Morgunblaðið - 03.07.1964, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.07.1964, Qupperneq 6
6 MORCU NBLADIÐ Föstudasjur 3. júlí 19S4 ÚTVARP REYKJAVÍK Á sunnudagsmorgun 21. júní var útvarpað messu, sem séra ! Felix Ólafsson flutti í dóm- kirkjunni. Annars var ég held- ur slyppifengur á útvarspefni þennan dag. Heyrði þó Jón skáld úr Vör lesa óprentuð ljóð um kvöldið. Var lítt skeytt rími og stuðlum í þeim flestum, en þó virtist ekki vera atom- stíll, nema á fáum þeirra. Á mánudagskvö'.d talaði Stein dór Steindórsson, menntaskóla- kennari á Akureyri, uim daginn og veginn. Var það hið ágaet- asta erindi. Einkum var athyglis vert, er hann ræddi um skóia- mál. „Erum við & ekki að gerast : of miklir þræl-|§| ar prófanna?“i|? w spurði Stein-'M * dór. Hannp sagði, að þeirri skoðun ykist víða fylgi að leggja minni á- herslu á próf en áður, eða Steindór jafnvel fella þau alveg nið- ur. Væru meðail annars Svíar í hópi þeirra, sem íhuguðu að leggja niður próf í vissum skól- um. Steindór stakk Upp á því að láta einkunnargjaifir kennara koma í stað prófanna, og yrði þá jafnframt að leggja áherzlu á, að kennararnir fengju sem bezta undirstöðumenntun í kennslu. Steindór var trúaður á framtíðina. Hann hefur ekki passað í kramið hjá þeim, sem fá „kompleksa“sótt, ef þeir heyra minnzt á, að unnt sé að bæta iheiminn. ,,Án stórra drauma um fram- tíð vora fæst enginn sigur“ sagði Steindór. Sennilega á það nokkuð langt í land, að talið verði kleyft að fella niður með öllu próf i skóí- um hérlendis. En auðvitað er próf ekkert takmark í sjálfu sér, og það happdrættis snið, sem oft er á þeim haft, er harla írumstætt og enginn einhlýtur þekkingarmælir, síst af öllu, að þar reyni nægjanlega oft á sjálf stæða dómgreind nemendanna. Er ekki ólíklegt, að skóVamir finni a.m.k. eitthvert annað form, til að kanna þekkingu nemenda í framtíðinni. Síðar á mánudagsvöld var þátturinn „Á blaðamannafundi". Kristján Albertsson, rithöfund- ur, svaraði spurningum, en spyrjendur voru Halldór Blön- dal, Sigurður A. Magnússon og Þorsteinn Ó. Thorarensen, auk fundarstjóra Dr. Gunnars G. Schram. Tekin var til umræðu ævisaga Hannesar Hafstein eft- ir Kristján og þá um leið Upp- kastið fræga frá 1908 og fleiri viðkvæm mál. Blaðamannafundur þessi ein- kenndist af snarpri höggorustu miili Þorsteins Ó. Thorarensen og Kristjáns Albertssonar. Sig- urður fylgdi Kristjáni eindreg- ið að málum, en fékk fá tæki- færi til að láta ljós sitt skína, því Kristján var svo ákafur jáfnt í sókn sem vörn að hann neytti lítt aðstoðar fylgdar- manns síns. Halldór Biöndal fylgdi Þorsteini að málum og virtust margar athugasemdir hans vel grundaðar, en hann skorti mjög maelsku á við þá Þorstein og Kristján og var því ekki nógu vígfimur til að „slá í gegn“. Þeir Kristján og Sigurður voru sammála um það, að hetfði Uppkastið verið samþykkt, hefð um við þar með fengið allt það frelsi, sem við hetfðum ráðið við. Halldór Blöndal spurði Kristj án eitt sinn, hvernig við hefð- um getað náð algjöru sjálfstæfði þar á meðal slitið