Morgunblaðið - 08.04.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.04.1964, Blaðsíða 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Mlðvikudagur 8. apríl 1964 Valdís HlEdar Valdimars IHinníngarorð f langri sjúkdómsraun þeirrar ungu konu, sem kvödd verður hinztu kveðju miðvikudaginn 8. apríl, hefur sú harmsára spurn oft hugann níst, hvers vegna ein- mitt henni var kveðinn sá ör- iagadómur að missa heilsuna á blómaskeiði lífsins, mitt í hinum ijúfustu viðfangsefnum, önn og umhyggju fyrir ungum börnum. „Hví fölnar jurtin fríða ag fellir blóm svo skjótt?“ Mikið þurfti til að brjóta nið- ur þrek þessarar ungu konu og lífsvilji hennar bilaði aldrei. Valdís Hildur fæddist í Hafnar firði 17'. desember 1930. Fárra vikna gömul var hún tekin í fóstur og aettleidd af þeim þjðð- kunnu systrum, Steinunni og Margréti dætrum Valdimars Sigurðssonar útgerðarmanns á Eskifirði og konu hans Hildar Jónsdóttur, ljósmóður. Steinunn og Margrét, starf- ræktu um alllangt árabil Hótel Skjaldbreið í Reykjavík og eru síðan oft nefndar Skjaldbreiðar- systur. Hótel Skjaldbreið var fyrsta heimili Dísu, eins og hún ávallt var nefnd í vinahópnum stóra. Litil, kringluleit, dökkiokkuð hnáta steig sín fyrstu spor á hótel jörð á fjölsóttu hóteli, sem þá var talið í fremstu röð gisti- húsa landsins, þarna kynntist Disa á fyrstu æviárunum mörg- uim þjóðkunnum mönnum, er margir hverjir voru fremur sem heimilismenn en gestir á Skjald- breið, og hún skiptist á teikning- um við snillinginn KjarvaL Þó að í miðri borg væri var skammt til hinna fegurstu staða, Austurvaliar blómum skrýddum og tjarnarinnar kvikrar o.g kvak- andi af fuglalífi og leiftrandi í litbrigðum sínum eftir veðurfari, eiktum og árstíðum. Barnfóstra fylgdi telpunni hvert fótmál hin fyrstu æviár, þegar fósturmæður hennar sakir mikilla anna gátu ekki þtið eftir henni sjálfar, en það voru þeirra mestu yndisstundir að njóta samvistanna við þetta greinda og geðþekka barn. Hjá Steinunni og Margréti var móðir þeirra, er að sjáifsögðu var Dísu hin elskulegasta amma og fóstur systir þeirra Guðiaug Valdimars. Árið 1942 hurfu systurnar Steinunn og Margrét að því ráði að selja hótel sitt og stofnuðu heimili á Guðrúnargötu 7, þar sem þær hafa búið síðan. Valdís var öll sín barnaskóla ár í Landakotsskóla og hlaut þar, margvísleg verðlaun og vi‘ð- urkenningar fyrir framfarir og háttprýði. Hún stundaði síðan nám við gagnfræðaskóla Vestur- bæjar. Ailar menntaleiðir stóðu henni opnar, en hún hafði ekki hug á langskólanámi, aftur á móti naut hún kennslu í ýmsum sérgreinum; píanóleik, fram- sögn, hannyrðum og húsmæðra- fræðum. Þó að hæg væru heima- tökin í þeim efnum á heimili hennar sótti hún húsmæðranám- skeið í Danmörku sumarið 1948. Valdís giftist ung, en fram að þeim tíma liðu æskuár hennar við nám, létt störf og skemmtan- ir eins og velflestra jafnaldra hennar. Á sumrin dvaldi hún á sumarheimili fjölskyldunnar, Dalakofa við Meðalfellsvatn í Kjós. f>ar er fagurt mjög