Morgunblaðið - 03.07.1964, Page 24
Hertoginri af Edinborg stígur um borð í Vorið, sem hann flaug sjálfur langleiðina til Reykjavík-
' nr. Björn Pálsson sést inni í vélinni.
Fimm forystumenn í ís-
lenzkum sjávarútvegi
„Britannia44
um borð í
ÞEGAR fréttamaður Morg-
unblaðsins var staddur við
Loftsbryggju á 6. tímanum í
gær, sá hann fimm forystu-
menn í íslenzkum sjávarút-
vegi fara um borð í „Brit-
annia“. Það Voru þeir Davíð
Olafsson, fiskimálastjóri, Sig-
urður Ólafsson í LÍÚ, Ólafur
Ófeigsson, fyrrum skipstjóri,
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar, og Þór
arinn Björnsson, skipherra,
og voru frúr þeirra í fylgd
með þeim.
Um borð í konungsskipinu
hittu fimm-menningarnir
Philip prins, yfirmenn skips-
ins og Oliver, formann yfir-
manna á togurum í Hull, en
hann hefur verið í fylgd með
prinsinum á skipinu, eins og
kunnugt er. Einnig voru þar
mr. Comfort, sendiráðsritari
brezka sendiráðsins í Reykja-
vík og frú hans.
Fbggað vegna
afmælis
IMoregskon-
ungs
MARGIR hringdu í ritstjórnar
skrifstofur Mibl. í gær, til að
spyrjast fyrir um iþað, af
hverju niorski fáninn væri
uppi á snekkju hertogans af
Edinborg, Britannia. Skýring-
in er sú, að í gær var aftmælis
dagur Noregskonungs.
Hertogafáninn blaktir á
snekkjunni og höfum við birt
mynd af honum. Hann er fjór
skiptur. Efst til hægri er
gríski fáninn, neðst til hægri
Edinborg, neðst til vinstri
Mountbatten og efst til vinstri
brezku ljónin með hjörtum,
tákni ástarinnar.
Feröamannastraum-
urinn fyrr á ferð
og jafnari en venjulega
MIKIÐ er nú orðið um erlenda
ferðamenn á íslandi. — Ferða-
mannastraumurinn byrjaði fyrr
og hefur verið jafnari en venju-
lega, að því er Ragna Samúels-
dóttir á Ferðaskrifstofu ríkisins
tjáði Mbl. Hafa öll hótel í Reykja
vík verið að mestu full síðan
snemma í júní. — Þó höfum við
ekki þurft að úthýsa neinum
enn, sagði Ragna. Hópferðafólkið
á pöntuð herBergi og hafi ekki
verið hægt að fá inni í hóteli, þá
höfum við getað útvegað her-
bergi í heimahúsum. Bæði við
og hótelin hafa slík herbergi á
skrá, og grípum oft til þeirra.
Nokkrir stórir hópar eru búnir
að koma á vegum Ferðaskrifstof-
unnar, t.d. hópar náttúruskoðara
bæði frá Evrópu og Bandaríkj-
unum. Ferðaskrifstofan auglýsir
tvær slíkar hópferðir í júnímán-
uði, þegar bezfi tíminn er til
fuglaskoðunar. Voru í fyrri hópn-
um 25 manns frá Bandaríkjunum
og í hinum, sem fer í dag, eftir
hálfs mánaðar dvöl, eru 12—15
manns.
Mjög mikið er nú komið af
einstaklingum og von er á ýms-
um hópum, sem fara um landið
og stanza yfirleitt 1—2 daga í
Reykjavík. Koma slíkir hópar t.
, »
SamnÍEgar
HAFNARFIRÐI — Verkamanna-
félagið Hlíf hélt fjölmennan fund
í fyrrakvöld, þar sem samþykktir
voru einróma samningar við at-
vinnurekendur. Gilda þeir frá
1. júlí til 5. júlí næsta ár.
d. frá Svíþjóð, Finnlandi og
Þýzkalandi á næstunni.
Hestaferðir frá Laugarvatni til
Þingvalla annars vegar og Gull-
foss og Geysis hins vegar eru að
hefjast um helgina og nota marg-
ir útlendingar sér þær til að
koma á hestbak og fara um land-
ið. Er nokkuð af fólki þegar bú-
ið að skrá sig í slíkar ferðir.
------,----------- i '
Lmræður
fram á nótt í
borgarstjórn
HJNDUR borgarstjórnar í gær
var óvenju langur og stóð enn,
þegar blaðið fór í prentun. Lang-
ar umræður urðu um samþykkt
um stjórn Reykjavíkurborgar,
ennfremur nokkrar umræður um
samþykkt um búfjárhald í
Reykjavík. Bæði þessi mál voru
til annarrar umræðu og lauk með
afgreiðslu eftir áður gerðum til-
lögum borgarráðs.
Klukkan að ganga 12 í gær-
kveldi kom tillagan um breyt-
ingu á samþykkt um afgreiðslu-
tíma verzlana í Reykjavík til um-
ræðu. Borgarráð hafði afgreitt
tillögu, sem felur í sér heimild
fyrir borgarráð að veita levfi til
að hafa matvöruverzlanir opnar
til kl. 22 alla daga. Svo og hafðl
borgarráð skilag tillögu um heim
ild til mjög aukinna vöruflokka
á kvöldsölustöðum. Um þetta
mikla hitamál stóðu umræður
fram á nótt.
