Morgunblaðið - 11.10.1964, Blaðsíða 5
Sunnudagur 11. okt. 1984
MORGUNBLAÐIB
HLJÓMAR í LIVERPOOL
HÉR eru bítlarnir islenzku,
Hljómar frá Keflavík, í ærið
nýstárlegu umhverfi, Cavern-
klúbbnum í Liverpool. Þeir
félagar eru nýkomnir heim úr
ferðalagi til Bretlands. Þeir
komu víða við á ferðalaginu
og dvöldu að sjálfsögðu
nokkra daga í bítlaborginni,
LiverpooL Þar komu þeir
fram í hinum margfræga Ca-
vern klúbbi, sem er vafalaust
frumlegasti samkomustaður,
sem um getur — niðurgrafin,
víðáttumikil kjallarahola. Á
þessum stað stigu Bítlarnir og
ótölulegur grúi annarra nafn-
togaðra hljóðframleiðenda
fyrstu skrefin í áttina til
frægðar. Hér er fæðingarstað-
ur bítilæðisins — hér upphófst
Rythm and Blues faraldurinn
og hér varð til dansinn Cavern
Stomp.
Blaðamaður Mbl. var stadd
ur i Cavern-klúbbnum, er
HLJÓMAR komu þar fram.
Þar sem klúbburinn er til húsa
í fremur skuggalegri hliðar-
götu var áður vöruskemma.
Enn er engu likara en að svo
sé. Naktar steinhvelfingar og
óslétt gólfið vekja strax furðu
ókunnugra, þegar inn er kom
ið. Borð eru engin og aðeins
örfáir stólarmar upp við svið-
ið.
Á hverju kvöldi koma
margar hljómsveitir fram í
Cavern. Þær koma hvaðan-
æfa að, jafnvel erlendis frá,
því að hér er öruggust leið
til frama — og fjár — ef vel
tekst til.
Þegar Hljómamenn heim-
sóttu klúbbinn, barst það til
eyrna stjórnandans, Bob Wool
er, að íslenzk unglingahljóm-
sveit væri stödd þar. Hann
stefndi piltunum óðar til fund
ar við sig — og bauð þeim
að taka lagið. Piltarnir fengu
siðan lánuð hljóðfæri hjá einni
þeirra hljómsveita, sem kom
fram þetta kvöld, Xhe Clay-
ton Squares.
Þegar stjórnandinn til-
kynnti, að komnir væru gestir
alla leið frá hinu kalda ís-
landi, fór undrunarkliður um
salinn.
Ekki minnkaði undrunin,
þegar hinir hárprúðu Keflvík-
ingar birtust á sviðinu og upp
hófu leik sinn. Virtist tón-
listin falla hinum brezku ung-
lingum mjög vel í geð, enda
af sama taginu og nú er hvað
vinsælust þar í landi. Er
skemmst frá því að segja, að
íslenzku piltunum var mjög
vel tekið og fagnaðarlætin er
þeir höfðu lokið leik sínum
hættu ekki fyrr en þau drukkn
uðu í lagi, sem stjórnandi
klúbbsins setti á plötuspilar-
ann.
Það sem eftir var kvöldsins
voru piltarnir umsetnir af ung
um aðdáendum, sem vildu fá
eiginhandaráskriftir þeirra í
bækur sínar.
Auk Hljóma komu fram í
Cavern klúbbnum þetta kvöld
hljómsveitirnar „The Es-
corts“, „The Hideaways", „The
Notions“ og „The Clayton
Squares“.
Það fór ekki milli mála, að
það voru íslendingarnir sem
mesta athygli — og hrifningu
— vöktu.
Á ferð og ílugi
Akranesferðir með sérleyfisbílum
1» Þ. Þ. Afgreiðsia hjá B.S.R. Frá
Ileykjavík alla daga kl. 6. Frá Akra-
nesi kl. 8, nema á sunnudögum kl. 3
Á laugardögum frá Rvík kl. 2 og á
sunnudögum kl. 9 e.h.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla hefur væntanlega farið í gær
frá Almería áleiðis til Reykjavíkur.
Asikja er væntanleg til Stettin í
kvöld.
H.f. Jöklar: Drangjökull kom í gær-
kvöldi til Sommerside frá St. John og
fer þaðan til Grimsby og Great Yar-
mouth. Hcxfsjökull er í Vestmanna-
eyjum fer þaðan til Stykkishólms.
Langjö-kull fór í gær frá Aarhus til
Hamborgar og Reykjavíkur. Vatna-
jökull fór frá Súðavik í gær til Húna-
flóa og Austfjarðar fer þaðan til
írlands.
Skipadeild S.Í.S.í Amarfell er á
Akranesi, fer þaðan til Rvíkur. Jökul-
fell er væntanlegt til Hornafjarðar 13.
frá Calais. Dísarfell er væntanlegt til
Hornafjarðar 12. frá Riga. Litlafell fór
í gær frá Esbjerg til íslands. Helga-
fell lestar á Austfjörðum. Hamrafell
er va^ntanlegt til Aruba 12. StapafeU
losar á Austfjörðum. Mælifell fer
væntanlega 1 dag frá Archangelsk til
Marseilles.