tilkomu mikið en þó hýrt landslag. Húsa- kynni svo sem bezt gerist um sumarbústaði, mikill og fjöl- skrúðugur garður, bryggja fram í vatnið. f Dalakofa var gest- kvæmt og oft glatt á hjalla. Þessi staður varð Dísu kærari með hverju árinu, slík sumarparadís, sem henni var þar búin með börn sín smá. Árið 1953 gekk hún að eiga eftirlifandi mann sinn, Einar Jónsson, nú starfsmann hjá stræt isvágnafélagi Reykjavíkur. For- eldrar Einars, Jón Steingyíms- son, verkstjóri á Hverfisgötu 100 og kona hans, Þuríður Guðjóns- dóttir, létust með stuttu mi'libili sumarið 1962. Það eru því miklir harmar, sem bafa sótt hinn korn- unga mann neim síðustu árin. Þáð verða að jafnaði mikil þáttaskil í lífi ungrar stúlku, er hún yfirge_fur frjálst og áhyggju- ! laust líf á traustu og grónu heim- j ili, stofnar sjáJf heimili, sem hún þarf að móta með daglegri iðju og alúð. En móðurhugurinn ást- ! ríkið og umhyggjan, sem hún ávallt hafði búið við vakti yfir henni eftir sem áður. Hún átti líka góðu að mæta af hálfu sinna valinkunnu tengdaforeldra og mágkonu, en þau, Einar og hún, voru um nokkurt árabil í sam- j býli við fcreldra hans og systur. j Ári’ð 1957 eignuðust þau fag- ' urt og að öllum þægindum vel búið heimili í Eskihlíð 10. Það var Dísu til mikils jmdis að eiga fallegt heimili, en skjótt brá sól sumri. Sívaxandi vanheilsa leiddi til sjö mánaða samfelldr- KEIMDALLHR F.B.S. Kvikmyndakvöld verður í Valhöll í kvöld kl. 8,30. Sýndar verða m. a. kvikmyndirnar. 1.) Heimsókn til JAQUELINE KENNEDY í HVÍTA HÚSIÐ. 2) HEIMSKAUTAÞJÓÐ, um líf eskimóa- þjóða á Norðurslóðum Kanada. 3) AUÐLYNDIR SUÐURSKAUTSLANDSINS. ar sjúkráhúsvistar, sem lauk nótt ina eftir páska, 31. marz. Eftir stendur ástvinahópurinn þungúm harmi sleginn, eigin- maður hennar, börn, fósturmæð- ur hennar og aðrir nánir vanda- menn og vimr. Börnin eru fjög- ur; Steinunn Margrét 13 ára, Jón Þór 10 ára, Hiimar 6 ára og Sigríður Helga 5 ára. í löngu dauðastríði var Valdís umvafin kærleika sinna nánustu, sem sátu við dánarbéð hennar nætur og daga og geta nú hugg- að sig við minninguna um það, að hafa á næstum ofurmann- legan hátt borið með henni sjúk- dómsbyrðina. Og miklum áhyggj- um hlýtur það að hafa af henni létt, að vita börn sín njóta þess skjóls, sem aldrei brást henni sjálfri. Við, sem á þriðja tug ára höf- um verið sambýlisfólk Steinunn- ar og Margrétar Valdimarsdætra og þekkt Valdísi frá bernsku hennar samhryggjumst ástvinum hennar, sem eiga um svo sárt að binda, og þó sóiskini vafðir þar sem eru börn hennar vel gefin og elskuleg. Óli Olsen Kveðja frá barnabörnum. Fæddur 8. nóvember 1899. Dáinn 21. marz 1964. Þá leiðir skilja, lifir minning þín, svo ljúf og björt hjá afa börnum skín. Þín gæði öll hér geymum hjarta í, hve góður varst, við aldrei gleymum því. í heitri ástúð, okkur ung og smá, þú ætíð vafðir, þerrðir tár af brá. Og vaktir gleðibros með blíðri lund, og blessún okkur veittir hverja stund. Og okkur fannst, er komstu afi kær, sem kæmi