Morgunblaðið - 04.10.1964, Side 19

Morgunblaðið - 04.10.1964, Side 19
t Sunnudagur 4. okt. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 19 iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiimKiiiiiiiiiiiiiiiii^iitiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiHJiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiitiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiuiiiitiiiiiiiiiiiítmiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiira fH Gist um borð i liSS Independence á flotaæfingum á Atlantshafi Tvö stærstu farþegaskip heims kæmust fyrir á flugþiljum IH EITT AF því fyrsta, sem okk- ur íslenzku blaðamönnunum var sagt þegar við komum um borð í bandaríska flugvéla- móðurskipið Independence fyrir nokkru, var að bæði Queen Mary og Queen Elisa- beth gæti staðið hlið við hlið á flugþiljum þess. Skip þetta er svo stórt að ef stefni þess næmi við Morgunblaðshúsið, væri skuturinn uppi í miðju Bankastræti, og breiddin er álíka og frá Tryggvagötu um Pósthússtræti, yfii- Hafnar- stræti og Austurstræti að Austurvelli. Eins og gefur að skilja er Independence eitt stærsta her skip heims, enda eins og fljót andi borg með á fimmta þús- und íbúa um borð. En þótt íbú arnir séu ekki fleiri eru þarna t.d. 14 kvikmyndahús og sýn- ingar í þeim öllum á hverju kvöldi. Auk þess er eigin sjón varps- og útvarpsstöð um borð þar sem sjá má og heyra bæði kvikmyndaða dagskrá frá Bandaríkjunum og einn- ig eigin dagskrá, sem skipverj ar sjá um. Svo eru þarna tvær prentsmiðjur, sjúkrahús fyrir 84 sjúklinga með 4 læknum, þrjár tannlæknastofur, hár- skerar, klæðskerar, 12 sölu- búðir o. fl. Þarna eru bakarí, sem baka um 1500 brauð á dag, þvottahús, sem sendir frá sér 1000 tonn af þvotti á ári, og viðgerðarverkstæði, er sinna þörfum allra skipanna í flotadeildinni, en þau eru tíu. Og svo mætti lengi telja. Um borð í þetta risaskip komum við tveir íslenzkir blaðamenn sunnudagsmorgun inn 20. september sl. eftir sól- arhrings dvöl um borð í flug vélamóðurskipinu Wasp. Og þarna áttum við að gista í tvo sólarhringa og fylgjast með umfangsmiklum flotaæf- ingum á vegum Atlantshafs- bandalagsins á hafinu milli íslands og Noregs. Frá tildrögum þessa ævin- týris hefur áður verið skýrt hér í blaðinu. Við vorum nærri 50 erlendir og fjórir ís- lenzkir blaðamenn, sem fór- snemma á laugardagsmorgun um frá Keflavíkurflugvelli 19. september, og lentum um borð í Wasp, er þá lá suð- vestur af Reykjanesi ásamt fylgdarskipum sínum. Morg- uninn eftir fórum við Tómas Karlsson (Tímanum) svo frá Wasp ásamt meirihluta er- lendu blaðamannanna yfir Independence, en skildum félj laga okkar tvo, Benediktl Gröndal (Alþýðublaðinu) og Björgvin Guðmundsson (Vísi) eftir ásamt 10 blaðamönnum öðrum. Þeir Benedikt og Björgvin áttu að fylgjast með kafbáta hernaðinum, því Wasp var forustuskip flotadeildar, sem átti að sjá um að engir „óvina kafbátar“ kæmust nálægt. En sérstakur „Guli floti“, sem í voru 15—20 kafbátar, átti að sitja fyrir flotanum okkar, er nefndist „Blái flotinn". Hlut- verk Bláa flotans var að sigla inn á yfirráðasvæði kafbát- anna og gera ímyndaða „kjarn orkuárás“ á Noreg. Seinna átti svo Blái flotinn að halda suður til Biskayaflóa og gera samskonar „árás“ á Holland, Belgíu og V-Þýzkalands. Bláa flotanum var skipt í þrjár Robert Windsor, skipherra á Independence, á stjórnpalli. stjórnandi árásardeildarinnar. „Óvinaflotinn“ var undir stjórn enn eins aðmíráls, Hor ace Law, og vissum við aldrei fyllilega hverju liði hann hefði á