Morgunblaðið - 30.07.1964, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.07.1964, Qupperneq 6
6 MORCUN BLAÐID FTmmtudagur 30. JöTí 1954 ÚTVARP REYKJAVÍK Á SUNNUDAGSMORGUN, 19. júlí, var útvarpað ágætri messu- gerð, sem herra Sigurbjörn Ein- arsson, biskup, flutti í Skál- holtskirkju í sambandi við hátíðina þar. Um kvöldið flutti Óttar Kjartansson fróðlegt er- indi um Kleifarvatn. Kleifarvatn er 140 metra yfir sjávarmál, ea. 10 ferkílómetrar að stærð og hef- ur mæizt dýpst 97 metrar. Meðal- dýpið er um 29 metrar. Við vatn- ið stendur fellið Gullbringa, sem Gullbringusýsla dreguc nafn af. Lengi var talið, að silungur gæti ekki þrifizt í Kleifarvatni, og spunnust um það þjóðsögur, en fyrir ca. 15 árum voru flutt séiði þangað, einkum úr Þing- vaFlavatni, og nú er silungsveiði sæmileg í vatninu, I>ynigsti fisk- ur, sem þar hefur veiðzt, var 11 pund. Stangaveiðileyfið kostar 100.00 kr á dag. Á sunnudagskvöld hófst einnig þáttur, sem nefnist: „Út um hivippinn og hvappinn". Sá Agn- ar Guðnason um hann. Voru það einkum samtöl við bændur og hestamenn. Sérlega fróðlegt var viðtal Agnars við bónda einn roskinn af Suðurlandi, fæddan 1888. Hann hafði búið sarrufleytt í 54 ár. Hann mundi þá tíma, er „útgerðarmaður“ táknaði allt annað en nú. Útgerðarmenn voru þeir vinnumenn nefndir, sem bændur gerðu út á vertíð með kæfu, smjör og hangi'kjöt og fleira tilheyrandi. Bændur mundu síðan hafa hirt hlut út- gerðarmannanna, en goldið þeim einungis sitt fasta kaup. Nú eru útgerðarmenn komnir 1 höfðinigjatölu og að mestu hættir að éta kæfu. En bvort rekstrarafgangur af útgerð þeirra er meiri nú en þá er hins vegar ekki fullljóst. Ef Agnar Juðason heldur jrvo fram sem i lorfir, verða Iþessir þættir Ihans vinsælir. |Honum er lagið lað tala við menn |á látlausan hátt |og fá fram það, sem hann leit- ar eftir, án þess að trana sinni eigin persónu á áfergan hátt inn á umræðuvettvanginn. Á mánudagskvöld talaði Har- aldur J. Hamar, blaðamaður, um daginn og veginn. Ræddi hann mest um fiskveiðar okkar Xs- lendinga og efnahagslega af- komu. Hann sagði, að íslendinig- ar hefðu verið 14. mesta fisk- veiðiþjóð í heimi árið 1962. Japan og Perú hefðu þá verið í fylkingarbrjósti, og mun svo enn vera. Haraldur ræddi sérstak- lega síldveiðar okkar, hina bættu tækni við þær veiðar og hreyfði þeirri spurningu, hvort síld- veiðar væru nú loks að verða ör- uggur atvinnuvegur hér. Hann sagði, að fiskafli í heim- inum hefði meir en tvöfaldazt á síðustu 15 árum. Eiigi að síður þjáðist stór hluti mannkyns enn att fæðuskorti. Þá vék hann að gáfnafari fiska og sagði að rann- Agnar Guðnason !sóknir hefðu leitt I ljós að fisk- ar væru ekki gjörsneydir and- legum hæfileikum. Sumir fiskar, sagði hann, að hefðu einskonar ratsjá, sem verkaði þó illa að næturlagi. Væri það skýringin á því, hvers vegna fiskur veiddist oft betur að nóttu en degi. Margt fleira fróðlegt saigði Haraldur. Hins vegar fannst mér kynlegt, er hann sagði undir lokin, að orðið hungur léti ókunn lega í eyrum okkar íslendinga. Hann virðist hafa gleymt þvi, a”' ekki eru nema um 180 ár síð- an