Morgunblaðið - 08.04.1964, Síða 1
28 síður
Vinnufriður tryggiur í Sví-
þjóð í tvö ár
Samkomulag um laun og kjör náðist eftir
fjögurra og hálfs mánaða viðræður
Stokkhólmi 7. apríl (NTB)
SÆNSKA stjórnin og aðil-
ar á vinnumarkaðinum létu í
dag í ljós ánægju með að
tekizt hefur að tryggja vinnu
íriðinn í Svíþjóð á komandi
ári. Viðræðumar og samning
amir um launamálin voru, að
þessu sinni, þeir erfiðustu
um árabil, og það var ekki
fyrr en eftir fjögurra og
hálfs mánaðar viðræður, sem
Ame Geijer, formaður Al-
þýðusambandsins og Bertil
Kugelberg, framkvæmda-
stjóri atvinnurekenda undir-
rituðu samkomulag. Það gerð
ist í morgun og gildir sam-
komulagið í tvö ár. Sam-
því fá 800 þús.
sænskra verkamanna 1,3%
launahækkun á þessu ári og
3,4% á næsta ári. Einnig var
samið um aukið atvinnuör-
yggi-
Tage Erlander, forsætisráð-
herra, ræddi samkomulagið í
dag. Sagði hann m.a., að það
Asgeir Ásgeirsson
í kjöri til forseta
FORSETI Islands, Ásgeir Ás-
geirsson, hefur ákveðið að vera
í framboði við kjör forseta, sem
fram á að fara hinn 28. júní nk.
Þetta er í fjórða sinn, sem Ás-
geir Ásgeirsson er í framboði til
forsetakjörs. Hann var fyrst kjör
inn forseti 1952.
Meðmælendalistar liggja
frammi hjá öllum sýslumönnum,
bæjarfógetum og lögreglustjór-
um en í Reykjavík hjá yfirborg-
arfógeta.
Frambjóðendur þurfa minnst
1500 meðmælendur á öllu land-
inu, en mest 3000, og eru nánari
reglur um hvernig hlutföllin
skulu vera eftir landsfjóiðung-
um. —
Kjörtímabil forseta er fjögur
ár, hefst hinn 1. ágúst að kosn-
ingu lokinni.
Peter
Sellers -
hættulega
veikur
Hollywood, 7. april.
— AP-NTB —
• HINN frægi brezki Ieik-
ari, Peter Sellers, lá í
kvöld milli heims og helju í
sjúkrahúsi í Hollywood. —
Hann þjáist af hjartasjúk-
dómi, og er síðast fréttist var
hjartslátturinn mjög óreglu-
legur. Rafmagnstæki var not-
að til þess að létta hjartslátt-
inn og leikarinn fékk súrefnis-
gjafir.
Peter Sellers, sem er 38 ára,
veiktist aðfaranótt mánudags-
ins, en fór ekki í sjúkrahús
fyrr en um hádegið, virtist
læknum þá sem hann hefði
fengið væga aðkenningu að
slagi. Sellers var lagður í
Framh. á bls. 21
gleddi áreiðanlega alla, að
vinnufriður hefði verið tryggð-
ur í landinu og kvaðst sannfærð-
ur um að samkomulagið yrði
grundvöllur áframhaldandi efna
hagsframfara og jafnvægi í efna
hagslífi þjóðarinnar.
Launahækkunin, verður næstu
tvö ár nær 5% og kostar hún
fyrirtækin samtals um hálfan
milljarð sænskra króna. Við
þetta bætist kostnaður ' við
lausn tryggingarvandamála og
lengingu á sumarleyfi, en í sum
ar fá Svíar 21 virkan dag frian,
og næsta sumar heilan mánuð.
Segja sérfræðingar atvinnurek-
enda, að alls nemi þær ívilnanir,
sem nú var samið um minnst
7% á þessu ári og 9% næsta ár.
Bertil Kugleberg, fram-
kvæmdastjóri atvinnurekenda,
sagðist telja að eftir síðari heims
styrjöldina hefði aldrei verið
erfiðara að ná samkomulagi um
launamálin en nú. Formaður al-
þýðusambandsins, Arne Geijer,
sagði, að nokkur verkalýðsfélög
innan sambandsins myndu skipta
hækkuninni þannig að hinir
lægst launuðu fengju mest af
henni, en önnur myndu skipta
jafnt.