að skipa. En fyrsta fyrirsátin, sem við vissum um var út af suð-aústurströnd ís- lands. Tókst Bláa flotanum að komast klakklaust í gegn, að því ér okkur blaðamönn- um skildist. En eftir því sem nær dró Noregi jukust erfið leikar Bláa flotans, því „óvin urinn“ réði yfir flugvélum og einhverjum skipum, sem að- setur höfðu í norskum bæki- stöðvum. Á leið út í Wasp. Myndin tek in frá þyrlu yfir Hvalsnesi á M iðnesi. deildir, kafbátadeildina, með Wasp sem forustuskip og fjór tán tundurspilla og freigátur sér til aðstoðar, árásardeild- ina með Independence sem forustuskip, en í þeim flota voru tvö beitiskip og sjö tund urspillar, öll búin eldflaug- um, og svo birgðaskipadeild, eða fljótandi sölubúðir og elds neytisstöðvar. Hvorki meira né minna en þrír aðmírálar voru um borð í herskipunum: Kleber Mast eson, sem stjórnaði sameig- inlegum aðgerðum alls" flot- ans, William McCormick, yfir maður kafbátadeildarinnar, og Robert L. Townsend, Lent um borð að kvöldlagi. Óboðinn gestur. Þó var það ekki þessi „ó- vinur“, sem vakti mestan á- huga fréttamanna, heldur allt annar og óútreiknanlegri gest ur. Á ég þar við skip og flug- vélar frá Sovétríkjunum, sem styttu okkur stundir meðan við vorum um borð í Inda- pendence. Daglega voru fund ir um borð, kvölds og morgna, með yfirmönnum NATO-flot- ans. Og á hverjum fundi var gerð grein fyrir ferðum þessa óboðnu gesta. Ekki vegna þess að flotaforingjarnir væru andvígir heimsókninni. Var helzt á þeim að heyra að þeim líkaði hið bezta við gestina. Sögðu þeir hvað eftir annað að heimsóknir Rússanna hefðu aukið mjög gildi æfing anna, því þær hefðu reynt mikið á gildi og hæfni leitar- tækjanna um borð í skipun- um. Eða eins og Townsend aðmíráll sagði á einum fund- inum: Rússar eru komnir til að kynna sér starfsemi flug- vélamóðurskipa, því þeir eiga engin og kunna ekkert með þessi skip að fara. En ég 'á- lít að við höfum lært mun meira af þeim en þeir af okk- ur. Hvað sem því líður hvor hefur lært af hvorum, þá er eitt víst. Við fréttamenn höfð um gaman af því að standa uppi á stjórnpalli hjá Robert Windsor, skipherra (captain), og horfa á tvo rússneska tund urspilla af Kotlin gerð, sem höfðu tekið sér stöðu aðeins í nokkur hundruð metra fjar- lægð frá Independence, og héldu þeirri stöðu hvernig sem siglt var. Og svo voru það sprengjuflugvélarnar. Venju- Iéga sáust þær í ratsjám skips ins í um 100 mílna fjarlægð, og voru þá sendar orustuþotur til að fylgja þeim. En þær komu • áfram að skipalestinni eins og ekkert hefði í skorizt, enda á alþjóða flugleið. Svo flugu þær þarna yfir, sumar í mikilli hæð, aðrar niður við sjó, og sinntu sínum verkefn- um, hvort sem það var að taka myndir eða eitthvað ann að. Wasp sökkt. Það kom okkur nokkuð spánskt fyrir sjónir í þessu sambandi eftir á, þegar okk ur var sagt að „skúnkar" (þ.e. rússneskar flugvélar) hafi nálgast skipalestina, en bandarískar þotur farið til móts.við þær og vísað þeim á brott frá flotanum. Fylgdi það fréttinni frá yfirmönnun um að rússnesku flugvélarnar hefðu komizt næst í 78 mílna fjarlægð frá Independence. Samt horfði ég á eina, sem flaug beint yfir skipið. Að vísu í mikilli hæð, en ekki 78 mílna hæð. Við Tómas vorum um borð í Independence þar til á þriðjudagsmorgun, 22. sept- ember, en þá átti að fljúga með okkur til bæjarins ör- land í Noregi, skammt fyrir norðan Þrándheim. Kvöldið áður en við fórum frá borði var fundur með Townsend að- mírál og Windsor skipherra. Aðspurðir sögðu þeir að hern aðurinn gegn Gula flotanum