Morgunblaðið - 10.07.1964, Blaðsíða 12
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 10. júlí 1964
a
JltofgmtÞJiifrifr
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
•Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
1 lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
HAFA BRUGÐIST
HLUTVERKI SÍNU
F’ngu er líkara en Fram-'®'
• sóknarforingjunum sé ger-
samlega um megn að skilja
það, að í lýðræðisþjóðfélögum
hefur stjórnarandstaðan þýð-
ingarmiklu hlutverki að
gegna. Hún á, eins og stjórn-
arflokkar, að leitast við að
taka ábyrga afstöðu til mála.
Hún á að veita stjórninni heil
brigt aðhald og hún á að vera
við því búin að geta tekið
þátt í stjórnarmyndun, ef á
þarf að halda.
Allt þetta hefur stjórnar-
andstaðan hér á landi gjör-
samlega vanrækt. Um komm-
únista þarf ekki að tala í því
sambandi, það hefur enginn
ætlazt til þess, að þeir væru
heilbrigður stjórnarandstöðu-
flokkur, en hinsvegar hefðu
menn að óreyndu ætlað að
Framsóknarflokkurinn reyndi
að vera það. En sú von hefur
brugðizt.
í fyrsta lagi hafa Fram-
sóknarforingjarnir í Reykja-
vík séð til þess, að flokkurinn
tæki yfirleitt aldrei ábyrga af
stöðu til mála. Engin tilraun
hefur verið gerð til að setja
sig inn í málin, heldur héfur
flokkurinn fyrirfram verið á-
kveðinn í að vera á móti öllu
því, sem Viðreisnarstjórnin
lagði til eða gerði.
í öðru lagi hefur flokkur-
inn vanrækt að veita ríkis-
stjórninni heilbrigt aðhald,
einfaldlega vegna þess, að
hann hefur ekki brotið málin
til mergjar heldur verið með
stóryrðaglamur, sem enginn
gat tekið mark á.
Loks hefur svo kapphlaupið
við kommúnista, yfirboðin og
ábyrgðarleysið valdið því, að
flokkurinn hefur gjörsamlega
firrt sig trausti, þannig að
hann er enn ólíklegri til þess
að vera hæfur til samvinnu
um stjórn en hann er sem
andstöðuflokkur.
Af öllum þessum ástæðum
er það mál manna, að núver-
andi foringjum Framsóknar-
flokksins sé að takast að gera
hann óþarfan flokk í íslenzku
þjóðlífi, og er það vissulega
illa farið, því að þegar til
lengdar lætur er heilbrigð
stjórnarandstaða jafn þýðing-
armikil og góð ríkisstjórn.
Þótt þess sjái enn engin
merki verður í lengstu lög að
vona, að Framsóknarforingj-
arnir sjái að sér — eða ó-
breyttir flokksmenn hafi
manndóm til að skipta um for
ustu ella.
VINSÆLDIR
VIÐREISNAR-
STJÓRNARINNAR
Ungum blöðum er um það að
fletta að Viðreisnarstjórn-
in er einhver vinsælasta ríkiS-
stjórn, sem setið hefur hér á
landi. Andstæðingar hennar
segja, að það byggist á því, að
hún hafi verið heppin, hér
hafi verið góðæri, mikil afla-
brögð, og þess vegna góð af-
koma. Sjálfsagt er þetta rétt
svo langt sem það nær, en hitt
er einnig ljóst, að fólk gerir
sér grein fyrir því, að Við-
reisnarstjórnin hefur haldið
skynsamlega á málum.
Síðasti sigur stjórnarinnar,
sem raunar er um leið sigur
launþega, eru samningar þeir,
sem tekizt hafa um vinnufrið
til eins árs að minnsta kosti.
Þeir samningar fara svo í
taugarnar á Framsóknarfor-
ustunni, að hún hefur ekki
vitað sitt rjúkandi ráð síðan
þeir tókust.
Þessir samningar byggjast
auðvitað fyrst og fremst á
því, að forustan í launþega-
samtökunum gerði sér grein
fyrir því, að fólkið vildi áfram
hald viðreisnarinnar, það
vildi ekki taka áhættuna af
breyttum stjórnarháttum,
heldur njóta ávaxtanna af
því, sem áorkað hefur verið
undanfarin ár. Samningarnir
sem slíkir eru því vitnisburð-
ur um vinsældir stjórnarinn-
ar.
