Morgunblaðið - 29.11.1964, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.11.1964, Blaðsíða 31
Sunnudagur 29. nóv. 1964 MORGUNBLADIÐ 31 — Hús Dav/ðs Framihald af bls. 32. greitt þar. Heyrzt hefir að óformlegur fundur bæjarfull- trúa hafi verið haldinn nú í vikunni ~og full samstaða náðst þar um fyrrgreinda niðurstöðu málsins. Ríkisstjórnin óg fjárveit- ingarnefnd Alþingis munu hafa heitið að styrkja Akur- eyrarbæ við þessi kaup með Iþví að leggja fram 1 milljón króna. Málið hefir ,þó ekki verið afgreitt í fjárveitinga- nefnd ennþá. Óvilhallir menn hafa metið húsið, bækur og innanstokks- nauni og er matsverð hússins 1 millj. 350 þús., bóka 2,8 milljónir og innanstokksmuna S00 þús. kr. Þetta matsverð er lagt til grundvallar í samn- ingunum. Fréttamaður Mbl. hafði í dag tal af bæjarstjóra Magn- úsi F. Guðjónssyni og forseta bæjarstjórnar Jóni G. Sólnes og leitaði staðfestingar á þess um fregnum. í>eir vörðust báðir allra frétta, en létu að því liggja að málið yrði tekið .fyrir á fundi bæjarstjórnar á ,þriðjudaginn og þá tekin end- anleg ákvörðun. Eftir þann fund yrði gefin út fréttatil- kynning um málið. Þrátt fyrir þá leynd, sem yfir málinu hefir hvílt hjá bæjaryfirvöldum virðast ein- stakir þættir þess vera á all- margra manna vitorði nú, þeg ar. Margir Akureyringar eru afar óánægðir með þau úrslit málanna, sem nú virðast blasa við. beir meta góðan vilja bæjarstjórnar mikils og það, að hún hefir haft for- gongu um að bækur og gripir skáldsins megi varðveitast, en þeim finnst þó of skammt gengið. Þeir telja bókasafn og húsmuni Davíðs lítils virði eftir að búið er að rýma hús- ið hjá því sem verið hefði, ef allt hefði fengið að standa ó- breytt og óhreyft eins og skáldið hvarf frá því. Margir telja að með þeirri ráða- breytni sé verið að glata ein- stæðu tækifæri, sem þar með sé að fullu úr greipum gengið. Þeir eru þess fullvissir að mikill fjárhagslegur stuðn- ingur hljóti að berast frá ein- staklingum og félagssamtök- um bæði á Akureyri og víðar um land, enda e.t.v. ekki sann gjarnt að Akureyringar einir beri kostnað af kaupum á eigninni, þó að þeir að vísu njóti þar góðs stuðnings ríkis- sjóðs. Nokkrir áhugamenn um málið komu saman hér í bæ siðdegis í dag, ræddu það sín á milli og ákváðu að semja áskorunarskjal til bæjar- stjórn Akureyrar að festa kaup á húsi Davíðs með öllu því, sem í því er, svo það fái að standa með sömu um- merkjum um ókomin ár til minningar um hið ástsæla þjóðskáld. — Aðalfundur LÍÚ Framhald af bls. 32 Aðrir í stjórnina voru endur- kjörnir: Aðalmenn frá bátadeildt Jón Árnason, Akranesi; Valtýr Þor- steinsson, Akureyri; Jóhann Pálsson,Vestmannaeyjum; Ágúst Flygenring, Hafnarfirði; Baldur Guðmundsson, Reykjavík; Finn- bogi Guðmundsson, Reykjavík; Matthías Bjarnason, ísafirði; Márgeir Jónsson, Keflavík. Aðalmenn frá togaradeild: Loftur Bjarnason, Hafnarfirði; Sveinn Benediktsson,Reykjavík; Hafsteinn Bergþórsson, Reykja- vík; Ingvar Vilhjálmsson, Rvík; Ólafur Tr. Einarsson, Plafnarf.; Andrés Pétursson, Akureyri. Varamenn frá bátadeild: Jón Björnsson, Reykjavík; Tómas Þorvaldsson, Grindavík; Sigur- þór Guðfinnsson, Keflavík; Þór- arinn Pétursson, Grindavík; Víg- lundur Jónsson, ólafsvík; Júlíus Ingibergsson, Vestmannaeyjum; Albert Guðmundsson, Tálknaf.; Ölver Guðmundsson, Neskaupst. Varamenn frá togaradeild: Jónas Jónsson, Reykjavík; Jón Axel Pétursson, Reykjavík; Sæmundur Auðunsson, Rvík; Gísli Konráðsson, Akureyri; Valdimar Indriðason, Akranesi; Helgi Þórðarson, Hafnarfirði. í fundarlok var einróma sam- þykkt að gefa 25 þúsund krónur í sjóslysasöfnunina á Flateyri. Fram kom tillaga þess efnis að þar sem ekki sé vitað um fisk- verð og önnur þau mál, sem skapa grundvöll fyrir rekstri fiskiflotans á komandi vertíð skyldi fundinum frestað þar til málin liggja ljósar fyrir. Nýkjörinn formaður þakkaði fundarmönnum traustið, sem sér og meðstjórnendum