Morgunblaðið - 04.10.1964, Side 10

Morgunblaðið - 04.10.1964, Side 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 4. okt. 1964 Þ j dðféfagsþ róu nin-f o rsenda breytinga á skólakerfinu útdráttur af fyrirlestri dr. Torsten Husén, A ÞRIÐJUDAG og miðvikudag: flutti dr. Torsten Husén, prófess- or frá Stokkhólmi, fyrirlestra um skólamál í Háskólanum. Dr. Husén er einn þekktasti uppeldis fræðingur í Evrópu. Hann kenn- ir uppeldisfræði við Kennara- háskólann í Stokkhólmi og Stokk hólmsháskóla, auk þess sem hann veitir forstöðu rannsóknarstofn- un fræðslumála i Svíþjóð. Fyrri fyrirlestur dr. Hauséns /jallaði um þjoðfélagslegar for- sendur endurbóta á skólakerf- inu, en hinn síðari um skóla á menntaskólastigi í Evrópu og Bandaríkjunum. Morgunblaðið mun birta út- drátt úr báðum fyrirlestrum dr. Huséns, fyrri greinina í dag, en hina síðari í næstu viku. „Það er sagt, að við lifum í þróunarlandi. Hverskonar sveigj- anleiki á við í löndum, þar sem íramleiðslan er í örum vexti. Ofsahröð fjölgun nemenda og skóla helzt í hendur við hækk- andi þjóðartekjur. Fleiri og fleiri unglingar ganga lengur Og lengur í skóla. Þessi þróun hefur meðal helztu iðnaðarþjóða farið langt fram úr öllum spádómum og komið aftan að þeim, er um stjórnvölin halda. Skortur á skólahúsum og kennurum er sameiginleg plága í Evrópu og Bandaríkjunum. í þeim löndum, þar sem haldið er áfram að veita öllum greiðan aðgang að fram- haldsmenntun og flestir ungling- arnir eru því teknir að stunda skóla, í stað þess að vinna að framleiðslu, er skólayfirvöldun- um mikill vándi á höndum, því að að nauðsynlegt er að aðlaga skólakerfið þessum breyttu háttum. Yandinn er fyrst og fremst sá, hvernig skipuleggja megi skóla fyrir alla unglinga. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir þeim breytingum á högum fólks, sem liggja að baki auk- inni aðsókn að menntastofnunum, og hver áhrif þær kunna að hafa á skipulag fræðslumála". „Það var ekki fyrr en á síðustu árum, sem menn tóku að gera sér fulla grein fyrir því, hvé náin tengsl eru milli efnahags þjóðar og fræðslumála hennar. >að er því engin tilviljun, að tvær nýja vísindagreinar hafa sprottið upp. Ég á við saman- burðarkennslufræði („compara- tive education“), sem skoðar fræðslu í ljósi sögulegra, þjóð- íélagslegra og hagfræðilegra verkana í ólíkum löndum, og fræðsluhagfræði („economics of education"), sem athugar fræðsl- una frá því sjónarmiði, að hún sé fjárfesting þjóðfélagsins". „Vitaskuld verða skipulag og starfshættir skóla að laga sig eftir þeim aðstæðum, sem eru í breytilegu þjóðfélagi. En slík aðlögun er ekki eins auðveld og margir halda. í reyndinni er hægara að breyta snögglega um stefnu í stjórnmálum en fræðslu- málum. Skólar, t.d. æðri skólar tneð aldagamlar, hefðbundnar venjur, eiga ekki létt með að laga sig að þeim þjóðfélagsaðstæðum, sem skapazt hafa á fáeinum ára- tugum. Yfirleitt er það einkenn- andi fyrir skóla, sem stofnun, að mörgum ráðamönnum hættir til að kæra sig kollótta um þjóð- félagsþróunina. Margir telja hlutverk kennarans