Morgunblaðið - 04.10.1964, Side 30

Morgunblaðið - 04.10.1964, Side 30
JMf O'KG U N BLADi D Simnudagur 4. okt. 1964 r i — Independence ... Frh. af bls. 19 byggingarinnar, og við beðnir að hafa samband við afgreiðsl una. Þar var okkur tilkynnt að ekki væru sæti fyrir okkur 1 Skymaster-véljnni, sem halda átti áfram til íslands. Við áttum að verða eftir í Prestwick. 1 Það var eins gott að enginn stóð með segulbandstæki og tók upp orðbragð okkar í garð bandarísku upplýsingaþjónust unnar á íslandi, sem okkur var sagt að hefði láðzt að panta farið fyrir okkur. En við reyndum að malda í mó- inn og drógum upp öll okkar gögn. Þar á meðal var boðs- bréf í ferðina, sem var skrif- að „á vegum Macnamara, varnarmálaráðherra", blaða- mannavegabréf, undirritað af einhverjum bandariskum skipherra í London, o. fl. Eft ir að hafa lagt þessi gögn fram settumst við og biðum átekta. Hálftíma seinna var svo kaliað um hátalarakerfið að allir farþegar til Keflavíkur aettu að ganga um borð í vélina. Við létum eins og ekk ert hefði í skorizt og gengum til sæta okkar um borð. Þá kom í ljós að fjórir sjóliðar, sem voru að koma úr sumar- leyfi í Skotlandi, höfðu bætzt í hópinn, þótt flugvélin hafi verið fuilsetin fyrir. En þeim voru einhvernvegin útveguð sæti, og komum við til Kefla víkur eftir 18 tíma. ferð frá London. Einhverntíma hefði þetta ekki þótt löng ferð, en við höfðum fengið nægju okk Þegar litið er yfir farinn veg má segja að ferðin var mjög skemmtileg. Margt ný- stárlegt bar fyrir augu okk- ar og sérstaklega var gaman að ráfa um risaskipið Inde- pendence. En við komumst að því á eftir að varðandi blöð in og upplýsingar til lesenda þeirra var ferðin óþörf. Upp- lýsingarnar, sem við fengum, voru einhliða og oft rangar. Til dæmis má geta þess að þegar við stigum upp i flug- vél um borð í Independence til að fljúga til Noregs var okkur sagt að við yrðum í London klukkan átta um kvöldið. Við lentum í Milden hall klukkan eitt um nóttina og gistum þar til morguns. Komum ekki til London fyrr en daginn eftir. Við um borð í Independence fengum engar upplýsingar um ferðir Wasp og flotadeildarinnar, sem því skipi fylgdi, eins og bezt sézt af fregninni um það þegar Wasp var sökkt. Okkur voru gefnar alrangar upplýsingar um ferðir rússnesku flugvél anna, jafnvel þótt við hefðum verið sjónarvottar að því þeg ar þær flugu yfir flotadeild- ina. Og, síðast en ekki sízt, mjög erfitt var að koma frétt um frá borði. Flesta.r fréttirn ar voru löngu komna áleiðis frá fréttastofum í London áð ur en pistlar okkar bárust flugleiðis á áfangastað. En ég hefði samt ekki viljað missa af ferðinni. b t. ÞINGHOLTSSTKÆTI 23. Hef opnað lækningastofu að Klapparstíg 25. Viðtalstími samkvæmt umtali. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 11228 kL 10,30—11 f.h. Sigurður Þ. Guðmundsson.- Hef opnað lækningastofu að Sólvallagötu 8; Keflavík frá og með 5. október. Viðtalstimi virka daga kl. 1—2 e.h. og eftir umtalL Stofusími fyrst um sinn 1800. Vitjanabeiðnir á stofutíma kl. 1—2. Vinsamlegast geymið auglýsinguna Ólafur Ingibjörnsson, læknir. I Fiski-skip til sölu Vélskipið Stígandi Ó.F. 25 er til sölu, ef viðunanlegt tilboð fæst. Vélin er tveggja ára Alpha-diesel 300 hk. Báturinn var búinn nýtízku tækjum og endur- byggður fyrir tveimur árum. Upplýsingar gefur: Sigurður Baldvinsson, Ólafsfirði, Jóíavörurnar komnar Hannyrðaverzlun Þuríðar Sigurjónsdóttir Aðalstræti 12 — Sími 14082. FóBk vantar til frystiliússtarfa FI8KLR hf. Hafnarfirði. — Sími 50-993. Rerklavörn Reykjavík Eins og að undanförnu, verður kaffisala í Breið- firðingabúð á Berklavarnadaginn, í dag, frá kL 3 til kl. 6 e.h. Þær konur, sem hugsuðu sér að gefa kökur, vin- samlega hringi í síma 20343, Fríða Helgadóttir; eða 32044, Laufey Þórðardóttir; eða þá á skrifstofu S.Í.B.S., sími 22150. ' NEFNDIN. Getum útv^gað með stuttum fyrirvara hinar heims- þekktu M.A.N. Dieselbifreiðar af öllum gerðum. Kynnið yður gæði M:A.N. — M.A.N. er það bezta sem völ er á. Af sérstökum ástæðum höfum við til sölu nýja M.A.N. bifreið, með tækifærisverði. Bifreiðin hefir 8100 kg. burðarþol á grind og 144 ha. „M“ dieselvél. Allar upplýsingar gefa: — Einkaumboðsmenn fyrir M.A.N. á íslandi: Ólafur Gíslason & Co. hf. Ingólfsstræti la — Sími 18370. Tökum upp á morgun nýja sendingu af Alundco jerseykjólum Höfum fyrirliggjandi mikið úrval af SAMKVÆMISKJÓLUM og DAGKJÓLUM, Ódýrir SKÓLA- og SKRIFSTOFUKJÓLAR, SKOKKAR og PILS. Sérlega fallegar HELANCA SÍÐBUXUR. Ennfremur REGNKÁPUR og VET RARKÁPUR. GÆÐAVARA Á GÓÐU VERÐI. Tízkuverzlunin G U Ð R Ú l\I Rauðarárstíg 1. Bílastæði við búðina — sími 15077.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.