Sóttu um embætti yfirsuku-
dómuru og yfirborgurdómuru
Hinar nýju flugvélar Tryggva Helgasonar á Reykjavíkurflugvelli.
Flugfloti Norðurlands tók á móti
tveimur nýjum flugvélum í gær
UMSÓKNARFRESTUR um em-
bætti yfirsakadómara og yfir-
borgardómara er útrunninn. Einn
sótti um yfirsakadómaraembætt-
ið, Þórður Bjömsson, sakadómari.
Níu sóttu um embætti yfir-
borgardómara. Þeir eru: Bjami
Kr. Ðjarnason, borgardómari;
Emil Ágústsson, bogardómari,'
Guðmundur Jónsson, borgar-
dómari; Hákon Guðmundsson,
Siðasti
dagur
Philips prins
á íslandi
í DAG mun Philip prins koma
í brezka sendiráðið kl. 10 og
hitta þax Englendinga á íslandi.
Kl. 10:35 ekur hann þaðan með
borgarstjóra og verður ekið 'um
bæinn til kl. 11:15, er prinsinn
kemui í Þjóöminjasafnið. Þaðan
verður ekið kl. 11.50 út á flug-
völi, og fer Pbiiip prins með flug
véi sinni heim til Lundúna.
Prinsinn er á mjög hraðri ferð,
þvi strax í fyrramálið kl. 9 legg-
ur hann aftur af stað í ferðalag
tiá Njassalands í Afríku, til að
vera viðstaddur er landið fær
sjálfstæði næstkomandi mánu-
dag. Hann ferðast jafnan mikið í
opinberum erindum og mun á
þessu ári bæði fara til Kanada
og Mexiko.
hæstaréttarritarí; Jón Finnssön,
bæjarfógetafulltrúi í Hafnarfirði;
Kristján Jónsson, borgardómari;
Magnús Thoroddsen fulltrúi yfir-
borgardómara; Valgarðúr Krist-
jánsson, borgardómari; Þór Vil-
hjálmsson, borgardómari. í aug-
lýsingunni var sagt að emíbættin
yrðu veitt frá 1. ágúst.
r
Vestur-Islending-
arnir fara um
helgina
HÓPUR Vestur-íslendinga af
Kyrrahafsströndinni er nú búinn
að dvelja hér á landi í mánuð.
,Hafa margir þátttakenda ferðast
út um land og er fólkið yfirleitt
mjög ánægt með dvölina, sem
nú er á enda.
Hópurinn leggur af stað frá
Lækjargötu kl. 7.30 á sunnudags-
morgun, 5. júlí, og fer flugvélin
af Keflavíkurflugvelli kl. 9.30.
r
Arekstnr - ristar-
hrot
Á miðvikudagskvöldið varð
árekstur á gatnamótum Vest-
mannabrautar og Heimagötu í
Vestmannaeyjum. Kom bifreið
niður Heimagötu, og unglings-
piltur á vélhjóli austur Vest-
mannabraut og lentu faratækin
í árekstri á horninu. Pilturinn
ristarbrotnaði
AKUREYRI, 3. júlí. — Beechraft
flugvélar Norðurflugs (Tryggva
Helgasonar), lentu á Akureyrar-
flugvelli kl. 15,55 í dag. Flug-
floti Norðurflugs flaug á móti
flugvélunum þegar þær nálguð-
ust og fjöldi fólks var á flugvell-
inum, til að fagna þessari góðu
viðbót í flugvélakost Akureyr-
inga.
Upphaflega var búizt við að
vélarnar lentu kl. 15, en þá komu
boð um að þær væru væntanlega
yfir Akureyri kl. 15,30. Nokkrum
minútum áður fóru allar eldri
vélarnar á loft. í sjúkravélinni
var Tryggvi Helgason við stýtið,
en með honum voru kona hans,
sonur og bróðir, næst íór Piper
Cup vél, flugmaður Kristján
Árnason og síðast Hallgrímur
Jónsson í Piper Colt flugvél.
Kl. 15,40 sáust tvær flugvélar
koma fljúgandi úr norðri inn
yfir Akureyri hlið við hlið og
fljúga nokkra hringi yfir bæn-
um. Þar voru nýju vélarnar
komnar og sjúkravélin í för með
þeim. Veður var hið fegursta,
sólskin og norðan gola. Þær lentu
nú hver af annarri. Litlu vélarn-
ar voru langt á eftir, enda er
flughraði þeirra miklu minni.
í annarri vélinni voru CoL L.L.
Perdue, flugstjóri, David, sonur
hans 15 ára; Björn Sveinsson,
flugvirki, sem séð hefur um end-
urbætur á vélunum vestra og Mr.
M.C. Mac Gugh. í hinni voru
John Granger flugstjóri og Col,
Pimbisky. Allir þessir útlendu
flugmenn eru Bandaríkjamenn,
sem flugu vélunum hingað í sum
arleyfi sínu. Kona Tryggva Helga
sonar, frú Petra Konráðsdóttir,
fsérði flugstjórunum blómvendi
við komuna.
Akureyringar fjölmenntu mjög
á flugvöllinn, til að sjá vélarnar
og fagna þeim, enda var Tryggvi
Helgason önnum kafinn við að
taka við heillaóskum og blómum.
Meðal viðstaddra var Sesselja
Eldjárn, formaður Slysavarna-
deildar kvenna á Akureyri, en
milli deildarinnar og Tryggva hef
Framhald á bls. 23