aðeins vera það að gefa nemandanum þann skammt af fræðum, sem áskilinn er í fræðslulögunum, — eða rétt- ara sagt í kennslubókunum”. f»á kom prófessor Husén með nokkrar tölur tál að sýna hina geysilegu aukningu skólagöngu. Kvað hann nú yfir 90% allra 14-17 ára unglinga í Bandaríkj- unum sækja skóla, en 2% árið 1870. Á árunum milli 1955 og 1965 kvað hann tölu nemenda á aldrinum 15-19 ára næstum mundu tvöfaldast. Milli 1950 og ’60 hefði tala háskólastúdenta tvöfaldazt. í Svíþjóð hefðu árið 1930 aðeins 9% nemenda haldið áfram í gagnfræðaskóla eða öðr- um framhaldsskólum að loknu skyldunámi. 30 árum síðar var sú tala komin upp í 48%. Hlut- fallstala stúdentsprófa, miðað við fjölda tvítugs fólks á hverjum tíma, tvöfaldaðist frá 1945 til 1955 og búizt er við, að hún verði næsta ár enn orðin tvisvar sinn- um hærri en 1955. „Einkennandi er fyrir þróun- arlönd“, sagði prófessor Husén, ,,að atvinnulífið tekur skjótum umskiptum. Vélvæðing, sjálf- virkni og skipulagning breyta liáttum framleiðslu og dreifing- ar. Nýir atvinnuvegir verða til og aðrir hverfa úr sögunni við þessa þróun, sem kölluð hefur verið síðari iðnibyltingin. Sam- eiginlegt er með öllum atvinnu- greinum, að aukin skipulagning Fyrri grein. krefst aukinnar sérþekkingar af einstaklingnum. Tiltölulega ört vaxandi eftirspurn er eftir fag- ,ærðu fólki, til framleiðslu- og skrifstofustarfa, en tala verka- manna lækkar“. Prófessorinn ræddi um það, hve tíð umskipti í starfi fylgja aukinni tækni og skipulagningu. Flestir þeirra unglinga, sem hættu námi að lokinni skóla- skyldu, eyddu meirihluta starfs- æfi sinnar í öðrum atvinnu- greinum en þeir hefðu lagt fyrir sig í fyrstu. Aðrir við fram- leiðslu, sem lögð yrði niður. Enn aðrir við starfsemi, sem ekki hefði þekkzt í þeirra skólatíð. „Þetta er auðvitað mjög mikil- vægt að hafa í huga, þegar fræðslukerfið er skipulagt, eink- um þegar ákveða á hlutfallið milli almennrar fræðslu og sér- greindrar atvinnufræðslu. Skóli í breytilegu þjpðfélagi þarf um- fram allt að kappkosta að leggja breiðan grundvöll þeirrar kunn- áttu, sem oftast er nefnd almenn rnenntun. Þetta er lífsnauðsyn, ekki aðeins vegna framhalds- menntunar, heldur einnig til að nemendurnir eigi hægar með að skipta á þekkingu sinni og ann- arri nýrri og fullkomnari“. Dr. Husén sagði, að kannanir, sem gerðar hefðu verið t.d. í Bandaríkjunum, hefðu leitt í ljós mikinn mismun á hæfni manna með ólíka almenna mennt un til að breyta um starfsað- ferðir, t.d. vegna tækniþróunar, enda þótt tæknimenntun þeirra væri hin sama. Kvað prófessor- mn það mikla skammsýni að leggja mikla áherzlu á að sér- greina fræðslu snemma í skól- um, þar sem almenna fræðslan væri sá grundvöllur, sem gerði mönnum kleift að læra til nýrra atvinnuhátta, sem sífellt væri að breytast. „Segja má, að tvö sjónarmið liggi til grundvallar öllum skól- um, sem sameiginlega má kalla grunnskóla", sagði prófessorinn. , í fyrsta lagi skólinn skal hjálpa nemendunum sem einstáklingum til að öðlast þá menntun og velja þá starfsgrein, sem við þeirra