Morgunblaðið - 01.05.1964, Page 12
12
MOHCU N BLAÐIÐ
Föstudagur 1. maí 1964
— Á Kanaríeyjum
Framh. af bls. 10
en hún er mjög lík íslenaku
'glímunni. Glíma mun aðeins
finnast á Kanaríeyjum, Sviss,
Mongólíu og á íslandi, en þessar
þjóðir höcfðu engin samskipti sín
á milli svo vitað sé. Hugsanlega
hefur glírna orðið til á hverjum
stað eða þá ag eirJhver tengsli
hafa verið milli þjóðanná endur
fyrir löngu, sem ekki er kunnugt
um.
Frumhyggjar Kanaríeyja nefn
ast Guanchar. I>eir voru ljósir á
hörund og háir vexti og bjuggu
1 hellum í fjalishlíðunum fyrst
þegar vitað var. Ókunnugt er
hvaðan þeir eru komnir, helzt
talið að þeir séu afkomendur
Ijósasta Berbaþjóðflak'ksins í
Atlasfjöllum. Þó eru tii kenning-
ar um að þeir séu af genmönsk-
um stofni og gæti glíma hugsan-
lega stutt þá kenningu. Berg-
steinn fékk í ferðinni upplýsing-
ar um ýms glímu/brögð, sem not-
uð eru, og bar saman við þau
íslenzku. Glíma Kanaríeyjábúa
nefnist „la lueha“ og glíma
menn mest á hörðum sandi við
ströndina. Bkki eru notuð glímu-
belti heidur þröngar buxur nið-
ur að 'hnjám. Munu glímubrögð-
in vera mjög svipuð þeim er
notuð voru á íslandi fram að því
að síðustu aldar reglur voru upp
teknar. Ekiki tókst Bergsteini að
fá að sjá „la lucha“, því yfir-
leitt er það ekki opinber íþrótt
og mikið var um frídaga meðan
íslendingar dvöldu á Kanaríeyj-
um, páskadagar og 25 ára afmæli
spönsku byltingarinnar. Þó frétt-
um við, of seint, af lucha-keppni.
Frumbyggjar Kanaríeyja voru
fjallafóiik, svo sem fyrr er sagt,
og svo litlir sjófarendur að þeir
höfðu ekki samskipti sín á milli
á eyjunum. í fornum sögum er
talað um að sjófarendur frá
Fönikíu, Karþagó, Grikklandi og
Rómaveldi 'hafi komið þangað.
Rómverjar gáfu eyjunum nafnið
Kanaríeyjar eða Hundaeyjar,
því þar fundu þeir stóra villta
hunda, en á latínu heitir hundur
canis. Tákn eyjanna er því hund-
urinn. Kanarífuglar eiga þar ekki
hlut að máli, ef eirihverjum
kynni að detta það í hug. Að vísu
Það er ýmislegt fallegt og ódýrt hægt að kaupa á ferðalögum o<g íslendingar láta ekki sitt
eftir liggja. Hérna skoða nokkrir handunna dúka og prútta um verðið á þeim i bænum Teror
á Gran Canaría.
finnast þar litlir, grágulir og sagt hvað það hefur að geyma, nærri daglega. Stórskipið Queen
raddlausir fuglar, skyldir kanarí-
fuglunum, sem menn hafa í búri,
en gulu fuglarnir eru eingöngu
uppræktaðir frá Þýzikalandi.
Guandharnir stunduðu akur-
yrkju og höfðu sauðfé og geitur,
og eftir þá hafa fundizt ákaflega
haganlega mótuð leirtker og
fléttaðar mottur með listilegu
handbragði. Sýnishorn af þeim
má sjá í safninu í Las Palmas.
En þar er einnig skemmtilegt
safn af furðufiskum og ógrynni
af skordýrum og fiðrildum, sem
finnast á eyjunum.
Kastilíukonungur fék'k ágimd
á Kanaríeyjum á 14. öld og 1401
byrjar hann að sölsa undir sig
eyjarnar. Guanoharnir veittu
mótspyrnu og eyjarnar voru
ekki að fullu innlimaðar í ríki
Spánarkonungs fyrr en undir
stjórn Ferdinands og Isabellu
árið 1406. Frá Kánaríeyjum lagði
Kolumbus einmitt upp með
skipaflota sinn til fundar Amer-
íkú. í Las Palmas er stórt Kol-
umbusarsafn í fallegu gömlu
húsi, en ég get því miður ekki
Á ströndinni. Stella Gísladóttir,
sér úlfalda.
húsfrú af íslandi virðir fyrir
því eftir páskahelgilokunina var
safnið lokað vegna afmælis bylt-
ingarinnar og síðan vegna af-
mælis verndrdýrlings safnsins.
Það virðist því ekiki minna um
hátíðir hjá Kanaríeyjabúum en
ýmsum öðrum.