En það er fleira til marks
um það, að stjórnarandstæð-
ingar gera sér grein fyrir því
eins og aðrir, að Viðreisnar-
stjórnin er vinsæl stjórn.
Þannig er það til dæmis
helzta haldreipi Framsóknar-
manna, að stjórnin hafi gefizt
upp á að framkvæma stefnu
sína og þess vegna gangi allt
jafn vel og raun ber vitni.
FIMM ÁRA
STJÓRN
ITiðreisnarstjórnin hefur nú
’ setið í nær fimm ár. Hún
setti sér það meginmarkmið
að stöðva greiðsluhalla við út-
lönd, koma á viðskiptafrelsi
og afnema hið fáránlega upp-
bótafargan, sem hér hafði
tildrazt upp.
Allt þetta tókst Viðreisnar-
stjórninni að gera, og þess
vegna ber hún nafn með
rentu.
I Loftstraumar og þotuslysin 1
| SÉRFRÆÐINGAR um loft-
S ferffaöryggi beggja vegna Atl-
= antshafsins rannsaka nú á
S nýjan leik slys, sem orffiff hafa
= á stórum farþegaþotum undan
= farin ár og engin fullnægjandi
5 skýring fengizt á. Komiff hafa
3 fram kenningar um, aff nokk-
1 ur slysanna hafi aff einhverju
1 effa öllu leyti orsakazt af loft-
= straumum.
§f Ástæffan til þess að hafizt
jjjj var handa um athugun á því
H hvort ólga í loftinu t.d. upp-
Ej effa niðurstreymi gæti veriff
g orsök flugslysanna, eru hin
3 mörgu slys, sem urðu á s. 1.
jj ári án þess að sérfræðingum
jj tækist a® komast fyrir um or-
jj sakirnar þrátt fyrir mjög ýtar
j§ legar rannsóknir.
H • Um miðjan febrúar 1963
jj fórst þota af gerðinni Boeing
S 720 frá bandaríska flugfélag-
= inu „Northwest Airlines".
= Þotan hrapaði, er hún var á
= leið gegnum þrumuveður
1 nálaegt Miami og allir, sem
H með henni voru, 43 menn létu
| lífið.
H • Sex vikum síðar fórst
E einkaflugvél Sauds konungs
S Saudi-Arabíu í ítölsöku ölp-
H unum. Flugvélin var á leið til
H Parísar til þess að sækja kon-
jjj unginn. Með henni fórst öll
jj áhöfnin. Flugvélin var af gerð
H inni Comet.
jj • í júlí fórst önnur Comet-
S vél. Var hún frá „United Arab
= Airíines“ og hrápaði, er hún
| lækkaði flugið og undirbjó
S lendingu í Bombay. Meff vél-
= inni fórust 62 menn.
3 • í nóvember skall hurð
nærri hælum. Þá missti þota
af gerðinni DC-8 hæð, er hún
lenti í loftstraumi, og hrapaði
13 þús. fet. Flugmanninum
tókst að rétta vélina við á
síðustu stundu, en átakið var
svo mi'kið að einn hreyfillinn
rifnaði af. Lending tókst þó
giftusamlega.
• í desember rifnuðu tveir
hreyflar af þotu af sömu gerð,
er hún var á reynsluflugi ná-
lægt Okinawa. Féll flugvélin
skyndilega úr 12 þús. fetum
í 7 þús., en flugmaðurinn náði
aftur stjórn á henni og tókst
að lenda, þótt hreyflarnir
rifnuðu.
• í nóvember fórst þota, einn
ig DC-8 nálægt Montreal í
Kanada og með henni 118
menn.
• í desember fórst Boeing
707 frá Pan American í Mary-
land og með henni 80 menn.
Sérfræðingar eru nú þeirrar
skoðunar, að loftstraumar eða
skyndilegar breytingar í loft-
inu hafi valdið öllum þessum
slysum, en rannsóknir standa
yfir.
