Morgunblaðið - 13.02.1964, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.02.1964, Qupperneq 16
16 MORGUNBLA&IÐ Fimmtudagur 13. febr. 1964 Stúlka óskast í framreiðslustörf sem allra fyrst. Hófel Akranes Akrancsi. Byggingaaneisfðrar Höfum fengið frá Þýzka- landi ódýr og vönduð hallamálstæki, sérlega hentug fyrir bygginga- starfsemi. Stækkun sjónauka 18 sinnum. Fjarlægðamæling. Gráðubogi 360°. Þríhyrningsfætur og leður hyíki. Verð kr. 8.680,00. Einnig fyrirliggjandi sjálfstillanleg hallamálstæki með og án gráðuboga, vönduð en ódýrari en áður hefur þekkzt hérlendis. ★ — — — Ennfremur ryðfrí stálmálbönd, landmælingastengur og ýmsar gerðir af hentugum hallamálsstokkum t. d. 4 m og 5 m stengur er brjóta má saman 4 sinn- um. ★--------- TEIKNIBORÐ — TEIKNIVÉLAR — TEIKNIPAPPÍR Laugavegi 105 I1I» Sími 11380. Nú er rétti tíminn til að panta GIJFFEN MYKJUDREIFARA FYRIR VORIÐ. GLFFEN hefur reynzt mjög vel hér á landi, og dreifir bæði þykkri og þunnri mykju. Mikill kostur er einnig hve bygging hans er einföld Engar keðjur, engin færibelti — aðeins snigill í botni kassans og þeytispaðar aftan við snigilinn. — Ökumaður dráttarvélarinnar opnar og lokar fyrir mykjuna frá sæti sínu. Með því að taka mykjukassann af, má nota grindina til heyflutninga með einföldum viöbótarbúnaði, sem hver bóndi getur gert. Rúmtak 17 hektólítrar — Dreifibreidd um 7 m. — VERÐ um kr. 25.000 auk söiuskatts. Sambandshúsinu,. Reykjavík Sími 17080. Skrifstofustarf Viljum ráða stúlku nú þegar til erlendra bréfa- skrifta og annarra skrifstofustarfa. Umsóknir séu sendar til skrifstofu vorrar í Gufunesi. Áburðarverksmiðjan hf. SkrifstofustúEka óskast Óskum eftir að ráða vana skrlfstofustúlku strax. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Upplýsingar á skrifstofunni. Skipholti 33. VIKAN Velbátatrygging Reykjanes biður alla þá er hafa þurfa samband við skrifstofu félagsins að athuga að símanúmer félagsins er nú 1155 og ekki lengur 1970, hið rétta númer er í simaskránni. VÉLBÁTATRYGGING REYKJANES Keflavík. INVJIJNG frá Veitingastofu Sveins og Jóhanns Háaleitisveg 108. Innbakaðar pylsur (amerísk fyrirmynd) 10 kr. stykkið. Sendum út 10 st. minnst ef þess ar óskað eftir kl. 5. — Sími 36640. Rafmagnshitarar Til sölu eru tveir lítið notaðir 13 kw rafmagnshit- arar fyrir miðstöðvarkerfi. Hitararnir eru með inn- byggðum hitaspíral fyrir neyzluvatn og innbyggðu þenslukerfi. Hægt er að auka orkuna um helming með viðbótar elementum. Upplýsingar í verzlun okkar Suðurlandsbraut 4, sími 38-125. Olíufélagið SKELJUNGUR. TILKYNNING trá stofnlánadeild landbúnaðarins Stjórn Búnaðarbanka íslands hefur ákveðið, að um- sóknir um lán úr Stofnlánadeild landbúnaðarins, vegna fyrirhugaðra framkvæmda á árinu 1964, skuli hafa borizt bankanum fyrir 15. apríl næstkomandi. í umsóknum skal gerð greln fyrir því, til hverra framkvæmda lánið verði tekið og hvenær fram- kvæmdirnar muni verða fullgerðar. Umsóknum fylgi eftirgreind skilriki: 1. Upplýsingar um stærð og gerð fyrirhugaðra bygg inga og hvort uppdrættir séu fegnir og sam- þykktir af Teiknistofu landbúnaðarins. 2. Áætlun um ræktunarframkvæmdir. 3. Staðfesting frá innflytjanda um verð og gerð dráttarvélar, ef um vélakaupalán er að ræða. 4. Skýrsla lánsumsækjanda um búrekstraraðstöðu og framkvæmdaþörf. 