Morgunblaðið - 19.04.1964, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.04.1964, Blaðsíða 28
28 MORCU N BLAÐIÐ Sunnudagur 19. aprll 1964 fZFLIZABtTH TERR."A gert það af því að hann héldi, •ð hún hefði falið þar eitthvað, sem hann vildi finna. Segjum gvo, að hann hafi ekki fundið það, en hinsvegar fundið, annars staðar í húsinu, fötin af mann- inum, sem Lester Ballard hafði myrt. Setjum svo, að hann hafi aldrei afklætt lík Ballards en bara tekið úr vösum þess fölsku vegabréfin, farseðlana og rauðu vasabókina, og farið með það í gistihúsið sitt, ásamt fötunum af manninum, sem fyrst var myrt- ur. Setjum svo, að síðan hafi hann sýnt henni blóðugu fötin, til þess að hræða hana og sagt Cesare að vera sí og æ að setja rauðar geraníur hér og þar á leið hennar til að hræða hana enn meira en orðið var. Setjum svo, að hann hefði bara sýnt henni rauðu vasabókina í þeirri von, að hún gæti ráðið fyrir hann gátu tölunnar á síðustu blaðsíð- unni. Setjum svo, að leitin í her berginu hennar hefði verið gerð eftir vasabókinni? En alit í einu sá hún veilu í þessari röksemdarfærslu sinni. Það var ekki stór veila. Kannski ekki nóg til að rífa röksemd- irnar í tætlur, en þó nokkur. Því að fyrsti staðurinn til að leita að rauðu vasabókinni, voru vasar Lester Ballards. Stephen mundi hafa gert það og fundið bókina. Ef hann því hefði leitað í herberginu hennar, hlaut það að vera að einhverju öðru, og gat hann hafa haldið, að hún hefði eitthvað í fórum sínum, sem gæti verið nokkurs virði nema þá fyrir smáþjóf? Hugur hennar dvaldi við þessa smáveilu í röksemdum hennar, rétt eins og húai hefði verið ein- hver dýrgripur. Dýrgripur? Var hugsanlegt, að þar væri svarið? — En þessir dýrgripir voru fald- ir einhverssaðar í Suður-Ame- ríku, en ekki í svefnherberginu hennar, og mikilvægi vasabókar innar lá í þessu númeri, sem gaf til kynna, hvar þeir voru fald- ir. Hver sá, sem vissi nógu mik- ið af sannleikanum, til þess að sækjast eftir rauðu bókinni, færi ekki að leita að gimsteinum inn- an um kjólana hennar Ruth . . . En hver hafði þá tilgangurinn verið með þessari leit? Ruth sofnaði út frá hugleiðing unum og heilabrotunum um þetta. En hún svaf ekki lengi. Sólin var rétt komin á loft, þegar kail að var úti fyrir gluganum henn ar: — Ruth! Ertu þarna, Ruth? Þetta var karlmannsrödd. í svefnrofanuni hélt hún, að þetta væri Stephen. En þegar hún hljóp út að glugganum, sá hún, að það var Ranzi, sem stóð úti í garðinum, fyrir utan gluggann. Andlitið sem horfði upp til henn ar, var úrvinda af þreytu, og maðurinn var í miklum æsingi. — Komdu niður og lofaðu mér að tala við þig, bað hann. — Það er út af henni Marguerite. — Hefur nokkuð komið fyrir hana? — Ég veit ekki. Ég veit ekki, hvar hú.n er. Blessuð, komdu niður. Ruth fór frá glugganum, og mínútu seinna var hún komin út í útidyrnar í slopp. Ranzi stikaði órólegur fram og aftur í garðin- um, og neri saman höndum. Þeg- ar hann sá hana, flýtti hann sér til hennar. — Ég veit, að ég vakti þig, sagði hann. — Fyrirgefðu það. Ég kallaði beint á þig, af því að ég vildi ekki vekja fólkið. Geturðu fyrirgefið mér? Ruth gekk út í garðinn. Útiloft ið var hressandi eftir loftleysið inni. — Hvað er á seyði? sagði hún. — Ég veit það ekki, en þoldi ekki við lengur, svaraði Ranzi hás. — Ég veit, að hún kom að finna þig í gærkvöldi og datt í hug, að þú vissir eitthvað. Hún kom hingað, var það ekki? — Já. Ruth gekk að borðinu. Hefurðu ekki séð hana