hæfi er. Kalla má þetta frjáls- ræði lýðræðislega möguleika til menntunar. Hver unglingur skal, án landfræðilegra, þjóðfélags- legra eða efnahagslegra skilyrði, fá beztu menntun, þ.e.a.s. fá á sem beztan hátt þroskað hæfi- leika sína. í öðru lagi: Þjóðfélag- ið hefur rétt til að krefjast þess, Dr. Torsten Húsén að hæfileikunum, eftir tegund ug magni, sé sem bezt varið. Þetta er þjóðhagslega sjónar- miðið. í þróunarlöndum eru hæfileikar náttugæði, sem með réttri meðhöndlun geta stuðlað að aukningu framleiðni og um ieið velmegunar". „Hvernig á að skipuleggja skóla, sem verði sameiginlegur fyrir öll börn. Spurningin hefur í raun og veru verið sú, að hve miklu leyti skuli gæta áhrifa æðri skóla þegar í grunnskóla. Með lengingu skólaskyldunnar hefur grunnskólinn tekið að halda lengra samsíða æðri skóla“. „Allir virðast sammála um það, að hver nemandi skuli fá þá menntun, sem hæfi honum bezt. En hvee-á að ákveða, hvað hæfir honum, — skólinn, nemandinn eða foreldrar hans?“ Þá ræddi prófessorinn um hinn algenga misskilning, að draga megi börn í dika eftir gerð hæfileika, skipta þeim í tvo hópa, þá sem hafa tæknigáfur og hina sem hafa bóklegar gáfur. Þetta kvað hann á röngum for- sendum byggt, þar sem athug- anir hefðu leitt í ljós, að þeir nemendur, sem betur gengi að læra bóklegar greinar, ættu yfir- leitt að sama skapi auðveldara rneð að nema tæknigreinar. Þá sagði dr. Husén, að nefndir, sem skipaðar hefðu verið til athugana fræðslukerfisins í Svíþjóð, hefðu flestar komizt að þeirri niður- stöðu, að ekki væri ráðlegt að aðskilja hina bókgreindari frá strax 11-12 ára, þar sem ekki væri á þeim aldrei hægt að ákveða á óskeikulan hátt, hverj- ir væru bókgreindastir. Hann sagði þarna einkum gæta mis- munarins milli raunverulegs riámsárangurs og námsárangurs þess, sem nást kynni með aukn- um þroska og breyttu umhverfi. í þeim skólum, þar sem al- gengt er að nemendur falli eða nái ekki tilskildri einkunn til að flytjast milli bekkja, kvað dr. Husén könnun í Bretlandi og Sviþjóð sýna, að unglingar frá heimilum með lakari afkomu og lítt skólagettgnum foreldrum féllu miklu oftar en aðrir eða hættu skólavist. Brezkir fræðslu vísindamenn skýri svo frá, að fjórum sinnum fleiri nemendur af alls ómenntuðu foreldri helt- ust úr lestinni en jafnaldrar þeirra með álíka námshæfileika. „Þá komum við að öðrum rök- semdum í skipulagningu fræðslu mála. Sumir segja nefnilega, að það sé sóun á gáfubörnum, að láta hina tregari félaga þeirra hindra þau við námið. Bókhneigð börn og gáfuð eiga að fá tæki- færi til að háma í sig eins mik- mn vísdóm og hæfileikar þeirra ieyfi í aðgreindum deildum eða skólum. Jafnvel hinum tregari sé hagur að þessu, þar sem þeim sé hlíft við þeirri minnimáttar- kennd, sem oft skjóti upp koll- inum, þegar þau geta stöðugt borið saman kunnáttu sína og hinna skarparl félaga sinna“. „Við skulum staldra aðeins við fyrri röksemdafærsluna: Þjóðfélagið hagnast á því, að hinir gáfuðu menntist út af fyrir sig. Venjulega líta menn á, að hin góða menntun stúdenta, t.d. sænskra