5. Umsögn héraðsráðunautar um framkvæmdaþörf viðkomandi jarðar miðað við aðstöðu lánsum- sækjanda til fullrar nýtingar fyrirhugaðra um- bóta, og grein gerð fyrir líklegum áhrifum þeirra til aukinnar hagkvæmni í búrekstri á jörðinni. 6. Veðbókarvottorð. Eyðublöð fyrir umsóknir og skýrslur samkvæmt lið 3 og 4 verða fyrirliggjandi ,hjá héraðsráðu- nautum og byggingarfulltrúum sýslnanna. bCnaðarbanki íslands. á kvöldvöku Ferðafélagsins FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 13. febrúar heldur Ferðafélag ís- lands kvöldvöku í Sjálfstæðis- húsinu. Þar sýnir dr. Sígurður Þórarinsson, jarðfræðingur, lit- skuggamyndir og skýrir frá Surtsgosinu og sýndar verða kvikmyndastúfar til frekari á- réttingar. íslendingar hafa geysimikinn áhuga á efni því sem þarna verð ur fjallað um, sem sést vel á því að í síðustu viku er Sigurðúr Þórarinsson hélt fyrirlestur og sýndi myndir af Surtsgosinu hjá Náttúrufræðifélaginu í Tjarnar- bæ, urðu svo margir frá að hverfa í fyrstu, þrátt fyrir það að í hús inu voru eins margir og þar kom ust fyrir í sætum og standandi, að tekið var það ráð að flytja fyrirlesturinn aftur síðar um kvöldið, og var þá aftur troð- fullt hús. Ferðafélagskvöldvakan hefst kl. 8,30; en húsið verður opnað kl. 8. Á eftir fyrirlestrinum og myndasýningunni verður að venju kaffidrykkja og dans. Bíldudals- fréttir Bíldudal, 11. febrúar: — • Afli línubáta í janúar var sem hér segir: Andri með 54,6 tonn, (byrjaði um miðjan mánuðinn) og Pétur Thorsteinsson með 17 tonn í 4 sjóferðum. Hefur afli alcjrei verið jafn lélegur í janúar. Bæði voru gæftir stirðar og bát ar byrjuðu seint. Það, sem af er febrúar, hefur afli verið lélegur, 3—5 tonn í róðri, og gæftir stirðar. • Rækjuveiði hefur verið frek ar treg frá því á áramótum, ea er heldur að glæðast núna. • Hörgull er á fólki til vinnslu í Matvælaiðjunni, og vinna þar nú aðeins um tíu manns, en áð- ur unnu þar oft 30—40 manns. 9 Um mánaðamótin var stofnað taflfélag hér, sem nefnist Tafl- félag Bílddælinga. Formaður er Heimir Ingimarsson. Félagar eru yfir 40 talsins, og starfa þeir í tveimur deildum. Mikill skák- áhugi er nú ríkjandi hér. • Þorrablót var haldið hér 20. janúar sl. Var þar mikið fjöl- menni. Slysavarnadeild karia stóð fyrir því. Fór sú skemmtun vel fram. • Aðfaranótt 2. febr. snjóaði hér mikið, og var töluvert mik- ill snjór á götum, en birti upp um miðja vikuna, og er alautt núna og hlýindi. • Sólin heimsótti Bílddæiinga 2. febr., og var vel tekið á móti henni að vanda með kaffi og pönnukökum. — H. Fr. Peningar hirtir úr íbúðum og töskum UM 5 leytið á mánudag var kona að koma heim til sín 4 Þonfinnsgötu. Lagði hún inn- kaupatösku í stigann í ganginurn og brá sér inn í íbúð á neðstu hæðinni. Hún var svolitla sturid þar inni, en er hún kom aftur var búið að róta í töskunni og stela 2700 kr., sem voru þar i einu hólfinu. í fyrri viku var einnig farið inn í íbúð á Grettisgötu innarlega og stolið 1400 kr. úr kommóðu- skúffu. Húsmóðirin var ekki við kl. 3—5 síðdegis, en íbúðin ólæst. Er fólk áminnt um að hafa ekki íbúðir ólæstar og skilja ekki eftir peninga á glámbekk, þó innandyra sé, því mikil brögð eru að því að farið sé í íbúðir og slikt hii t.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.