Loftstraumar og ólga í lofti
getur verið af ýmsum orsök-
um. Algengust eru slík fyrir-
bæri vegna hitabreytinga ná-
lægt jörðu og geta þau valdið
„málmþreytu“ í flugvélum.
Hættulegri eru straumar, sem
tengdir eru þrumuveðri eða
stórum regnskýjabólstrum.
Flugmenn reyna að forðast
slíkar lofttruflanir og nota til
þess veðurratsjár. Finna. þeir
truflanirnar á ratsjánum, en
þær verða oft í nokkurri fjar-
lægff frá þrumuveðrinu sjálfu.
Þessir loftstraumar eru
lóðréttir og er styrkleiki
þeirra mældur í einingum,
sem nefndar eru „G“. Ef þota
af gerðinni Boeing 707, sem
vegur 150 tonn, lendir í loft-
straumi af styrkleikanum 4G,
er eins og þungi hennar fjór-
faldist, eða 450 kg. sandpok-
um sé haldið á vængi hennar.
Loftstraumar af styrkleika
4G eru algengir og flestar
flugvélar þannig úr garði
gerðar að þær þola 4-5G
Þriðja tegund loftstraum-
anna, .sem nú er verið að
rannsaka, verður í tæru lofti
(engin ský í nánd) og valda
svonefndir „þrýstistraumar".
Þeir straumar fara með meira
en 100 mílna hraða á klukku-
stund og þar sem þeir fara um
valda þeir lofttruflunum.
Straumar í tæru lofti geta
einnig stafað af uppstreymi
frá fjöllum.
Bandaríska flugfélagið
„United Airlines", flugher
Bandaríkjana og vísindastofn-
unin Standford, vinna nú að
rannsóknum á kenningu, sem
komið hefur fram þess efnis,
að straumar í tæru lofti hafi
í för með sér breytingar á
rafsviði andrúmsloftsins. í
sambandi við þessar rann-
sóknir hafa flugvélar „United
Airlines“ verið búnar tækjum
sem skrá rafsviðsbreytingar.
Talsmaður flugfélagsins lét
þess getið fyrir skömmu, að
sannaðist kenningin um, að
rafsviðsbreytingar væru und-
anfari loftstrauma, yrði næsta
skrefið að búa flugvélarnar
tækjum, sem gæfu breyting-
arnar til kynna þannig að
flugmaðurinn gæti forðazt
loftstrauminn.
Ekkert slys á - farþegaflug-
vél hefur tekizt að rekja til
strauma í tæru lofti, en full-
víst þykir að tvær herflug-
vélar hafi farizt af völdum
þeirra. Og í janúar s. 1. rifnaði
mestur hluti stélsins af
sprengjuflugvél af gerðinni
B-52, er hún lenti i slíkum
straumi, en flugmanninum
tókst að lenda og engan sak-
aði. Þetta atvi'k varð til þess
að draga athyglina að loft-
straumunum sem hugsanleg-
um slysavöldum.
Framhald á bls. 21
lÍmmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiimmiiiiinifiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiia
Þegar .þessu takmarki var
náð breyttust aðstæður auð-
vitað, þannig að ekki þurfti
lengur að einblína á þetta
markmið. Viðreisnarstjórnin
er ekki stöðnuð afturhalds-
stjórn, heldur stjórn, sem
horfist í augu við vandamálin
hverju sinni. Af því leiðir
auðvitað, að sitthvað breytist
í stefnu hennar og störfum,
eftir því hvernig vandamálin
horfa við.
Ungur maður hefur nýlega
sagt í blaðagrein, að nú á dög-
um megi segja að iðnbylting
verði á fimm ára fresti. Það
væru blind stjórnarvöld, sem
ekki gerðu sér grein fyrir
þessu og' aðlöguðu störf sín
breyttum háttum.
Þess vegna er það broslegt,
þegar Framsóknarforingjarn-
ir halda því fram, að Við-
reisnarstjórnin hafi gefizt
upp á að stjórna, vegna þess
að hún telur ekki allar þær
aðgerðir nauðsynlegar, sem ó-
hjákvæmilegar voru fyrir
fimm árum, og hún gerir ýmis
legt nú, sem þá var ófram-
kvæmanlegt