Morgunblaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 14. febr. 1964 Heyrnarlaus frá fæðingu UNDANFARNA daga hefur dval iS hér á landi dr. Pierre Gorman frá stofnun daufdumbra í Lon- don, en hann er á ferðalagi um mörg lönd á vegum alþjóðlegra samtaka til aðstoðar öryrkjum í lífsbaráttunni, til að kanna hvað gert er fyrir andlega og líkamlega vanbúna víðs vegar um heim. Dr. Gorman þekkir þessi vandamál af eigin raun. Sjálfur er hann heyrnarlaus frá fæðingu, en hefur þrátt fyrir það komið sér vel fyrir í veröldinni. Hann les hiklaust af vörum og hefur lært að tala. Aðalmálið er enska, en hann kann einnig frönsku og hann les svo vel orð af vörum að hann veit hvort út- lendingur hefur framandlegan hreim í'enskunni. Einnig er hann 'doktor í þjóðfélagsfræði og -starf ar mikið fyrir málefni dauf- dumbra, hefur m. a. komið upp 7000 binda bókasafni, einhverju því bezta sem til er í veröldinni um heyrnar- og talvandamál. Fréttamaður blaðsins hitti hann að máli á Hótel Sögu, þar sem hann var í fylgd með Brandi Jónssyni, skólastjóra Málleys- ingjaskólans, og konu hans, og spjallaði við hann. Er sannar- lega ' fróðlegt að heyra um reynslu þessa heyrnarlausa drengs; sem hefur náð að laga sig svo vel að lífinu, eins og væri hann í angu vanbúinn í upphafi. Pierre Gorman er f æddur í Melbourne í Ástralíu 1924, einka barn ftanskrar móður og ástralsks föður, sem var lögfræð ingur. Þegar hann var 6 mánaða gamall, varð ljóst að barnið heyrði eKki. Móðir hans fór því með hann ár-sgamlan til Parísar, til að leita aðstoðar og ráða varð andi uppeldi hans. Þekktur lækn ir og sérfræðingur í talfræði, dr. Henriette Hoffner, ráðlagði henni að líta ávallt á drenginn „sem venjulegt barn, sem ekki gæti heyrt, en ekki sem dauf- dumban dreng“. Móðir hans og sérstakur kennari daufdumbra kenndu honum svo skv. fyrir- mælum dr. Hoffners, þar til hann var 5 ára. Þá var hann sendur í smábarnaskóla í hálfan dag, en fékk síðdegis sérstaka kennslu í varalestri, tali og ensku. Smám saman færðist hann yfir í venjulegan barna- skóla og 10 ára gamall sat hann á skólabekk fullan kennslutíma, en hafði aukatíma utan skóla. Gekk honum mjög vel og fékk verðlaun fyrir efnafræði o. fl. Það var góð reynsla að vera í skóla með venjulegum börnum, segir Gorman. í skólanum voru drengir, sem létu sem ég væri ekki til, aðrir voru ruddalegir við mig og vilöu ekki hafa mig í skólanum með sér, þriðji hóp- urinn ætlaði að veita mér vernd og hjálp, en þeir voru líka til kem reyndu að skilja mig og hafa eðlilegt samneyti við mig. Þarna fékk ég strax að reyna fernskonar viðmót fólks. Ég fékk minn fyrsta undirbúning fyrir lífsbaráttuna áður en ég fór úr skóla. Og síðan hefur reynsla mín verið svipuð. Þessar fjórar tegundir af framkomu mæta manni hvarvetna. Það hefur reyndar komið sér fyrir mig seinna á æfinni að kynnast þannig_ ýmsum þáttum í eðli fólks. Ég er þjóðfélagsfræðingur fræðslu og sálfræðileg og þjóðfé- lagsleg vandamál fatlaðra barna. Og þaðan fór hann til Englands, þar sem hann fékkst við rann- sóknir á varalestri og þjóðfélags legum vandamálum heyrnar- lausra, þar til hann gerðist bóka vörður í safni Royal National Institute for Deaf í London. Gorman varði doktorsritgerð vði Cambridge háskóla 1960 um fyrrnefnd