síðan? — Nei, hún kom ekki aftur. — Hún stóð héma ekki lengi við eftir að ég kom heim, sagði Ruth. — Sagði hún ekki, hvert hún væri að fara? — Mér datt ekki annað í hug en hún væri að fara heim. Síðan Ranzi kom þarna, daginn áður, var Ruth aldrei viss um, hvernig snúast skyldi við honum og tal- aði þvi varlega. Hann tók aftur að ganga um gólf. — Þegar hún fór, sagðist hún ekki verða nema klukkutíma í burtu, sagði hann. — Hún vildi ekki láta mig koma með sér. Ég vildi fara, en hún sagðist þurfa að spyrja þig um nokkuð, og þú mundir aldrei svara, ef ég væri á staðnum. Ég vissi, að þetta var ekki raunverulega ástæðan til þess, að hún vildi ekki hafa mig með sér. Það, sem hún vildi ekki láta mig heyra, var það, sem hún ætlaði að segja sjálf. Svo að ég lét hana fara og beið heima. Fyrst þegar hún kom ekki aftur, — Ég myndi ekki standa svona nálægt innganginum. hafði ég engar áhyggjur af því. Þá datt mér í hug að hringja og spyrja, hvort hún væri hérna enn. En þá datt mér í hug, að eft ir samtalið í gær, mundir þú ekki vera mér sérlega velviljuð, og mundir neita að svara mér. Auk þess var ég hræddur . . . hrædd ur við ýmislegt annað. Því beið ég. En hún kom ekki heim alla nóttina. Ég hef stikað fram og aftur eins og vitlaus maður, bölv- að henni og kallað á hana. Hvað hefur komið fyrir hana, Ruth? — Ég veit það ekki, Amedeo, — ég hef enga hugmynd um það. Ruth var setzt niður við borðið. — Hvað varstu hræddur við, svo að þú hringdir ekki í mig? BYLTINGIN I RUSSLANDI 1917 ALAN MOOREHEAD óvinahópinn í október, héldu herir stórhertogans ' sæmilega stöðu sinni fram á nýárið. En þá ruddust Þjóðverjar inn í Pól- land 1915 og tóku Varsjá. Lit- háen og Kúrland töpuðust bæði norðan til, og sunnan til misstu Rússar svo að segja allt austur- rískt land, sem þeir höfðu unnið. Þegar kom fram á sumarið 1915, hafði stórhertoginn hörfað einar 200 milur, og mannfall hans var áætlað fjórar milljónir — lík- lega mesta mannfall, sem sagan greinir frá. Nú var skipt um hlutverk, nú kom að Rússum að beiðast hjálpar hjá banda- mönnum sínum, og Bretar og Frakkar svöruðu bóninni með því að setja her á land á Galli- poliskaganum á Tyrklandi. Til- gangurinn með þessu var að brjótast áfram til Konstantínópel og taka síðan höndum saman við Rússa við Svartahaf. En frönsku og brezku hermennirnir voru stöðvaðir fáum mílum frá lend- ingarstöðum sínum á skaganum. Rússar höfðu, eins og hin ríkin, hafið styrjöldina í þeirri trú, að henni yrði lokið á nokkr um mánuðum með sigri þeirra, og þeir voru enn verr en hinir þess umkomnir að búa sig undir langan ófrið. í eðli sínu var rúss neski hermaðurinn forlagatrúar maður, og hin ákafa bardaga- gleði hans hvarf brátt fyrir tak markalausri örvæntingu, og hvað sem öðru leið, þá hafði stjórn hans ekki gert honum kleift að halda áfram bardag- anum í neinni von um sigur. Seint á árinu 1914, voru þeir orðnir næstu uppiskroppa með skotfæri, bæði fyrir fallbyssur og smærri vopn. Skammturinn af rifflum fyrir.sumar herdeild- irnar var ekki nema einn á hverja tíu menn, og ástandið á fren ri svæðunum var í fullkom- inni upplausn. Flóttafólk frá Póllandi flæktist fyrir á öllum vegum, járnbrautirnar voru alls ónógar til að taka við þessum mikla mannfjölda og oft voru særðir menn blátt áfram skildir eftir til að bíða dauða sins. Njósnarahræðsla, sem er glöggur vottur um uppgjafar- hug, greip Rússa allsstaðar, og sjálfur stórhertoginn ýtti undir hana. Þar eð