Morgunblaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 1
32 síður ! i Sokolov hjónunum vísað úr landi Baiidarísk yfirvöld treystu sér ekki til að leiða gagn-njósnara fram sem vitni Nú hefur verið samið um takmarkaðan fjölda vegabréfa fyrir V- Berlínarbúa til að fá að heimsækja ættingja í Austur-Berlin. Er mynd þessi tekin af biöröð í V-Berlín við vegabréfaskrifstofuna í Neukölln. Tíí! ára og kominn í háskóla Ungur stærðfræðingur vekur athygli i Bandarikjunum PAÐ HEFUR vakið mikla furðu að tiu ára drengur, Michael Grost, hefur fengið innritun i Michigan-háskóla í Bandaríkjunum, en þar hefur hann þegar fengið að hlýða á fyririestra í eitt ár og tekið próf með mjö^ góðum vitnis- burði. Er Michael álitinn yngsti nemandinn, sem fengið hefur inntöku í háskóla. Michael Grost tók próf í stærðfræði við Miehigan-há- skólann, en próf þetta er ætlað 18 ára nýstúdentum. Stóðst hann prófið með prýði, því 99% þeirra, sem prófið tóku með honum, hlutu lægri einkunnir en hann. Einnig tók Michael próf í stærð- fræði með kandidötum, er iásu undir doktorspróf, og var hann í hópi þeirra tíu af hundraði, sem hæstar eink- unnir hiutu. Michael litli er sonur yfir- kennara í borginni Lansing, höfuðborg Michigan-ríkis, og þegar hann var aðeins 414 árs tóku foreldrar hans allt í einu eftir því að hann var orðinn læs. Síðan hefur hann verið mjög bókhneigður, og meðal annars lesið kennslu- bók í skák. Varð það til þess að hann tók þátt í skákmóti í heimaborg sinni í fyrra, og bar sigur af hólmi á mótinu. En Michael á eitt sameigin- legt með mörgum jafnöldum sínum. Þegar honum var heit- ið verðlaunum ef hann yrði efstur á háskólaprófi í nú- tímasögu Evrópu og Asíu, kaus hann sér tíu bækur með myndasögum. Á prófinu hlaut hann hinsvegar „aðeins“ aðra einkunn, og varð því að láta sér nægja fimm myndasögu- bækur í verðlaun. Sálfræðingar hafa rann- sakað Michael, og eru það þeir sem skýrðu fréttamönn- um frá furðulegum námsferli hans fyrr í vikunni. Segja þeir að Michael hafi tekið gáfnapróf við háskólann og staðið sig svo vel að ekki hafi verið unnt að gefa honum einkunn fyrir, en að öðru leyti væri hann eðlilegur og ófrá- brugðinn jafnöldum sínum. Það eina, sem háir honum við námið er rithöndin. Hann á erfitt með að skrifa góða rit- hönd, og tefur það hann við prófin. (Svend Áhman í Dagens Nyheter) New York, 3. okt. — (NTB) Þ A Ð vakti almenna furðu í gær þegar dómstóll í New York ákvað að láta Sokolov hjónin laus og fella niður málaferli gegn þessum á- kærðu rússnesku njósnurum. En strax og málinu hafði ver- ið vísað frá voru Sokolov hjónin flutt í fangelsi þar sem þau híða nú dóms um brott- vísun úr landi. Pegar mál rússnesku hjónanna var tekið fyrir rétt sl. mánu- dag var því spáð að stórfrétta væri að vænta frá málaferlun- um. Var talið að þetta yrðu mestu njósnamálaferli í Bandaríkjun- um í mörg ár og að þarna kæmu fram. fróðlegar upplýsingar um njósnastarfsemi Rússa í Banda- ríkjunum, En svo gáfust banda- rísk yfirvöld upp á áframhald- andi málarekstri, og er talið að ástæðan sé sú að við framhalds- rekstúr málsins hefðu yfirvöld- in þurft að kalla sem vitni ýmsa gagn-njósnara, sem ekki var heppilegt að kæmu fram í dags- ljósið. ^ Dómarinn, sem skipaður var í þessu máli, John Dooling, sagði þegar hann lýsti yfir niðurfell- ingu málsins: „Pessu máli verð- ur ekki fram haldið, vegna þess að hinir ákærðu eiga, samkvæmt stjórnarskrá okkar, kröfu á op- inberum málaferlum, og að fá að hlýða á ákærurnar, og hitta þau vitni, sem bera gegn þeim. Or- yggi landsins heimilar ekki að vitnin komi fyrir opinn rétt.