í samanburði við bandaríska, sanni þennan mál- ílutning. Slíkur samanburður er að tvennu leyti ófullkominn. Hóparnir eru ekki sambærilegir. t fyrsta lagi ná aðeins um 10% unglinga á þeim aldri stúdents- prófi. Hins vegar Ijúka um 60% allra 18 ára unglinga í Banda- ríkjunum prófi úr framhalds- skóla. Þessvegna ætti að bera saman bezta sjöttahlutann af þessum unglingum og samsvar- andi unglinga í Evrópu. í Öðru lagi er ekki tekið með í reikn- inginn, hve dýru verði þjóð- íélagið kaupir gæði þeirrar framleiðslu, sem nær prófinu. Ef, eins og gerist í mörgum iöndum, meira en helmingur nemendanna, sem komizt hafa í gegnum ströng inntökupróf inn í framhaldsskólann, heltast úr lestinni áður en stúdents- prófi er náð, þá er gæðavaran dýru verði keypt. Þeir nemend- ur, sem hætta námi eða falla, eru ekki bara hinir tregari af hópn- um, heldur einnig nemendur með góða námshæfileika frá heimilum, sem ekki eru nógu menntasinnuð til að koma þeim gegnum skóla. Við könnun hefur komið í ljós að tala þeirra sem hætta námi í gagnfræðaskóla er í réttu hlutfalli við þjóðfélagsstétt ír, þótt miðað sé við börn með líka hæfileika og námsárangur. Allir, sem hætta snemma í skóla, skapa þióðfélaginu tjón, hverjir sem bæfileikar kunna að vera, því að þróunarlönd skortir alltaf fag- íærðan vinnukraft“. „Hin ströngu lágmarksskil- yrði sem sett eru nemendum innan skólakerfis Evrópu, hafa verið þjóðfélögunum dýr. Ef reynt er að finna, hve stór hluti af akademiskum gáfum þjóðar er ekki tekinn frá á 10 til 12 ára aldri, má gera hæfnisprófanir á nemendum annarra framhalds- rkóla og fæst þá talan 40-70%. Úrvalsskólinn, þ.e.a.s. sá skóli, sem vill skilja bókhneigð börn frá hinum eins snemma og kost- ur er á, hefur í för með sér mikla sóun gáfna, stórum alvar- legri sóun en að láta nemendur með mismunandi hæfileika ganga saman í skóla eins lengi og mögulegt er“. „Niðurstaða mín er sú, að þróunarland þarfnist ekki sér- skóla fyrir úrvalsnemendur, heldur skóla, þar sem nemend- urnir geta smám saman að eigin vali beint lærdómi sínum inn á þá braut innan takmarka al- mennrar fræðslu, sem hæfileik- ar þeirra og áhugi lagar þá. Slíkt kerfi er sveigjanlegt að því ieyti, að ein mistök í vali vara tkki endanlega. Þótt nemandi velji þessi grein fremur en hina, er það t.d. ekki fastákveðið, hvort hann gengur menntaveg- inn eða leggur stund á iðn. Að velja úr nemendum, meðan þeir eru á skólaskyldualdri, er ósamræmanlegt við þau grund- vallar atriði nútímans, að menn hafi nokkurn sjálfsákvörðunar- rétt um framtíð sína“. — Kvenskátar Framh. af bls. 2 ekki fyrr en árið 1919 að Lady Baden-Powell stofnaði alheims- ráð með það markmið að koma á sambandi milli hinna ýmsu þjóða. Árið 1928 voru gerð frum drög að alþjóðabandalagi kven- skáta í þeirri mynd sem nú er. Árið 1930 var síðan formlega gengið frá stofnun Bandalags- ins og Lady Baden-Powell kjör- in albeimshöfðingi. Hornsteinar alþjóðabandalags- ins eru skátaheitið og skátalög- in. Tilgangur bandalagsins er að vinna að því að efla sambug og skilning á