Morgunblaðið - 03.07.1964, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.07.1964, Qupperneq 8
8 MORGU N BLAÐIÐ Föstudagi^r 3. júlí 1964 Borgarstjórinn setur samþykkt unt skipulagsnefnd borgarinnar Á FUNDI borffarstjórnar Reykja- víkur i ;{®er var sett samþykkt um skipulag'snefnd Revkjavikur, sem vera skal borgaryfirvöldum til rádunev tis um skipulagsmál. En skipulagsuppdriettir þurfa að hljóta endanlegt samþ.vkki borg- arráðs og borgarstjómar, eins og verið hefur til þessa. Mun skipu- lagsnefndin fara með yfirstjórn skipulagsdeildar borgarinnar í umboði borgarráðs og í samráði við borgarverkfræðing, en borg- arstjórn skipai skipulagsstjóra, sem vera skal arkitekt, og á hann að hafa með höndum dag- lega stjórn skipulagsdeildar und- ir yfirstjórn skipulagsnefndar og borgarverkfræðings. Geir Hallgrimsson borgarstjóri skýrði efni samþykktarinnar á borgarstjórnarfundmum í gær. Skipun nefndarinnar verður á þann hátt, að í henni skulu eiga sæti borgarstjóy eða fulltrúi, sem hann skipar af sinni hálfu í nefndina, borgarverkfráeðingur, tveir menn tiínefndir af skipu- lagsstjóra ríkisins og þrír menn kosnir hlutfallskosningu af borg- anstjórn, þannig að alls verður nefndin skipuð sjö mönnum. Er borgarstjóri formaður skipulags- nefndar eða sá, er hann Skipa-r til að gegna íormennsku í sinn stað, en yfirleitt tilnefnir borgar- stjóri sérstaka menn til að taka sæti sitt í slikum nefndum á veig- um borgarinnar. Borgarstjóri kvað samþykkt þessa gerða á grundvelli hinna nýju skípulagslaga, sem sam- þykkt voru á síðasta þingi. Að vísu eru þar ekki nein fyrirmæli, sem skylda sveitarfélögin til að setja slíkar skipulagsnefndir á stofn. En borgarstjóri benti á, að hér í Reykjavík. þar sem sérstök skipulagsdeild er starfrækt, væri nauðsynlegt a?> hafa skipulags- nefnd, er færi með yfirstjórn hennar. Ástæðuna til fyrirmælarma um tiilnefningu tveggja nefndar- manna af hálfu skipulagsstjórnar ríkisins kvað borgarstjóri þá, að það væri fyrst og fremst til hæ.gð arauka að iiaff. fulltrúa hennar með í ráðum frá upphafi, þar sem hún verður að •lokum að samþykkja alla skipulagsupp- drætt/i. Borgarráðsrnenn og borgarfull trúar voru sammála um efni samþykktariiinar í öllum megin- atriðum að öðru leyti en því, að Guðmundur Vigfússon (K) bar fram tillögu um það í borgarráði, sem hann endurflutti í borgar- stjórn, að hinir tveir fulltrúar skipulagsstjórna ríkisins og hinir þrír nefndarmenn, sem kosnir skulu af 'oorgarstjórn, skyldu vera arkitektar. Taldi borgar- stjóri ekki ástæðu til þess að gera þetta beinlínis að skilyrði. Bæði væri það, að arkitektar mundu að siálfsögðu vinna að skipulagsuppdráttum á vegum skipulagsdeildar bongarinnar, og Rimmel-snyrtivörur Mýjung — Nýjung Allt sem tilheyrir snyrtingu á einum bakka á einu verði hvert stykki. Gæðin óumdeilanleg RIMMEL Beauty on a budget VERD 35 — * . j. * T- 1 Dömur! reynið RIMMEL. Fást í flestum snyrtivörubúðum. Rimmel-umboðið Laugavegi 27 — Sími 16067. eins hitt, að ýmiss konar annarr- ar sérþekkingar væri þörf við afgreiðslu skipulagsuppdrátta, svo sem landfræðiiegrar, félags- fræðilegrar og læknisfræðilegr- ar. Var breytingartillaga GV um þetta efni því felld með 10 at- kvæðum gegn 4. Verkefni nefndarinnar. Skipulagsnefr.din skal hafa með höndum eítirtalin verkefni: A. Hún er borgarstjórn, borgar- ráði, byggingarnefnd, hafnar