fjórði hluti íslendinga féll úr hungri. Sem betur fer mun mat- arskortur vart þekkjast meðal okkar nú, en fjóra fyrstu ára- tugi þessarar aldar mun nær- ingarskortur. og hálfgildings sult ur hafa verið vel þekkt fyrir- bæri á íslandi. Ég vil því meina, að orðið allsnægtir komi flestum íslendingum, sem komnir eru yfir miðjan aldur ókunnuglegar fyrir eyru en orðið hungur. Erindi Haralds var annars gott yfirlitserindi. Stjórnendur út- varpsins gera sér nú mjög títt um hið viðkvæma hlutleysi þess, eins og nýjustu dæmi sanna. Har- aldur siigldi þar kænlega milli skers og báru. I>að er ekki lík- legt til að særa „hlutleysis- kennd“ manna, þótt gerð sé nokkur úttekt á gáfnarfari fisika og umgengnisivenjum þeirra á höfum úti. Síðar á mánudagskvöld var þátturinn: „Sitt sýnist hverj- um“. Viðfangsefnið var sam- búð ríkis og kirkju hér á landi og, hvort æskilegt væri að að- skilja þau eða viðhaida núver- andi sambúðarháttum, þar sem ríkið styrkir kirkjuna fjárhags- lega, en kirkjan er aftur á rpóti háð ríkinu á ýmsan veg. Þeir, sem fjölluðu um þetta viðfangs efni, voru séra Sveinn Víkingur, Andrés Andrésson, kaupmaður, séra Ólafur Skúlason og Krist- ján Bersi Ólafsson, blaðamaður. Enginn þessara mann-a mælti með aðskilnaði rikis og kirkju hér á landi, enda þótt flestir þeirra teldu núverandi skipulag hafa vissa galla. Þannig taldi t.d. Kristján Bersi, að núverandi fyr irkomulag bryti að nokkru í bág við grundvallaratriði frelsis og lýðræðis. En vegna þess, hve menn væru yfirleitt frjálslyndir í trúmálum hér, taldi hann vafa samt, að það væri til bóta að að skilja ríki og kirkju. Ólafur Skúlason benti á, að styrkur hins opinbera til kirkjubygginga væri ekki ýkja mikill — 1 milljón kr. á ári, minnir mig, — og þrátt fyrir tengslin við ríkið, væru lánastofnanir yfirleitt ekki fáan legar til að lána fé til kirkju- bygginga. Söfnuðirnir yrðu því sjálfir að bera hita og þunga framkvæmdanna. Hann sagði, að hlutverk kirkjunnar væri ávallt það sama, hvort sem um væri að ræða þjóðkirkju eða óháða kirkju, sem sé að útbreiða fagn aðarboðskapinn. Andrés Andrés- son sagðist hafa gengið í Fríkirkj una fljótlega eftir að hann kom til Reykjavíkur 1908, vera nú í Óháða söfnuðinum, en hann virtist ekki hafa áhuga á að sníða öðrum hátternislag í þess um málum. Sveinn Vikingur taldi, að aðskilnaður ríkis og kirkju kynni að glæða trúará- huga í þéttbílinu í bili, en hafa öfug áhrif í dreifbýlinu. Fátt nýtt virtist mér koma fram við umræður þessar, enda þótt þær væru ekki óskemmti- ltgar og ræður manna væru yfir- leitt snjallar. Einskis verulegs skoðanamunar gætti, og lá því nærri, að þátturinn: „Sitt sýnist hverjum“ kafnaði að þessu sinni undir nafni. Næst ráðlegg ég þeim Hólmfríði og Haraldi að taka upp eitthvert veraldlegra viðfangsefni. Hvernig væri t. d. að taka Barry Goldwater? Mér skilst að menn séu enn ekki á einu máli um það, hvort hann sé heldur framsóknarmaður, sjálfstæðismaður eða laumu- kommi. Séra Magnús Guðmundsson, fyrrum prófastur í ólafsvík, flutti mjög gagnlegt erindi um flóttamannahjálpina í Evrópu á