Morgunblaðið - 12.08.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.08.1964, Blaðsíða 2
MORGUNMAÐIÐ Miðvikudagur 12. águst 1964 m- ■ # • ■ að IMorræna húsinu til æturjeit að gamalli konu s syms S LÖGREGLA og hjálparsveit bHÍNN heimskunni finnski^ skáta í Hafnarfirði leituðu í alia =arkitekt, prófessor Alvar= fyrrinótt að gamalli konu, sem =Aalto, hefur sem kunnugt er| *—-* u-: r-~ ~~~ 5 Fannst á gangi á Breiðholtsvegi í gærmorgun * á hverju kvöldi Sjtekið að sér að gera uppdrættij =að „Norræna húsinu“, sem| =fyrirhugað er að reisa ÍH jpteykjavík. Líkan að bygging-s =|unni samkvæmt tillögu pró-H =fessorsins verður til sýnis al-H Htnenningi í anddyri Þjóðminjap Msafnsins dagana 14.-20. ágústjjj Sn.k. kl. 13,30-16 daglega. —s pMyndin sýnir likanið að hús-p =inu.. = I iiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiitatftiiiiiiitiiiiii farið hafði að heiman frá sér i Kópavogi og villzt. Fannst konan á Breiðholtsvegi í gærmorgun, furðu hress, og er talið áð hún hafi gist í hlöðu um nóttina, en sjálf er konan sagnafá um ferðir sínar þessa nótt. Nánari atvik voru þau að um kl. hálf ellefu í fyrrakvöld fór Björg ÞorkeLsdóttir, 81 árs, Hlað- brekku 18, að heiman frá sér, en hún býr hjá dóttur sinni og tengdasyni. Mun gamla konan hafa haft að venju að ganga sér Guðmundur í. Guðmundsson ú bíuðumunnufundi í Osld Osló, 11. ágúst. Einkaskeyti 1 frá Sk. Skúlasyni. OSLÓARBLÖÐIN birta í dag frásagnir af heimsókn Guðmund ar I. Guðmundssonar til Noregs og viðtöl við ráðherrann undir fyrirsögnunum: „Norsk asdic- tæki gefa íslendingum tækrfæri til síldveiða allt árið“ (Arbeider bladet), „Vonir um stöðvun verð bólgunnar á fslandi" (Aftenpost- en), „Engin vandamál varðandi utauríkisstefnuna“ (Morgenblad- et), „Norsk tæki stuðla að auk- inni síldveiði íslendinga" (Morg- enposten), og „Mótmælin gegn Atlantshafsbandalaginu heyrast varla á íslandi'* (Nasjonen). Guðmundur í. Guðmundsson ræddi við fréttamenn í gær og hóf fundinn með umræðum um stjórnmálaástandið á íslandi. Sagði hann að undanfarin tuttugu ár hafi samsteypustjórn- ir setið að völdum á fslandi „en ég held að sú stjórnmálasam- vinna Sjálfstæðisflokksins og völd, reynist traustust þeirra.“ Ráðherrann sagði að stjórnin ætti við fá vandamál að stríða varðandi utanríkismál, og að dvöl - bandarískra hermanna í landinu væri ekki lengur sú póli tíska „bomba“, sem fyrr, Því næst ræddi ráðherrann nokkuð aukna síldveiði við fsland, sem ætti rót sína að rekja til dýptamæla og Asdictækja. Mesta vandamál fslendinga sagði Guðmundur í. Guðmunds- son að væri verðbólgan. Sagði hann að undanfarin 20 ár hafi verlag og kaupgjald stöðugt far- ið hækkandi og atvi/inulífið lam að af árlegum verkföllum. En í júlí gerðu vinnuveitendur og stéttarfélög kjarasamninga til eins árs í fyrsta skipti eftir öll þessi ár. Utanríkisráðherrann snæddi hádegisverð hjá Hans G. Ander- sen, sendiherra, ásamt Halvard Lange, utanríkisráðherra, og Johan Cappelen, sendiherra á Alþýðuflokksins, sem nú fer með j íslandi. I ✓ SVSOhnúisr K Snjófrom* 9 Q*j 7 JW - Þrvmttr HiteskÉ H Hmt L L*s*L í GÆR var veður yfirleitt múla, 15 st., en víðast hvar kyrrt og hlýtt á landi hér, en 10-12 st. hiti. Grunn lægð var býsna þokusælt á miðum norð fyrir sunnan landið, en hæð an lands, einkum að nætur- norðan undan