vandamál í Englandi. Hann hefur starfað í ýmsum nefndum varðandi heyrnarlaust fólk og vinnur að málum þess. Viðtökur án nokkurs varnagla Dr. Gorman er því bæði af eigin reynslu og starfi sínu manna kunnugastur vandamál- um þeirra, sem ekki eru líkam- lega eins vel búnir undir lífs- baráttuna og fólk almennt. — Það sem mest á riður fyrir okkur, sem erum að einhverju leyti vanbú.in, er að tekið sé án nokkurs varnagla við okkur á M að mikilvægt er að læra að taka hlutunum af kímni, svo maður geti hlegið að mistökum sinum. Annars verður lífið of dapurlegt. En það verður einnig ómögulegt nema foreldrarnir geri það líka. Og svo þetta: Fólk þarf að átta sig á því að það eru ekki pen- ingar eða samúð, sem við þurf- um á að halda, held-ur það að vera teknir sem fullgildir með- limir þjóðfélagsins og fá störf eftir verðleikum. Penin-gar eru til gagns en þeir eru ekki til mikils gagns. Heyrnarlausir aka betur. Dr. Pierre Gorman þekkir vanda mál vanbúinna af eigin raun og ^r' Gorman var að leggja upp af starfi sínu. * í langt ferðalag á vegum AI- orðinn talandi dr. í þjdðfélagsfræði að starfi og það er gott að geta skoðað fólk. og hegðun þess sem hlutlaus áhorfandi. — Og hjálpfúsa fólkið er ekki þægilegast? — Nei, það kemur t. d. fyrir mig, þegar ég heimsæki skóla, að skólastjórinn tekur mig við hönd sér og leiðir mig út að strætisvagnastöðinni, borgar vagnstjóranum fyrir mig, eins og ég geti ekki borgað fyrir mi-g sjálfur, biður vagnstjórann að gæta þess að ég fari nú út á réttum stað,_ segir mér að setjast o. s. frv. Á meðan stara allir í vagninum á mig, eins og ég sé hjálparlaus aumingi og ég roðna og mér líður illa. Seinna sé ég svo að þetta er bara broslegt, en það er ekki skemmtilegt með- an á því stendur. Dr. Gorman lauk prófi frá há- skólanum í Melbourne, með gráð um í landbúnaðarvísindum og í kennslumáium og fór svo til framhaldsnáms til Parísar, þar sem hann lagði stund á upp- heimilunum og yfirleitt í þjóð- félaginu. Fé til skóla og sjúkra- húsa fyrir slíkt fólk nægir ekki eitt. Annað stórt vandamál, þó það sé ekki eins mikilvægt, er að ná betra sambandi við um- heiminn. Það er að segja, sá sem fæddur er heyrnarlaus, nær aldrei fullkomnun í tali, hversu góða kennslu sem hann fær. Margir geta ekki, þrátt fyrir af- bragðs kennara og aðstæður lært nægilega vel að tala til að aðrir skilji þá. En spyrjið mig ekki hvernig eigi að leysa þetta. Yandamálið er fyrir hendi, en við vitum ekki hvernig hægt er að leysa það, því daumdumbir eru einstaklingar, hver með sitt vandamál, og ólíkir einstakling- ar. Starf í þágu blindra og heyrn- arlausra hófst í rauninni ekki fyrr en fyrir 150—200 árum. fyrir vanskapaða og spastiska fyrir einni öld og aðra vanbúna fyrir 50 arum eða jafnvel enn skemur. Á þetta er litið sem að- _ Kvikmy fstand er KVIKMYNDIN „Gull Isla-nds" eftir Fraikkann Samivel var fruimsýnd mánudaginn 3. febr. í óperunni í Reims í Frakk- landi og fékk mjög góðar við- tökur. Blaðið Union segir dag- inn eftir frá þessari frumsýn- ingu undir fyrirsögninni: „Samivel hefur skapað reglu- legt listaverk með kvikmy-nd sinni um ísland“. Hér fer á eftir grein blaðsins: Frá hendi Samivels, þessa stórkostlega sögumanns, sem segir frá undrum veraldarinn- ar, höfum við ætíð vanizt kvikmyndum