Athafnasöm og fögur
Annars er gaman að reika um
þessa stærstu borg á Kanarí-
eyjum án þess að skoða nokkuð
sérstakt. Hún teygir sig á sjö
hæðum meðfram 9 kim. langri
norðausturströndinni. Uppi á
suimum hæðunum eru glæsileg
vinnuhverfi, þar sem sjá má
fagrar veggjahleðsl'Ur, hin forna
list eyjabúa þannig notuð í
arkitektúr nýtíz'ku einbýlishúsa.
Annars staðar sjást hellisskútar
grafnir inn í hæðirnar og þvott-
ur fyrir framan, sem gefur til
kynna að þarna búi fólik eins
og refir í greni. En algengastir
eru þó litlir steinkum.baldar,
gluggalausir eða með hlerurn til
að halda sólahhitanum úti. íbúa-
talan í Las Palmas er 200 þús.
Fól'kið sem nú býr á eyjunm er
blanda af frumbyggjunum og
Spánverjum og talar spönsku.
Nyrsti hluti Las Palmas er í
rauninni eyjan Isleta, sem hefur
verið landfest með því að fylla
upp í 'eiðið yfir á Las Palmas
og við þag fást norðammegin
góðar. baðstrendur með fíngerð-
'um sandi. Hafnarmegin á eyðinu
stendur hótelið, þar sem fslend-
ingarnir bjuggu um páskana, en
höfnin Puerta de la Luz er talin
þriðja athafnamesta höfn ver-
aldar. Það er reyndar ekki undar
legt„ þar sem sjóleiðin milli
Evrópu, fjarlægari Austurlanda,
Afríku og Ameríku liggur fram-
hjá eyjunum. Blöstu hinir 10
fcm. löngu hafnargarðar við
gestum úr gluggum hótelsins og
frá sundlauginni uppi á þaki
með nýju skemmtiferðaskipi
Mary setti sinn svip á útsýnið
í hálfan annan dag. Þeir sem
bjuggu hinum megin í hótelinu
'gátu aftur á móti fylgzt með
hinu fjöruga athafnalífi á þökum
húsanna, þar sem íbúarnir hafa
geitur sínar og hænsni, þvo
þvotta sína og sitja í sólinni.
Það er því nóg við að vera í
Las Palmas og Gran Canaria
fyrir íslendinga í fríL Uver
eyddi tímanum eins og hann
helzt kaus í það skiptið. Páska-
ferðin var ekki Skipulögð eins
og hópferðir, þar sem ferðafólk-
ið er • rekið áfram eins og hjörð
með fyrirskipunum og reglum,
„nú skal þetta gert og svo hitt“.
Eftir að á hótelið var kornið,
hafði hver sína 'hentisemi í eina
viku, en var gefinn kostur á
nokkrum skoðunarferðum og
næturkl'úbbaferð meg fararstjór-
unum og jafnvel hægt að ákveða
þátttöku I þeim á seinustu
stundu. Á kvöldin höfðu þeir
sem kærðu sig um, úrvai af
skemmtistöðum að heimsæfcja £
borginni, en aðrir létu sér nægja
kaffi eða glas á barnum í hótel-
inu við píanómúsik. Það var
gott að hafa með í ferðinni lista-
menn. Þau Sigurveig Hjaltested
og Skúli Halldórsson sungu og
lelku eitt kvöldið og vakti þa<5
slí'ka hrifningu að Aurora Ponsi,
aðaldansmær ballettsins í Barce-
lona, sem þarna var viðstödd,
vildi ek'ki láta sitt eftir liggja,
sparkaði af sér skónum, tók
kastanjetturnar upp úr tösku
sinni og dansaði við píanóundir-
leik. Var það stórkotleg sýning
og ógleymanleg. þeim sem vóru
svo heppnir að vera heima það
kvöldið.
Stanzað í Casablanca
Að sjö dögum liðnum var aftura
haldið af stað -í dönsku flugvél-
inni, sem beið, áleiðis til Mall-
orca og þar sem meiri hluti far-
þega óskaði eftir að sjá Casa-
blanca, var lent þar og eytt
nokkrum tímum í þessari Afríku
borg, ekið meðfram Atlantsihafs-
ströndinni, sem fræg er fyrir
glæsilega skemmtistaði og villur
með útsýni fyrir hvítfextar öld-
ur og staldrað við á Araba-
markaðinum, þar sem landarnir
fcunnu vel að meta söluvarning-
inn, alls konar handunnar leður-
vörur og teppi. En Casablanca
hefur tekið framförum sem aðrar
borgir heims og er núna stór
nýtízkuleg hei:ms<borg með skýja-
kljúfum og mörg ný mannvirki.
og því lítið óvenjulegt að sjá á
akstri um göturnar fyrir þá sem
ferðazt hafa um stórborgir. Þó
sjást margar konur enn með
blæjur fyrir andlitinu í umferð-
inni. Hefði verið gaman að geta
skoðað eldri borgir lengra inni
í landi í Marocco. En dvölin var
aðeins nokkrir tírnar og síðan
haldið aftur af stað til Mallorca,
þar sem dvalið var í 4 daga.
