Morgunblaðið - 08.04.1964, Side 5

Morgunblaðið - 08.04.1964, Side 5
Miðvikudagur 8. apríl 1964 MORG *# w**» AOIÐ 5 Svona á EKKI að aka FLESTUM, ef ekki öllum ökumönnum í Reykjavík ætti að vera um það kunnugt að til eru marg- ■r einstefnuakstursgötur í Reykjavík, og til að auðvelda bifreiðastjórum að gæta að sér, hefur lögreglan sett upp svokölluð einstefnumerki, en það eru rauð merki með gulri þverrönd. Fyrir nokkru varð einum bi>astjóranum það á hérna fyrir utan á Aðalstrætinu að koma akandi Vesturgötuna. og í stað þess að beygja austur Hafnarstræti brá sá góði maður sér suður Aðai- stræti, þrátt fyrir skýrt bannmerki og vafalausa þekkingu á þessari einstefnugötu í sambandi við bilpróf sitt, með þeim afleiðingum, að hann ók á bíl, sem hentist upp á gangstétt. Hérna sést lögregluþjónn benda manninum á bannmerkið og skýra út fyrir lionum hinar réttu reglur. Sveinn Þormóðsson tók myndina. MENN 06 = ML&Nlm NÝLEGA hefir Tómas Árna- son öðlast réttindi sem hæsta réttarlögmaður. Hann er fæddur 21. júli 1923 að Hánefs stöðum í Seyðisfjarðarhreppi, Nor'ður-Mú’asýslu. Lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólan- um á Akureyri 1945 og em- bættisprófi í lögfræði vorið 1949. Að loknu háskólanámi settist hann að á Akureyri og var þar búsettur næstu árin. Hann stundaði framhaldsnám í lögfræði við hinn fræga Har vard háskóia í Bandaríkjun- um um eins árs bil. Haustið 1953 var hann ráðinn til starfa í Utanríkisþjónustunni. Varð forstöðumaður nýrrar stjórnardeildar, Varnarmála- deildar frá stofnun hennar ár- ið 1953. Skipa'ður deildar- stjóri haustið 1954. Honum var veitt lausn frá því starfi í árslok 1959 að eigin ósk. Nokkru síðar stofnsettu þeir bræðurnir Vilhjálmur, hrl. og Tómas lögfræðiskrifstofu hér í borginni, sem þeir reka nú í Iðnaðarbankabyggingunni við Lækjargötu. Kona hans er Þóra Kristín Eiríksdóttir frá Dagsbrún i Neskaupstað. Hafa þau verið búsett í Kópavogi s.l. 10 ár og eiga 4 syni. Leiðrétting Fréttaritari Mbl. á Hvolsvelli heitir Otto Eyfjörð, en ekki Norð fjörð, eins og misritaðist vmeð myndum frá jarðarför Ólafs Tú- bak í gær. Fyrirspurn Upplýsinga óskað. Sá, sem kynni að geta gefið upplýsingar um Eirík Thordarson, sem hefur verið sjúklingur í Brandon Ho- spital for Mental Diseases í Mani toba síðan 1945, er vinsamlega beðinn að hafa samband við Hag stofuna (þjóðskrána), sími 24460 Eiríkur þessi er talinn fæddur í Reykjavík 23. april 1896. For- eldrar hans voru Jón Þórðarson og Helga Eiríksdóttir. — Beðið hefur verið um fæðingarvottorð þessa manns í sambandi við um sókn um ellilífeyri honum til handa vestra, en Hagstofan get- ur ekki gefið vottorðið út, nema hún fái upplýsinigar um fæðingar stað hans o.fl. VÍSUKORN Sálin fleyg og höndin hög. hlýffa sama dómi. Eilíf ráða listar lög litum, svip og hijómi. Jafnt í hnífs og meitils mynd, máli, söng og kvæffi: ívaf stíls og efnis grind yfir hugar þræði. Einar Benediktsson. Minningarspjöld Minningarspjöld orlofssjóðs hús- mæðra fást á eftirtöLdum stöðum: Verzl. Aðalstræti 4, Verzl. Halli I»órarins, Vesturgötu 17. Verzl. Rósa, Aðalstræti 18. Verzl. Lundur, Sundlaugavegi 12. . Búrið, Hjallavegi 15. Miðstöðin, Njálsgötu 106. Verzl. Fótý, Ásgarði 22—24. Sólheimabúðinni. Sólheimum 33. Hjá nefndarkonum: Herdísi Ásgeirsdóttur, Hávalla- götu 9. Sími 15846. Halifríði Jónasdóttur, Ðrekkustíg 14. C. Sími 15938. Steinunni Finnbogadóttur, Ljós- heimum 4. Kristín Sigurðardóttur, Bjarkargötu 14. Sími 