gengi að óskum og ekki væci búizt við að rekast á neina kafbáta á þessum slóðum. Við vissum ekki þá að fjórum tímum áður hafði einn af kaf- bátum Gula flotans „sökkt“ Wasp, flugvélamóðurskipinu, sem átti að stjórna öllum vörn um gegn kafbátum. Við fréttum ekki um örlög Wasp fyrr en við komum til Noregs daginn eftir og hitt- um blaðamennina, sem þar höfðu verið. Sögðu þeir svo frá að um klukkan 5 sd. hafi allt í einu verið skotið á loft grænu blysi um 200 metrum frá Wasp. En þetta blys kom frá kafbáti og þýddi að hann hefði verið í skotfæri við flug vélamóðurskipið og getað sökkt því. Og hann lét sér ekki nægja að skjóta blysinu á loft, heldur skaut hann upp sjónpípu sinni skammt frá skipinu. Þegar ég frétti þetta varð mér hugsað til félag- anna tveggja um borð í Wasp. Þeim hafði sem sagt verið sökkt þarna norður undir heimskautsbaug. Það var bót í máli þegar báðir komu skömmu síðar heilir heilsu til Örland, og hafði ekki orðið meint af. Hinsvegar vorum við fréttamenn á Independ- ence lítið hrifnir af því að hafa ekki fengið að vita um þennan mikla ósigur Bláa flot • ans fyrr en við komum í höfn. Til London. í örland dvöldum við fram á kvöld, og sátum m.a. kvöid- verðarboð F. H. Johannessen, aðmíráls, en hann er yfirmað ur varnarmála Noregs. Ræddi hann við fréttamenn um varn ir Noregs og benti á að Norð menn gætu með litlum fyrir- vara kvatt 250 þúsund manna lið til vopna. „Við erum ekki bardagamenn í eðli okkar“, sagði aðmírállinn, „en við er- um úrvals hermenn ef til þess neyddir“. Þegar við fórum frá Noregi áleiðis til London um kvöld ið var verkefni okkar í raun- inni lokið. En nú áttum við eft ir að bíða í London frá mið- vikudegi til sunnudags, því hér heima var okkur sagt að við ættum að koma heim með herflugvél frá Mildenhall, skammt fyrir norðan London, á sunnudag. Við vorum þrír saman í London, því Benedikt Gröndal hafði orðið eftir í Noregi til að heimsækja norska útvarpið og sjónvarp ið, en hann er sem kunnugt er formaður útvarpsráðs hér. A miðvikudagsmogun fórum við þremenningarnir á blaða- mannafund í varnarmálaráðu neytinu brezka og fengum þar nýjustu fréttir af flotanum. En eftir það vorum við á eig- in snærum. Okkur kom saman um að réttast væri að kanna hvort ekki væri allt í lagi með heimferðina, og snerum okk ur því til bandarísku flota- yfirvaldanna í London á föstu dag. En þá kom bobbi í bátinn því okkur var ságt að engin pöntun lægi fyrir frá íslandi um far handa okkur til Kefla víkur. Var það nánast sagt félögum mínum að þakka að leiðrétting fékkst á þessu, því þeir kröfðust þess að hringt yrði til forustumanna á Kefla víkurflugvelli til að fá far okkar staðfest. Fékkst það loks, og töldum við þá raun um okkar lokið. Reknir úr flugvélinni. Við héldum frá London kl. sjö á sunnudagsmorgun, og eftir tveggja tíma akstur kom um við til Mildenhall. Þar bið um við í rúma fjóra tíma, en stigum svo um borð í fornfá- lega „Skymaster“-flugvél, sem flutti okkur til Prest- wick í Skotlandi. Þar áttum við að eiga stutta viðdvöl. Eftir rúmlega klukkustundar bið voru nöfn okkar kölluð upp í hátalarakerfi flugvallar Framhald á bls. 30 IH i lllllllillllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllUlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllljllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllHllllllllllllllllllltlllllliiMIIIIIIIIIIIIIIIWIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllitllllllllllllllillllllllllllllU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.