og ekki teljandi lagi.Kl. 15. var hlýjast á Síðu breyting þennan sólarhring. til hressingar fyrir sV'efn. Er hún var ekki komin heim undir miðnætti, fór tengdasonur hennar að svipast um eftir henni í nágrenninu, en fann hvergi. Var þá lögreglunni gert aðvart, og hófst skipuleg leit kl. hálf eitt um nóttina. Hjálparsveit skáta í Hafnar- firði kom á vettvang með spor- hund, en hann kom ekki að not- um sem skyldi, því skátamir höfðu verið við æfingu með hann fyrr um kvöldið, og þarf hundur- inn þá að hvílast. Var leitað skipulega alla nóttina, um Aust- urbæinn í Kópavogi allar götur ínn í Blesugróf, en án árangurs. í gærmorgun var síðan lýst eftir Björgu í útvarpinu og 15 mínútum síðar var hringt frá tveimur húsum, og tilkynnt að kona, sem svaraði til útvarpslýs- ingarinnar, væri á gangi á Breið- holtsvegi. Fór lögreglan þangað og fann þar Björgu. Hún var fá- mál um ferðir sínar, en hin hressasta. Af heyi í fötum henn- ar draga menn þá ályktun að gamla konan hafi gist í hlöðu í Blesugróf um nóttina, en hún þekkir ekki vel til í Kópavogi og nágrenni og hefur villzt í göngu ferðinni. — Gubm. I. Guðm. Frh. af bls. 1 þegar hafa komið þangað 250 þúsund gestir. Munch, sem lézt árið 1944, arfleiddi Osló-borg að 1026 málverkum, 4473 teikning- um og vatnslitamyndum, 15391 steinprentunum og sex högg- myndum, auk fjölda skjala og bréfa. Johan Langaard, forstjóri safnsins, tók á móti utanríkis- ráðherra og sýndi honum safnið. f kvöld fór Guðmundur í. Guð- mundsson flugleiðis til Aalesund, á vesturströnd Noregs, í fylgd með Halvard Lange, utanríkis- ráðherra. Á flugvellinum tók Dagfinn Flem, borgarstjóri og ritstjóri, á móti gestunum ásamt Oscar Larsen, ræðismanni ís- lands. Borgarstjórafrúin, Ragn- hild Flem, færði íslenzku \ ráð- herrafrúnni blómvönd. Síðan var haldið til Hotel Noreg. þar sem kvöldverður var snæddur. Þar flutti Flem borgarstjóri ræðu og frú Oddfríður Sætre erindi um íslendinga, sem setzt hafa að á Sunnmæri. Um 30 gestir sátu kvöldverðarboðið. Á morgun mun Guðmundur í. Guðmundsson skoða Spjelkavik Skofabrik, sem er staprst sinnar tegundar á Norðuriöndum, og heimsækja húsgagnasmiðjuna Stokke Fabrikker. Þaðan verður haldið til veitingahússins „Fjell- stua“ á Akslafjalli, sem gnæfir yfir Aalesund. Síðdegis á morg- un fara svo Guðmundur í. Guð- mundsson og fylgdarlið hans áleiðis til Bergen með bifreiðum, og liggur leiðin um ýmsa feg- urstu firði Noregs. Gestirnir munu gista í Tris Hotel í Nord- fiord aðra nótt, en aka þaðan á fimmtudag 145 kílómetra leið til Vadheim og fara þaðan>með skipi til Bergeo. Síldin stendur djúpt og er sögö mjög stygg ER MBL. hafði samband við sUd- arleitina á Dalatanga seint í gær- kvöldi höfðu fregnir borizt af því, að nokkrir bátar hefðu kast- að þá um kvöldið, en ekki hafði frétzt um árangur. Var flotinn einkum í Reyðarfjarðardýpi og á Gerpisflaki og ennfremur nokkr- ir bátar í Norðf jarðardýpi. f gær- dag lóðuðu skipin á mikla síld, einkum á tveimur fyrrnefndu Skipaður f orstöðu- maður skattarann- sóknadeilda SAMKVÆMT breytingu, sem gerð var á lögum um tekju og eignarskatt á síðasta Alþingi skyldi stofna sérstaka rannsókn- ardeild við embætti Ríkisskatt- stjóra. Fjármálaráðherra hefir í dag skipað Guðmund Skaftason for- stöðumann deildarinnar. Guð- mundur lauk prófi í