grundvallarlögmálum kvenskáta u.m víða veröld og að stuðla að vináttu meðal stúlkna allra þjóða. Fullkomnir aðilar i alþjóðabandalaginu getur kven- skátbandalalag þeirrar þjóðar orðið, sem hefur sjálfstæða stjórn, er ópólitískt, er opið öll- um stúlkum án tiilits til litar- háttar, þjóðernis, trúarbragða eða stéttarskiptingar. Alþjóðaráðstefniur eru nii haldnar 3 hvert ár, fulltrúar hvers lands greiða sameiginlega 1 atkvæði, þannig að Monako sem fæsta skáta hefur er jafn- áhrifamikið og Indland og Bandaríkin með allar þeirra milljónir. Alþjóðaráðstefnan kýs 12 konur í alþjóðastjórn til 9 ára. Formaður stjórnarinnar er frú Dora Lykiardopouloa frá Grikklandi, en hún er blaða- fulltrúi Grikkjakonungs. Alþjóðastjórnin kýs fram- kvæmdastjóra til 3 ár-a í senn. Stjórnar hún skrifstofunni sem er til húsa í London, þar starfa 16 konur af mörgum þjóðernum og 3 erindrekar sem ferðast víða og aðstoða við uppbyggingu skátastarfs. Dame Leslie Waht- ely núverandi framkvsemda- stjóri er íslenzkum kvenskátum að góðu kunn síðan hún heim- sótti okkur 1962. Um næstu ára- mót tekur frk. Signie Dreyer við starfi fraimkvaamdastjóra. Frk. Dreyer var kvenskátahöfðingi Svíþjóðar um árabil, en hefur undanfarið verið framkvaemda- stjóri alþjóðasaimtaka K.F.U.K. I Sviss. Árið 1940 var opnuð í New York undirskrifstofa fyrir vest- ur helming hnattarins (Western Hemisphere Center). Fram- kvæmdastjóri þar er varafram- Mvæmdastjóri alþjóðabandalags- ins. Alþj óðaskrifstof an annast margskonar útgáfustarfsemi. Það kunnasta er foringjablaðið Council Fire, sem hefur komið út óslitið síðan 1925. Alheimsfáninn er tákn sam- takanna. Það er gullinn simári á sterkbláum feldi. Fáninn er notaður af alþjóðabandalaginu og af einstökum löndum ásamt þj óðarf ánanum. Alþjóðamerkið er það sama og í fánanum og það geta allar stúlkur borið sem hafa unnið skátaheitið. Think- ing Day — 22. febrúar, afmælis- dagur Lord og Lady Baden- Poweli er sameiginlegur dagur allra skáta í heiminum. Þant* dag reyna flestar skáta stúlkur að gefa sem svarar einu penny (50 ísl. aur) í sjóð, en þeim sjóði er síðan varið til styrkar skátastarfi þeirra landa sem mesta þörf hafa hverju sinni. i eigu alþjóðabandalagsins eru 4 staðir þar seim kvenskátar geta komið og dvalið um lengri eða skemmri tíma, ýmist til þjálfun- ar, sótt alþjóðafundi eða til að eyða |ríum á sumri eða vetri. Þessir' staðir eru: Our Chalet I Svissnesku ölpunum, var vígt 1932. Olave House, vígt 1936 i London. Það er hótel eða heim- ili fyrir 52 stúlkur, þar geta 12 stúlkur haft allt að árs dvöL Our Cabana í Mexioo var vígt 1957. ísl. kvenskátar hafa dlvalið á öliium þessum stöðum og lát- ið vel af. 4 staðurinn Sangam á Indlandi verður vígður í lok þessa árs. Skátahreyfingin er í sjálfu sér lærdómur enda þótt að kennslu aðferðin séu leikir, en með alvarlegu takmarki þar aem stúlkurnar læra í frístund um sínum starfsemi sem gierir þeim léttara að vaxa upp í að verða góðir borgarar síns landst, BorfhiMw Fenger,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.