í gæðaflotoki. í þetta sinn hefur hann kcmizt enn lengra með „íslandi", sem er listaverk. Þetta verk, sem hann hefur verið að vinna að í tvö ár með aðstoðarmanni sín-um, Patrick Plumet, frum-sýndi hann á mánudagsikvöld í Cin- eme Opera innan ramma fyr- irlestraþáttari-ns „Kynning í heiminum“ á vegum „Foyer Saint-Exupéry“. M. C. Kiesg- en, framkvæmdastjóri kynn- ingarflokksins gerði sér ferð til Reims til að vera við- staddur sýningu kvikmyndar- innar, sem sýnd var fyrir mikl um fjölda fólks. Þeir Reimsbúar, sem voru staddir í Óperunni þetta kvöld, sáu svo sannarlega ekki eftir að hafa eytt þar kvöld- inu. Samivel hrífur alla og „ísland og víkingarnir á endi- mörkum heimsins“ lauk upp fyrir okkur landi, þar sem eins og höfundurinn segir „eru upphafin landamærin milli hins lifandi heims og hugarheima". Samivel þarf eklki á því að halda að vera að mæla með landslagi, hlutum og fólki, honum nægir að láta mynda- vélina reika eftir hugkvæ-mni sin-ni og bera vitni. Það sem við sáum, þakkir séu fráum sjónum Samivels, er óþekkt land, fullt af framandlegum hlutum, sögum og furðuleg- ustu göldrum: miklir fossar, brennisteinsauðnir, heitar upp sprettur, *ósnortnir jöklar, 'm / sr klettar þaktir fuglum og líf sem iðar í leynum í óendan- legri kyrrðinni. Myndirnar eru fallegar, og hver ný ætti skilið umsögn, allt frá upprifj-un á íslandi hinu forna að hinum frábæru hvalveiðum, með viðkomu í harmleiknum u-m Paurpuoi pas? dr. Oharcots. En ísland er ekki eingöngu land, sem þo-lað hefur ísa og elda, jarðskjálfta og eldgos, það er líka mikið menningar- land, sem á Nobelsverðlauna- skáld, nútímaland með fallegri höfuðborg, þar sem lífshættir íbúanna standa hærra en hvers meðal Frakka, að því er Samivel segir okkur. Ekkert er tilviljunu-m háð hjá Samivel. Myndirnar sem hann sýnir okkur eru bæði skáldlegar og sannar og hann undirstrikar þær með vönd- uðum texta. Hið langvinna lófaklapp sam fylgdi á eftir orðinu „Fin“ (endir) var verðskuld- að lof. skilín vandamál og hóparnir vinna hver út af fyrir sig. Sum- um 'finnst þetta ágætt fyrir- komulag, en ég held að það sé til tjóns að við störfum ekki meira saman og skiptumst á upp lýsingum og aðstoð og að því er alþjóðlega stofnunin til aðstoðar fötluðum einmitt að reyna að stuðla. Mér skilst að eitthvert stærsta vandamál á þessu sviði hér á landi sé í sambandi við spastiskt, vangefið og geðbilað fólk, segir dr. Gorman seinna í samtalinu. Það er sama sagan hvarvetna. En það mundi vera til mikiila bóta, ef almenningur gæti skilið að það er ekkert hryllilegt við þetta. Þetta eru einstaklingar með sín vandamál. Fólki hættir til að vera hálffeimið eða jafnvel hræ-tt við þá, og .flýtir sér að ýta þeim úr vegi, loka þá inni á hælum o-g spítöl-um, úr augsýn og það verður ekki til að létta undir. Mér þótti mjög fróðlegt að koma að Reykjalundi, þar sem tekið hefur verið stórt skref í rétta átt í svo litlu landi. Og mér er sagt að farið sé að opna sti fnunina fyrir aðra en berkla- sjúklinga og verði færðar út kvíarnar á því sviði. Það er gleðilegt að heyra. Siminn versti óvinurinn. — Bagar heyrnarleysið yður ekki á ferðalögum um framandi lönd og innan um framandi fólk? — Nei, það truflar mig ekki. Þeir sem tala ensku skilja mig, en ég verð að