stjórn og öðrum borgaryfir- völdum til ráðuneytis um skipuiagsmál eftir því sem óskað verður B. Hún fer með yfirstjórn skipu lagsdeililar borgarinnar í umboði borgarráðs og í sam- ráði við borgarverkfræðing. C. Nefndin á að hafa forgöngu um gerð skípulagsuppdrátta eftir því sem þörf krefur og dæma um skipulagstillö:gur, er henni berast. Ef hún getur á tillögu fallizt, sendir hún hana borgarráði til sam þykktar. Að öðrum kosti hlut ast hún til um, að tillögu verði breytt á þann veg, sem hún óskar. D. Skipulagsnefndin annast í umboði borgarráðs framlagn- ingu og auglýsingu skipulags tillagna, sbr. 17. gr. skipu- lagsíaga nr. 19/1964; enn fremur gerir hún tillögu til borgarráos um afgreiðslu at- hugasemda, er berast kunna og tiliögu að endanlegri um- sögn borgarráðs (borgar- stjórnar), sbr. 18. gr. sömu laga. E. Skipulagsnefnd á að hafa eftirlit með því, að skipu- lagsákvæði séu haldin. Ef nefndin teiur, að misbrestur sé á sliku, ber henni að gera hlutaðeigandi yfirvöldum að- vart þegar í stað. F. Nefndin getur gert tillögur til borgarráðs um hvert það málefni, sem það á um að fjalla skv. skipulagslögnm. •k Skipulagsstjóri. Samk/æmt samþykktinni skal skipulagsstjóri Reykjavíkur hafa með höndum daglega stjórn skipu lagsdeildar borgarinnar undir yfirstjórn skrpulagsnefndar og borgarverkfræðings, en skipulags stjóri skal skipaður af borgar- stjórn að fengnum tillöguim borg arráðs og skir»ulagsnefndar. Um skipulagsstjóra er það hæfnisskil yrði sett, að hann skuli vera arkitekt. í tillögu meirihluta borgarráðs Iiafði verið gert ráð fyrir, að hann væri annað hvort arkitekt eða verkfræðingur, en samkvæmt tillögu GV var það skilyrði samþykkt, að skipulags- stjóri væri arkitekt, enda kvaðst borgarstjóri gera ráð fyrir, að sú yrði raunin á, þó að hainn vildi leggja áherzlu á, að hér kæmi fleira til greina en menntunin ein, svo sem stjórnunar- og skipu lagehæfileikar. Felld var hins vagar tillaga GV þess efnis, að skipulagsstjóri skyldi vera arki- tekt með sérþekkingu á skipu- lagsmálum, enda á það bent af borgarstjóra og viðurkennt af flutningsmanni, að hér væri ekki um að ræða arkitekta, sem sér- menntun heföu hlotið á því sviði. Auk borgarsljóra tóku til mála á fundinum Guðmundur Vigfús- son (K), AUreð Gislason (K), Kristján Benediktsson (F), Gísli Halldórsson (S; og Einar Ágústs- son (F), og snérust umræðurnar einkum um þær breytingartil- lögur, sem frarn höfðu komið, Eftir þær umræður og atkvæða- greiðslu um breytingartillögur var tillagan að samþykktinni samiþykkt með samhljóða atkvæð um, og gildir hún frá 1. júlí 1964. Fyrirlesturdr.Lindebrekke um sam- starf ríkisvalds og atvinnuvega DR. JULIUS Lindebrekke, aðal- bankastjóri Bergens Privatbank, flutti fyrirlestur í 1. kennslu- stofu Háskólans kl. 5.30 í gær. Fjallaði fyrirlesturinn um sam- starf ríkisvaldsins og atvinnuveg- anna. Dr. Lindebrekke er mjög þekktur maður í efnahags- og stjórnmálum Norðmanna. Hann er doktor í lögum, átti meðal annars sæti á norska Stórþinginu 1945 til 1953, var formaður Sam- bands norskra banka frá 1954 til 1960, og hefur verið formaður Hægriflokksins í Noregi frá ár- inu 1962. Háskólarektor, Ármann Snæv- ar, bauð gestinn innilega velkom- inn til Háskóla íslands og kynnti hann áheyrendum. Kvað hann vís indarit dr. Lindebrekke um lög- fræðileg efni kunn lögfræðing- um og