Morgunblaðið - 19.04.1964, Blaðsíða 18
1«
MORGU N BLAÐIÐ
Sunnudagur 20. apríl 1964.
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 17
þeim, sem þykjast bera hag
hinna lægst launuðu fyrir brjósti,
að snúast með fjandskap gegn
þessari tilraun til að bæta þeirra
hag. Sú varð þó raunin í kaup-
gjaldssamningunum í vetur. Þá
visuðu sömu aðilar alveg á bug
tillögum ríkisstjórnarinnar, sem
tryggt hefðu hinum lægst laun-
uðu raunverulegar kjarabætur,
án þess að hrinda af stað nýju
dýrtíðarflóði og magna verð-
bólguna.
! Svíþjóð samið um
8-9% kjarabætur
sem nást eiga á
tveimur árum
Eðvarð Sigurðsson sagði nú í
vikunni á Alþingi eitthvað á þá
leið, að atvinnurekendur hefðu
ekki áhuga fyrir hagræðingu
vinnu, vegna gróða þeirra af sí-
vaxandi verðbólgu. Ef hér fylg-
ir hugur máli, láta Eðvarð og
aðrir verkalýðsforingjar vonandi
ekki á sér standa um að taka nú
upp ný vinnubrögð til að hindra
verðbólguna og knýja fram
kjarabætur með vinnuhagræð-
ingu og öðrum úrræðum, sem að
haldi koma.
Hin nýja samþykkt Alþýðusam
bandsins sýnist við fljótlega at-
hugun gefa til kynna, að svo
kunni að vera. Að sjálfsögðu
verða þessir möguleikar kannað-
ir til hlítar, enda er vitað, að öll
þessi mál hafa verið til rækilegr-
ar íhugunar að undanförnu hjá
ríkisstjórninni og af hennar
hálfu farið fram viðtöl við ýmsa
aðila. Eftir að Alþýðusambands-
stjórnin hefur nú lýst skoðun
sinni, er líklegt, að formlegar
samningaviðræður hefjist sem
allra fyrst.
Allir vita, að Svíar kunna
manna bezt fótum sínum for-
ráð í efnahagsmálum. Þangað
er auðvelt að sækja fyrirmyndir
um nýgerða samninga. Á þá
samninga var drepið í síðasta
Reykjavíkurbréfi og hafði áður
verið um þá rætt, bæði í frétta-
dálkum og annars staðar í blað-
inu. Þeim frásögnum snýr Þjóð-
viljinn svo við að hann tvöfald-
ar þær hækkanir, sem átt hafa
sér stað, og segir, að samið hafi
verið um 16—17% aukin útgjöld
hjá atvinnurekendum á tveggja
ára bili. Hin raunverulegu út-
gjöld á tveggja ára tímanum
verða hins vegar einungis 8—9%
eftir að síðari hækkunin er
fram komin. Fróðlegt verður að
sjá, hvort Þjóðviljinn leiðréttir
rangsnúning sinn, vegna þess að
hann hafi verið byggður á mis-
skilningi, ef til vill afsakanleg-
um, eða heldur fast við hann.
Þá er ekki um að efast i hvaða
tilgangi rangfærslan hafi verið
viðhöfð.
ER EINA EINANGR-
UNARGLERIÐ, SEM
ER í RYÐFRÍUM ÖR-
YGGISSTÁLRAMMA.
POLYGLASS
EINANGRUNARGLER
ryður sér alls staðar
til rúms.
POLYGLASS
er Belgísk framleiðsla.
Tæknideild sími 1-16-20.
ALGJÖR NÝJUNG FRÁ ROOTES VERKSMIÐJUN UM: EINSTÆÐUR f GERÐ MINNI BIFREIÐA.
STANDARD HLUTIR í HILLMAN IMP. ERU M.A.
MIÐSTÖÐ — THRU FLOW-LOFTRÆSTIKERFI
RÚÐUSPRAUTUR — HURÐARLJÓS — TEPPI Á
GÓLFUM — TVÆR SÓLHLÍFAR — AÐALLJÓSA-
BLIKKARAR OG FESTINGAR FYRIR ÖRYGGIS-
BELTI.
FYRSTU BÍLARNIR VÆNTANLEGIR TIL LANDS-
INS Á MORGUN. — GETUM AFGREITT NOKKUA
BÍLA í MAÍ EF PANTAÐ ER STRAX.
LEITIÐ UPPLÝSINGA OG SKOÐIÐ ÞESSA
EINSTÆÐU BIFREIÐ ÁÐUR EN ÞIÐ
FESTIÐ KAl l* aNNARSSTAÐAR.
RAFTÆKNI HF.
Langholtsvegi 113 — Leugavegi 168.
Símar 20411 — 34402.
Nú er hægt að fá rúmgóða, þægilega, sparneytna og vel-
byggða, létta bifreið, sem hefur sömu kosti og útlit, sem
stór fjölskyldubifreið. Þetta hefur áunnizt með tilkomu hins
nýja HILLMANS IMP hinni einstæðu „compact“-bifreið, sem
er aðeins 3.53 m. á lengd, drifin nýrri léttri aluminium
„DIE-CAST“-vél aftan í, með mjög fullkomnum þar til gerð-
um gírkassa.
Hámarkshraði 120-kph. — Sparneytinn jafnvel á miklum
hraða.
IMP hefur alla kosti kraftmikils afturdrifs, fullkomið hlut-
fall milli þyngdar og aíls og fjölda annarra nýjunga.
HILLMAN IMP. HEFUR FENGIÐ FRÁBÆRA
DÓMA UM ALLAN HEIM:
í DAILY EXPRESS segir meðal annars:
„Ég fæ ekki séð hvernig
nokkur ökumaður getur
stjórnað betri sameiningu,
orku og nýtni, en í Hillman
IMP., einn hugvitsamlegasti
smábíll, sem framleiddur
hefur verið af brezka bíla-
iðnaðinum eða jafnvel í
heiminum“.
Dennis Holins.
DAILY EXPRESS