hafi verið sýnt með endurkjöri og hann og fundarstjóri þökkuðu fundar- mönnum góða fundarsókn og vel- unnin störf á fundinum. Þeir árnuðu þeim heimfafar- heilla, sem fjarri búa. Nánar verður sagt frá hinum ýmsu ályktunum síðar. Sýning Braga r As geirssonar í ÞESSA dagana hefur Braigi Ás- geirsson sýningu í Gallerey 16. Sýningin var opnuð laugardag- inn 21. þ.m. að viðstöddu fjöl- menni og seldust þegar nokkur málverk. Bragi fór að fást við myndlist fyrir 15 árum og hefur óslitið laigt stund. á hana síðan. Hann stundaði nám víða í Evrópu og hefur dvalið langdvölum erlend- is. Bragi fékk styrk árið 1955 frá stórblaðinu Berlingske Tid- ende í Kaupmannahöfn og hélt sýningu þar 1956. Einkasafnarar víða í Evrópu og Bandaríkjunum hafa keypt myndir af Braga og hann á myndir á stóru opinberu safni í Maine í Bandaríkjunum. 1958 fékk Braigi styrk frá Sam- bandslýðveldinu þýzka og dvaldi í Múnchen í 2 ár. Þar lagði hann einkum stund á grafík og hefur unnið mikið af grafískum mynd- um síðan. Hann hefur kennt garflist við Handíða- og mynd- listarskólann undanfarin ár. Bragi hefur haldið 6 sjálfstæð- ar sýningar hér í Reykjavík, stórar otg smáar. Á sýningu hans núna eru 19 olíumálverk og 11 grafískar myndir. Sýning Braga Ásgeirssonar í Gallery 16 verður opin frá kl. 1—10 til miðvikudags 2. des- ember. (Fréttatilkynning). Odýrt — Ódýrt LEVER SKYRTAN Hvítar og mislitar ka^mannaskyrtur frá LEVER. Verð aðeins kr. 233 Dökkar, einlitar karlmanna prjónateryleneskyrtur VERÐ AÐEINS 288 kr. Einlit karlmannanáttföt mjög góð VERÐ 270 kr. Nlá NAHEllll TRELLEBORG SNJÚ- hjólbaroar ÝMSAR STÆRÐIR. Söluumboð: HRAUNHOLT v/Miklatorg. Gunnar Asgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16. í frétt blaðsins í gær um Bifreiðar og landbúnaðarvélar var mynd þessi óskýr en hún sýnir Guðmund Gíslason sýna dr. Kristni Guðmundssyni sendiherra og Jóhannesi Elíassyni banka- stjóra líkanið af „Trojka“. — Minningarorð bjuggu þau um árabil í Bolung- arvík, þar sem Jens starfaði að kennslu, auk þess sem hann átti sinn heilladrjúga þátt í ýmiss konar félagsstarfsemi, m. a. verkalýðsmálum, samvinnumál- um og síðast en ekki sízt bind- indismálum. Jens E. Nielssyni og Elínu Guðmundsdóttur var það og ljóst, svo sem öllum hugsandi mönnum, að hóf er bezt á hverj- um hlut og bindindissemin hverjum mnni þroskavænleg. Og það voru samhennt hjón, sem þarna unnu að, svo sem í öðru er þau tóku sér fyrir henur. Meðan þeirra naut við, vestur þar, er ekki of sagt, að teija þau meðal helztu forystukrafta bind- indisstarfsins um þær slóðir. Árið 1938 fluttust þau hjón og fjölskylda þeirra, hingað suður til Reykjavíkur, kom þar til veikindi eins sona þeirra, sem nauðsyn bar til, að hlyti þá læknisaðstoð, sem ekki var fyrir hendi vestra. Og hér andaðist Jens fyrir nokkrum árum. Eftir að þau fluttu hingað, hófu þau þegar starf fyrir bindindismálið, og gerðust bæði félagar st. Vík- ings. Og fyrir málefnið var starf að af sama kraftinum og ein- lægninni og áður. Um árabil átti Jens sæti í framkvæmdanefnd Stórstúku íslands, sem ritari hennar, sem er eitt mesta og vandasamasta starf framkvæmda nefndarinnar. Og þar eins og annarsstaðar naut starfshæfni hans og mannkostir sín. í st. Víking hefir Elín alla tið verið einn tryggasti' starfsmað- urinn, aldrei látið. sig vanta og alltaf verið boðinn og búinn til að leggja fram krafta sína. Elínu Guðmundsdóttur er árnað allra heilla á merkisdegi langrar og göfugrar ævi. Einar Björnsson. MELKA SKYRTAN ER SÆNSK ÚRVALSFRAM- LEIÐSLA HVÍTAR í ÞREM ERMALENGDUM melka mörg flibbasnið h erradeilp L .. B emsuskálar AUSTURSTRÆTI 14 LAUGAVEGI 95 SÍMI 12345 SÍMI 23862 ftvumai x auici löKdl UlirtflOir Chevrolet taxa ’59 Chevrolet ’51 — ’58 fólksbif. Ford ’55 — ’56 — Ford ’57 — ’59 — G-M-C ’51 — ’56 Va tonn STILLING H.F. Skipholti 35 — Sími 14340.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.