konungssam- bandi við Dani, með stjórnskipu legum hætti, án samþykkis Dan® ef Uppkastið hefði verið sam- þykkt. Kristján vék sér fimlega undan og sagði, að ekkert væri eilíft, sem stæði í lögum. Taldi hann fjarri lagi, að Danir hefðu neitað okkur um algjöran skiln- að, ef á það hefði reynt, 25 árum eftir samþykkt Uppkasts- ins. Maður gat þá varla láð Þor- steini, þótt hann spyrði, hvort það hefði þá skipt nokkru máli, hvort Uppkastið var fellt eða samþykkt. Hefðu ekki Danir alla vega veitt okkur futít sjálf- stæði? Þegar rætt v«»r um Hann- es Hafstein, dró Kristján í efa, að við hefð- um fengið heima stjórn 1904, ef Hannesar hafði ekki not- ið við. Ekki vildi Þor steinn . sam- þykkja það álit. Taldi hann jafnvel, að lands- höfðingjavaldið kynni að hafa teflt Hannesi fram, til að forð- ast að skeleggari maður settist í ráðherrastólinn. Sú tilgáta er ekki aðlaðandi fyrir þá, sem telja sig mesta að- dáendur Hannesar Hafstein og iíkl.ega hefðu nútímamenn aldrei borið hana fram, ef Sigurður A. Magnússon hefði ekki skrifað hinn fræga ritdóm sinn um bók Kristjáns Albertssonar. (Sjá Morgunblaðið 22. des. 1963). Þessi tilgáta er nefnilega eins Kristján konar andsvar við því, er Sig- urður A. Magnússon, í krafti hinnar nýskriifuðu æfisögu, líkti andstæðingum Uppkastsins við morðingja, leiktrúða, línudans- ara, og kann ég ekki að telja allan skammaryrðalagerinn. Tilgátan um, að óþjóðleg öfl haifi á einihvern hátt stutt Hann es Hafstein hefur að vísu ekki verið sett fram með jafn ofsa- fengnum hætti, en hún er eigi að síður harla ósennileg og lítil fremd fyrir okkur landa hans, að þeirri skoðun sé haldið á. lofti. En líklega getur svo farið, að æfisaga Hannesar Hafstein eftir Kristján Albertsson, sem vafa- laust er á margan hátt fróðleg og góð bók, verði óbeint til þess að draga, fyrir sjónum sumra manna, eitthvað úr þeim Ijóma, sem staðið hefur um þennan mikilhæfa hugsjónamann, stjórn málamann og skáld. Má kalla það kaldhæðni ör- laganna. Þetta var síðasti þátturinn „Á blaðamannafundi“ að sinni. Munu margir sakna hans, því hann hefur jafnan verið einn fróðlegasti og fjörugasti þátt- ur dagskrárinnar. Á þriðju- dagskvöld flutti Guðmundur Sveinsson, skóla stjóri erindi sem hann nefndi: „Kenn ingar Sorok- ins og menn- ing Vestur- landa“. Soro- kin þessi er rússnesk banda rískur. Hann var fyrrum prófessor við Moskvuháskóla, en var vísað úr landi eftir byiitinguna, og var síðar prófessor við Harwardhá- skóla um alllangt skeið. Við- fangsefni hans voru einkum menningarsaga og þjóðfélags- fræði. Hann skipti menningunni í þrjá flokka: hugmenningu, holds menningu og göfgunarmenningu. í síðara erindi sínu kvaðst Guð- Guðmundur mundur mundu ræða líkurnar, sem Sorokin teldi fyrir því, að ný kristin hámenning mundi ná að þroskast á Vesturlöndum í náinni framtíð. Þetta kvöld hófst einnig fram haldsleikrit: „Umhverfis jörðina á 80 dögum“, eftir Jules Verne og Tommy Tweed. Var leikritið áður flutt í útvarpið veturinn 1959-1960. Flestir eldri menn munu kannst við hina frægu sögu