Morgunblaðið - 13.02.1964, Síða 6

Morgunblaðið - 13.02.1964, Síða 6
6 MQRGUNBLAÐIB Fimmtudagur 13. febr. 1964 Gylíi Þ. Gíslason í Blaðamannaklúbbnum Sjónvarpsstöð fyrir Reykjanes ódýr Ort hækkandi kostnaður við dreifingu CY LFI Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, ræddi um sjón- varpsmálið í Blaðamannaklúbbn- um í Þjóðleikhúskjallaranum á þriðjudagskvöld og veitti blaða- mönnum merkilegar upplýsingar um áætlaðan kostnað af að koma upp íslenzku sjónvarpi o. fl. — Sagði hann að hinn geysilegi mis munur á kostnaði eftir því hve langt sjónvarpinu væri ætlað að ná, hefði komið sér á óvart og taldi að það kynni, vegna dreif- býlissjónarmiðsins, að verða helzti Þrándur í Götu þess að hér yrði komið upp íslenzku sjón varpi, þar sem vænta mætti að þingmenn dreifbýlisins spyrntu á móti því að Reykjavík og ná- grenni fengi sjónvarp, ef allir landsmenn fengju það ekki um leið. Stofnkostnaður lítillar sjón- varpsstöðvar, sem ætlað er að sjónvarpa um Reykjavík og Suð- urnes, mundi verða um 10 millj. kr., en hækkar mjög verulega ef sendingar eiga að ná til annarra EINS og undanfarin 7 ár mun menntastofnunin American Field Service í New York í ár veita íslenzkum framhaldsskólanem- endum styrki til skólagöngu og dvalar hjá fjölskyldum víðsvegar um Bandaríkin. í vetur dveljast 20 íslenzkir nemendur vestan hafs á vegum American Field* Service og í ágúst n k. mun ann- ar jafnstór hópur halda vestur um haf. landshluta, t.d. bætast 24 millj. kr. við ef sjónvarpa á um Mið- vesturland og Suðurlandsundir- lendi og með endurvarpsstöðv- um til að sjónvarpa um allt land yrði stofnkostnaður 140 millj. kr. Ráðherrann tók það fram að þessar tölur mætti ekki taka sem endanlegar, það væri aðeins bráðabirgðaáætlun um stofn- kostnað íslenzks sjónvarps. Gylfi Þ. Gíslason kvaðst í upp- hafi máls sins vera einn þeirra manna sem telja komu íslenzks sjónvarps jafn sjálfsagt og það að við höfum síma, útvarp, bíla, flugvélar o. fl. og að það ættum við að fá jafnskjótt og tækni og fjárhagsgeta leyfir. Málið hefur verið undirbúið og rætt millí menntamálaráðuneytisins og Rík isútvarpsins og yfirverkfræðing- ur Evrópusambands útvarps og sjónvarps komið hér og verið með í ráðurn. í haust var út- varpsráði og útvarpsstjóra falið að gera áætlun um kostnað minnstu sjónvarpsstöðvar, um um, þar sem bandarískir nem- endur munu búa. Þær fjölskyldur í Reykjavík og kaupstöðunum úti á landi, er kynnu að hafa áhuga á að taka á móti bandariskum unglingum til dvalar á heimilum sínum í sumar eða næsta vetur, geta leit að allra nánari upplýsinga hjá fulltrúum American Field Sér- vice í síma 23222 og 23223 kl. 6. til 7. e.h. til 14. þm. dreifingu sjónvarps um landið og dagskrárkostnað. Og fékk ráð- herrann fyrrnefndar tölur hjá þeirri nefnd síðdegis þennan sama dag. 500 watta sendir mundi sem sagt kosta 3 millj. kr., hús yfir hann 2 millj. og sjónvarpsstöð 5 millj. eða alls 10 millj. fyrir stöð sem næði um Reykjavík og ná- grenni. Kostnaður ykist svo 2Vz sinnum, ef bætt yrði við Mið- vesturlandi og Suðurlandsundir- lendi og ef byggðar yrðu endur- varpsstöðvar á fjallatindum, svo að sendingar næðu allri byggð á landinu, væri stofnkostnaðurinn kominn upp í 140 millj. Dýrast yrði að ná með sjónvarpið til Austurlands og Suðausturlands. Dagskrárkostnaður 10—20 millj. á ári Um áætlaðan dagskrárkostnað sagði ráðherra, að gert væri ráð fyrir 2—3 klst. útsendingartíma fyrst. Útilokað væri að rekstrar- kostnaður slíkrar dagskrár yrði undir 10 millj. kr. á ári í upphafi, og skynsamlegt væri að gera ráð fyrir að sá kostnaður mundi tvö- faldast