laganemum um Norður- lönd. Sagði háskólarektor, að d’r. Lindebrekke hefði kynnt sér mjög náið um langt árabil efni það, sem fyrirlesturinn fjallar um. Dr. Lindebrekke þakkaði mörgum orðum allar móttökur á íslandi, sem hann kvað alveg ein- stakar. í fyrirlestrinum ræddi dr. Lindebrekke einkum nauðsyn þess að koma á fót í hverju lýð- ræðisríki einhverskonar stofnun, - Dr. Julius Lindebrekke. sem sé einskonar milliliður ríkis- stjórnar og samtaka atvinnuveg- anna. Kvað hann þróunina í stjórnmálum lýðræðisríkja þá, að hinir ýmsu flokkar, jafnvel stjórnarandstöðuflokkar (hann er formaður stjórnarandstöðu- flokksins í Noregi) hefðu með sér meiri samstöðu í mörgum málum en áður tíðkaðist og heíðu því möguleikar áðurnefnds sam- starfs aukizt mjög. Væru ýmsir óeiningarörðugleikar úr sögunni að mestu, og því full ástæða til að reyna að samræma önnur öfl þjóðíélagsins, svo sem að laga atvinnuvegina eftir þjóðarhag og hafa samráð við samtök atvinnu- veganna er ákvarðanir eru tekn- ar hjá valdhöfunum um ýmia mál, sem þá varða. Sagði hann mjög mikilsvert að að hafa stofn- un, sem hvorugs taum drægi, er gefið gæti góð ráð og stuðlað að samstarfi milli þessara tveggja aðila. Dr. Lindebrekke sagði, að slíkar stofnanir væru til í nokkr- um ríkjum, en hefðu gefizt mis- jafnlega, sumsstaðar vel en ann- arsstaðar illa. Slík ráðgjafar- nefnd starfaði í Noregi frá 1945 til 1954, er hún lognaðist útaf. Kvað dr. Lindebrekke nýja stofn un í undirbúningi nú í Noregi, sem hefði þessu hlutverki að gegna. Lýsti dr. Lindebrekke síð- an ýmsum tiiraunum, sem gerðar hafa verið með stofnanir af þessu tagi og árangri þeirra. Þá fjallaði hann nokkuð um fjármála- og efnahagsstefnu þjóða, einkum með tilliti til verðbólguhættu. Undirbúiö samsæri gegn íraksstjórn - Segir utanríkisráðherra landsins Bagdad, 2. júlí NTB • Utanrikisráðherra íraks, Sobhy Abdel Hamid, flutti útvarps- ávarp í dag og tilkynnti, að kom- izt hefði upp um undirbúning samsæris gegn stjórn landsins og stæði þar að baki leyniþjónusta eins heimsveldanna. Kvaðst ráð- herrann heita því að slíkt sam- særi yrði brotið á bak aftur. Tilgang samsærisins sagði Hamid þann, að spilla samskipt- um íraks og Egyptalands. Hefði hinn erlendi aðíli, er að baki því stæði, komizt í samband við fjölda manna í írak, einkum aðal óvini þjóðarinnar Baath-sósí- aiista, kommúnista og konungs- sinna. Þá var tilkynnt í dag, að fyrr- verandi ofursti í flugher lands- ins, Mounzer A1 Wansawi, og þrír liðsforingjar aðrir, hafi ver- íð dæmdir til dauða „in absentia" fyrir samsæri gegn stjórn Abdel Salam Arefs forseta. Voru menn þessir sekir fundnir um loftárás á flugvöll einn, þar sem sjö her- fiugvélar eyðilögðust, Oig jafn- fiamt um að hafa skotið eld- fíaugavopni að höll forsetans með það fyrir augum að ráða hann af dögum . Reynir Moro stjórnarmyndun? Rómaborg 2. júlí NTB • Antonio Segni, forseti Ítalíu lauk i dag viðræðum við stjórn- málaleiðtoga um hugsanlega stjórnarmyndun. Ekki er enn vitað, hverjum hann hyggst fela að reyna að mynda nýja stjórn, en ekki er tulið ólíklegt, að það verði Aldo Moro, núverandi forsætisráð- herra. Er haft fyrir satt, að leið- togar Kristilegra demokrata, Sósíalista og Sósíaldemokrata séu því yfirleitt fylgjandi að reynd verði stjórnarmyndun á sama grundvelli og áður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.