Morgunblaðið - 09.08.1964, Síða 22
22
MORGUNBLADID
Sumvudagur 9. Sgást 1964'
— Akureyri
t Framh. af bls. 8
undir niðri. Margir einstak-
lingar leggja á sig mikla
vinnu til að halda við falleg-
um skrúðgörðum við heima-
hús sín. Bæjarfélagið má ekki
láta sitt eftir liggja tid. að dóm
ur þessara vinsamlegu gesta
geti verið sammæli allra. Við
viljum öll, að hér dafni fagurt
mannlif í fögru umhverfi.
- —Sv. P.
Hreinar tuskur
Kaupum hreinar léreftstuskur.
HEFI FLUTT
lœkningastofu mína
í Landakotsspítala.
Viðtalstími aðeins eftir umtali.
Símaviðtal og tímapantanir kl. 12—1 (nema laugar-
daga) í síma 15944.
TÓMAS Á. JÓNASSON, læknir.
SUNNU-
FERÐIR
með islenzkum
forarstjórum
Siðsumar- og haustferðir 1964
Margra ára reynsla aö baki tryggir farþegum okkar skemmtilegt og snurðulaust ferða-
lag undir leiðsögn reyndra fararstjóra. Flestar ferðir okkar eru farndr óbreyttar ár
eftir ár Vinsælar og viðurkenndar ferðir af þeim fjölmörgu, sem reynt hafa.
Ódýrasta Ævintýraferðin til Austurlanda.
20 daga ferð til nálægari Austurlanda hefst 1. október og kostar aðeins kr. 18.750.
Jnnifalið flugferðimar alla leið til Egyptalands fullt uppihald á luxus hótelum í Aust-
urlöndum. (í Egyptalandi er búið á luxushótelum, sem Egyptalandsstjórn rekur í fyrr-
verandi skrauthöllum Farúks konungs). Stanzað í fjóra daga í Amsterdam og London
á heimleiðinni. Þessi glæsilega Austurland aferð gefur fólki tækifæri til að komast
i vandaða og vel skipulagða Austurlandafe rð, sem ekki kostar meir en venjulegur
Evrópuferðir. Aðeins pláss fyrir 32 farþega að þessu sinni og þegar hefir um helm-
ingur pantað.
París — Rínarlönd — Sviss, 26. ágúst — 18 dagar.
Þessi ferð til eftirsóttustu ferðamannastaða Mið-Evrópu er bæði skemmtileg og tilbreyt-
ingarik, en þó róleg, þar sem ekki er farið of hratt yfir. í París fær fólk tækifæri til að
skemtnta sér í heimsborg gleðinnar og njóta þess að dvelja í hinni undurfögru borg á
Signubökkum. Dvölinni í hinum fögru og glöðu Rínarbyggðum gleymir enginn. Farið
er með skemmtibátum á Rín og tekið þáttí hinni óviðjafnanlegu Vinhátíð Rínarbúa,
sem haldin er meðan ferðafólkið dvelur þar. Loks er dvalið í Luzern, sem af mörgum
er talin fegurst af mörgum fjallaborgum A Ipalandsins. Meðan dvalið er þar gefst fólki
kostur á að fara í tveggja daga ferð suður yfir Gotthardskarð til Ítalíu. — Uppselt,
nema það sem losnar vegna forfalla.
Edinborg’arhátíðin, 22. ágúst — 7 dagar.
Flogið er til Glasgow og ekið þaðan til Edinborgar, þar sem dvalið er á frægustu lista-
hátíð Evrópu, sem einnig er orðin einskonar samfelld skozk þjóðhátíð með dönsum
leikjum og söng. Farið í stutt ferðalög um hinar undurfögru byggðir skozku háland-
anna, en auk þess gefst góður tími til hvíldar og dvalar í hinni fögru höfuðborg Skot-
lands. Ódýr og skemmtileg ferð, fyrir þá, sem ekki ætla í langa utanlandsferð í ár.
Fá sæti laus.
Ítalía í septembersól, 2. september — 21 dagur.
Þessi ferð hefir reynzt óskaferðin til Ítalíu, því viðurkennd dönsk ferðaskrifstofa hefir
tekið upp okkar ferðaáætlun og notað fyrir vandláta italíufara. Flogið héðan til Mil-
ano, ekið síðan stutta áfanga og dvalið 2—4 daga í sögufrægustu og fegurstu borgum
ftalíu, Feneyjum, Florenz, Sorrento við Napoliflóann og fimm daga í Róm. í stað þess
að aka til baka upp alla ftalíu siglum við með glæsilegasta hafskipi ftala Leonardo da
Vincí 33.000 smál. með 3 sundlaugum og glæsilegum veizlusölum á næst dýrasta far-
rými til Cannes í Suður Frakklandi, ökum þaðan stutta leið til Nizza og dveljum þar
í nokkra daga áður en flogið er heimleiðis með viðkomu í London, eða Höfn að vild.