Launasamningar sænska al-
þýðusambandsins og atvinnurek
enda verður lagt til grundvallar
við samninga t.d. iðnaðarmanna,
ríkisstarfsmanna og margra ann
arra launþegafélaga
Mótmælaganga gegn læknaverkfallinu í útborg Brússel. Á fyrsta
borðanum stendur: „Læknar! Þið tókuð ykkur páskaleyfi á kostnað
. hinna sjúku.“
Öngþveiti í sjúkrahúsum í Belgíu
Barn lézt vegna skorts á læknishjálp
Tveir læknar handteknir
Briissel 7. apríl (NTB)
• Læknaverkfallið í Belgíu
stóð enn í dag og ekkert benti
til þess að viðræður myndu
hefjast unt. heilbrigðislöggjöf-
ina, sem veldur verkfallinu.
• Tveir læknar hafa verið
handteknir, sakaðir um að
hafa ekki aðstoðað barn í lifs
hættu. Hafa verkfallsmenn
krafizt þess að læknarnir
verði látnir lausir. Segjast
þeir að öðrum kosti hætta að
starfrækja neyðarþjónustu. —
að á yfirmenn læknafél., Rog-
Biskupar í landinu hafa skor-
er Thone, og forsætisráðherr-
ann, Theo Lerevre, að hefja
viðræður á ný. Nítján af
borgarstjórum Brússel hafa
sent svipaða áskorun.
• l'm 4 þús. verkamenn fóru
í dag mótmælagöngu gegn
læknaverkfallinu í Gilly í S.-
Belgiu. Lndirbjuggu þrjú
stærstu verkalýðsfélög lands-
ins göngu þessa.
Læknaverkfallið í Belgíu
hefur nú staðið í viku, en alls
eru 12 þús. læknar í verk-
falli. í dag bættust í hópinn
læknanemar við háskólann í
Liege og er óttazt, að fleiri
fylgi fordæmi þeirra. Mikið
öngþveiti ríkir í sjúkrahúsum
í Brússel og öðrum stórborg-
um, en einkas j úkrahús og
sjúkrahús í sveitum eru ekki
fullskipuð. Neyðarþjónustan,
sem sett var, er verkfallið
hófst til þess að veita alvar-
lega sjúkum og slösuðum
'hjúkrun og læknishjálp verð
ur æ afkastaminni sökum
þreytu starfsfólksins. Öll her-
sjúkrahús hafa verið opnuð
Framh. á bls. 21
Danir semja nýjar reglur um
samninga ílaunadeilum
Bjartsýni á að unnt verði að afstýra
verkföllum og verkbönnum
DANSKA blaðið Politiken hef
ur skýrt frá því, að innan
skamras megi vænta nýrra
reglna um samninga milli al-
þýðusambandsins danska (LO)
og félags danskra atvinnurek-
enda, en að undanförnu hefur
nefnd fulltrúa frá báðum aðil-
um unnið að uppkasti að samn-
ingsreglunum. Ekki hefur verið
skýrt frá innihaldi uppkastsins,
en Politiken segir fullvíst, að
það muni marka tímamót. Það
feli í sér grundvallaratriði varð
andi ákvörðun launa í nútíma-
þjóðfélagi og því sé viðurkennt
það undirstöðuatriði, að sameig-
inleg stefna skuli ríkja um tekj
ur alls þjóðfélagsins.
Hér á eftir fer úrdráttur úr
frétt Politiken:
Nefndin, sem unnið hefur að
uppkasti að samningsreg'lum
hefur náð samkomulagi og upp-
kastið verið lagt fyrir launamáia
nefndir alþýðusambandsins og
atvinnurekenda. Áherzla er lögð
á, að uppkastið sé ekki fullgert,
þvi að enn vanti skýringar á
ýmsum smáatriðum þess og
mun nefndin, sem skilaði upp-
kastinu til launamálanefndanna
halda áfram að reyna að ná sam
komulagi um smáatriðin. Talið
er að reglurnar um samningana
Framh. á bls. 21