Morgunblaðið - 19.04.1964, Page 16

Morgunblaðið - 19.04.1964, Page 16
16 MORGU N BLAÐIÐ Sunnudagur 19, aprU 1964 Útgefandi: Framkvæmdas t j óri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22430. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. LA USN KJARAMÁL- ANNA Tt/fiðstjórn Alþýðusambands íslands hefur gert álykt- un um kjaramálin, þar sem m.a. segir, að Alþýðusam- bandið skori á ríkisstjórnina að hafa samstarf við Alþýðu- sambandið um stöðvun verð- bólgunnar. í ályktuninni er áherzla lögð á verðtryggingu kaups, að reynt verði að ná samkomu lagi um framkvæmd á stytt- ingu vinnudagsins, án skerð- ingar heildartekna og að sam- komulag verði gert um ýmis réttindi og hagsmunamál al- þýðufólks, vinnuverndarmál, orlofsréttindi o. fl. Þar að auki er talað um „óhjákvæmi legar launa- og kjarabætur“ og loks að „frjáls samnings- réttur sé virtur“. Enda þótt miðstjórn Alþýðu sambands óski samstarfs við ríkisvaldið bendir hún samt samhliða á, að hún vilji samninga og þá auðvitað við vinnuveitendur en ekki ríkis- stjórnina. Er það að sjálf- sögðu æskilegast að slíkir samningar takist. Rétt er að fagna ályktun miðstjórnar Alþýðusambands ins, þó á henni séu nokkrir annmarkar, sem vikið verður að hér á eftir. Hinsvegar spá- ir það ekki góðu, að ályktun þessari skuli slegið upp í „Þjóðviljanum“ sem áróðurs- tillögu, án þess hún sé send öðrum blöðum til birtingar, a. m. k. hefur hún ekki borizt Morgunblaðinu. Vissulega er rétt að ræða þá liði, sem miðstjórn Alþýðu sambandsins sérstaklega til- greinir, en þó er sá galli á gjöf Njarðar, að einnig virð- ist vera farið fram á kaup- hækkanir nú. Verðtrygging kaups getur verið góð og réttlát, ef tekizt hefur að stöðva verðbólgu- þróun, en vísitölubætur á launagreiðslur gera ekki ann- að en að magna verðbólgu, ef þær eru samþykktar samhliða kauphækkunum. Af kaup- hækkunum leiðir sjálfkrafa verðhækkanir, þannig að vísi töluskrúfan fer í gang og vef- ur stöðugt upp á sig. En ef samningar eru gerðir til langs tíma án kauphækk- ana, getur auðvitað mjög kom ið til álita að verðtryggja kaupið. Á sama hátt er sjálf- sagt að hugleiða hvort unnt reynist með vinnuhagræð- ingu og betri vinnubrögðum að stytta vinnutíma án skerð- ingar kaups. Hin „sérstöku réttinda- og hagsmunamál al- þýðufólks“ eru auk þess mál, sem allir eru meira og minna sammála um, svo að unnt ætti að reynast að ná sam- komulagi, ef ekki verða gerð- ar kröfur um beinar kaup- hækkanir nú. Mbl. fagnar því ályktun ASÍ, ef hugur fylgir þá máli, sem menn vilja vona í lengstu lög. KRÍAN OG TJARNAR- HÓLMINN að er vel farið, að gerðar hafa verið ráðstafanir til þess, að tryggja óðalsrétt krí- unnar yfir Tjarnarhólmanum. Hún hefur undanfarin ár orð- ið fyrir miklu ónæði af völd- um hettumávs og fleiri stærri og aðgangsharðari fugla í þessum litla hólma, sem um langt skeið hefur verið höfuð- varpstöð hennar í höfuðborg- inni. Kríunni er jafnan fagn- að þegar hún kemur hingað norður langt sunnan úr lönd- um, svo að segja alltaf á ná- kvæmlega sama tíma. Þessi litli fugl finnur það á sér, þeg- ar hinu norræna myrkri tek- ur að létta norður við yzta haf. Þá yfirgefur hann hin suðrænu sólarlönd og stefnir í norðurátt, þar sem lítill hreiðurbolli bíður hans í Tjarnarhólmanum í Reykja- vík eða í eyjum og hólmum vestur við Breiðafjörð eða norður á Langanesi þar sem ríkir „nóttlaus voraldarver- öld“. Krían er einn af skemmti legustu fuglum hins íslenzka fuglaríkis. Hún er sérstaklega duglegur og harðfengur fugl, og hefur í fullu tré við sér miklu stærri og sterkari fugla. Yeldur þar miklu um samheldni hennar og félags- legur þroski. Fuglalífið við Tjörnina er borgarbúum mikill yndisauki. Af hálfu forráðamanna borg- arinnar hefur einnig mikið verið gert til þess að hlúa þar að fuglunum. Þess vegna una þeir sér líka sérstaklega vel