sjálfsögðu að geta séð framan í þann sem ég tala við til að fylgja varahreyfingun um. Suma gengur mér þó, ein-s og öllum sem lesa af vörum, alltaf illa að skilja. Og það gild- ir jafnt um innborna Englend- inga sem útlendinga. Annars er síminn versti óvin- ur heyrnarlausra. T.d. fyrir þann sem er að vinna sig upp í starfi. Fyrst gerir það lítið til þó hann geti ekki talað í síma, og heldur ekki þegar hann er kominn í nægilega háa stöðu, því þá hefur hann aðstoðarfólk. -T.d. hefi ég 4 aðstoðarmenn, tvo se-m heyra Og geta talað í símann. En á vissu stigi stendur þetta í vegi fyrir að heyrnarlaus maður vinni sig upp í stanfi. Það er erfiður þröskuld ur. — Og hvað er mikilvægast fyrir einstaklin-g, se-m fæðist heyrnarlaus að læra? — Að taka þessum vanmæ-tti án nokkurs hiks eða fyrirvara. Það verða foreldrar slíkra barna líka að gera. Ef þeir ekki taka því án nokkurs varnagla, þá get ur maður það ekki sjálfur. Ann- þjóðasamtakanna til hjálpar ör- yrkjum þegar hann kom hér. Fé- lagsskapurinn lætur sig varða málef-ni líkamlega og andlega vanbúinna barna og fulorðinna. í flestu-m löndum starfa að þess- um málum sérstakar stofnanir, sem eru meðlimir alþjóðasam- takanna. Svarar Pálsson, endur- skoðandi er f laður ' íslands- deildarinnar, og kom dr. Gor- man til að hitta hann, Brand Jónss-on, skólastjóra Málleysingja skólans og nokkra lækna, til að fræðast um hvað gert er hér á þessu sviði. — Á einu hef ég furðað mig síðan ég kom, segir hann. — Og það er að líkamlega vanskapað fólk fær ökuleyfi, en heyrnar- lausir mega ekki aka bíl. ísland er eitt af örfáum löndum í heim inum, þar sem slík lög eru. Nokk ur lönd hafa ætlað að setja slíkar reglur, en þá verið sýnt fram á með skýrslum t,d. tryggingarfé- laga í Englandi og Bandaríikjun- um, 'að heymarlausir aka betur, enda færra sem tru-flar öiku- manninn. Munurinn er mikill. 1 einu fylki Bandaríkjanna lenda 4 af hverjum 1000 ökumönnum í ökuslysi, en aðeins 0,3 af hverj- um 1000 heyrnarlausum. Hér á ég auðvitað við venjulegt h-eyrn- arlaust fólk, en ekki vangert að öðm leyti, svo ég tali eklki um andlega bilaða. Það er ekki nokk ur ástæða, hvorki vísindaleg né þjóðfélagsleg, sem styður þá stooð un að heyrnarlausir eigi ekki að aka bíl. Fjórir heyrnarlausir vin- ir mínir í Englandi aka stóru-m trukkum sér til lífsviðurværis. Ég vona að þetta breytist hér, svo að þegar ég kem næst geti ég gengið undir ökupróf og hald ið svo af stað í bílnum m-inum út á land, til að sjá fjöllin og lan-dslagið. Það er allt annað að skoða það ef maður er akandi og sinn eigin herra. Dr. Gorman hélt áfram ferð- inni héðan til Kanada, Bandarikj anna og síðan fer hann til Mexico og Suður-Ameríku, því mjög lít- ið er vitað hvort nokkuð er gort fyrir heyrnarlaus börn þar. Síð- an er ferðinni heitið til Nýja Sjálan-ds og Ástralíu. — Einihvern tíma ætla ég að flytja heim til Ástralíu og njóta sólarinnar, seg- ir hann. En í þetta sinn heldur hann áfram til Japan og til land anna fyrir botni Miðjarðarhafs á leiðinni til baka til Englands. — Hvert land hefur sínar slæmu hliðar og sínar góðu hliðar, á þessum sviðum sem öðrum seg- ir hann, og við þurfum að vita hver um annan og kynnast vinnuaðferðum hv«r* annars. E. Pá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.