárri morgunskímunni er svo farið að slá köttinn úr tunnunni. f>ó er ungviðið eitthvað farið að daprast við sjálfan kattarsláttinn á síð- ustu árum. Margir láta sér nægja prósessíur um bæinn. Fram að hádegi verður ekki þverfótað í miðbænum fyrir litskrúðugum fylkingum, sem ganga syngjandi um götur og stéttar. Öll önnur umferð verður að víkja. Dyrum verzlana er hrundið á gátt og búðirnar fyllast af tignum gestum, sem spyrja kurteis- lega: „Megum við syngja? Þegar það er leyft, hljómar „Frjálst er í fjallasal" eða „Kátir voru karlar" með skærum barnaröddum. Svo eru réttar fram hendur. Söng urinn kostar nefnilega kara- mellu eða bolsíu, sem annars staðar á íslandi kallast víst / þrjóstsykurmoli. Ef verzlun- in á þennan varning ekki handbæran, eru nokkrar krónur teknar gildar, sem gjaldgeng listamannalaun. Al- gengt er að farandsöngvarar þessir gefi það lausnarfé, sem þeim áskotnast Rauða krossinum eða Slysavarna- félaginu. Það er nokkmrn veginn fastur liður í dagskránni að heimsæfcja sælgætigerðarn- ar og pylsugerð KEA, þar sem tveir menn verða að hafa sig alla við að seðja alla þessa litlu munna.- Og svo er gengið um göt- urnar til að sýna sig og sjá aðra. Fullorðna fólkið flykk- is.t í bæinn, til að horfa á alla dýrðina og brosa að hinum formföstu og manna- legu tilburðum. Allir eru glaðir og í góðu skapi, Mörg- um verður hugsað til hinna góðu gömlu daga, þegar þeir voru sjálfir skrautklædd börn í dýrðarljóma öskudags ins. Þetta er allt furðulíkt enn, þó að búðirnar séu ekki lengur kenndar við Gudmann, Höepfner, eða Tuliníus. Um hádegi er gott að koma heim til pabba og mömmu, fá að borða góðan mat og skipta um föt. Flestir eru satt að segja orðmr all dasaðir eftir stranga útivist. Svo er feng morgunsins skipt bróðurlega. Síðdegis glymur harmonikan í barna- skóianum, þar sem eldri bekkirnir fá að dansa stundar ‘ korn í tilefni dagsins.— Sv. P. I / NA /5 hnúfar f / $V 50 hrtúfar X Snjikema 1 /‘/Ml r KVÍ 17 Skúrir S Þmmur '/////Rugn- KuUuakH H Hml 1 /V/avsM ZS HihakH L £«11 í DAG voru lægðir fyrir.sunnan og suðvestan land og sveigðu til norðvesturs nálægt suðurströnd- inni. Áttin var því suðlæg og og sömu hlýindin og áður, 6-8 I stig á Suðurlandi, en svalara fyrir norðan. í Osló og Stokkhólmí var aft- ur 9 stiga frost. STAKSHIMR Varð bara hissa Málgagn Sovétríkjanna, sem gefi'ð er út í Reykjavík, „Þjóð- viljinn", er mjög miður sin um þessar mundir, og ber þar margt til, svo sem fyrirhuguð stóriðja á íslandi, áhrifaleysi kom.mún- ista á Alþingi, að ógleymdum meiðyrðamálunum, sem kosta Sovétvinina drjúgan skilding. Blaðið „fslendingur" skrifar þannig fyrir nokkru Um meið. yrðamálið, sem tvö olíufélög hafa nýlega höfðað á hendur komrmmálgagninu: „Þjóðviljinn skýrir nýlega frá því, að forstjórar olíufélaganna Skeljungs h.f. og Olíuverzlunar íslands h.f., hafi stefnt ritstjóra og ábyrgðarmanni blaðsins fyrir ummæli í grein um starfsemi olíufélaganna í landinu, þar sem m.a. er svo að orði komizt: „Eftir að þessi félög eru upp- vis að því að stunda einokun | stað samkeppni, eftir að þau hafa oftar en einu sinni reynzt sek um STÓRFELLDUSTU LÖGBROT í SÖGU LANDSINS . . . ættj mælir þeirra sannar- lega að vera fullur“. Og enn segir í Þjóðviljagrein. inni: < „En dómur hæstaréttar sann- aði, að ekki aðeins er starfsemi þriggja olíuhringa fjárhagsleg endileysa heldur er það og sið- ferðilcvur blettur á efnahags- kerfinu, að MABGDÆMDUM AFBROTAHRINGUM skuli leyft að halda iðju sinni áfram“. (Lbr. hér). Þjóðviljinn lýsir undrun sinni yfir þessari málshöfðun téðra olíufélaga, þar sem naumast ætti að þurfa „að taka það fram, að þar sem rætt er um dæmd olíufélög í tilvitnunum, er ein- ir.Ht átt við Olíufélagið h.f. og Hið ísl. steinolíuhlutafélag“. Takmörk fyrir öllu Og „íslendingur" heldur á. fram: „Takmörk eru fyrir öllu, jafnt meiðyrðum og röngum sakargift- um í opinberu blaði sem hverju öðru, og voru það því eðlileg við brögð hjá forstjórum tveggja olíufélaganna, að stefna fyrir þau ummæli, sem hér hafa verið tek- in upp. Þótt ritstj.Þjóðviljans seg ist hafa átt við tvö olíufélaganna, eru þau ekki nefnd á nafn sé'r. staklega, heldur verður að skilja un’ítiæli Þjv. á þann veg, að öll olíufélögin séu „margdæmdir af- brotahringar", og sé Hæstaréttar dómur eða dómar fyrir því, að þau hafi reynzt sek um „stór- felldustu lögbrot i sögu lands- ins“. Hvaða ástæðu ættu þau félög, sem engan dóm hafa hlotið, að hafa til þess að hafast ekkert að gegn svo illyrtum rang færslum og staðleysum? Og hvar gilda þær reglur, að ef eitt félag brýtur af sér, þá beri að svipta önnur hliðstæð félög leyfi til að starfa áíram., svo sem lagt er til í Þjóðviljagreininni?“ Sjónvarpið Nú er allt útlit fyrir, að skrið. ur sé að komast á sjónvarpsmál- ið, og ber að fagna því. Þúsundir íslendinga njóta þegar góðs af sjónvarpssendingum varnarliðs- manna frá Keflavíkurflugvelli, en nú er þess að vænta, að innan fárra ára verði íslenzk sjónvarps stöð tekin til starfa. Áherzlu ber að leggja á, að íslenzka sjónvarp ið verði vandað frá upphafi Betra er að sjónvarpa góðu efni fáa tíma á dag, heldur en teygja sjónvarpstímann með ómerkilegu rusli. Sjónvarpið er eitt mesta menn ingartæki nútímans. Það flyt- ur nýjustu fréttir, fróðleik og skemmtiefni inn á heimilin, auk þess sem. því er beitt til kennslu i æ ríkara mæli. Nú er svo kom- ið að sjónvarp þykir omissandi þáttur í lífi fiestra nutima menn- ingarþjóða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.