í suðurenda Tjarnarinnar, þar sem mikið andavarp er á hverju vori. Börnin í borg- inni hafa yndi og gleði af því að skoða fuglalífið, og þeim tíma er vissulega vel varið, sem foreldrar eyða með börn- um sínum við að kynna þeim hina vængjuðu samborgara sína. Tjörnin er perla Reykja- víkur og fuglalífið þar á rík- an þátt í að skapa tengsl milli barnanna í borginni og hinn- ar lifandi náttúru. Þess vegna verður að varðveita fegurð hennar og 'gefa fólkinu sem bezt tækifæri til þess að njóta hennar. Bróðir Fabiolu, Jaime Mora de Aragon, píanóleikari (og kvikmyndaleikari íseinni tíð) er kvæntur saenskri konu, Birg- it Olsen, sem nú er stödd í Kali- forníu hjá vinkonu sinrti Maj- Britt, sem þekktust er sem eigin- kona Sammy Davies jr. Ingela hefur til þessa verið orðuð við Rex Gildo, og munu þau innan skamms leika saman i þýzkri kvikmynd. Bróðir Fabiolu Belgadrottn- ingar hefur lag á því að komast í blöðin, eins og sagt er. Hann skrifar nú brennheit ástarbréf til danskrar söngkonu, Ingela Branders, sem um þessar mund- ir heldur söngskemmtanir í Mal aga. Spönsk blöð herma að hann sé ástfanginn upp fyrir höfuð af hinum danska söngfugli, og belg ísk og þýzk blöð eru á sömu skoðun. Um fáa leikara hefur verið jafn mikið ritað og rætt og Eliza beth Taylor og Richard Burton í fréttunum Leslie Caron og eiginmaður hennar, Peter Hall, forstjóri ,,The Royal Shakespeare Theatre Company“ í London, hafa nú slit ið samvistum. Þau hafa verið gift í sjö ár og eiga tvö börn, sex ára son og fjögurra ára dótt- ur. síðustu mánuðina. Nú eru þau loksins gengin x það heilaga. Þar sem margir, einkum konur, munu hafa áhuga á því, hvernig Liz Taylor var klædd, þegar hún gekk upp að altarinu, birtum við meðfylgjandi mynd, sem tekin var af athöfninni. Brúðarskart Liz er all nýstárlegt. Hárfléttur hennar (sem voru keyptar frá Ítalíu) voru ívafðar hyasintum og maíklukkum, neðst var hnýtt gul slaufa. Kjóll hennar var gulur úr dhiffonefni, og 1 „Em* pire“-stíL lengur fyrir okkur að vera gift. Við erurn bæði mjög leið vegna þessarar óhjákvæmilegu ákvörð- unar.“ ★ 31. marz sl. lýsti kvikmyndaeft irlitið í Bretlandi því yfir, að kvikmyndin um Kristínu Keeler yrði ekki leyfð til sýningar þar í landi. Kvikmyndin er eins og kunnugt er tekin í Danmörku, pieð Yvonne Buckingham og John Barrymore jr. 1 aðalhlut- verunum. Hún var sýnd fyrir skömmu hér á landi. Hver vill kaupa brúðkaups- tertuna mína? spyr 19 ára göm- ul brezk stúlka, Greta White. Ég vil gjarnan selja hana. Kak- an er hjartalaga. Unnusti hennar hafði nýlega riftað trúlofun við hana, í annað sinn, daginn áður en halda átti brúðkaupið. Að vonum er Greta mædd yfir þessum ósköpum. Unn ustinn flaug samdægurs til Bandaríkjanna til móður sinnar og stjúpföðurs. Foreldrar hans skildu þegar hann var 5 ára gam all, og'hann segist ekki þora að giftast af ótta við að hjónabarxd hans fari einnig út um þúfur, og valda óbornum börnum sín- um óhamingju. Meðfylgjandi mynd er af Gretú og brúðkaúpstertunni.. Sænska óperusöngkonan Birgit Nilsson aflýsti fyrir skömmu söngskemmtun, sem hún hugðist halda í Jackson, Missisippi. Á» stæðan fyrir þessari breytni söngkonunnar var sú, að hún óskaði ekki eftir að koma fram á þeim stöðum, þar sem kynþátt- araðskilnaður ríkir. Söngkonunni var nefnilega sagt daginn fyrir söngskemmtun ina, að hún mætti búast við að verða fyrir truflunum af yö!d- um kynþáttaóláta. Hún hafði ákveðið að laiun hennar, sem hún hafði átt að fá fyrir söngskemmtunina í Jaok- son, rynni tii barnaheimi ia í borg inni. í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu um skilnaðinn segir svo: — Við höfum komizt að þeirri niður stöðu, að þar sem mismunandi listabrautir okkar hjóna liggja ekki saman, og við oft aðskilin vegna starfa okkar, sé ómögulegt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.