nokkrir rússneskir gyðingar voru taldir hafa átt samvinnu Við Þjóðverja, taldi hann alla Gyðinga vera grun- samlega. Hann rak heilar sveitir þeirra út úr Póllandi og lét þá brjótast alla leið til Rússlands, eins og bezt gengi. Næstu/n milljón gyðingar voru þannig á flakki, og margir þeirra dóu úr hungri og kulda. Það var nú augljóst, að Þýzka- landskeisari hafði farið skyn- samlega að, er hann kom ófriðn- um af stað 1914. Herfræðingar hans höfðu reiknað það út, að ef franski herinn og sá rússneski fengju að vera í friði, hefðu þeir náð Ihámarksstyrk sínum 1917. Það hefði því verið stórhættu- legt að bíða, því að hlutfallslega talið fór herstyrk Þjóðverja hrak andi með ári hverju. „Nú eða aldrei“, hafði Þýzkalandskeisari skrifað út í röndina á einhverju opinlberu skjaili sínu, 1914, ag nú, 1915, sannaðist sú stefna hans, að minnsta kosti, hvað’ austurvíg- stöðvarnar snerti. Rússar voru lagðir á flótta fyrir alvöru. f Petrograd og Moskvu var enn ekki neitt uppnám orðið, en guð móður fólksins í stríðsbyrjun varð nú að víkja fyrir sívaxandi gremju gegn ríkisstjórninni. í febrúar 1915, þegar Dúman kom saman til skammvinnrar setu voru þingmennirnir orðnir býsna miklu kuldalegri í garð keisar- ans — og þegar þing kom aftur saman í ágúst, voru þeir bein- KALLI KÚREKI OeVIOUSLti YOU ARE STILL SUSPICIOUS.' HERE, MYCREDEMTIALS.- PROFESSOR OF eEOLOOY AMO ARCHEOLOO-Y, PROFESSOR. OFo' Teiknari; FRED HARMAN s — Þér eruð greinilega ekki á því að taka mig trúanlegan. Héma hafið þér pappír upp á þetta allt saman, sjáið þér: prófessor í fomleifafræði, pró- fessor í jarðfræði, prófessor í . . . •— Allt í lagi. Ég læt sannfærast. Komið þér þá og lítið á hvar við fund- um gullið. Við staðinn þar sem Kalli fann gulhð: — Já, þetta er dæmigerður fom- sögulegur árfarvegur, sem ef til vill hefur að geyma gullmola eða gull- sand á stöku stað. Aðalæðin gæti ver- ið hundruð mílna vegar héðan og hul in þykku berglagL — Eigið þér við að þessi gullfund- ur okkar sé ekki nema rétt eins og ghtti í gull í sáld gullleitarmannsins? — Það er einmitt það sem ég á við. línis fjandsamlegir. Það var ekki einasta, að þeir töldu styrjöld- inni illa stjórnað — því að það lá öllum í augum uppi — heldur var það sá útbreiddi grunur, að hirðin og nokkur hluti ríkis- stjórnarinnar hefði misst móð- inn, og væri jafnvel beinlínis sviksamlegur. Um þessar mund ir voru eitthvað tvær milljónir þýzkra manna eða af þýzkum uppruna í Rússlandi, og margir þessara manna gegndu stöðum í opinberum eða hálfopinberum stofnunum. Þeir stjórnuðu bönk um eða stórverzlunum. Þýzka- land var hvort sem var næsti ná granni, sem nokkuð kvað að, og í Petrograd töluðu margir þýzku eða hugsuðu á þýzka vísu. Mikið var um giftingar Þjóðverja inn í rússneskar aðalsættir, og mátti þar fyrst frægan telja keisaránn sjálfan. Og nú var almennt tal- ið, að áhrifaklíka þessa fólks, væri þarna ekki einasta sem njósnarar, heldur væri með ráða brugg um uppgjöf. Kópavogur Afgreiðsla Morgunblaðsins í Kópavogi er að Hlíðarvegi 63, sími 40748. Garðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, simi 51247. Hafnarfjörður Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Hafnarfjarðarkaupstað er að Arnarhrauni 14, simi 50374. Afgreiðslur blaðsins hafa með höndum alla þjónustu við kaupendur blaðsins og til þeirra skulu þeir snúa sér, er óska að gerast fastir kaupendur Morgunblaðs- ins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.