á skömmum tíma með auknum kröfum um útsendingar- tíma og dagskrá. Það kom fram í umræðunum að athugun hefur verið ’gerð á dagskrárefni og er til að byrja með gert r'áð fyrir fréttum, fyrirlestraflutningi með skýringarmyndum, samtalsþátt- um, kennslusjónvarpi o. fl. inn- lendu efni og svo aðkeyptum, til- búnum erlendum dagskrám, sem settur væri við íslenzkur texti. Slíkar dagskrár eru tiltölulega ódýrar, 40 dollarar á klst. í öllum dagskrám Evrópusjónvarpsins. en kostnaður við ísl. textann dýr. Aðspurður um hugsanlega tekjustofna til að standa undir sjónvarpinu sagði ráðherrann að þrenns konar tekjuliðir séu hugs- anlegir: 1) Afnotagjöld, sem yrðu 3—5 sinnum hærri en útvarps- gjöldin, 2) auglýsingatekjur, þar eð sjónvarp er annars konar aug- lýsingamiðill en blöð og útvarp, 3) innflutningsgjöld af sjónvarps tækjum, eins og gert var meðan útvarp var að komast á legg. Og loks, að svo miklu leyti sem þetta dygði ekki til, mætti hugsa sér að útvarpið, sem orðin er fjár hagslega tekjuhá stofnun hækk- aði aðeins afnotagjöld og hjálp- aði svo sjónvarpi að komast af stað. Þetta væri eitt af því sem styddi það að útvarp og sjónvarp væri undir sömu stjórn, þó dag- skrárstjórn sjónvarps yrði e.t.v. sér. Ráðherrann sagði að dag- skrárefni íslenzks sjónvarps yrði að sjálfsögðu miðað við smekk íslendinga og ekki væri af þeirri ástæðu að óttast samkeppni er- lends sjónvarps. Fyrir Alþingi í ár? Tækniatriði við sjónvarp kvað ráðherra miklu viðráðanlegri en 18. JAN. bættíst nýr bátur í flota Þórshafnarbúa, Litlanes ÞH 52. Eigandi að bátnum er Vilhjálm- ur Sigtryggsson oddviti. — Bát- urinn er stokkbyrtur eikarbátur og er öll smíði hans sérstaklega vönduð og frágangur alveg með eindæmum fallegur. — I bátn- um er 24 ha. Buch-dieselvél, Elac fisksjá, 4ra manna gúmmí- bátur og línuspil frá Þingeyri. dagskrárefni. Tæknilega séð ætti að verða hægt að hafa hér til- búnar allar endurvarpsstöðvar árið 1970, en þetta væri peninga- spursmál. Þegar endanlegar til- lögur liggja fyrir frá sjónvarps- hefnd, mundi ríkisstjórnin taka málið til athugunar og ákveða hvort hún treysti' sér til þess að mæla með því að setja þetta inn á fjárhagsáætlun næstu ára. Þá færi þetta fyrir þingið, og kvaðst ráðherra ekki geta svarað því hvort svo yrði á þessu þingi. En beðinn að lokum um að spá því hvenær íslenzkt sjónvarp yrði komið upp á íslandi, taldi ráð- herrann að 2—3 tíma dagskrá gæti verið komin á eftir 2—3 ár. Einnig er í bátnum dönsk Sailor- talstöð alveg sérstaklega vönd- uð, rakaþétt og hljómgóð, og er þetta önnur sams konar talstöð, sem kemur í bát hér. Verð bátsins var um 600 þús. kr. — Báturinn er byggður í skipasmíðastöð Einars Sigurðs- sonar, Fáskrúðsfirði. — Birgir. Bandarískir nemendur til sumardvalar hér IMýr bátur til Þórshafnar Starfsemi American Field Ser vice byggist á nemendaskiptum milli Bandaríkjanna og 60 ann- arra þjóða. Þeir, sem notið hafa styrkja á undanförnum árum, hafa með sér félag í heimalönd- uim sínuim í því skyni að kynna starf American Field Service og fá'fjölskyldur til að taka á móti bandarísku skólafólki á aldrin-. um 16—18 ára til tveggja mán- aða sumardvalar eða skólagöngu Síðastliðin þrjú sumur hafa 7 bandarískir nemendur komið til tveggja mánaða dvalar á íslenzk um heimilum, og í ár er ráðgert að auka þennan fjölda að mun. Tilgangur þessara nemenda- skipta er í stuttu máli sá að gefa unglingum viðkomandi þjóða kost á að ferðast, kynnast lifnaðarháttum í öðrum löndum, og taka af heilum hug þátt í starfi og áhugamálum fjölskyld- unnar, er þeir búa hjá. Af fjölskyldunum er til þess ætlazt, að