Verður kannski tækifæri til að
segja frá þeirri yndilegu eyju
síðar. — E. Pá.
Yngsti og elzti þátttakandinn, Kristjana Elín t ára og MeU
Lund, 76 ára.
Vestmannaeyja/Hornafjarðarferð
M/S HEKLU UM HVÍTASUNNUNA.
Frá Reykjavík föstudaginn 15/5 • kl. 23.00
Til Vestmannaeyja laugardaginn 16/5 kl. 08.00
Frá Vestmarfnaeyjum laugardaginn 16/5 kl. 22.00
Til Hornafjarðar hvítasunnudag 17/5 kl. 11.00
Frá Hornafirði hvítnsunnudag 17/5 kl. 23.30
Til Reykjavíkur 2. í hvítasunnu 18/5 kl. 19.30
í Vestmannaeyjum verður árdegis skipulögð kynnisferð
um Heimaey fyrir þá, sem þess óska, ekið á Stórhöfða og
Herjólfsdal undir stjórn leiðsögumanns, en síðdegis verður
siglt kringum Eyjarnar og að Surtsey til þess að skoða
hana, en að því búnu komið inn í höfnina á ný, enda kunna
að verða teknir aukafarþegar í Vestmannaeyjum í Surts-
eyjarferðina.
Á leið til Hornafjarðar mun siglt nálægt Dyrhólaey til
þess að skoða hana.
í Hornafirði er ætlunin að skipuleggja kynnisferðir með
leiðsögu sem hér greinir:
1. í Almannaskarð fyrir Hádegisverð (ca. lVz klst.).
1 2. Að JökuLsá á Breiðamerkursandi (í nánd við Öræfa-
jökul) síðdegis (ca. 3% — 4 klst.).
Á bakaleið mun verða siglt nálægt Surtsey, ef það þykir
æskilekt vegna breyttra ástæðna.
Fargjöld í skipinu með 1. fl. fæði og þjónustugjöldum eru
áætluð frá kr. 1400.— til kr. 1950.— á mann.
Kynnisferð í Vestmannaeyjum 60 kr. og báðar kynnis-
ferðirnar i Hornafirði 240 kr. SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS.
1. maí ávarp
launþeganna i Hafnarfirði
UM gjörvallan heim fylkir verka
Iýðurinn liði 1. maí, til þess að
treysta samtök sín. Til að fagna
unnum sigrum og brýna viljann
til nýrra átaka fyrir bættu þjóð-
skipulagi, auknum lýðréttindum
og framsókn hins vinnandi fólks.
Frá upphafi hefur 1. maí verið
helgaður ákveðnum baráttumál-
um og þá á hverjum tíma helzt
þeim sem mestan þátt eiga í lífs-
afkomu alþýðunnar.
Að þessu sinni hlýtur þróun
sú sem orðið hefur í launamálun-
um að móta kröfur dagsins.
í desember sl. var háð löng og
hörð barátta til þess að ná fram
kauphækkunum til þess að vega
nokkuð upp á móti dýrtíð þeirri
sem áður var skollin á. Nú er sú
kauphækkun að engu orðin
vegna aukningar dýrtíðarinnar.
Er hér um endurtekningu að
ræða á þróun síðustu ára. Kaup-
hækkanirnar hafa ávallt orðið
minni en verðhækkanirnar og
komið eftir á.
í kjölfar þessa hefur svo kom-
ið hin gegndarlausa vinnuþrælk-
un með allt of löngum vinnudegi.
Við þetta ástand getur verka-
lýðshreyfingin ekki unað, og
krefst því þ'ess:
Að leiðrétting verðl gerð á
kaupmætti launa.
Að laun verði verðtryggð.
Að vaxandi þjóðartekjur og
hækkað verð á útflutnings-
afurðum landsmanna, verði
notað til þess að tryggja
raunhæfar kjarabætur.
Að vinnudagurinn verði stytt-
ur án skerðingar heildar-
tekna.
Að stöðvuð verði hin óheilla-
vænlega verðbólguþróun.
Að sumarleyfi verði f jórar vik-
ur.
Hafnfirzk alþýða! Minnumst
þess að án baráttu vinnst engina
sigur.
Leggjum til hliðar allar innri
deilur og sameinumst í því að
beita öllum mætti samtakanna
til þess að tryggja verkalýðnum
þau laun fyrir 44 stunda vinnu-
viku, að hægt sé að lifa mann-
sæmandi lífi.