Vernes, sem leikritið er gert eftir. Á miðvikudagskvöld var með- al annars útvarpað „Jónsmessu- hátíð bænda“. Var það dagskrá tekin saman af Agnari Guðna- syni. Voru þar m.a. fróðleg við- töl við bændur og búandkonur. Skemmtileg var frásögn Baldurs Baldvinssonar, bónda á Ófeigs- stöðum, af því er hann hélt til útlanda í fyrsta sinn á æfinni, en það var síðastliðinn vetur. Héf-t hann til Þýzkalands, því það land fannst honum forvitni- legast að kanna vegna hinna mikilfenglegu og heimssögulegu atburða, sem þar áttu rætur sínar bæði fyrr á tímum og á seinni áratugum. Þetta var í heild mjög sikemmtilegur dag- skrárþáttur. Á fimtudagskvöld flutti Há- kon Guðmundsson, hæstaréttar- ritari, þáttinn „Af vettvangi dómsmálanno". Hann ræddi að þessu sinni einkum það at- riði í lögum, er menn verða bótaskildir fyrir tjón, er menn hafa alls ekki valdið sjáífir, með aðgerðum eða aðgerðar- leysi. Sú laigagrein í skaðabóta réttinum byggist á hinni svo- nefndu „húsbóndaábyrgð“, en samkvæmt henni ber atvinuveit andi í mörgum tilvikum ábyrgð á tjóni, sem starfsmaður í þjón ustu hans kann að valda með aðgerðum sínum eða vanrækslu. Þetta kvöld hleypti Ævar Kvaran, leikari, nýjum þætti af stokkunum, sem hann nefnir: „Á tíundu stund“. Fjallaði hann að þessu sinni mest um leiklist, sér í lagi enska leiklist og Shakespeare. Þá flutti séra Sigurður Ein- arsson fyrri hluta smásögu, sem hann nefnir „Augun í myrkr- inu“. Lauk hann sögunni á föstudagskvöldið. Sagan fjallar einkum um dul- arvegi ástarinnar um mannleg hjörtu. Hún er rituð af næmri skáldlegri skynjun og hlýrri samúð með duttlungum mann- legra tilfinninga. Sögunni lauk n>eð þessari setningu: „En dut- arfytlzt af öllu er mannlegt hjarta í veikleika sínum og styrk.“ Af öðru efni ^ .. á föstudags- kvöldið má nefna mjög fróð £ legt erindi, ec | Hlynur &.*''*'* . « Sig- tryggsson, veð- urstof ust j óri, flutti „Um jarð skjálfta og gerð jarðarinnar.“ Hlynur Skýrði hann meðal annara frá hinum miklu jarðskjálftum á Suður- landi 1784 og 1789, en þeir áttu meðal annars þátt í því að bisk- up flýði frá Skálholti og skóla- haid þar lagðist niður og lög- rétta flýði frá Þingvöllum. Þá talaði hann um ýmsa erlenda jarðskjálft'a, en jarðökjáliftar hérlendis hafa verið næsta smávægilegir miðað við stærstu erlenda jarðskjálfta. Síðari hluta erindis síns flytur Hlynur föstudaginn 3. júlí. Dagskráin um sumardvalar- starfsemi Mæðrastvrksnefndíar- innar í Keykjavík, sem flutt var á föstudagskvöldið var mjög athyglisverð. Þeir Jónas Jónasson og Jakob Jónasson, geðsjúkdómalæknir „slógu í gegn“ í vikulokin á laugardaginn. T.d. spurði Jónas lækninn, hvort það væri rétt, að allir menn' væru eitthvað skrýtnir. Það sagði læknirinn, að ylti að sjálfsögðu á því, hvað menn méintu með orðinu skrýt- inn. Hann sagðist persónulega telja það kost, að einstakl.in.garnir væru ekki allir steyptir í sama mótið og, ef til vill, ættum við íslendingar tiltölulega meira af „skrítnum'* mönnum en aðrar þjóðir. Þannig byggðist t.d. hum or okkar að miklu leyti á sögum um