þriðjudagskvöldið. Flóttamanna- vandamálið var, sem kunnugt er, erfitt viðfangs í lok stríðsins, og enn sköpuðust vandamál svipaðs eðlis, er Rússar fengu köllun til að berja niður frelsishreyfingu Ungverja í nóvember 1956. í sum um löndum hafa verið reist sér- stök flóttamannaþorp, og vænt- anlega tekur nú að rofa til í þess um málum, ef stórveldin fá ekki því hastarlegri kallanir á næstu árum. Á miðvikudagskvöld var að vanda flutt sumarvaka. Sigríður Einarsdóttir, skáldkona, frá Mus aðarnesi flutti „17 ára þátt“. leikin voru lög eftir Pál ísólfs- son. Baldur Pálmason las frá- bærlega góða sumarhugleiðingu: „Upp til fjalla" eftir í>orbjörn Björnsson, bónda á Geitaskarði í Austur Húnavatnssýslu. — Þorbjörn, sem er snjall rithöf- undur, þótt meir hafi hann gefið í heiðursessi Jæja, þá eru útsvörin kom in. Að vanda eru margir óánægð ir og bölva öllu í sand og ösku. Er þeir fá tækifæri til að kæra. Annárs tala þeir yfirleitt mest um há gjöld, sem gera stærstar kröfur til útláta af hálfu hins opinbera. Það eru nefnilega ekki allir, sem skilja ,— eða vilja skilja, að framkvæmdir bæja og ríkis eru kostaðar af þegnunum og engum öðrum. Og jafnvel þótt menn fáist til að viðurkenna þá staðreynd, þá ætlast sumt fólk ævinlega til þess að Pétur eða Páll borgi brúsann, því margur heldur auð í annars garði. Loftleiðir skipa heiðursess á öllum skrám um opinber gjöld. Þeir virðast ekki í neinni hættu af samkeppni annarra fyrir- tækja hvað útsvars- og skatt- greiðslu viðkemur. Það fyrir- tæki, sem næst kemur í útsvars- skránni, er Kassagerðin — og hún borgar aðeins rúmlega tí- unda hluta af því, sem Loftleið- um er gert að greiða. Já, nú geta Loftleiðir ekki kvartað yf- ir harðri samkeppni. Þreföld sala Nú fara fram ýmsar breyt- ingar á flugafgreiðslunni á Keflavíkurflugvelli, eins og kunnugt er. Ég hitti Ólaf Thord ersen, fríhafnarstjóra, á dögun- um og fór að spyrja hann hvern ig gengi. Hann sagði, að verzl- unin færi stöðugt vaxandi, í júní hefði salan orðið þreföld miðað við sama mánuð í fyrra. Hann kvartaði sem sagt ekki. Farþegaflutningar Pan Am- erican um Keflavík hafa auk- izt, sagði hann. Umferð ann- arra véla hefur líka vaxið tölu- vert — og að ógleymdum Loft- leiðum, sem hafa notað flug- völlinn meira í sumar en áður. Óánægja Ég spurði hann hvort ekki sköpuðust nein vandræði vegna þess, að Fríhöfnin tekur ekki við íslenzkri mynt. Jú, víst var það. Margir íslenzkir flugfarþegar yrðu sárreiðir, þeg ar þeir uppgötvuðu þetta — og beindist óánægjan þá að starfs- fólki Fríhafnarinnar, sem auð- vitað gæti hér engu um ráðið. Sagðist Ólafur hafa skrifað við- komandi ráðuneyti og sótt um að fá að selja fyrir íslenzka peninga sem aðra. Þetta ástand væri algert einsdæmi. Hann benti á, að mönnum mundi þykja undarlegt, ef ekki væri hægt að kaupa fyrir enska peninga tollfrjálsa vöru á Lund únaflugvelli, danska á Kastrup og dollara í New York. Það er skrifað svo mikið um batnandi hag í viðskiptum við útlönd, að almenningi finnst þetta mjög undarlegt, sagði hann. Vilja losna við afganginn Sjálfur sagðist hann ný- kominn frá Kaupmannahöfn. Hann hefði