Hafskip h.f.j Laxá kemur til Rott-
erdam í dag. Rangá er í Kb.höfn. Selá
er í Rvik. Isborg kemur til Hamborg
ar á morgun. Erik Sif er í Fredriks-
havn. Atena er á leið til Austfjarðar-
hafna.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Sólfaxi fer til Glasgow og Kaupmanna
hafnar kl. 08:00 í dag. Vélin er aftur
væntanleg til Rvíkur kl. 23:00 í
kvöld. Sólfaxi fer til Glasgow og Kaup
VÍ8UKORN
Líður seint úr minni mér
mynd «1 Ijúfu kveldi,
þó ég félli fyrir þér,
freistingunna veldi.
Hjörleifur Jónsson á Gils-
mannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið.
Skýfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 á þriðjudaginn.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar og Vestmanna-
eyja. Á morgun: er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Vestmannaeyja, ísa-
fjarðar, Hornafjarðar og Egilsstaða.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka-
foss fer frá Hull 12. þm. til Rvíkur.
Brúarfoss fór frá Vestmannaeyjum 8.
þm. til Gioucester, Camden og New
York. Dettifoss fór frá NY 5. þm. til
Rvíkur. Fjallfoss kom til Rvíkur 10.
þm. frá Kaupmannahöfn. Goðafoss fer
frá Akureyri 10. þm. til Norðfjarðar
og Fáskrúðsfjarðar. Gullfoss fór frá
Rvík 10. þm. til Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá Fredrikshavn 8. þm.
til Jakobsted, Turku, Ventspiís, Kotka
og Gautaborgar. Mánafoss fer frá
Kaupmannahöfn 10. þm. til Gdynia,
Gdansk og Ventspils. Selfoss fór frá
Leith 9. þm. til Rvíkur. Tröllafoss er
í Leith. Tunguifoss fór frá Reyðar-
firði 7. þm. til Antwerpen og Rotter-
dam.
Utan skrifstofutíma eru skipafréttir
xlesnar í sjálfvirkum símsvara 2-1466.
*
*
*
Vor um haust
Sólbjartur morgun, móðir jörð er skartklædd,
merluð gull og silfurlitum haustsins.
Tignarleg ró er yfir öllu landi
og út til hafsins virðast bylgjur sofa.
Þær munu þó vaka, köid er undiralda.
Úrsvalir vindar blása senn af fjöllum.
Þess vildi ég óska vissulega öllum
að vorið héldist þá í sáium ungum.
Þá víkur burtu vetrarkvíðinn senn,
því vorið gerir okkur nýja menn.
(Hveragerði, 8. okóber, 1964).
STEFÁN RAFN.
i
Húsnæði til leigu
í miðbænum fyrir skrif-
stofu eða léttan iðnað. Upp
lýsingar í síma 13129, mánu
dag.
Bandaríkjamaður
óskar eftir 1 herb. og eld-
húsi og baði, með húsgögn
um, sem fyrst. Tilboð send
ist Mbl. fyrir miðvikudag,
merkt: „Algjör reglusemi
—9025“.
Harmonika
Mjög vönduð harmonika
4ra ‘kóra, til sölu. Sann-
gjarnt verð. Uppl. í síma
14492.
Bíll til sölu
Mjög glaesilegur bíll til
sölu, Moskwitch árg. 1958.
Uppl. í slma 15209, milli
kl. 18,30 og 19,30 á kvöld-
in.
Hvernig myndast þoka?
Þoka er vatnsgufa, sem hefur
þétzt og myndað dropa í loftinu
niðri við jörð. Hún myndast eink
um á tvennan hátt. Þegar hlýr
og rakur vindur fer um kaldan
jarðveg, myndast þoka, og eins
fer þegar sjór eða vatn er heit-
ara en loftið naest því, gufan,
sem kemur upp úr vatninu er þá
jafnheit því og þéttist því í köldu
loftinu.
Spakmœli dagsins
Hver telur ósigrana á degi
sigúrsins?
— B. Björnsson.
Óska eftir íbúð
Húshjálp gæti komið tii
greina. Uppl. í síma 40668,
ekki í Kópavogi.
Keflavík
Ný sending:
Fallegar perlon dömuhlúss
ur. ódýr amerísk buxna-
helti. Brjóstahöld, svört og
hvít.
Elsa, Keflavík. Sími 2044.
Flygill óskast
til kaups. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir n.k. fimmtu
dag, merkt: „Flygill—9020“
Vil kaupa
tveggja til fjögurra herb.
íbúð, milliliðalaust. Útb.
ca. 300 þús. Leiga á svip-
aðri íbúð gæti einnig kom
ið til greina. Tilboð send-
ist afgr. Mbl. merkt: „Ibúð
—9036“.
HAGKAUP
Þykkar kvengolftreyjur og peysur
úr 100% ull.
Margir litir, allar stærðir.
Verð kr. 348.-
Einnig amerískir nælonsloppar.
Verð kr. 175.-
Lækjargötu 4.
ROR
Va”—2” svört og galv. nýkomin.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15. — Sími 24137.
Silfurtunglíð
Nú leikur SOLO í kvöld.
Silfurtunglið
Sendisveinar óskast
Vinnutími kl. 9—12 f.h.
JMtfiQgtiitfrlaMfr
TIL SÖLU FISKIBÁTUR
Nýr 110 rúmlesta fiskibátur með öllum tækjum til
fiskveiða. Tilbúin til afhendingar nú þegar.
SKIPA-
SALA
Sími 13339.
Talið við okkur um kaup
*"vE5TIJRG0lU 5
Vélritunarskóli
Sigríðar Þórðardóttur.
Ný námskeið byrja um miðjan mánuðinn.
Upplýsingar í síma 33292.
i
...W "