Morgunblaðið - 28.05.1964, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.05.1964, Qupperneq 1
Fímmtud. 28. maí /964 II. blab „El Cordobés" og Geraldine Chaplin Svona er að horfa á nautaat í fyrsta sinn á ævinni. Geral- dine Chaplin fylgist með af tífi og sál — og var með 39 stiga hita þegar hún kom heim. „Sjáið þið til“, segir nauta- baninn, sem allt ætiar um koll að keyra hvert sem hann fer......ég fer ekki til Madrid til þess að standa mig bara eins og ég stóð mig í dag. Þegar ég fer til Madrid vcrð ég fjórum sinnum betri. í Madrid verður „E1 Cordo- bés“ ekki einn heldur fjór- efldur. Þá s'kal ég gera betur en nokkru sinni og beíur en nokkur annar. Þá geng ég fram af sjálfum mér og öil- um hinum .... Serranía . . . sin pensar que por mi suerte . . . siempre en peligro de muerte . . . está mi vida .... Manuel Benítez, Manolo vina sinna, syngur illa og hann kann heldur ekki að fara með gítarinn svo vel sé -— en það er hljótt í kringum hann þegar hann raular vís- una um dauðann, sem alltaf situr um líf hans .... Intermezzo sevillano. Geraldine 19*ára dóttir Charlie Chaplin kom til Se- villa með ballettflokki Raimundo de Larrain, sem sýna átti „Öskubusku“-ball- ettinn á páskahátíðinni miklu í borginni á bökkum Guadal- quivir. Og svo var henni boð- ið á nautat .... Nautabaninn kom inn og var ákaft fagnað . . . það er „E1 Cordobés“ sögðu menn og Geraldine var starsýnt á broshýran kappann og lið hans .... hún hafði aldrei verið við nautat áður. En það voru fleiri en Geraldine, sem ráku upp stór augu þegar „E1 Cordobés" tók ofan skotthúf- una nautabanans, fleygði henni beint í fang henni. Ava Gardner, sem löngum hefur dáðst að nautaati og oft verið orðuð við iðkendur þessarar íþróttar, sat skammt frá og flestir bjuggust við að montera nautabanans og heiðurinn af bardaganum félli henni í skaut. Geraldine greip húfuna og gætti vand- lega. Það er sagt að í Sevilla séu nautin grimmari en annars staðar og stafi það af því að þau eigi þar lengri leið að fara úr krónni sem þau eru geymd í og út á leikvanginn. En hvort sem það nú var þessvegna eða einhvers ann- ars þá stóðu nautin sig með stakri prýði þennan daginn og banamaður þeirra fékk í sigurlaun bæði eyrun og halann af andstæðingum sín- um en slíkt og þvílíkt hefur ekki komið fyrir í Sevilla nema fimm sinnum áður. Geraldine fylgdist með af lífi og sál enda henni ætlaður heiðurinn ef vel gengi. Hún ,lifði sig svo inn í það sem fram fór að þegar hún kom heim var hún með 39 stiga hita og varð að fara beint í rúmið. En „E1 Cordobés“ heimti aftur stúlkuna sem hann barðist svo frækilega fyrir, í síðdegisboði daginn eftir og þá sleppti hann henni heldur ekki úr augsýn. Siempre en peligro de muerte .... Og svo fór Manolo til Madrid. 20. mai stóðu menn á öndinni í Las Ventas, leik- vanginum sem ræður úrslit- um um gengi nautabananna. „E1 Cordo'bés" geistist þar fram gegn nautinu 1 og viidi efna orð sín frá því forðum, að ganga fram af sér og öðr- um .... Manuel Benitez lék sér að bola þannig að hinir ströngu gagnrýnendur Mad- rid gátu ekki frekar staðizt hann en kollegar þeirra ann- ars staðar, jafnvel þó liann léki á sjálfs sín máta eins og alltaf fylgdi engum „skóla" og engri hefð. Manolo brosti sigri hrósandi og leiddi bola Framhald á bls. 2. • •• • • • .. •: : :-x-:-:-:::->:-:.:.-.- • '• • •• ••• •.••.•:<•••:•••:•:•:•:•••• • Manuel Benítez, sem kallaður hefur verið „el torero eléctrico" = qg „Segullinn“ af því hve hann dregur á.horfendur að leik- g vanginiun, í velheppnuðum „pase de pecho". E= lllli. iiiiiiiimiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiminiiiiiiiiiimiuwiiim!tiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiii;miiiiiiiiiiiiimiiiini Nautabaninn og ballett dansmeyjan „E1 brindis" — Nautabaninn kastar skotthúfu sinni, monterunni, í fang Geraldine Chaplin. Þetta var í fyrsta sinn sem „E1 Cordobés“ sýndi konu þann sóma að helga henni naut. Og það var mál manna að sjaldan hefði nautabaninn staðið sig með slíkum glæsibrag og þennan dag í Sevilla þegar hún horfði á. HVERS VEGNA ferðu ekki til Madrid, Manolo . . . í Mad- rid er til mikils að vinna, Manolo . . . . í Madrid bíður frægðin, Manolo. . . . Þetta sögðu menn í septem- ber i fyrra. En Manolo, Manutíl Benitez, sem kennir s'g við ættborg sína og kallar »ig „E1 Cordo- bés“ vildi ekki fara til Mad- rid þá alveg strax. Hann fór samt til Valladolid, sem er nokkuð nærri og hann fór til Frakklands og hann fór víða um Spán ....

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.