“ Sokolov-hjónin voru handtek- in 2. júií 1963 ásamt Igor Jegorov, fulltrúa Sovétríkjanna hjá Sam- einuðu þjóðunum, og konu hans. Var seinna skipt á Jegorov-hjón- unum og tveimur bandarískum mönnum, sem handteknir höfðu verið í Sovétríkjunum fyrir njósnir. En neitað var að afhenda Sokolov-hjónin, og hefur mikil leynd ríkt yfir máli þeirra ailt til þessa. Er nú búizt við að þeim verði vísað úr landi hið bráðasta. Óeirðir á frlandi Lý&veldissinnar vilja enn reka Breta frá Norður írlandi Belfast, írlandi, 3. okt. (NTB) ÍRSKIR lýðveldissinnar efndu til óeirða í Belfast í gærkvöldi, að- eins hálfum mánuði áður en kosningar eiga að fara fram í landinu. Vörpuðu þeir heimatil- búnum handsprengjum að lög- reglumönnum, sem voru á verði við flokksskrifstofur lýðveldis- sinna i borginni. Ekki er kunn- ugt um að manntjón eða slys hafi orðið á lögreglumönnum. Ástæðan fyrir óeirðunum mun vera sú, að lögreglumenn höfðu tvívegis í vikunni dregið niður flagg lýðveldissinna af fánastöng á skrifstofuhúsi flokksins í Bel- fast. Safnaðist mikill mannfjöldi saman við skrifstofuhúsið í gær kvöldi og varð lögreglan að beita kylfum til að dreifa honum. Er vitað að 14 manns meiddust lítil- lega í nótt í þeim átökum. Hámarki náðu óeirðirnar rétt undir miðnætti, þegar bjórstof- um og dansstöðum var lokað, og voru 12 menn handteknir. Voru þeir sakaðir um að hafa varpað grjóti og tómum flöskum að lög reglumönnum. Lýðveldissinnar vilja að Norð ur-írland, sem heyrir undir Bret land, verði sameinað írska lýð- velidnu. Hefur Terence O’Neill forsætisráð'herra, skorað á alla landsmenn að sýna stillingu. Stúðentar mótmæla af- hendingunni Kaupmannahöfn, 3. okt. (NTB) STJÓRN nemendafélags heim spekideildar Kaupmannahafn- arháskóla hefur sent K. B. Andersen, fræðslumálaráð- herra, orðsendingu, oig varað hann við að leggja fram á þingi fruinvarp um afhend- ingu handritanna til íslands. Stjórn nemendafélagsins bendir á að Konungsbók oig Flateyjarbók fjalli um þau mál er varði Svíþjóð og Nor- eg jafnt og ísland. Þar að auki segir stjórnin að Flateyjarbók sé ein af örfáum gömlum heimildum um fornsögu Fær- eyja 0\2T Grænlands. Skorar stjórnin á hið nýkjörna þing að taka afhendingarmálið til nýrrar athugunar og nánari rannsóknar áður en atkvæða- greiðsla fer fram. Segir stjórnin að með afhendingu lítilsvirði þingið skoðanir margra vísindamanna. í dag, sunnudag, hefst í Helsingfors fegurðarsamkeppni Norður landa, og verður þar kjörin l'ng frú Norðurlönd. Meðal þátttakenda eru tvær íslenzkar stúlkur, og sjást þær á meðfylgjamdli mynd ásamt stöllum sínum frá hinum Norðurlöndunum. Stúlkurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: SirpaWallenius og Sirpa Suosmaa frá Finnlandi, Margrét Vilbergsdóttir og Þorbjörg Bernhard frá íslandi, Britta Ulle rt og Yvonne Mortensen frá Dan mörku, Brit Sveindal og I.iv Bang frá Noregi og Birgitta Alverljung frá Sviþjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.