Þetta er vönduð ferð fyrir þá, sem njóta vilja septembersólar í fögrum byggðum og
frægum borgum Suðurlanda. Fá sæti laus.
Síðsumardagar á Paradísareynni Mallorca, 14. sept. — 16 dagar.
Flogið til Mallorca og dvalið þar í hálfan mánuð á góðum hótelum, m.a. Bahia Palace
og Sant Ana, sem hundruð Sunnufarþega þekkja frá okkar vinsælu páskaferðum. Á
heimleiðinni er stanzað tvo daga í London og hægt er að framlengja ferðina þar á eig-
in vegum. Mallorca er sannkölluð paradís á jörð fyrir þá sem til þekkja og þangað
leitar fólk ár eftir ár, enda orðinn fjölsóttasti ferðamannastaður Evrópu.
London — Amsterdam — Kaupmannahöfn, 22. sept. — 12 dagar.
Ferð þessi var í fyrsta sinn farin í fyrra og hlaut þá vinsældir. Þetta er stutt og ódýr
ferð, þar sem fólki gefst góður tími til að kynnast þremur helztu borgum Norður-
Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. Heimsborgin London með sín miklu tízkuhús
og sögufrægð Amsterdam, sem speglast í fljótum og skurðum Hollands og loks Kaup-
mannahöfn, borginni við Sundið, þar sem íslendingar eru alltaf eins og heima hjá sér,
í glöðum og góðum félagsskap.
Allar Sunnuferðir eiga það sameiginlegt að eingöngu eru notuð góð hótel, sem þekkt
eru að því að hafa góðan mat og þjónustu. Engar þreytandi bílferðir. Flogið eða siglt
með skemmtiferðaskipum lengstu áfangana. Reyndir fararstjórar, sem hafa allt að
fimm ára reynslu við fararstjórn í vinsælustu SUNNUFERÐUM. I öllum ferðunum
gefur fólk framlengt dvölina erlendis og flogið heim síðar með áætlunarvélum.
Við gefum sjálfum okkur ekki einkun, en spyrjið þá sem reynt hafa. Mörg hundruð
ánægðra viðskiptavina hafa ferðast á vegum SUNNU í hópferðum og sem einstakling-
ar. Margir ár eftir ár og oft á ári. Vitnisburður þessa fjölmenna hóps viðskiptavina
er okkar bezta auglýsing.
Ferðaskrifstofan
^unnd
Bankastræti 7.
Símar 16400 og 21020.
Biðjið um nákvæmar ferðaáætlanir.
komið, skrifið, eða símið.
PANTIÐ SNEMMA, þegar eru margir
skráðir þátttakendur og aðeins hægt að
taka 20—30 manns í ferð.
Góð sjálfstæð viðskifti
Kemiskar byggingarvömr
Við höfum í hyggju að hefja sölu á vörum okkar á ísl&ndi.
Við, sem erum efnaverksmiðja, staðsett í Danmörku óskum
eftir áreiðanlegum og efnalega traustum manni er gæti
stjórnað og séð um sölu á framleiðslu okkar á íslandi. Það
sem við óskum er duglegur og áreiðanlegur kaupsýslu-
eða sölumaður, er gæti annast fyrir okkur jafnt sölu og
tæknihlið málsins. Vegna þess munum við með ráðningu
á aðalumboðsmanni leggja mikla áherzlu á að viðkomandi
sé duglegur seljari, sér þekking á vörum er ekki afgerandi,
þar sem nauðsynlegar upplýsingar munu verða gefnar ftf
verfesmiðjunni í Danmörku. Við höfum hugsað okkur að
koma á fót einu aðalumboði fyrri allt ísland, en einnig
kæmi til greina að deila því á 2 til 3 umboðsmenn. Nauð-
synlegt handbært stofnfé fyrir allt aðalumboðið ásamt
vörulegar eru danskar kr. 60.000.— Skriflegar umsóknir
sendist vinsamlegast til verksmiðjunnar.
Forretningsfprer A. Martinus
. Fabrikken „LASA“
Birk, Heming
Danmark.
AUKIN ÞÆGINDI - AUKIN HÍBÝLAPRÝÐI
J A l\l O IVI E
saumavélin
er einmitt fyrir ungu frúna
Jr JANOME er falleg
JANOME er vönduð
JANOME er ódýrust
JANOME er með innbyggðu
vinnuljósi.
★ og það sem meira er. — JANOME
er sjálfvirk zig-zag saumavél,
framleidd í Japan af dverghögum
mönnum.
JANOME saumavélin er nú seld til 62
landa og allstaðar orðið vinsælust. —
JANOME er saumavélin
sem unga frúin óskar sér helzt.
— ★ —
Æskan er hagsýn og veit
hvað hún vill — hún velur JANOME.
— ★ —
JANOME saumavélin er fyrirliggjandi.
JANOME saumavélin kostar kr: 6.290.—
(með 4ra tíma ókeypis kennslu)
Tfekla
Simi
21240
Laugavegi
170-172
»
y
Á