viðskipta- fræðum frá Háskóla íslands 1948 og lögfræðiprófi frá sama skóla 1952, og er jafnframt löggiltur endurskoðandi. (Frá Fjármálaráðuneytinu). — Kýpur Framhald af bls. 1 mótmælt. Fulltrúar í öryggis- ráðinu voru í fyrstu tregir til að halda framhaldsfund um Kýpur- málið þar sem svo virtist í dag sem vopnahléið á eyjunni væri haldið. En fyrir ítrekaðar um- sóknir Rossides var loks fallizt á að koma saman. Hófst fundur- inn kl. 10 í kvöld (ísl tími). Þótt skothvellir hafi heyrzt víða á Kýpur í dag, er ekki vitað um nein meiriháttar átök milii tyrknesku- og grískumælandi manna á eyjunni. Vitað er að hermenn úr liði stjórnarinnar, sem er eingöngu skipaður grísk- ættuðum mönnum, hélt um stund arsakir uppi skothríð á svæðinu við þorpið Kokkina, og hefur talsmaður stjórnarinnar viður- kennt það. En hann bætti því við að skothríðin hafi aðeins stað ið skamma stund, og að stjórn Tyrklands hafi tifkynnt, að hún teldi þetta ekki brot á skilmál- um vopnahlésins. Svo virðist sem báðir aðilar leggi mikið upp úr því að vopna- hléið verði, en fréttamenri segja að það geti reynzt erfitt, því lítið þurfi til þess að upp úr sjóði a ný. stöðunum, en síldin stendur mjög djúpt. — Frá Raufarhöfn bárust þær fréttir í gærkvöldi, að um 120 mílur austur af Raufarhöfn hefði einnig verið lóðað á mikla síld, en hún hefði bæði staðið djúpt og verið ákaflega stygg. Vonuðu sjómenn í gærkvöldi, að síldin mundi spekjast er kæmi fram á nóttina. í fyrradag var saltað liðlangan daginn á Raufarhöfn, alls um 8,000 tunnur. Eftir þann dag höfðu samtals verið saltaðar á Raufarhöfn 59,819 tunnur, og skiptast þær svo eftir söltunar- stöðvum: \ Óðinn 11,102, Hafsilfur 10,726, Borgir 9,678, Norðursíld 8,470, Óskarsstöð 6,797, Björg' 4,241, Síldin 3,878, Gunnar Halldórsson 3,396i Skor 1,281, Möl 185 og Hólmsteinn Helgason 65. Hagstætt veður var á síldar- miðunum í fyrrinótt og fengu mörg skip góðan afla. Aðalveiði- svæðið var í Norðfjarðardýpi og Gerpisflaki, og einnig voru nokk- ur skip að veiðum ANA af Langa nesi, og var síldin á þeim slóðum mun betri. / ' Síldarleitinni á Raufarhöfn 'og Dalatanga var alls kunnugt um áfla 62 skipa kl. 7 á mánudags- morgun til kl. 7 í gærmorgun, og nam hann samtals 32,530 málum og tunnum. Eftirtalin skip til- kynntu mestan afla: Ögri 2300, Garðar GK 1400, Seley SU 1100, Gísli lóðs 1000, Guðrún Jónsdótt- ir ÍS 1000, Sigurpáll 1000, Helga Guðmundsdóttir BA 1000, Gull- faxi 1300 og Þorbjörn GK 1000. 1 FLATEYRI, 10. ágúst: — Síð- j astliðinn föstudag milli kl. 3— ! 4 var fólksbifreið á leið frá ! Þingeyri til Bolungarvíkur ek- ! ið út af veginum í Önundar- ! firði nálægt bænum Vífils- ! mýrum. Bifreiðarstjórinn virð ! ist hafa misst stjórn á bifreið- : inni í beygju, sem er þarna á ; veginum, en hún er ekki j kröpp. Síðan ekur hann út af j liáum kanti framhjá brú, j sem er þarna á Hestá og lend- j ir á toppnum niður í ánni, sem Xer þarna nokkuð djúp. Þetta var allhrikaleg útaf- ! keyrsla en hvorki bifreiðar- ! stjóra né farþegann, 12 ára ! pilt, sakaði. Þeir komust báðir ! út úr bifreiðinni og svömluðu j í land, en höfðu á leiðinni og j við það að komast út úr bif- j reiðinni drukkið mikið af ! vatni. — Bifreiðin er allinikið ! skemmd. Myndin er af bílnum í ánni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.