13607. Ólöfu Sigurðardóttur, Auðarstræti 11. Sími 11869. Sólveigu Jóhannsdóttur, Bólstaða- hlið 3. Sími 24919. Gjöfum og áheitum einnig veitt móttaka á sömu stöðum. STORKURINN sagði! að hann hefði verið a'ð fljúga yfir nokkur sjónvarpsloftnet í gær og sé'ð fullt af eigendum sjón varpa vera að yfir fara hverja leiðslu og hverja taug, jafnvel kikt eftir netinu, hvort stefnan væri nú örugglega beint á Kefla vík. Storkurinn sagðist líka hafa heyrt einhvern m.ann segja frá því, að umboðin, sem selja sjón- vörp hefðu engan frið haft fyrir beiðnum um viðgei'öarmenn til að gera við sjónvörpin, það sæisf ekkert í þeim nema snjór, og munaði engu, að það snjóaði inn á gólf! Storkurinn sagðist eiginlega ekki hafa getað leiðbeint mann- inum, en honum hefði helzt dott- ið í hug, að hinir „60“ hefðu lá«t- ið blása sig upp með gasi, hald- izt í hendur og myndað sameigin legan sjónvarpsmúr milli Sel- tjamarness og Reykjaness. Skyldi það nu vera þess vegna, að ekki sá til sólar fyrsf í gær- morgun, sagði storkurinn og flaug enn upp á eitt sjónvarps- loftnetið til að hjálpa einum að rétta stefnuna af! sá NÆST bezti f Dag nokkurn rakst Bernhard Shaw á eintak af bók eftir sig, sem var til sölu á mjög háu verði í fornbókaverzlun einni. Við at- hugun á bókinni fann Shaw nafn eins vinar síns ritað á titilblað hennar og þar við hliðina tileinkun ritaða með sinni eigin hendi: „Með vinarkveðju, frá Bernhard Shaw.“ Skáldið keypti bókina og sendi vini sínum han-i í pósti. Neðan undir fyrri tileinkunina hafði hann ritað aðra: ,Með endurnýjuðum vinarkveðjum, frá Bernhard Shaw.‘* ... Til leigu 4 herb. íbúð frá 1. júní n.k. Sími fylgir. Leigist í 1 ár, sem greiðist fyrirfram. Til- boð sendist Mbl. merkt: „Reglusemi — 9474“, fyrir 12. apríl. Húsdýraáburður til sölu við hesthúsin á skeiðvellinum. Mokað á bíla til kl. 8 á kvöldin. — Hestamannafél. Fákur. Keflvíkingar Myndatökur £ Aðalveri, sunnudaginn 12. apríl og mánudaginn 13. apríl. — Donald Ingólfsson, ljós- myndari. Sumarbústaður óskást til leigu í sumar eða hluta úr sumrinu. Uppl. í síma 18923 næstu daga. Japönsk eik — Teak HAWWK ÞORSmNSSOW jT Vörugeymsla v/Shellveg. Sími: 2-44-59. Afromosia: 2” Birki: 1—2'’ Brenni: 1 — 114 — 1% — 2 — 2%” Japönsk eik: 1%— 2 — 2%" Mahogni: 1%” (17—18” br.) Teak bútar: 1% x 6 og 2 x 5“ Teak: 6’ og lengra — 2x5” —2 x 6” — 4 x 6” Yang: x 5” Verzltinarhúsnæði Lítið verzlunarhúsnæði óskast til leigu við Lauga- veg eða sem næst Miðbænum. Um kaup á sér- verzlun gæti komið til greina. Tilboð óskast sent Morgunbl. fyrir þann 15. þessa mánaðar, merkt: „Verzlunarhúsnæði — 9229“. Skrifstofustarf Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða stúlku til skrifstofustarfa (vélritun og bókhald) nú þegar eða síðar. Vélritunarkunnátta og nokkur þekking í bókhaldi, ensku og dönsku nauðsynleg. Um- sóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist á afgreiðslu Morgunblaðsins merkt: „Skrifstofustarf — 9516“. 3ja herb. íbúðarhœð Til sölu er 3 herb. íbúð á 1. hæð við Þinghóls- braut, selst tilbúin undir tréverk og málningu, allt utanhúss fullfrágengið. Bílskúrsréttindi. Hóf- leg útb. — Nánari uppl. gefur Skipa- og fasteignasalan (Jóhannes Lárusson, hrl.) Kirkjuhvoli — Símar 14916 og 13842. PIERPONT ÚR IMÝ GERÐ 4 VATNSÞÉTT 4 HÖGGVARIN 4 SAFÍRSLÍPAÐ GLAS 4 ÓBROTLEG FJÖÐUR GEFIÐ FERMiNGARBARNINU PIERPONT t R GARÐAR ÖLAFSSON, úrsmiður Lækjartorgi — Sími 10081

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.