skrítna menn. Aðspurður um það, hvort tauga — og geðsjúkdómar leit- uðu meira á konur en karla, svaraði Jakob því, að þessir sjúkdómar mundu leita nokkuð jafnt á bæði kynin, en hins vegar leituðu konur meira tfll lækna en karlar. Karlmenn finndu sér fremur afþreyingu i einhverju öðru, svo sem til dæm is drykkjuskap eða pólitík. Hann sagði, að yfirleitt væiri mun Framh. á bls. 17 Meiri rigning Þetta er nú meiri rigningin a.lla tíð. Vonandi verður þetta ekki óslitið rigningarsumar, eins og hér um árið, þegar bændur sunnanlands náðu ek'ki inn tuggu af heyi fyrr en kom ið var fram á haust — og sunn lendingar urðu að fara norður jriir heiðar til þess að sleikja sólina. í næstu viku er víst von á erlendu skemmtiferðaskipi og þá getur maður víst búizt við skýfalli að vanda. Síðan koma fleiri skip sennilega meiri rigning. Verðlausir víxlar Mér er sagt að verðlausir víxlar hrúist upp hjá lögfræð- ingum þessa dagana, fyrst og fremst vegna sölu á bílum. Ýmsir menn munu iðka að kaupa bíla með lítilli útborgun en samþykkja víxla fyrir eftir- stöðvunum. Síðan fara þeir og selja bílinn með allmikilli út- borgun, en greiða svo aldrei víxilskuldirnar. Ég er ekki að segja að allir þeir, sem kaupa bíla á þennan hátt, hagi sér þannig. Því fer fjarri. En brögð munu hins vegar vera ótrúleg mikil að slíku. Flest heiðarlegt fólk lítur á víxla á sama hátt og beinharða peninga, enda ættu víxlar að vera fullgildir peningar. En hver víxill er ekki meira virði en maðurinn, sem skrifað hefur nafnið sitt til samþykktar — og þessa dagana virðast margir menn vera harla lítils virði. Menn, sem iðka þessa viðskipta hætti, eru eignalausir — eða hafa látið skrá eignir 'sínar á nafn eiginkonu, eða einhvers annars, og þess vegna er ek'ki hægt að ná neinu af þeim upp í vangoldna skuld. Fólk, sem selur bíla og aðrar fasteignir ætti jafnan að ganga úr skugga um að sá, sem kaup- ir og borgar með víxlum, sé trúverðugur maður — eða að halda veði í eigninni þar til skuldin er að fullu goldin. Þetta er vinsamleg ábending, sem lög fræðingur einn bað mig að koma á framfæri. Hann segist vera að kafna í þessari víxla- hrúgu — og kenna mjög í brjóst um fólkið, sem kemur með alla þessa verðlausu víxla. Hugvckjan Svo kemur hér stutt bréf frá lesanda, sem fer snem-ma á fæt- ur á hverjum morgni og gleym ir aldrei að opna útvarpið: „Það er vissulega rétt, sem Velvakandi sagði þann 30. júní um morgunhugvekjur séra Sig- urðar Hauks Guðjónssonar. Klerkur ræddi margvísleg vandamál, sem steðja, og hugs- anlegar leiðir til úrbóta. Bænir hans voru fluttar á fögru máli þrungnar af kærleika og samúð til allra manna. Af hinum ungu prestum borgarinnar hafa fáir í útvarpið komið, sem betra er að hlusta á en séra Sigurð Hauik Guðjónsson, hinn frjáls- lynda og víðsýna kennimann. Hafi hann mikla þökk fyrir sitt mikla spekimál." M. " Sjálfvirka þvottavélin LAVAMAT „n#va 64“ Fullkomnari en nokrku sinni. Óbreytt verð. AEG-umboðið Söluumboð: HÚSrRÝBI h.f. Sími 20440 og 20441 l

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.