getað skipt íslenzk- um krónum þar á réttu gengi, fengið dönsku krónuna fyrir kr. 6,35 íslenzkar. Ljóst væri, að íslenzka krónan væri nú tekin sem góð og gild vara í ná- grannalöndunum. Og hvað Fríhöfnina snerti, þá væru það ekki aðeins íslend- ingar, sem yrðu óánægðir, þeg- ar þeim yrði ljóst, að ekki væri hægt að verzla fyrir íslenzka <-C 'l’u c ? - sig við öðrum störfum um dag- ana, sagðist helzt kjósa sér vist upp til dala í himnariki, þegar þangað kæmi. Þætti sér þá engu lakara þótt þar gengi á með byljum annað slagið. í vökulokin las svo Finniborg Örnólfsdóttir 5 kvæði, valin af Helga Sæmundssyni. Kvæðim voru eftir Þrorstein Erlingssoh, Huldu, Jakob Jóhannessoa Smára, Davíð Stefánsson og Tómas Guðmundsson. Finnborg las kvæðin mjög vel upp. Sér- stökum áhrifum náði hún með upplestri sínum á ,,Þjóvisu“ Tóm asar. Verður því kvæði naumast skilað betur. Á fimmtudagskvöld las Flosl Ólafsson leikari smásögu eftír D. H. Lawrence, í þýðingu Agn- ars Þórðarsonar. Nefndist húo „Munir“ Þá kynnti Jón R. Kjart- ansson söngplötur Eggerts Stef- ánssonar (1890-1962), eftir að hafa dregið upp mynd af hinura sérstæða persónuleika og tigin- mennsku söngvarans, sem útlend ir nefndu „kónginn“ sökum glæsi leika hans og fyrirmannlegrar framkomu. Þá var þátturinn: „A tíundu stund“ í umsjá Ævars R. Kvaran. Fjallaði hann einkura uxn trú og heimspeki manna og þjóða á ýmsum tímum. Ævar er sérfræðingur í að draga ein- hverja torræða ævintýraslikju yfir efni það, sem hann fjallar um. Naut hann sín vél að þessu sinni, er hann fjallaði um 'hinztu rök tilverunnar út frá • trúfræði- legum og heimspekilegum sjónar miðum. l>ó má vera, að Ævari henti betur að fjalla um eitt- hvert „veraldlegra“ efni. Það er ástæðulaust að leitast við að gera dularmögn tilverunnar duiar- fyllri en þau eru. Þau sýna naum Framh. á bls. 15 peninga. Margir erlendir ferða- menn, sem væru á heimleið, vildu losna við það, sem þeir ættu eftir af íslenzkum pening- um með því að kaupa í Frí- höfninni. Algengt væri, að fólk ætti eftir eitt til tvö þúsund krónur, sem það vildi koma i lóg á þennan hátt — og væri því Ijóst, að hægt væri að auka viðskiptin við útlendinga til muna, ef leyfi fengist til að taka íslenzka peninga. Vantar banka Enginn banki væri í flug- afgreiðslunni, ekki væri þvi hægt fyrir þetta fólk að skipta íslenzku peningunum fyrr en það kæmi til útlanda, að það seldi þá þar. Af þessu sést, sagði Ólafur, að við töpum líka gjaldeyri á þessu fyrirkomu- lagi. Þar fyrir utan, sagði hann, að banki væri það, sem nauðsyn- lega þyrfti suður frá. Slík af- greiðsla þyrfti ekki að taka mikið rúm. Af þessu er Ijóst, að við eig- um enn margt ólært varðandi starfrækslu flughafnar og mót- töku ferðamanna. Hins vegar er það fátítt orð- ið að heyra kvartanir yfir vönt- un á fleiri bönkum og fleiri útibúum. Ég hélt nefnilega, að það væri eitt af því, sem við hefðum nóg af. Svo virðist þó ekki vera. ELDAYÉLAR ELDAVÉLASETT GRIIL Sjálfvirkt hita- 04 tímaval. A É G - umboðið Söluumboð: HÚSPRÝÐt HF. Simi 24444 »g 24441.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.