þær líti ekki á hinn erlenda nemenda sem gest, held- ur sé honum veitt sama um- hyggja og öðru heimilisfólki. Æskilegt er, að á heimilinu sé unglingur á aldrinum 16—19 ára, þó koma roskin hjón, er alið hafa upp unglinga, einnig til greina- Þá er það og skilyrði, að ein- hver tali ensku á þeim heimil- Fermingarveizlur MÉR hefur borizt bréf um fermingarveizlur. Bréfritari seg ir, að fermiingaxrveizlurnar séu orðnar það ofboðslegar að engu tali taki. íburðurinn sé þvílík- ur á alla kanta, að það sé ekiki fyrir allt venjulegt fólk að láta ferma börn sín nú orðið, því barnanna vegna sé leiðinlegt að vera eftirbátur annarra. Og þeir, sem eigi mörg börn, verði auðvitað að gera öllum jafnt undir höfði. Ferming mörg ár í röð geti því farið illa með fjár hag foreldra. Þessi bréfritari er faðir stúlku, sem feimast á í vor. Ger ir hann það að tillögu sinni, að foreldrar ta'ki höndum saman um að afnema vínveitingar í fermingarveizlum. Ég hef satt að segja ekki gert mér grein fyrir því, að vínveit- ingar væru tíðkaðar í ferming arveizlum. Og mér finnst það alveg fráleitt. Eru fermingar- veizlur haldmar til að gleðja börnin og fagna komu þeirra í söfnuð kristinna manna — eða heldur fólk fermingarveizlur til þess að fá enn eitt tækifæri til að staupa sig? Ur vöndu að ráða Ég er alveg sannfærður um að flestum fermingarbörnum er meinilla við að sjá foreldra sína undir áhrifum áfengis og finnst mér það hálfgerð hneisa að geta ekki setið á sér þennan eina dag. Og mér finnst elski ólíklegt, að í veizlugleði fermingarinnar fari hið eiginlega inntaik ferm- ingarinnar fyrir ofan garð og neðan bæði hjá fermingarbörn unum og foreldrum þeirra. Ég segi ekki að svo sé alls staðar, en sennilega víða. Bréfritari leggiur til, að for- eldrar fenmingarbarna taki saman höndum og hætti veizlu farganinu en bjóði kunningjum í kaffi, í tilefni fermingarinnar. Þetta er nú gott og blessað, en ég er ekki viss um að það yrði neitt ódýrara fyrir bréfritara, því að þá yrði hans frú að hafa 30 kökutegundir á borðum eins oig allar aðrar frúr, ef hann vill á an.nað borð ekki halda minni veizlu en aðrir. Og svo kvarta Íslendingar yfir því að þeir þurfi að herða sultarólina. Æskan Fyrir skömmu sá ég jólablað barnablaðsins Æskunnar. Ég verð að segja, að þessu ágæta blaði hefur farið mikið fram á siðustu árum. Þetta er orðið eitt mesta myndarblað, mikið að vöxtum og fjölbreytt og að- standendum til mikils sórna. Það er tekið eftir því, þegar vel fÖJíP' ©PIB I <f/V% ‘X lí/V'T er unnið, hvort sem það er í blaðaútgáfu eða öðru. Ódýrt ferðalag Ég hitti Njál Símonarson ferðamálamann í gær. Hann var að fara til Ameríku í boði Pan American og fleiri aðila til að kynna sér fyrirkomulag heimssýningarinnar í New York, sem opnuð verður í vor. Hann er sá eini, sem fer héð- an, en í hópnum eru 250 ferða- skrifstofumenn víðs vegar að. Eitt af því athyglisverða, sem hann fræddi mig um, er, að 13 bandarísk flugfélög hafa tekið sig saman um að veita nýstár- legan afslátt. Fyrir 100 dollara getur maður sem sagt ferðast í 15 daga með þessum félögum, farið úr flugvél eins félagsins í vél annars og heimssótt 200 borgir, ef tírni ynnist til. Það er sem sagt úr nógu að velja. 45 dag'á fargjald með þéss-u sniði er er helmingi dýrara, kostar 200 dollara ■— og með slíkan far- seðil- í höndunum gætu allir ferðast um Bandaríkin þver og endilöng, farið norður til Al- aska og suður á Florida — og allt þar í milli. Það er ekki dýrt-> ferðalag. ÞURRHLÖDUR ERL ENDINGARBEZIAR BRÆÐURNIR ORMSSON hf. Vesturgótu 3. Simi 11467.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.