með þér vorsins ljúfi blær. Hve marga gjöf í lífsins lófa lézt, það lýsir þinni hjartahlýju bezt. Nú afi góði öll við þökkum þér, þm kærleikslund og gjafir hér. Á brautum lífsins blessuö minning þín, sem bjartur geisli í hjörtnm okkar skín. I. S. f,,Mismunur verkalýBshreyfingarinnar fyrir austan og vestan járntjald" Nýir þátttakendur eru velkomnir á alla fundi klúbbsins. Uppl. í síma 17102. LAUNÞEGAKLÚBBUR HEIMDALLAR F.U.S. ERINDI: Pétur Sigurðsson, alþm., flytur erindi á morgun, sem hann nefn ir .Misrnun- ur verkalýðs hreyfingar- innar fyrir 5 'ýjfí austan og m 4 vestan járn- * A tjald“. Að erindinu loknu svarar Pétur fyrir- spurnum. KVIKMYNDIR: AÐ loknu erindi Péturs Sig- urðssonar verða sýndar 2 kvikmyndir, sem lýsa ástandinu aústan járntjalds- ins og þeirri persónukúgun, sem þar ræður ríkjum. Dísa mín, vrð þökkum þér þitit óumbreytanlega góða viðmót og biðjum þér allrar blessunar. Hver hefði trúað því, þegar við fluttum á Guðrúnargötu 7, haustið 1942, áð þú yrðir fyrst okkar til að hverfa inn fyrir það „huliðstjald, sem hæðanna dýrð oss felur.“ Þórunn Elfa Magnúsdóttir. " J Sigurður Kjurtunsson kuupmaður 75 úru 75 ÁRA er í dag Sigurður Kjartansson kaupmaður, Lauga- veg 41 hér í borg. Foreldrar hans voru þau hjónin Guðfinna ísaks dóttir og Kjartan Árnason. Sig- urður hefur rekið all umfangs- mikla verzlun um ára raðir á Laugavegi 41, og bæjabúum að góðu kunnur, vel metinn og vin- sæll í sinni stétt. Sem unglingur gjörðist hann nemi í prentsmiðju Skúla Thoroddsens að Bessastöð um. Að því námi loknu fer harm til Ameríku og lærir rafmagns- fræði hjá fynrtæki Hjartar Þórð arsonar, er pá var einn þekkt- astur Islendinga á tæknisviðinu vestanhafs. Að því námi loknu hverfur Sigurður aftur heim til j íálands, og stofnar nú ásamt fleiri mönnum hlutafélagið „Hita & ljós“ er hafði að markmiði sölu rafmagnstækja auk þess sem 1 einnig var sett á laggirnar um- fangsmikið raftækjaverkstæði. Mun hér hafa verið á ferðinni eitt fyrsta fyrirtæki af þessu i tagi hérlendis. Öllum sem kynnst hafa Sig- urði Kiartanssyni ber saman um að þar er á ferð traustur per- sónuleiki; mannkosta og sóma- maður er í engu má vamm sitt vita. Hann hefur mjög sjálfstæð- ar lífsskoðanir, er grundvallast af góðri greind, staðgóðri mennt un og lífsreynslu. Giftur er hann hinni ágætu sæmdarkonu Ástríði Jónsdóttur, og eiga þau 5 upp- komin börn. Er heimili þeirra hjóna viðbrugðið fyrir gestrisni og myndarskap. Á þessum merkisdegi, óska ég þessum heiðursmanni og fjöl- skyldu hans, allra heilla og bless- unar á komandi árum. Vinur. Aðalfundur Félags íslenzkra hljóm- listarmanna AÐALFUNDUR Félags íslenzkra hljómlistarmanna var haldinn í Breiðfirðingabúð laugardaginn 28. marz sl. Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár skipa: Forrm, Svavar Gests; varaform., Guð- mundur Finnbjörnsson; ritari, Svavar Garðarsson; gjaldkeri, Hafliði Jónsson; fjármálariteri, Elvar Berg Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.